Morgunblaðið - 29.01.1985, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 29.01.1985, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 1985 Helgi Eggerts- son - Minning Fæddur 14. júlí 1932 Dáinn 18. janúar 1985 í dag, 29. janúar 1985, verður gerð útför Helga Eggertssonar, Fagrabæ 16, Reykjavík, en hann lést í Landspítalanum þann 18. janúar. Andlátsfregn hans kom óvænt, þrátt fyrir að vitað var að hann átti við vanheilsu að stríða hin síðustu ár. Helgi fæddist í Reykjavík þann 14. júlí 1932, sonur hjónanna ís- foldar Helgadóttur frá Ánastöð- um í Skagafirði og Eggerts Bjarna Kristjánssonar stýrimanns frá Bræðraminni, Bíldudal, en þau eru bæði látin fyrir nokkrum árum. Helgi var fimmta barn þeirra hjóna af átta sem komust upp, en tvö létust ung. Helgi ólst upp í Reykjavík á þeim árum sem miklar og hraðar breytingar áttu sér stað í þjóðlíf- inu. Fjölskyldan var stór og fá- tækt mikil á tímum kreppu og at- vinnuleysis. Fór Helgi snemma að vinna fyrir sér eins og þá var títt. Helgi tók gagnfræðapróf árið 1950 og fetaði síðan í fótspor föður síns og lauk prófi frá Stýrimanna- skóla íslands árið 1957. Hugur hans stefndi til sjómennsku. Var hann við þau störf þar til heilsa hans bilaði vegna brjóskeyðingar í baki, árið 1958. Það var þungbær reynsla fyrir hann að þurfa að hverfa frá sjómennsku, en fullan bata fékk hann ekki á meini sínu svo að hann varð að snúa sér að öðrum störfum. Hann hóf störf hjá Skýrsluvél- um ríkisins og Reykjavíkurborgar árið 1962 og starfaði þar er hann lést. Helgi var myndarlegur að vall- arsýn, ósérhlífinn til vinnu og samviskusamur. Heiðarlegur var hann og einlægur í samskiptum við fólk. Hann var stálminnugur og fljótur að tileinka sér skipulögð vinnubrögð. Sterkasti þátturinn í fari hans var greiðvikni, en hann vildi allra vanda leysa. Helgi var frændrækinn maður og lagði rækt við samheldni stórr- ar fjölskyldu, sem og vina og vandamanna. Hann var hjálpfús og nærgætinn þegar eitthvað bját- aði á og fyrstur manna að sam- gleðjast og gleðja aðra við ýmis tækifæri. Helgi tók þátt í félagsstörfum, m.a. í félaginu Fylki og vann þar mikið og óeigingjarnt starf. Árið 1962 kvæntist Helgi eftir- lifandi eiginkonu sinni, Jóhönnu Jóhannesdóttur frá Merkigili í Skagafirði, dóttur Moniku Helga- dóttur og Jóhannesar Bjarnason- ar. Voru Helgi og Jóhanna systra- börn. Þau eignuðust 6 börn, sem öll eru uppkomin og búa í Reykja- vík og eru barnabörnin 7. Á heimili þeirra var afar gestkvæmt, enda gestrisni húsráð- endum í blóð borin. Var þar oft glatt á hjalla, spilað á gítar og sungið, spaugsyrði flugu og hlegið dátt, en Helgi átti létt með að grínast og naut sín vel á þeim stundum. Eitt af áhugamálum hans var ljósmyndun og lagði hann sig fram við að taka ljósmyndir við ýmis tækifæri í stór-fjölskyld- unni, og síðustu ár hafði hann gaman af að taka myndir á kvik- myndavél. Margs er að minnast og margt er að þakka þegar litið er um öxl og rifjuð upp ótal atriði þar sem Helgi var driffjöðrin í að koma einhverri hugmynd í framkvæmd. Fyrir örfáum dögum boðaði hann öll elstu börn systkina sinna á sinn fund og setti á fót undir- búningsnefnd fyrir fjölskylduhá- tíð, en afkomendur foreldra Helga eru á annað hundrað manns. Fyrir nokkrum árum kenndi Helgi sér meins en 'hann lét lítið yfir veikindum sínum og fáa grun- aði að tími hans yrði svo skamm- ur. Þáttaskil verða nú í stórum hópi fjölskyldu, skyldfólks, vina og vandamanna við fráfall Helga, sem gegndi sérstöðu í hópnum vegna elskusemi sinnar, greiðvikni og fúsleika til að rétta hjálpar- hönd, en það gerði hann með því hugarfari að glöggt mátti finna að gjört var með gleði. Sárastur söknuður er hjá eig- inkonu hans sem sér nú á bak sín- um trygga og trausta lífsförunaut, hjá börnum og tengdabörnum og barnabörnum og síðast en ekki síst hjá aldraðri tengdamóður hans. Með þakklæti og trega kveð ég og fjölskylda mín elskulegan bróð- ur minn og sendi fjölskyldu hans mínar dýpstu samúðarkveðjur. Ásta M. Eggertsdóttir Liðlega átta ár eru liðin frá því ég hitti Helga Eggertsson fyrsta sinni. Að námi loknu réðst, ég tii starfa á skrifstofu Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar. Helgi starfaði þá í þjónustudeiló stofnunarinnar. Nokkru síðar æxl- uðust mál svo, að hann kom einnig til starfa á skrifstofunni, og þar með hófust okkar kynni, sem stóðu allar götur síðan. Ekki mun ég fjalla hér um þau fjölmörgu störf, sem Helgi sinnti á skrifstofu SKÝRR heldur reyna af veikum mætti að bregða upp nokkrum myndum af manninum, sem ég kynntist, því að það má með sanni segja að engum var Helgi líkur. Helgi sagði mér einhverju sinni að hann saknaði starfa sinna í þjón- ustudeild SKÝRR. En hann bætti við, að skaðinn hefði að nokkru verið bættur, þegar það kom í hans hlut að svara fyrir reikninga. sem stofnunin sendi frá sér. I þessum orðum endurspeglast lífs- viðhorf hans, maður er manns gaman. Það var honum víðsfjarri að loka sig inni og tala við vél allan daginn. Það ríkti engin lognmolla kringum Helga. Fjöldi fólks innan fyrirtækisins sem utan leitaði til hans með hin sund- urleitustu mál og aldrei brást lið- veisla Helga. Gagnvart viðskipta- vinum SKÝRR var hann einkar laginn að finna það jafnvægi, sem hvorki hallaði á þá né fyrirtækið. Starfssvið Helga var viðfeðmt. Reyndar hygg ég að einhver starfslýsing hafi aldrei hindrað hann i að vinna þau verk, er til hans bárust. Oft þurfti hann því að vinna langan vinnudag, en hann dró hvergi af sér, enda dugn- aðurinn og vinnusemin mikil. En að afloknum vinnudegi var það skylda að fara inn í eldhús. Helgi hitaði kaffi í sterkara lagi og svo var spjallað um heima og geima. Eru margar þessar stundir mér ógleymanlegar perlur. Margs er að minnast frá þeim tæplega sex árum, sem við störf- uðum saman hjá SKÝRR. Hins vegar rofnaði samband okkar ekki, þótt ég flytti mig um set. Varla leið sú vika að við hittumst ekki. Hann var vakinn og sofinn að útvega verkefni og leggja gott til málanna. Sú ræktarsemi, sem Helgi sýndi mér og félögum mín- um eftir að við hófum sjálfstæða starfsemi, lýsir þvílíkur mann- kostamaður hann var. Nú þegar ævi Helga er öll finnst mér sem kaflaskipti verði í lífi mínu. Sérstakur strengur hefur verið slitinn. Eggert Steingrímsson Hún er svo dimm og döpur þessi tið, sem dauðamyrkur grúfi yfir lýð, og leiðin byrgð sem lagði mannsins son. Þú Ijósið heims, ó tendra hjartans von. Og þegar nístir andann efinn sár, svo allt finnst tilgangslaust jafnt bros sem tár, þá er mín hjartans bænin sú, ó heilagi faðir auk mér, auk mér trú. (S.J. frá Arnarbæli) Það er alltaf erfitt að sætta sig við það þegar menn á besta aldri eru kvaddir frá okkur svo snögg- lega sem nú. Engum hefði dottið það í hug þegar Helgi fór í, að því virtist, hættulausa rannsókn á Landspítalann 18. þ.m. að líf hans yrði ekki lengra. Hvernig getur slíkt og annað eins skeð? En sjálfsagt hefur hann verið orðinn veikari en maður gerði sér grein fyrir, hann var alltaf svo hress og gerði jafnan lítið úr veikindum sínum, væri hann spurður eyddi hann jafnan því tali eða sneri því upp í góðlátlegt grín. Helgi Eggertsson fæddist 14. júlí 1932, hann kvæntist 14. janúar 1962 Jóhönnu Soffíu frá Merkigili í Skagafirði. Þau eignuðust sex börn sem eru: Monika Sigurlaug f. 8. febr. 1956, Jóhannes Guðsteinn f. 10. sept. 1957, ísfold Elín f. 28. júlí 1959, Ásgerður Margrét f. 15. febr. 1961, Áslaug Hrönn f. 30. júlí 1962 og Eggert Bjarni f. 14. nóv. 1963. Kynni okkar af fjölskyldunni hófust þegar Marteinn sonur okkar og Ásgerður dóttir þeirra hjóna hófu sambúð, bjuggu þau á heimili Jóhönnu og Helga. Til þeirra var gott að koma. Hann var hollur ráðgjafi og vinur barna sinna og tengdabarna. Og fáir hafa reynst okkur betur en Helgi. sérstaklega þegar mest á reyndi. Þegar við misstum Daníel son okkar af slysförum sl. vetur kom hann fyrstur manna með útrétta hjálparhönd og studdi okkur og aðstoðaði á allan hátt, sem honum einum var lagið. Fyrir það skal honum þakkað. Bestu stundirnar á sl. ári áttum við með þeim hjón- um, núna síðast á þrettándanum þegar sameiginlegt barnabarn okkar var fært til skírnar. öll sú athöfn var tekin á myndband. Helgi var mikill áhugamaður um ljósmyndun, og nú seinni árin var hann búinn að koma sér upp góð- um tækjum til upptöku á mynd- bönd, sem hann notaði óspart á góðum stundum. Og eflaust verður það safn dýrmætur fjársjóður fjölskyldunni er fram líða stundir. Það eru ekki margir dagar liðn- ir síðan við sóttum yngsta son okkar til þeirra hjóna. Hann hafði fengið að dvelja þar kvöldstund. Þeir sátu þar saman vinirnir (þótt aldursmunurinn væri um 45 ár) og horfðu á Tomma og Jenna, það mátti varla á milli sjá hvor skemmti sér betur. Það vai komin nótt þegar þau hjónin fylgdu okkur til dyra. Helgi kvaddi okkur brosandi og handtakið var hlýtt, það var okkar síðasta kveðja og þannig viljum við muna hann. Og nú er komið að leiðarlokum, svo allt of fljótt. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast slíkum öndvegismanni sem Helgi var. Elsku Jóhanna og börn, ykkar sorg er stór, huggunarorð mega sín svo lítils á svo stórri sorgar- stund. Það kemur aldrei neinn í staðinn fyrir þá persónu sem við missum. Megi minningin um mik- ilhæfan og góðan dreng vera ykk- ur huggun í harmi. En ósk okkar er sú að mannkostir hans megi lifa áfram í börnum ykkar og barnabörnum. „Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ Hulda og Stefán Föstudaginn 18. janúar bárust okkur þau hörmulegu tíðindi að Helgi tengdapabbi hefði látist þá um morguninn á hjartadeild Landspítalans. Við vissum auðvit- að að hann væri mikið veikur, en hins vegar óraði okkur ekki fyrir því að hann yrði kallaður burt frá okkur svo snögglega. En vegir Guðs eru órannsakanlegir og ef- laust hefur Guð þurft á honum að halda, eins og svo margir, sem hann í gegnum árin aðstoðaði á einn eða annan hátt af sinni ein- stöku hjálpsemi og fórnfýsi. Heimili hans að Fagrabæ 16 var líka miðpunktur þessarar stóru fjölskyldu og má segja að oft mætti líkja heimilishaldinu þar við lítinn samkomustað, því okkur þótti öllum afar notalegt að hitt- ast og rabba saman þar, og ávallt var tengdapabbi hrókur alls fagn- aðar og hafði yndi af að hafa sem flesta í kringum sig. Afabörnin fóru heldur ekki varhluta af félagslegum áhuga Helga heitins því auk þess að taka virkan þátt í uppvexti þéirra, sorgum og gleði, þá var hann að koma upp safni myndbanda, sem hann tók upp sjálfur á ýmsum æviskeiðum þeirra og geymir minningar um uppvöxt þeirra um ókomna framtíð. Þannig byrjaði hann einnig að taka myndir á bönd af litlu fótboltastrákunum í Fylki í Árbæjarhverfi, og nýtur margur knár knattspyrnukappinn þeirrar forsjálni að geta nú með eigin augum séð sín fyrstu s1 * knattspyrnuvellinum á barnsau Um jólaleytið kallaði Helgi saman nokkra af yngri meðlimum fjölskyldunnar til að stofna nokk- urs konar ættarmótsráð, í þeim tilgangi að stefna saman fjöl- skyldunni í það minnsta einu sinni á ári. Allir áttu að vera með, frá þeim elsta til þess yngsta. Ekki gat okkur grunað þá að í fyrsta skipti sem við kæmum öll þannig saman yrði til þess að kveðja frumkvöðulinn sjálfan hinstu kveðju. Við biðjum almáttugan Guð að blessa og styrkja Jóhönnu tengda- mömmu i hennar miklu sorg, um leið og við kveðjum með söknuði ekki aðeins góðan tengdaföður, heldur ekki síður einlægan félaga t Fósturfaöir okkar, GUNNAR HELGI GUÐJÓNSSON, Gnoðarvogi 30, andaöist í Landspitalanum, laugardaginn 26. janúar. Jaröarförin ákveöin siöar. Skarphéöinn Lýösson, Magnús Lýösson. t Sambýlismaöur minn, faöir og sonur, ÚLFAR P. M0RK, lést i Borgarspitalanum 26. janúar sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju 31. janúar kl. 10.30. Eiríka I. Þóröardóttir, Karen Sesselía Merk, Hans Samúelsson. t Eiginmaöur minn, sonur, faöir, tengdafaöir og afi, BALDVIN KRISTJÁNSSON rafvirkjameistari, Vesturbergi 119, lést i Landspítalanum 26. janúar. Sigríður Helgadóttir, Lilja Kristófersdóttír, Eyrún Baldvinsdóttir, Selma Baldvinsdóttir, Siguröur Haukur Haröarson, Ruth Baldvinsdóttir, Hringur Baldvinsson, Baldvín Mar, Rakel Ýr og íris Dögg. ! t Eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma, INGIBJÖRG GUDMUNDSDÓTTIR, Höfn, Hornafirði, I lést 27. janúar. Fyrir hönd vandamanna, Sigurður Sigfúsaon, Guömundur Sigurösson, Guöbjörg Síguröardóttir, Olga Siguróardóttir, Svanhvít Siguróardóttir, Maria Siguróardóttir, Sigfús Sigurðsson, tengdabörn og barnabörn. t Faöir okkar, tengdafaöir, afí og langafi, HJÖRTUR ÖGMUNDSSON fyrrum bóndi I Álfatrööum, andaöist á heimili sinu, Höröalandi 8, Reykjavik aö kvöldí sunnudagsins 27. janúar. Ása Hjartardóttii Ragnheiöur Hjartardóttir, Erla Hjartardóttir. Gunnar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.