Morgunblaðið - 29.01.1985, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. JANUAR 1985
47
Kirkjuorgelið mikla
Ragnar Þorsteinason, Hlíðarvegi
50, Kópavogi, skrifar:
Þann 18. jan. sl. ritar Guðrún
Helgadóttir grein í Morgunblað-
ið, „Orgelsjóður Hallgríms-
kirkju". Þar rekur hún harðan
áróður fyrir því að íslendingar
gefi fé í orgelsjóð kirkjunnar,
mikið fé. Hún virðist lítið vita
um yfirstandandi fjársöfnun til
bjargar fólki frá hungurdauða.
Þó segir hún á einum stað að
allir íslendingar hafi talsvert að
bíta og brenna og síðan orðrétt:
„En þeir hafa efni á að leggja
sinn skerf til íslenskrar menn-
ingar og íslenskrar listar og þeir
hafa um leið efni á að aðstoða
þau börn jarðarinnar, sem nú
búa við hörmungar hungurs og
kúgunar. Þaó getur á engan hátt
stangast á . . . (Leturbr. mín.)
Þarna er furðuleg fullyrðing.
Segjum að með því að kaupa
matvæli fyrir tíu milljónir
króna, þá björgum við þúsund
börnum frá hungurdauða, ef við
gefum tuttugu milljónir björg-
um við helmingi fleiri börnum.
Við eigum takmarkað af pening-
um en þörfin til líknar er næst-
um takmarkalaus. Við getum
ekki bjargað öllum. Ef við höfum
tuttugu milljónir aflögu, sendum
hungruðu börnunum aðeins tíu
milljónir, en gefum hinar tíu til
Hallgrímskirkju, þá erum við
einmitt með þeirri gjöf að valda
dauða eitt þúsund barna í
Eþíópíu. Hvernig getur þá stað-
ist að þetta geti á engan hátt
stangast á?
Guðrún segir: „Oft hafa staðið
um þetta mikla mannvirki hat-
rammar deilur, en nú er mál að
linni." Satt er að ekki tjáir að
fást um orðinn hlut. Þessi vafa-
sama skreyting á Skólavörðu-
holtinu er orðin staðreynd. En
það liggur ekkert á að fleygja
tugum milljóna króna í þetta
kirkjubákn til að standa autt
mestan hluta ársins eins og aðr-
ar kirkjur á íslandi. Við eigum
sannarlega nógu margar kirkjur
í Reykjavík. Og að taka peninga
frá deyjandi börnum úr hungri
til þess að kaupa dýrasta orgel í
heimi, er verknaður svo ljótur að
best er að gefa honum ekkert
nafn. Það vita allir hvað ég hef í
huga.
Tíminn líður og vonandi kem-
ur sú tíð einhverntíma að ekki
verður eins hörmuleg neyð í
Norður-Afríku og nú ríkir þar.
Þá getum við verið flottræflar og
keypt þetta orgel. En ef við höld-
um þessari orgelsöfnun áfram
nú, getum við innan tíðar sest og
hlustað á tóna sjötíu radda
orgelsins í Hallgrímskirkju. Þá
erum við að hlusta á dauðastun-
ur þúsunda barna, sem dóu úr
hungri á þurrkasvæðum Norð-
ur-Afríku. Við áttum peningana
sem gátu bjargað þeim, en kus-
um heldur að gefa þá í stein-
báknið mikla á Skólavörðuholt-
inu.
Minnumst þess að sömu pen-
ingarnir gátu ekki bæði farið til
matarkaupa og þar með björgun
mannslífa, og til kaupa á fimm
þúsund pípna orgeli. Þarna varð
að velja á milli og ég vil biðja
G.H. og aðra orgelóða að íhuga
vandlega hvorn kostinn Hall-
grímur Pétursson hefði valið.
Bréfritari segir að fé því sem safnaö hefur veriö í Orgelsjóð Hallgríms
kirkju vsri betur varið til hjálpar hungruðum í Afríku.
Hugleiðing um Lé konung
Guðni Björgólfsson skrifar:
Velvakandi.
Það er samdóma álit bestu
manna að þýðingar Helga Hálf-
danarsonar á leikritum Shake-
speares séu þvílíkt afbragð að ekki
verði öðru til jafnað. Góðfúsum
lesara fylgja athugasemdir með
hverju leikriti, orðaskýringar og
umþenkingar. Svo er einnig um
harmleikinn „Lé konung" sem
saminn er „sem næst árinu 1605“.
Harmleikur getur að sjálfsögðu
aldrei verið harmleikur nema að
menn geti sett sig inn í instru-
mentið eða það afl, efni og kring-
umstæður sem gera hann að slík-
um. En hætt er við að í slíkum
tilfellum verði forsendurnar sagð-
ar jafnmargar lesurunum nema
þær liggi þeim mun meira í augum
uppi, sem ekki er að heilsa í þessu
leikverki, sem betur fer.
Mér finnst hugleiðingar Helga
um „óvænta hegðun Kordelíu" í
upphafi leiksins lítt sannfærandi.
Skylt er að geta þess áður en
lengra er haldið að auðvitað hefur
þýðandi ekki gert kröfur um að
menn séu sammála sér um eitt eða
neitt í þessum efnum; hugleið-
ingar hans eru fyrst og fremst
leiðsögn, tilgátur.
Vel er hægt að fallast á að land-
aafsal konungs hafi vc-ið ákveðið
fyrirfram og skipting ríkisins er
gerð af nákvæmni. Einnig fer
veizlan fram með tilheyrandi
glamri og fláttskap og framkoma
Kordelíu „er umfram allt veizlu-
spjöll" þó tæpast sé um það að
ræða að skýra hana út sem „frá-
leit smámunasemi um form“. Það
liggur í loftinu í þeim talgreinum
sem Kordelía á útsviðs að þær eru
í raun ekki svar við orðum systra
hennar heldur nagandi efi um að
geta tjáð ást sína á sama hátt og
enn betur auk þess sem það bendir
til að samskipti hennar við Lé
konung hafi verið á annan veg
háttað en ætla má við fyrstu sýn.
Ekki er fjarri að líta á talgrein-
arnar og það sem eftir kemur í
sama ljósi og þá regin þverbresti
er koma fram hjá konungi sjálf-
um. En fleira hlýtur að liggja að
baki. Kordelía fer naumast að
hætta öllu til nema að baki liggi
veigamikil ástæða. En áður en að
því er vikið skal lesanda bent á þá
yfirþrúgandi spennu sem ríkir í
upphafsatriði þessa leikverks. Það
dylst engum þegar komið er að
orðunum „Loks er vort yndi, síðast
en ekki sízt“, hvað verða vill. Ekki
er fjarri að ætla að ofurást Lés
konungs á Kordelíu hafi hvorki
átt sér málsvara hjá honum sjálf-
um né Kordelíu því að talgreinin
„Nei, enginn, herra“ verður ekki
til án þess. Það sem á eftir kemur
ber að skoða í ljósi þess að flest
dýr merkurinnar verja afkvæmi
sín, en til eru þau skilyrði að þau
geri það ekki og á það við um
manninn sem og aðrar skepnur.
Það er því síður en svo að tilfinn-
ingar Lés konungs til Kordelíu
breytist í andstæðu sína heldur
renna þær í þann farveg sem að
ofan var lýst.
En að þessu öllu slepptu er einn-
ig freistandi að fara þá leið í út-
skýringu á hátterni Kordelíu að
hún um leið og hún brýst undan
valdi Lés konungs hafi ekki viljað
fá minna en hún lét af hendi, og
ekki verður annað sagt en að þann
„sannleik" sem hún hlaut, hafi
hún af hyggindum notað, þó að
öllum sé kunnugt um, að hann er
að hinu leytinu einskis virði.
Kvenrödd á morgunrásina
Sigríður skrifar:
Ég er ein þeirra fjölmörgu, sem
hlusta á Rás 2 á morgnana, mér til
hugarhægðar í skammdeginu. Ég
ætla ekki að fara að fjölyrða um
dagskrá rásarinnar, hún er oftast
létt og frískleg, eins og hún á að
vera, þó að stundum mætti nú
gjarnan eitthvað bitastæðara
fljóta með.
Hins vegar hef ég upp á síðkast-
ið verið að velta því fyrir mér,
hvers vegna aldrei heyrist kven-
rödd í þessum morgunþáttum,
nema söngkona sé á ferðinni.
Strákarnir, sem sjá um morgun-
þættina, eru flestir ágætir þó að
þeir komist misvel frá hlutunum
eins og gengur.
En við rásina starfa líka nokkr-
ar ágætar konur, sem skila sínu
efni yfirleitt með sóma og mér
finnst svolítið einhæft, að heyra
aldrei í kynsystrum mínum á öld-
um ljósvakans fyrir hádegið.
Er þetta einhver stefna, eða
bara tilviljun?
Eða er kvenfólkið á Rás 2
kannski bara svona miklu morg-
unsvæfara en karlarnir?
Andrews hítablásarar
fyrirgaseðaolíu
eru fáanlegir í fjolmörgum
stærðum og gerðum
i? ' JLW. ,
ioTw.
I 1*1
i
Algengustu gerðireru nú fyHríiggjandi
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
/
ÚTSALA
í HÚSGAGNADEILD
10%
AFSLATTUR
af öllum húsgögnum
KRISTJRfl
SIGGEIRSSOÍl Hfi
LAUGAVEGI 13. REYKJAVÍK, SÍMI 25870
@LITGREINING MEÐ
| CROSFIELD
LÁSER
LYKILLINN AO VANDAORI LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF.