Morgunblaðið - 10.07.1985, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1985
Þetta er mjög al-
varlegt vandamál
— segir Benedikt Gunnarsson forstööu-
maöur ferskfisksmatsins um gæðamálin í
mokveiöi togaranna á Vestfjaröamiöum
1000 laxar
í Kollafirði
í KJÖLFAR rigningarinnar í fyrra-
dag og fyrrinótt íór hafbeitarlax-
inn loks aó ganga upp í Kollafjarð-
arstöóina í gærmorgun. Komu þá
15—20 laxar í kistuna innan við
þjóðveginn.
Laxinn er enn í stórum torfum
í ósnum og rennunni inn að stöð-
inni og synda þeir þar fram og
aftur með miklum bægslagangi.
Taldi Sigurður Þórðarson stöðv-
arstjóri í Kollafirði að um há-
degið í gær hafi verið um 1.000
laxar við stöðina, og vonaðist
hann til að þeir gengju inn i
stöðina á flóðinu í nótt. Á stærri
myndinn: er Sigurður með einn
laxinn úr kistunni, u.þ.b. 12
punda hæng, en á þeirri minni er
lax að stökkva í sjónum-
M 0$** v*
Ekki grundvöllur
fyrir vinnslu kola
— segir Kristinn Pétursson, framkvæmdastjóri á Bakkafirði
„VIÐ reynum að fylgjast með þessu
og metum aflann sem kemur á land.
En við stjórnum hinsvegar ekki veið-
unum og er það því ekki á okkar
Þingvallavegur:
Að ári verða
þrír kflómetrar
ómalbikaðir
FRAMKVÆMDIR eru hafnar við
lagningu slitlags á 3ja kílómetra
kafla á Þingvallavegi, sem lokið
verður við í sumar, en þessi kafli var
undirbyggður fyrir varanlegt slitlag
á síðastliðnu ári. Þá verður einnig
undirbyggður sex kflómetra kafli á
Þingvallavegi í ár, sem áætlaö er að
leggja varanlegu slitlagi næsta
sumar. Eru þá aðeins þrír kflómetrar
á veginum til Þingvalla frá Reykja-
vík, sem ekki hafa verið lagðir var-
anlegu slitlagi.
Þessar upplýsingar fengust hjá
Rögnvaldi Jónssyni, deildarverk-
fræðingi hjá Vegagerð ríkisins.
Sagði hann að slitlag yrði lagt á 3ja
kílómetra kafla, frá Kárastöðum að
Móakotsá í ár. Þá yrði kaflinn frá
Móakotsá að Stórulandstjöm, sem
er nálægt þar sem Kjósarskarðs-
vegurinn kemur inn á Þingvallaveg-
inn, undirbyggður í ár, en þar er um
sex kílómetra kafla að ræða og væri
stefnt að að leggja slitlag á þann
kafla á næsta ári. Auk þessa verða
byggðar tvær brýr í ár á Þingvalla-
veginum, önnur yfir Móakotsá og
hin yfir Torfadalslæk. Þá verður
einnig að lengja Grafningsveginn
um kílómetra, vegna þess aö nýji
Þingvailavegurinn liggur sem því
nemur norðar en sá gamli á þeim
kafla.
valdi að hafa áhrif á hvernig að þeim
er staðið,“ sagði Benedikt Gunn-
arsson, forstöðumaður ferskfisk-
dcildar Ríkismats sjávarafurða, í
gær í tilefni fregna af skemmdum á
flski í mokveiði togaranna á
Vestfjarðamiðum og víðar.
Benedikt sagði að þessi árstími
væri alltaf afleitur. Fiskurinn
væri orðinn feitur og útbelgdur af
átu og væri því fjarskalega við-
kvæmur. Hann færi því gjarnan
illa þegar svona mikið veiddist,
ekki síst ef menn freistuðust til að
hafa veiðiferðina lengri en góðu
hófi gegndi vegna góðrar veiði, og
veiddu svo kannski meira en með
góðu móti væri hægt að koma
fyrir um borð. Væri síðasti fiskur-
inn þá settur ofan á kassana í lest-
inni eða á millidekkið, óþveginn og
illa eða alls ekki isaður. Á þessum
árstíma þyldi hann ekki svona
geymslu og væri dæmi um að slík-
ur þorskur færi beint í gúanó.
Sagði Benedikt þessi vandamál nú
þekkt fyrir norðan og hér fyrir
sunnan til dæmis í Vestmannaeyj-
um, Þorlákshöfn og Reykjavík.
Ekki vildi hann þó tiltaka nein
ákveðin dæmi.
Benedikt sagði að við þetta
bættust vandamál í vinnslunni.
Frystihúsin væru vanmönnuð á
sumrin, þar væru mest unglingar
sem kynnu lítið til verka og vant-
aði því mikið upp á full afköst.
Þegar allt þetta kæmi saman væri
hér um að ræða mjög alvarlegt
vandamál.
Hann kvaðst hissa á því að þau
fyrirtæki þar sem veiðar og
vinnsla væru rekin saman skipu-
legðu ekki hráefnisöflunina betur,
létu skipin koma jafnar inn og
með styttra millibili til að fá sem
bestan afla og þannig að þeir réðu
við að vinna hann.
„Við höfum stefnt að því að vinna
kola og lagt í töluverðan kostnað
þess vegna, a.m.k. upp á nokkur
hundruð þúsund. Sem betur fer er
ekki ennþá um hærri upphæð að
ræða en þetta, þegar við fréttum af
þessu kolaverði," sagði Kristinn
Pétursson, framkvæmdastjóri Út-
vers hf. á Bakkaflrði, er hann var
inntur álits á því verði á kola, sem
Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur
ákveðið.
„Kolaverðið, sem Verðlagsráð
sjávarútvegsins ákvað um daginn,
kemur mér þannig fyrir sjónir, að
þar sé um hrein afglöp að ræða
hjá þeim sem sátu í ráðinu fyrir
hönd fiskkaupenda, því vinnsla á
kola getur aldrei staðið undir sér
með þessu verði til útgerðarinnar,
nema þá þeir fulltrúar sem bera
ábyrgð á þessari ákvörðun lumi á
einhverju afurðasöluverði, sem
þeir hafa ekki sagt neinum frá,“
sagði Kristinn.
„Hækkunin á kolanum er 54% á
millí ára á meðan almennt fisk-
verð hækkar um 24%. Framlegð í
kola á síðasta ári var alveg í lág-
marki. Þó við höfum ekki verið í
kolavinnslu þá, er mér fullkunn-
ugt um það. Þessi verðákvörðun
kom því mjög á óvart," sagði
Kristinn ennfremur.
Hann sagði að meiningin hefði
verið að byrja að vinna kolann í
ágúst, en eins og málið horfði eftir
þessa verðákvörðun gengi það
dæmi ekki upp.
Maður finnst
látinn í
Bláa lóninu
NORSKUR maður á áttræðisaldri
fannst látinn I Bláa lóninu
svonefnda í Svartsengi um ellefu-
leytið í gærmorgun.
Það voru menn sem áttu þarna
leið sem fundu manninn, en eng-
inn var nálægur þegar atburður-
inn átti sér stað og verður því ekki
ljóst um dánarorsök fyrr en
krufning hefur farið fram.
í heimsókn á Morgunblaðinu
Morgunblaðið/MG
Þrjátíu hressir krakkar úr Árseli komu í heimsókn á ritstjórn Morgunblaðsins í gær ásamt forsjármönnum sínum.
Krakkarnir skoðuðu hinar ýmsu deildir blaðsins til að fræðast um hvernig blaðið væri unnið. Þau eru á aldrinum sex
til tólf ára.
Svifdrekaslys í Hafrafelli:
„Svifflug hættuminna
en skíðaíþróttir“
segir Birgir Óskarsson,
sem fyrir óhappinu varð
Ályktun Stúdentaráðs ótvíræð
traustsyfirlýsing við okkur
— segir Finnur Ingólfsson, formaður stjómar Félagsstofnunar stúdenta
„Ég lít á ályktun Stúdentaráðs sem skýra traustsyfirlýsingu við þá stefnu
sem stjórn Félagsstofnunar stúdenta hefur tekið í málinu og hún styrkti
stjórnina í þeirri trú að hún sé að gera rétt,“ sagði Finnur Ingólfsson,
formaður stjórnar Félagsstofnunar stúdenta, í samtali við blaðamann Morg-
unblaðsins i gær.
Stjórn Félagsstofnunar ákvað á
fundi sínum í gær að halda
óbreyttri stefnu í máli því sem upp
er komið vegna deilna um það hvað
íbúum Hjónagarðanna beri að
greiða í leigu.
Finnur sagði að íbúarnir yrðu
krafnir um leigu að upphæð kr.
4.400 fyrir maímánuð og kr. 5. 280
mánaðarlega fyrir júní, júlí og ág-
úst. Verði íbúarnir ekki við þessu
og greiði leiguna fyrir kl 17.00
þriðjudaginn 16. júlí nk., mun
stjórn Félagsstofnunar óska eftir
því að borgarfógetinn í Reykjavík
felli dóm þess efnis að íbúarnir
verði bornir út.
Stúdentaráð samþykkti á fundi í
fyrradag, með 15 atkvæðum gegn 7,
ályktun þar sem þessar deilur eru
harmaðar, en jafnframt er lýst
stuðningi við þá stefnu stjórnar
Félagsstofnunar að miða leiguverð-
ið á Hjónagörðum við hallalausan
rekstur og þeir íbúar Hjónagarða
sem í vanskilum eru eru hvattir til
þess að greiða skuldir sínar. En
þær skuldir nema nú, að sögn
Finns Ingólfssonar, 282.000 krón-
um.
Svifdrekaslys varð í Hafrafelli um klukkan átta sl. laugardagskvöld.
Voru þar saman komnir nokkrir félagar úr Svifdrekafélagi Reykjavíkur
til að stunda íþrótt sína. Einum þeirra, Birgi Óskarssyni, tókst ekki að
beygja tii vinstri, þegar á þurfti að halda, með þeim afleiðingum að
hann skall utan í fjallið.
„Þetta er í rauninni alveg sára-
ómerkilegt," sagði Birgir Oskars-
son, er hann var inntur eftir
orsökum óhappsins og líðan sinni.
„Einhverra hluta vegna festist ég
f hægri beygju, og var á hraðri
leið inn í fjallið, þegar ég man
síðast eftir mér. Meðvitund missti
ég samstundis, en rankaði við mér
að hálftíma liðnum. Þá hafði
frænka mín, sem stödd var við
fjallsræturnar, þotið í loftköstum
inn að Reykjalundi, og komið til
baka með lækni. Eg var nú það
hress, að ég gat sjálfur farið upp i
sjúkrabílinn. Þeir á slysavarð-
stofu Borgarspítalans úrskuröuðu
að eitt rif væri brotið og svo er ég
töluvert marinn. En það er ekkert
til að gera veður út af,“ bætti
hann við. „Ég er alveg stálsleg-
inn.“
Aðspurður kvaðst Birgir engan
tíma hafa haft til að verða hrædd-
ur, svo skjótt hefði þetta gerst.
„Ég er búinn að eiga þennan
dreka í ein 4 ár, en hef lítið sem
ekkert notað hann til þessa. Nú á
ég eftir að athuga þær skemmdir
sem orðið hafa á honum og reyna
síðan að koma honum í flughæft
ástand aftur. Ég er ekki aldeilis á
því að gefast upp við svo búið,
enda slysahætta í svifdrekaflugi
minni en t.d. á skíðum," sagði
Birgir óskarsson að lokum.