Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR10. JÚLÍ 1985 Ragnheiður Runólfsdóttir stendur sig vel í Kanada Setti tvö Islands- met um helgina • Ragnheidur vel í Kanada. byrjun ágúst. Runólfsdóttir sundkona frá Akranesi hefur staóið sig Hún æfir nú af krafti fyrir Evrópumeistaramótió í RAGNHEIOUR Runólfsdóttir frá Akranesi keppti á stóru sund- móti í borginni Calgary í Kana- da um síóustu helgi og stóó sig mjög vel. Hún setti tvö fs- landsmet á mótinu. Ragnheiður býr sig nú af krafti undir Evrópumeistaramótiö í sundi sem fram fer í Sofía í Búlgaríu í byrjun ágúst. Hún dvelur nú í Edmonton í Kanada og æfir hjá 250 manna sundklúbbi þar í borg. Hún æfir undir leiðsögn ólympíu- þjálfara Kanadamanna, Dave Johnson, og hefur eina þá bestu æfingaraöstööu sem völ er á. í íþróttamiöstööinni þar sem hún æfir eru tvær 50 metra sundlaugar og fullkomnustu tímatökutæki sem völ er á. Hún æfir meö landsliös- fólki klúbbsíns. Ragnheiöur býr hjá fjölskyldu í Edmonton og lætur mjög vel af dvöl sinni ytra. Árangur hennar á mótinu um síöustu helgi var sem hér segir: 100 m baksund: Synti á 1:11,50 mín. sem er ís- landsmet. Eldra metiö var 1:13,60. Metiö var sett í undanrásum. 100 m baksund: Aftur setti hún met í úrslitunum. Synti þá á 1:10,21 — gamla metiö vitanlega 1:11,50, sett skömmu áöur. 200 m baksund: Þar lenti Ragnheiöur í 6. sæti synti á 2:37,5 mín. 100 m bringusund: Synti vegalengdina á 1:18,0 m og lenti í 3. sæti. 200 m bringusund: Ragnheiöur lenti í 5. sæti — syi á 2:52,0 mín. 50 m baksund: Synti á 0:33,80 sem er besti tíi sem íslendingur hefur náö. 50 m bringusund: 0:35,18 var tími hennar í þess: grein sem einnig er bestl tími se íslensk stúlka hefur náö. • Júlíus P. Ingólfsson skorar fimmta mark leiksins fyrir ÍA úr vítaspyrnu. Markahátíð á Skaganum ÞAO var mikil markahátíó á Skipaskaga á laugardag er ÍA fékk Fram í heimsókn í 1. deild- inni í knattspyrnu. Eftir aó hafa komist í 5:0 sigruóu Skagamenn 6:2 í vióureigninni — Fram beiö þar sinn fyrsta ósigur í sumar. Enginn var meira í sviösljósinu en ungur nýliöi í liöi ÍA, Valgeir Baröason. Hann geröi sér lítiö fyrir og skoraöi þrennu í sínum fyrsta heila leik og var besti maö- ur vallarins. Á myndum Friðþjófs að ofan og til hliöar sendir hann knöttinn í mark Fram eftir tveggja mínútna leik — staöan þá strax 1:0.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.