Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 48
— ■» ' TIL QAGIfGRA NOTA MIÐVIKUDAGUR 10. JÚU 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR. Hólmavlk: 15 ára stúlka kærði tvo menn fyrir nauðgun — báðir úrskurðað- ir f allt að viku gæsluvarðhald TVEIR aókomumenn á Hólma- vík hafa verið úrskurðaðir í allt að einnar viku gæsluvarðhald 1 grunaðir um að hafa gefið fimm- tán ára stúlku áfengi og tælt hana til samræðis við sig aðfara- nótt sl. mánudags. Þegar er ljóst, að sögn Rík- harðar Mássonar, sýslumanns á Hólmavík, að annar maðurinn hafði samræði við stúlkuna en ekki var í gær upplýst að fullu hvern þátt hinn maðurinn átti í verknaðinum. Sá fyrrnefndi er um þrítugt, hinn um fimmtugt. __ Samkvæmt 2. málsgrein 200. greinar almennra hegningarlaga er refsivert að tæla stúlkubörn undir 16 ára aldri til samræðis og getur það varðað allt að fjög- urra ára fangelsi. Stúlkan kærði mennina fyrir nauðgun til sýslumanns á mánu- dagsmorgun og leitaði hann þá eftir aðstoð Rannsóknarlögreglu ríkisins við rannsókn málsins. Hallvarður Einvarðsson, rann- sóknarlögreglustjóri, sagði í gær að tveir lögreglumenn hefðu haldið norður til aðstoðar við rannsóknina síðdegis á mánudag og hefði fljótlega sýnst ljóst, að a.m.k. annar maðurinn hefði komið fram vilja sínum við ^ stúlkuna. Ekki væri þó ljóst, hvort um fullframda nauðgun hefði verið að ræða. Ríkharður Másson sýslumaður sagði síðdegis í gær, að yfir- heyrslum í málinu miðaði vel áfram og átti hann jafnvel von á að þeim lyki þá um kvöldið eða í dag. _____ ______ Tvítugur pilt- ur fær í sig 34 þúsund * volta straum Aðaldal, 8. júlí. SEINNIPARTINN í gær vildi það slys til við Laxárvirkjun þegar verið var að mála spennuvirki stöðvarinnar, að tvítugur piltur úr Aðaldal, sem þar var að vinnu ásamt fleirum, fékk í sig 34 þús- und volta háspenntan straum. Slysið varð með þeim hætti að félagi piltsins sló langri máln- ingarstöng óvart í eina af flutn- jt, ingslínum stöðvarinnar og um leið snerti hún bak piltsins sem hafði jarðsamband með annarri hend- inni. Straumurinn hljóp eftir baki og handlegg piltsins án þess að fé- lagi hans yrði nokkurs var. Piltur- inn hlaut 2. stigs brunasár á baki og handlegg. Hann var fluttur með flugvél til Reykjavíkur en er ekki talinn í lífshættu og líðan hans góð eftir atvikum. — Stefán HEILSAÐ AÐ HERMANNASIÐ íslendingar þekkja ekki mikið til hermennsku. Þó vita þessir krakkar I sem brugðu sér uppí Laxnes á hestbak í gær þrátt fyrir rigninguna. hvernig heilsað er að hermannasið. Þessir ungu drengir heilsa félögum I Myndina tók Ijósmyndari Morgunblaðsins, Þorkell Þorkelsson. sínum á hestbaki. Það voru börn af leikjanámskeiði í Mosfellssveitinni, I Þorskaflinn jókst um 26 % fyrstu sex mánuði ársins 1,2 milljarðar kr. töpuðust í verkföllum fiskimanna í ár HEILDARFISKAFLI landsmanna var 684 þúsund tonn fyrstu sex mánuði ársins, 11,2% eða 86 þúsund tonnum minni en á sama tíma í fyrra, þegar heildarfískaflinn var 770 þúsund tonn. Þorskaflinn er 38 þúsund tonnum (26%) meiri en í fyrra en annar botnfískafíi 31 þúsund tonnum (18%) minni og loðnuaflinn 93 þúsund tonnum (21 %) minni. Fiskifélag íslands áætlar að vegna þriggja meiriháttar verkfalla fiskimanna á þessu ári hafí tapast 140 þúsund tonn í afía, að verðmæti upp úr sjó um 600 milljónir og að útfíutn- ingsverðmæti 1,2 milljarðar. Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags íslands jókst þorskafli togara úr 13 þúsund tonnum i 23 þúsund tonn i júní, eða um 72%, en annar botnfiskafli togara minnkaði úr 18 þúsund tonnum í 9 þúsund tonn, þ.e. um 49%. Þorsk- afli bátanna jókst um 40%, úr tæpum 6 þúsund tonnum i rúm 8 þúsund tonn. Heildarþorskaflinn jókst því úr 19 þúsund tonnum í 31 þúsund tonn í júní, en annar botnfiskafli minnkaði úr 25 þús- und tonnum í 16 þúsund tonn. Afli alls í júní jókst úr 48 þúsund tonn- um í rúm 50 þúsund tonn. Heildarþorskaflinn fyrstu sex mánuði ársins jókst úr 146 þús- undum tonna í 184 þúsund tonn, eða um 38 þúsund tonn, sem er 26% aukning. Þar af jókst þorsk- afli bátanna um 24 þúsund tonn (27%) og þorskafli togaranna um 14 þúsund tonn (24%). Annar botnfiskafli dróst hins vegar sam- an, úr 168 þúsund tonnum í 137 þúsund tonn, eða um 31 þúsund tonn, sem er 18% samdráttur. Loðnuaflinn minnkaði úr 437 þús- und tonnum í 344 þúsund tonn, eða um 93 þúsund tonn, sem er 21% samdráttur. Rækjuaflinn var tæp 10 þúsund tonn og minnkaði um 1 þúsund tonn, eða 10% frá fyrra ári. Heildarafli landsmanna fyrstu sex mánuði ársins minnk- aði um 86 þúsund tonn, þ.e. úr 770 þúsund tonnum í 683 þúsund tonn. í júní voru Vestmannaeyjar aflahæsta verstöðin og komu þangað 4.495 tonn. ísafjörður var í öðru sæti með 3.382 tonn, þá Sand- gerði, Keflavík og Akureyri. Er- lendis var landað 2.077 tonnum, en aðeins 58 tonnum i júní á síðasta ári. Vestmannaeyjar voru einnig aflahæsta verstöðin fyrstu sex mánuði ársins og var landað þar 98 þúsund tonnum, á móti 111 þús- und tonnum á sama tíma 1984. Seyðisfjörður var í öðru sæti með 52 þúsund tonn (þar af 48 þúsund tonn af loðnu). Næst komu Eski- fjörður, Neskaupstaður Grindavík og Keflavík. Frá slysstað á Suðurlandsveginum. MorRunblaðift/ Júlíus Banaslys á Sandskeiði BANASLYS varð á Suðurlandsvegi skammt frá Sandskeiði í gærkveldi er jeppabifreið, í togi fólksbifreiðar, og amerísk fólksbifreið, sem kom á móti, skullu saman. Farþegi í aftursæti amer- ísku bifreiðarinnar, sem var á austurleið, lést og ökumenn bifreiðanna stórslösuðust. Tveir aðrir farþegar amerísku bifreiðarinnar eru einnig slas- aðir. Tilkynnt var um slysið klukkan 21.45 og fóru tvær sjúkrabifreiðir á vettvang auk lög- reglu. Jeppinn, sem var í togi annarrar bif- reiðar, mun hafa slegist utan i amerísku fólksbifreiðina með fyrrgreindum afleiðing- um. Ökumaður og þrír farþegar voru í bílnum á austurleið, en ökumaður var einn í jeppa- bifreiðinni. Hinn látni var maður á þrítugs- aldri. Slasaðir voru fluttir á slysadeild. Báðar bifreiðirnar eru taldar gjörónýtar. Þegar slys- ið varð var súld og vegurinn blautur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.