Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLf 1985 5 Laxá í Mývatnssveit „Gengur þrusuvel“ „Þetta gengur alveg hreint þrusuvel, hér eru nú komnir á land um 1.800 urriðar af leyfi- legri staerð, en það er 150 fiskum meira en veiddist hér allt síðasta sumar, en þá var eigi að síður næst besta veiðin síðan sumarið 1972. Það er alveg gífurlega mik- ið af fiski í ánni og mergð af silungi sem er undir lágmarks- stærðinni, en hún er 35 senti- metrar. Sú stærð af fiski hjá okkur nú er um það bil eitt pund að þyngd, en það er óvenjulega mikill þungi, enda virðist vera mikið af átu í ánni og fiskurinn er í afar góðum holdum. Algeng- asta stærðin er 1—5 pund, fisk- urinn er jafnari en fyrr og það virðist vanta stærstu fiskana. Sá stærsti til þessa vó 6,5 pund en neðra svæðinu í Laxá, í Laxár- dalnum, en tala veiddra fiska er þar ekki nærri eins há, enda hef- ur nýtingin á veiðileyfum ekki verið eins góð og svæðið er að auki að mörgu leyti vandveidd- ara. Fjörbrot í Gljúfurá? Veiðimenn við Gljúfurá í Borgarfirði fengu um síðustu helgi 6 laxa og rauk tala veiddra laxa upp úr öllu valdi við það, fyrir voru komnir 3 fiskar á land frá því að veiðin hófst 20. júní, en eftir helgina voru þeir orðnir 9 talsins. Laxana veiddu menn- irnir neðarlega í ánni, aðallega í ósi hennar skammt fyrir ofan ármót Gljúfurár og Norðurár. Það fylgdi sögunni að laxarnir hafi ekki verið nýrunnir og kem- ur það fáum á óvart sem Gljúf- -3SS:; Laxinn hefur gripið fluguna og þá er ekkert annað að gera en að tendra vindling og hefja leikinn. Þess má geta, að þessi lax hristi sig af. einn eða tveir 6 punda fiskar hafa einnig komið á land," sagði Hólmfríður á Arnarvatni í Mý- vatnssveit í samtali við Morgun- blaðið í gærdag. Að sögn Hólmfríðar hefur veiðin verið óvenjulega jöfn, engar lægðir hafa komið sem heitið getur og sárafáir ef nokkr- ir fara fisklausir úr ánni. Margir taka kvótann. Þess má geta, að helmingi betri nýting hefur ver- ið á veiðileyfum nú en nokkru sinni fyrr og hefur það áreiðan- lega sitt að segja um aflamagnið sein komið er á land, en það er ekki einhlýtt og veiðimönnum ber saman um að gífurlegt magn af fiski sé í ánni. Þarna er einungis leyfð flugu- veiði sem kunnugt er og æði mis- jafnt hvað urriðanum grimma er boðið upp á. Hólmfríður sagði Norðurlandabúa vera að veiðum um þessar mundir og notuðu þeir mikið smáflugur og púpur. Þá nata menn einnig venjulegar laxaflugur, t.d. Blue Charm, Black Sheep, Collie Dog og fleiri. Þá eru kannski notaðar mest svokallaðar straumflugur og eru þar fremstar í flokki Black og Gray Ghost, Þingeyingur og sjálf Hólmfríður. Þá ber mönnum saman um að afar góð veiði hafi einnig verið á urá þekkja, í vatnsleysisumrum liggur laxinn oft í hópum í ósnum og rennur ekki fram ána fyrr en í rigningum síðsumars. Þá æða oft miklar göngur upp ána, allt eldrauður lax og leginn. Lítið eða ekkert sáu umræddir veiðimenn af laxi ofarlega í ánni. Gengur vel í Grímsá Það eru komnir vel á þriðja hundrað laxar úr Grímsá eftir því sem Morgunblaðið kemst næst og útlendingar sem eru við veiðar hafa veitt dável. Yfirleitt eru laxarnir af smærri sortinni, en vænir inn á milli og eingöngu er veitt á flugu um þessar mund ir. Víða hefur glæðst upp á síð kastið, sæmilega hefur aflast á köflum í Þverá og Kjarrá, einnig í Norðurá, talsvert er gengið af laxi í allar þessar ár, en hefir tekið illa nema þessi fáu skipti sem ský hefur dregið fyrir sólu og rignt eilítið. í Laxá í Kjós og Leirársveit hefur verið góð veiði síðustu daga, smálaxinn gengur annað veifið í smátorfum og mikið líf virðist vera í ánum á Suðvestur- og Vesturlandi, flest- um að minnsta kosti, einnig í tveimur ám norðanlands, Laxá f Aðaldal og á Ásum. Biblíufélagið 170 ára í dag EINS og áður hefur verið sagt frá í fréttum á Hið íslenzka Biblíufélag, elsta starfandi félag f landinu, 170 ára afmæli í dag, en það var stofnað 10. júlí 1815. í tilefni þess verður sérstök þakkar- og hátíðarguðsþjónusta í Hallgrímskirkju í Reykjavík, þar sem Biblíufélagið hefur haft að- setur í 18 ár, og hefst hún kl. 5 síðdegis í dag. Öllum er boðið til þessa fagnaðar. í forkirkjunni verður sýning á Biblíunni frá 1813, sem Ebeneser Henderson færði íslendingum fyrir 170 árum, en úr henni verður lesið í guðsþjónustunni; Guð- Forseti Islands heimsækir Múlasýslur FORSETI íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, heimsækir Múlasýslur 13,—22. júlí nk. f för með forseta verður Halldór Reynisson forseta- ritari, kona hans, Guðrún Þ. Björnsdóttir, og Herdís Þorsteins- dóttir. brandsbiblíu, frumútgáfa frá 1584, en eintak þetta var meðal Vestur- íslendinga í ein 100 ár og þeir gáfu Sigurbirni biskupi á sínum tíma og hann aftur bókasafni Biblíufé- lagsins, og Guðbrandsbíblíu, ljósprentun 1984, í forkunnar fögru bandi, sem útgefandinn fær- ir Biblíufélaginu í tilefni af 170 ára afmælinu. Að lokinni guðsþjónustunni og eftir að Biblíusýningin í forkirkj- unni hefur verið skoðuð, þá mun stjórn Biblíufélagsins koma sam- an til sérstaks afmælisfundar í fundarsal safnaðarheimilis kirkj- unnar. Á Skálholtshátíðinni 21. júlí nk. verður dagskráin á síðdegis- samkomu hátíðarinnar sérstak- lega helguð Oddi Gottskálkssyni og Ebeneser Henderson í tilefni 170 ára afmælis Hins íslenzka Biblíufélags. Daginn áður, laugardaginn 20. júlí, verður framhaldsaðalfundur Biblíufélagsins í Skálholtsskóla, en aðalumræðuefni þess fundar verður í tilefni af ári æskunnar „unga kynslóðin og lestur Biblí- unnar". 100 ára í gær Akureyri. I GÆR, þriðjudag, varð Rósa Jón- asdóttir, Þórunnarstræti 104 á Akur- eyri, hundrað ára. Rósa fæddist 9. júlí 1885 að Bringu í öngulsstaðahreppi og þar ólst hún upp í stórum systkina- hópi, en árið 1909 giftist hún Jóni Þorleifssyni frá Grýtu í önguls- staðahreppi og þar bjuggu þau hjón allt til ársins 1946, að Jón lést. Þau hjón eignuðust 6 börn og eru 4 þeirra á lífi. Hin síðari ár hefur Rósa búið hjá syni sínum, Jóni A. Jónssyni á Akureyri. Hún hefur alla tíð verið afar heilsu- hraust en er þó að mestu orðin rúmföst nú. GBerg f~) Litur. Hvitt i2J5Ðr u lfflOr 'MÉÉH ” yy utjrjjvíttjjrátt Borðplata úr Borðplata Borðplata hvltu gleri 60 x 60 cm 60 x 120 cm 60 x 60 cm Litir: Hvitt, svart Lrtir: Hvltt, svart 1.750.- Litir: Svart, grátt, Mikið úrval húsgagna og húsmuna. Svefnsófar frá kr. 6.900,- Upphengitöflur (kork) margar stærðir. Verð frákr. 199,- /MIKLIG4RÐUR mikiðfyrirUtið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.