Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 10. JtJLÍ 1985 33 Selfoss: Handmálaðir munir í Föndurskúrnum __ Selfossi, 3. júlí. A LIÐNU vori skipti Föndurskúrinn á Selfossi um eigendur. Sigurbjörg Eyjólfsdóttir keypti fyrirtækið á sumardaginn fyrsta og starfrækir það nú í húsnæði við hlið bæjarskrif- stofanna á Selfossi. í Föndurskúrnum hjá Sigur- björgu geta viðskiptavinir fengið óunnar leðurvörur og spreytt sig á því að mála þær heima. Þar má einnig fá vörur, styttur og vasa, sem Sigurbjörg hefur málað. Hún segist mest mála þjóðlífsmyndir á þessa muni og reyna að draga fram gamla tímann og sveitalífið. í Föndurskúrnum eru einnig á boðstólum leirvörur sem Sigur- björg hefur framleitt sjálf s.s. litl- ir skreyttir pokar og litlir hnakk- ar til að hengja upp á vegg. Hnakkar þessir hafa verið vinsæl- ir sem tækifærisgjafir til hesta- manna og þá hefur gjarnan verið pöntuð svipa með. í húsnæði Föndurskúrsins hefur Sigurbjörg einnig lítið gallerí þar sem eru myndir eftir hana sjálfa. Hún hefur lengi málað á tau og hefur á boðstólum handmáluð vöggusett og svuntur. Hún gaf t.a.m. Vigdísi forseta utan um sæng sem henni var gefin í Viðey á sínum tíma. Sigurbjörg sagði að það væri verulegur áhugi fyrir þessu hjá sér og hefði hún varla undan að búa til muni. Það tæki sinn tíma að búa þetta til og svo væri það Sigurbjörg Eyjólfsdóttir framan við Föndurskúrinn. kannski allt horfið daginn eftir. Um ástæðuna fyrir þessari starf- semi sagði hún: „Það er eitthvað í fingrunum á manni að vilja vera að sýsla svona.“ Sig. Jóns. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö við andlát og útför ÞÓRARINS SVEINSSONAR framkvaamdaatjóra, Bergstaðastrœti 82, og vottuöu minningu hans viröingu. Ingibjörg Árnadóttir, Árni Þórarinsson, Steinunn Þórarinsdóttir, Jón Ársaell Þóröarson og barnabörn. Lokað eftir hádegi fimmtudaginn 11. júlí vegna jaröarfarar STEFÁNS NIKULÁSSONAR. Gleraugnaverslunin Linsan, Aöalstrœti 9. Spetwandi förunautur /ferbataginu Bókaflokkurinn „Skáldsaga um glæp“ nýtur virðingar fyrir vandaða fram- setningu og æsispennandi en raun- verulegan söguþráð. Nú fást eldri bækur bókaflokksins á sérstöku til- boðsverði í öllum betri bókabúðum. Kiljur kr. 249 - Innbundnar kr. 446.- Gódar bækur í útileguna og útlöndin. Mált^íog menning Tilboö í bókabúðunum Vi ú síöustu ár hafa augu þeirra sem annast börn opnast fyrir þörfinni á nýrri og betri leiktækjum fyrir börnin og hlýlegra umhverfi á leiksvæöum þeirra. iö hjá fyrirtækinu Leik höfum mikiö og vandaö úrval af sænskum leikföng- um og tækjum ásamt ýmiskonar kof- um, útibekkjum og boröum. Vörur sem reynst hafa frábærlega vel í öll- um nágrannalöndum okkar. Auk þessa höfum við þrjár gerðir reið- hjólagrinda, ýmsar gerðir vandaðra sorp- dalla til útanhússnota og fleira. iö mælum því meö aö bæj- arfélög, húsfélög og ekki síst foreldrar hafi samband viö okkur hjá Leik og kynni sér úr- valiö og gæöin. Pósthólf 354, eiKUr 200 Kópavogi. Sími 44563.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.