Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1985
21
AP/Simamynd
Fór í mótmælasvelti
gegn Bandaríkjunum
Miguel D’Escoto Brockman, utanríkisriðherra Nicaragua, sést hér um-
kringdur af fréttamönnum eftir að hann hafði tilkynnt, að hann hefði
byrjað „mótmdasvelti fyrir friði, til varnar lífí en gegn hryðjuverka-
stefnu þeirri, sem stjórn Bandaríkjanna hefði tekið upp gegn Nicar-
agua“.
Bólivía:
Forsetinn fer fram
á frestun kosninga
Bólivíu, 9. iúlí. AP. J
Bólivfu, 9. júlí. AP.
FORSETI Bólivíu, Hernan Siles
Zuazo, fór í dag fram á það við
þing landsins að forsetakosning-
um, sem eiga að fara fram í
landinu á sunnudag, verði frest-
að. Forsetinn vill að haldinn
verði aukafundur í þinginu á
GENGI |-
GJALDMIÐLA
Dollarinn
lækkar enn
London, 9. júlí. AP.
Bandaríkjadollar lækkaði í dag
annan daginn í röð. Á peninga-
mörkuðum í Evrópu var vaxandi
svartsýni kennt um varðandi horf-
ur í bandarísku efnahagslífí og
því spáð, að dollarinn ætti enn
eftir að hekka á næstunni.
Síðdegis í dag kostaði sterl-
ingspundið 1,36675 dollara
(1,3393), en að öðru leyti var
gengi dollarans þannig, að fyrir
einn dollara fengust 2,9560
vestur-þýzk mörk (2,9860),
2,4745 svissneskir frankar
(2,5232), 9,0350 franskir frankar
(9,1650), 3,3320 hollenzk gyllini
(3,3945), 1.889,50 ítalskar lírur
(1.921,00), 1,3536 kanadískir
dollarar (1,3587) og 245,05 jen
(246,50).
Gull hækkaði og var verð þess
315,25 dollarar hver únsa
(315,00).
fímmtudag til að greiða atkvæði
um tilmæli sín.
Stuðningsmenn Hugos Banzers,
fyrrum einræðisherra í Bólivíu,
sem spáð er sigri i kosningunum
boðuðu i dag til mótmælaaðgerða
gegn tilmælum forsetans.
Skömmu áður en forsetinn til-
kynnti ákvörðun sína, fóru tals-
menn tvennra áhrifamikilla
verkalýðssamtaka fram á það við
frambjóðendur vinstri flokka að
þeir drægju framboð sitt til baka
og hundsuðu kosningarnar, þar
sem flokksmenn Barzers hefðu
brotið kosningalög.
Banzer sagði í dag að sér hefði
komið á óvart að forsetinn hefði
gripið til „þvílíkra örþrifaráða”:
„Okkur var fullljóst að vinstri
stjórn landsins mundi reyna að
trufla gang kosninganna, en nú
kastaði tólfunum. Tilmæli forset-
ans um frestun kosninganna ber
ólýðræðislegum vinnubrögðum
gott vitni, en kjósendur vita bet-
ur.“
Samkvæmt skoðanakönnunum
nýtur Banzer nú stuðnings 38%
kjósenda, en helsti frambjóðandi
vinstri manna, Victor Paz, um
18%.
Thailand:
Schultz ræðir
við flóttamenn
Thailandi, 9. júlí. AP.
ÞÚSUNDIR fíóttamanna frá Kambódíu fógnuðu George Schultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, þegar hann kom til fíóttamannabúða á landmærum
Thailands og Kambódíu í dag.
Flóttamennirnir vonast til þess
að Bandaríkjamenn styðji baráttu
þeirra við víetnamska innrásarlið-
ið með því að senda þeim vopn og
vistir. Utanrikisráðherrann gaf þó
í skyn á fréttamannafundi í dag að
stjórnin hefði ekki í hyggju að
senda vopri til skæruliða á næst-
unni. Hann sagði að Bandaríkja-
menn mundu samt sem áður halda
áfram að veita flóttamönnunum
efnahags- og mannúðaraðstoð.
Talið er að um 53 þúsund flótta-
menn, sem flúið hafa til Thailands
vegna ofsókna Vétnama, hafi tekið
á móti Schultz.
Forsvarsmenn flóttamannanna
sögðu Schultz frá því að Víetnam-
ar, sem réðust inn í Kambódíu
1979, hefðu myrt og pyntað þús-
undir Kambódíumanna. Hefðu Ví-
etnamar einnig neytt hundruð
þúsunda Kambódíumanna til að
vinna fyrir sig.
Vaxtalækkun á næsta
leiti í Bandaríkjunum?
Wa.shinglon, 9. júlí. AP. Cr
Wa.shington, 9. júlí. AP.
VEXTIR, sem verið hafa á niður-
leið í Bandaríkjunum mestan
hluta ársins, eiga sennilega eftir
að fara enn lækkandi á næstu
vikum. Er þetta byggt á þeim
spám, að seðlabanki Bandaríkj-
anna muni bráðlega þurfa að
greiða enn frekar fyrir lánveit-
ingum í því skyni að blása á ný
lífí í iðnframleiðslu Bandaríkj-
anna.
Gert var ráð fyrir, að stefnan á
þessu sviði fyrir næstu mánuði
yrði mörkuð í dag eða á morgun.
Bandaríski seðlabankinn reynir að
efla efnahagslífið í landinu á ýms-
an hátt svo sem með því að auka á
eða draga úr peningaframboði. í
þessu skyni eru vextir ýmist
hækkaðir eða lækkaðir og reynt er
að koma í veg fyrir, að verðbólgan
vaxi með of mikilli þenslu.
Seðlabankinn hefur þegar einu
sinni á þessu ári dregið úr pen-
ingahömlum til að glæða efna-
hagslífið meira fjöri. Leiddi það
til 2% lægri vaxta. Enda þótt nú
þyki líklegt, að seðlabankinn muni
komast að þeirri niðurstöðu, að
frekari aðgerða sé þörf, þá gera
fæstir ráð fyrir því, að komandi
vaxtalækkun verði meira en
0,5—0,75%. 1 maí sl. lækkaði
seðlabankinn forvexti sína niður í
7,5% og hafa þeir ekki verið lægri
í um sjö ár. Nú er gert ráð fyrir, að
þeir fari að minnsta kosti niður í
7%. Það ætti svo að leiða til þess,
að forvextir viðskiptabankanna
lækkuðu úr 9,5% niður í 9%.
Bent er á til stuðnings frekari
vaxtalækkun, að bandarískur iðn-
aður hafi staðið höllum fæti á
þessu ári og það sé fyrst og fremst
að kenna erlendri samkeppni, að
220.000 manns í þessari starfs-
grein hafi misst atvinnuna.
„Seðlabankinn hefur áhyggjur út
af veikleikamerkjum í efnahags-
lífinu og því, að atvinnuleysið hef-
ur haldizt í 7,3% í fimm mánuði í
röð,“ var í dag haft eftir Bernard
M. Markstein, kunnum hagfræð-
ingi í hópi þeirra, sem spá vaxta-.
lækkun á næstunni.
Búist við að mikill
kvennaráðstefnurnar í
fjöldi
Nairobi, Kenya. 9. júlí. AP.
TVÆR ALÞJÓÐLEGAR kvennaráðstefnur verða settar í Nairobi í Kenya
á næstu dögum og er talið að um 10.000 konur muni taka þátt í ráðstefn-
unum. Ríkisstjórn íslands sendir fímm fulltrúa á aðra ráðstefnuna og
fara þeir utan í vikunni.
Önnur ráðstefnan, Forum ’85,
hefst nk. miðvikudag og stendur
yfir í 10 daga. Þar munu konur
frá öllum löndum fjalla um ýmis
kvennamál, allt frá stofnun fjöl-
skyldu til réttinda vændis-
kvenna. Konur, sem ekki eru
fulltrúar ríkisstjórna landa
sinna, mega aðeins taka þátt í
Forum ’85.
Á mánudag í næstu viku hefst
svo 11 daga ráðstefna um
kvennamál á vegum Sameinuðu
þjóðanna, þar sem opinberar
sendinefndir landanna koma
saman og hlýða á ræður og skipa
sér í umræðuhópa. Ráðstefnurn-
ar tvær eru lokastórviðburðir á
sérstökum áratugi kvenna.
Umræðuhóparnir munu fjalla
um málefni af margvíslegum
toga. Sendinefnd Bandaríkjanna
mun t.d. fjalla um „hina guð-
dómlegu konu — jörðina, gyðj-
una, tónlistina, hefðina, inn-
blásturinn og ræðuna," en
breska sendinefndin mun á hinn
bóginn fjalla um málefni vænd-
iskvenna. Sendinefndir frá van-
þróuðu ríkjunum hafa þó önnur
vandamál á sínum dagskrám og
fjalla margar þeirra um hlut-
verk konunnar í uppbyggingu
landbúnaðarins í sínum löndum,
eins og t.d. Kenya, þar sem kon-
ur vinna um 75% af öllum störf-
um í landbúnaði.
Kvennaáratugurinn hófst í
Mexíkó árið 1975, þegar þar var
ákveðið á aiþjóðlegri kvenna-
ráðstefnu að hefja skipulagða
baráttu gegn misrétti í garð
kvenna. Önnur ráðstefna var
haldin í Kaupmannahöfn árið
1980 og nú í lok áratugarins er
þriðja ráðstefnan haldin í
Kenya.
sæki
Kenýa
Skoðanir á baráttu kvenna eru
jafn misjafnar og mennirnir eru
margir og herma fréttir að
sendinefnd Bandaríkjanna, und-
ir forystu Maureen Reagan, for-
setadóttur, hafi hótað að snúa
aftur til síns heimalands ef
ráðstefnan fær á sig of pólitísk-
an blæ.
Sigríður Snævarr, sendiráðu-
nautur hjá utanríkisráðuneyt-
inu, er formaður sendinefndar
íslands sem fer utan í vikunni.
AIls eru fimm konur í nefndinni
og auk Sigríðar fara þær Ester
Guðmundsdóttir, Gerður Stein-
þórsdóttir, Guðríður Þorsteins-
dóttir og María Pétursdóttir.
Veður
víða um heim
Logit
Akureyrí
Amsterdam 14
Aþena 18
narcelona
Berlín 13
Brússel 9
Chicago 21
Dublin 13
Feneyjar
Frankfurt 9
Ganf 15
Helsinki 13
Hong Kong 23
Jerúsalem 15
Kaupmannah. 10
18
16
Los Angeles 21
Luxemborg
Miami 29
Moskva 10
New Yorfc 19
Osló 14
Peking 22
Reykjavík
Ríó de Janeiro 13
17
12
13
21
13
bórshöfn
Stokkhólmur
Sydney
Tókýó
Hæst
12
19
32
27
20
23
32
18
26
21
28
20
29
28
17
24
24
23
25
19
37
29
31
16
26
20
31
28
25
31
22
16
20
25
10
rigning
skýjaö
heióskírt
mistur
skýjaó
heióskírt
skýjaó
skýjað
þokumóða
•kýíað
haiöakírt
rigning
•kýjað
haiðskirt
•kýjað
léttskýjað
heiðskírt
•kýjað
haiðskírt
skýjað
haiöskírt
heiðskírt
haiöskírt
akýjað
haiðakirt
akýjað
rigning
akúrir
akýjað
haíðakirt
haiðakírt
rigning
hsiöskirt
akýjað
akýjað
Sjálfsmorðs-
árás shíta
Tel Aviv, 9. júlí. AP.
FIMMTÁN Líbanir, hermenn og
óbreyttir borgarar, létu lífið og
tveir ísraelskir hermenn særðust
er öfgasinnaðir shítar óku bifreið-
um með sprengiefni inn á eftir-
litssvæði ísraela í Suður-Líbanon
í dag og sprengdu þær upp í
sjálfsmorðsárás.