Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JtLÍ 1985
37
Hafnarbúðir og
Reykjavíkurborg
— eftir Gunnar
Sigurðsson
Aö undanförnu hafa orðið tals-
verðar umræður í fjölmiðlum
vegna hugsanlegrar sölu Hafnar-
búða til rikisins.
Ríkið hefur gert Reykjavíkur-
borg tilboð í Hafnarbúðir sem
Reykjavíkurborg kostaði á sínum
tíma fyrir eigið fé til reksturs
hjúkrunardeildar fyrir aldraða.
Sú deild hefur verið hluti af Borg-
arspítalanum, sem er eina sjúkra-
húsið sem Reykjavíkurborg ann-
ast rekstur á. Ríkið greiddi ekkert
til byggingar þessarar deildar í
Hafnarbúðum. Nú virðist ríkið
hins vegar eiga fé til að kaupa
Hafnarbúðir en ekki til að af-
henda Reykjavíkurborg til rekst-
urs, heldur fyrir Landakotsspítala
að gjöf. Ekki er sama Jón og séra
Jón!
Davíð Oddsson borgarstjóri
virðist telja þessa sölu eðlilega,
þrátt fyrir mótmæli stjórnar
Sjúkrastofnana Reykjavíkurborg-
ar (þar með taldir Páll Gíslason
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins), iæknaráðs og starfsmanna-
ráðs Borgarspítalans og síðast en
síst starfsfólks Hafnarbúða, sjúkl-
inga þar og ættingja þeirra. Þetta
fólk veit best hvers konar þjón-
ustu Hafnarbúðir hafa veitt öldr-
uðum sjúklingum og ættingjum
þeirra á liðnum árum.
Borgarstjóri virðist einblína á
þær 55 milljónir króna sem hann
telur að ríkið skuldi Reykjavík-
urborg í sambandi við uppbygg-
ingu Hafnarbúða. Reykjavíkur-
borg hefur vissulega haft frum-
kvæði í ýmsu varðandi sjúkra-
húsabyggingar á síðustu áratug-
um. Má þar t.d. nefna að það var
einungis fyrir frumkvæði Reykja-
víkurborgar að núverandi húsnæði
Slysadeildar Borgarspítalans var
byggt. Byggingartillag ríkisins
kom ekki fyrr en miklu síðar.
Það væri vissulega spor aftur á
bak ef Reykjavíkurborg ætlaði að
afsala- sér öllu frumkvæði í þess-
um efnum til ríkisins. Borgarbúar
trúa ekki slíku á núverandi borg-
arstjóra, einkanlega þar sem í
stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
fyrir síðustu borgarstjórnarkosn-
ingar var tekið fram að flokkurinn
væri andvígur sölu Borgarspítal-
ans.
Sjálfsagt segja einhverjir eins
og forsvarsmenn Landakotsspít-
ala í grein í Morgunblaðinu 29.
júní sl.,: „Það fjármagn sem fæst
fyrir Hafnarbúðir kemur strax til
nota fyrir B-álmu Borgarspítal-
ans.“ Reykjavíkurborg hefur
vissulega haft frumkvæðið að
byggingu B-álmu Borgarspítalans
og það hversu hægt hefur miðað
byggingu hennar hefur aðallega
orsakast af takmarkaðri fjárveit-
ingu Alþingis. Sem kunnugt er ber
Reykjavíkurborg aðeins að greiða
15% móti 85% ríkisins við bygg-
ingu spítala. En lítum á hvernig
fjárveitingu til B-álmunar er hátt-
að fyrir árið 1985:
Samkvæmt fjárlögum Alþingis
7.0 m. kr.
Aukafjárveiting 8.0 m. kr.
Frá Framkvæmdasjóði aldraðra
5.5 m. kr.
Frá Reykjavíkurborg 2.6 m. kr.
Samtals 23.1 m. kr.
Hluti Reykjavíkurborgar er því
aðeins um 11% þar sem Reykja-
víkurborg er ekki skylt (og gerir
ekki) að greiða á móti framlagi úr
Framkvæmdasjóði Aldraðra. Ef
um venjulega sjúkrahúsbyggingu
væri að ræða bæri Borginni að
greiða a.m.k. 3,5 milljónir króna.
Samkvæmt tilboði ríkisins (fyr-
ir Landakot) fengi Reykjavíkur-
borg 5 milljónir króna á þessu ári
og afganginn, 50 milljónir króna, á
15 árum. Þessar ársgreiðslur
myndu því vart skipta sköpum við
að hraða uppbyggingu B-álmunn-
ar og alls óvíst að Reykjavíkur-
borg myndi nota þetta fé til þess,
Dr. Gunnar Sigurðsson
„Sú ráðstöfun að af-
henda Landakotsspítala
Hafnarbúðir yrði þvi
væntanlega til að fækka
sjúkrarúmum fyrir aldr-
aða.“
þar sem borgin virðist halda stíft
við að greiða ekki meira en 15% af
byggingarkostnaði B-álmunnar.
Davíð Oddsson borgarstjóri
fullyrðir í viðtali við Morgunblað-
ið 6. júlí sl. að „eina sem breytist
við sölu Hafnarbúða er að Borgar-
sjóður fái 55 milljónir króna í sinn
hlut. Það fólk sem dveljast í Hafn-
arbúðum fái auðvitað að vera þar
áfram." í greinargerð frá Landa-
kotsspítala í Morgunblaðinu 29.
júní sl. segir: „Hugmyndin er sú
að þeir sjúklingar sem hafa verið
lengi (í Hafnarbúðum) verði þar
áfram, en í stað þeirra verði smám
saman fluttir jafn margir sjúkl-
ingar af Landakoti í B-álmuna.“
Þessi ráðstöfun hefði einfald-
lega í för með sér að á næstu 1—2
árum myndu nær einungis flytjast
sjúklingar frá Landakoti í B-álm-
una. Langflestir sjúklinganna sem
vistast hafa á þær 2 öldrunar-
lækningadeildir sem opnaðar hafa
verið í B-álmu, hafa komið beint
að heiman. Reynt hefur verið að
láta þessa þjónustu hafa forgang.
Slíka þjónustu yrði alls ekki unnt
að veita í 1—2 ár ef allir nýir
sjúklingar ættu að koma frá
Landakotsspítala og þessi biðlisti
myndi þá lengjast enn meir.
Og hver yrði ávinningurinn með
afhendingu Hafnarbúða til
Landakots má spyrja? Hann yrði
aðallega sá að Landakotsspítali
gæti í auknum mæli stundað vald-
ar skurðaðgerðir (til aðgreiningar
frá bráðum skurðaðgerðum). í dag
er Landakotsspítali eini spítalinn
í Reykjavík sem getur stundað
þessar aðgerðir í ríkum mæli, þar
sem hlutur Landakots í bráða-
þjónustu er verulega minni en
Borgarspítala og Landspítala (5
vaktir á móti 8).
Því má ætla að verið væri að
rýma Landakotsspítala (af öldruð-
um sjúklingum) til þess að auka
slíkar aðgerðir fremur en að veita
öldruðum þjónustu. Sú ráðstöfun
að afhenda Landakotsspítala
Hafnarbúðir yrði því væntanlega
til að fækka sjúkrarúmum fyrir
aldraða. Þörfin á því sviði er hins
vegar svo mikil að ekki veitir af að
fjölga þeim verulega á næstu ár-
um Reykjavíkurborg ætti að hafa
frumkvæðið í þeirri uppbyggingu,
þess krefjast Reykvíkingar af sín-
um borgarstjóra og borgarstjórn.
Sala Hafnarbúða yrði andstæð
slíkri uppbyggingu.
Hiifundur er yfírlæknir lyflækn-
ingadeildar Borgarspítalans.
• HUSQVARNA UPPÞVOTTAVÉLAR •
Sænska
uppþvottavélaiínan
Husqvarna-uppþvottavélarnar
hafa fengið verðlaun hjá Skandi-
navísku neytendasamtökunum
fyrir frábæran uppþvott, að vera
hljóölátar og þurrka vel.
Þ»r standast kröfur nútímans,
sænsku Husqvarna-uppþvotta-
vélarnar.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sirm 9135200
nfiHjfliiEy
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125
■t
Vinir hans álíta hann of alvarlegan, fjölskyldan heldur hann brjálaðan, óvinum hans finnst
hann aumur og kjarklaus. Hún veit hins vegar að hann er síöasti drekinn.
Hörkuspennandi, þrælgóð og fjörug, ný, bandarísk karatemynd með dúndurmúsik. Fram
koma De Barge (Rhythm of the Night), Vanity og flutt er tónlist með Steve Wonder,
Smokey Robinson, The Temptations, Syreeta, Rockwell, Charlene, Willie Hutch og Alfie.
Aðalhlutverk leika Vanity og Taimak karatemeistari. Tónlistin í myndinni hefur náð
geysilegum vinsældum og er verið að frumsýna myndina um heim allan.
A-sal
Sýnd kt. 5, 7, 9 og 11.
Hækkaö verð. Bönnuö innan 12 ára.