Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLl 1985 ftefcAAfm „HClnn cr 50.coo dra. gamail . pOut>t u samSKScw&r jpj\ at> \j\Í> yrbum 3,5 milljon hfa. ást er ... ... að koma í veg fyrir að hann verði vinnusjúkl- ingur „Þótt náttúran sé lamin með lurk, leitar hún út um síðir. — Förum og gáum hvað er í kæliskápnum, ungfrú Elsa.“ HÖGNI HREKKVÍSI Nokkur orð um einkaskóla Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrif- ar: Heiðraði Velvakandi. Mig langar að segja nokkur orð um einkaskólann sem vinstri menn hafa nú miklar áhyggjur af og reka áróður gegn og finna allt til foráttu. Hvers vegna? Gegnum þau samtöl sem fram hafa komið í útvarpi og sjónvarpi skín sú imyndun, að þessi skóli verði notaður til innrætingar hægri stefnu. Margur heldur mig sig. Ólafur M. Jóhannesson tekur einkaskólann einnig fyrir i nokk- urskonar leiðara sem hann fæst við í Morgunblaðinu. Ólafur M.J. heldur því fram að hann geti ekki sent sín börn í þennan skóla fyrir 3.000 kr. á mánuði. Það gætu orðið 21.000 á ári. Hvað er svo borgað til mennta- mála í sköttum til rikisins? Ég efa að það sé lægri upphæð en til einkaskólans. Menntamálin eru mest krefjandi í skattheimtu al- mennings og komast menn varla hjá þeim sköttum meðan ríkið ræður í menntamálunum og mun því verða um tvöfaldan náms- kostnað að ræða fyrir þá sem senda börn sín í einkaskóla vegna þessa. Liklegt er þó að námskostn- aður verði frádráttarbær til skatts. Námskostnaður í einka- skóla mun verða álíka og dagvist- unargjald á barnaheimili. Nauðsynlegt er að ríkið styrki einkaskóla vegna þess að það heimtar framlag til menntamála. P.S. Þetta var skrifað 29. júní nýliðinn en nú er 4. júlí. Ekkert nýtt hefur komið fram í þessu máli, nema ég taldi mig hafa heyrt það rétt að ríkið borgaði 41.000 með hverjum nemenda. Sé það rétt getur hver maður séð hvernig það er að hlýta ríkisforsjá á þessu sviði eins og öðrum. Þessir hringdu . . Ýmsu ábóta- vant hjá Gæslunni Fyrrverandi sjómaður hringdi: Um daginn var fyrirspurn í Velvakanda um Sjólabrunann sem varð í síðasta mánuði. Þar sem ég sé að Landhelgisgæslan hefur ekki treyst sér til að svara þessari fyrirspurn hef ég ákveðið að svara henni þar sem ég er þaulvanur og búinn að vera lengi hjá Landhelgisgæslunni. Ég hef starfað hjá gæslunni frá 1977 til 1982 og um borð í skipum er öllu í sambandi við slökkvistörf ábótavant. Þegar ég var um borð var okkur sýnd meðferð slökkvjjækja en aldrei var farið út á haf, kveikt í ein- hverju og okkur leyft að spreyta okkur. Einnig voru ekki til nema tveir eða þrír asbestgalla um borð, en alls eru það um 20 manns sem taka þátt í slökkvi- starfi ef upp kemur á hafi úti. Slökkviliðsmenn hafa yfirleitt sérstaka hjálma á höfði við störf sín, en við vorum með mótor- hjólahjálma þegar við vorum í þyrluæfingum. Er Norræna húsið nógu vel kynnt? Húsmóðir í Kópavogi hringdi: Mér hefur alltaf fundist gam- an að koma í Norræna húsið. Finnsk vinkona mín, sem hér var á ferð í sumar, hafði hvorki heyrt um húsið né komið þangað svo að ég hugsaði með mér hvort staðurinn væri nógu vel kynntur út á við meðal erlendra gesta sem t.d. búa á hótelum landsins. Hi-Cá ensku Húsmóðir í Kópavogi hringdi: í útvarpinu, rás 1, glymur nú í auglýsingatímum auglýsing um drykk, sem kallast Hi-C. f ís- lenska ríkisútvarpinu er nafn drykksins borið fram á ensku og kann ég alls ekki við það. Þetta verður til að rugla málkennd barna og unglinga. Fyrirspurn til kvikmynda- eftirlitsins Kvikmyndaaðdáandi hringdi: Ég vil spyrja Kvikmyndaeft- irlitið hvernig standi á því að kvikmyndin „Ævintýrasteinn- inn“ sem sýnd er um þessar mundir í einu bíóanna er ekki bönnuð börnum þar, en á myndbandaleigum er myndin merkt miða frá Kvikmyndaeft- irlitinu, þar sem segir að hún sé bönnuð innan 16 ára. Þá vil ég einnig taka undir óskir þess efnis að sjónvarpið sýni alla Band Aid-tónleikana. Ekki minnst á listakonuna Húsmóðir í Kópavogi hringdi: Ég sá póstkort hjá finnskri kunningjakonu minni um dag- inn. Hún hafði keypt kortið í Skálholti á ferð sinni þar. Á því var hin fagra mynd af frelsaran- um eftir listakonuna Nínu Tryggvadóttur. Ég leit aftan á kortið og þar stendur að myndin sýni altari Brynjólfs Sveinssonar biskups, en hvergi er minnst á listakon- una sjálfa sem gerði verkið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.