Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLl 1985 ÚTVARP/SJÓNVARP hringir frostnálin Tvær ágætar myndir voru á dagskrá sjónvarpsins í fyrra- kvöld. Sú fyrri nefndist Megrunar- æði. Mynd þessi fjallaði um konu nokkra er flyst úr sveit í borg. Konan er fremur þéttholda en slíkt hafði lítt komið að sök í sveitinni. En þegar hún kemur til stórborgarinnar þar sem maður hennar klifrar með ógnarhraða upp metorðastigann í virtu fyrir- tæki er annað upp á teningnum. Skyndilega er hún stödd í hópi ríkra glæsikvenna, sem flestar hverjar eyða miklum tíma í heilsurækt og skreppa við og við á rándýr heilsuhæli þar sem auka- kílóin hverfa eins og dögg fyrir sólu. Þessi heimur krefst þess að konurnar séu flestar ætíð vel til hafðar, huggulegar og grannar, enda verða þær að passa við glæsi- bíl og glæsihús eigandans, afsakið eiginmannsins. Blessaðri konunni líður eins og ljóta andarunganum í þessari glæsiveröld. Og nú hefst heiftúðug barátta við aukakílóin, hlaup og hopp í leikfimitímum og svo strangir megrunarkúrar að konan brotnar loksins saman á sál og líkama. Og það er fyrst þá er hún liggur á spítalanum eins og vængbrotinn fugl, að blessaður eiginmaðurinn skilur hvílíkar píslir hún hefir á sig lagt, í þeim tilgangi að passa inn í glæsiheim- inn. Ofjitan Ég tel inig hafa haft mikið gagn af þessari kanadísku sjónvarps- mynd. f fyrsta lagi efldi myndin skiln- ing minn á reginafli fegurðar- ímyndarinnar er vill helst steypa alla í sama mót, enda líður brátt að því að annarhver maður verður með nýtt og fallegra nef, sætari eyru, kyssilegri varir og svo fram- vegis. En hitt þótti mér öllu at- hyglisverðara hversu óskaplegt vandamál offitan er mörgu fólki. Aðalpersónan i myndinni þjáðist ekki beint af offitu, en í einum megrunarhópnum kynntist hún konu er átti við raunverulegt of- fituvandamál að stríða. Kona þessa hafði misst eiginmanninn frá sér vegna þessa vandamáls og má segja aö allt hennar líf snerist í kringum baráttuna við aukakiló- in. Ég held það væri heillaráö að sýna þessa mynd aftur í sjónvarp- inu og efna síðan til umræðna um efni hennar. Ég er viss um að slík- ar umræður gætu hjálpað mörg- um að ræða þetta vandamál við sína nánustu, enda verða allir heimilismenn, vinir og venslafólk að leggjast á eitt við að hjálpa þeim er á við offitu að stríða. New York Siðari myndin á dagskrá sjón- varpsins í fyrrakveld nefndist New York, New York. Myndin var reyndar dönsk að ætt og var þar einkum leitast við að greina tengslin milli aukinnar tiðni glæpaverka (vel yfir 100.000 glæpamál skráð á síðasta ári) og vaxandi fjölda eiturlyfjasjúklinga, en 250.000 manns eru nú taldir háðir eiturlyfjum í borginni. Frændur vorir fóru nokkuð víða um borgina og skoðuðu málið frá ýmsum hliðum. Fannst mér fróð- legt að sjá hversu borgarbúar brugðust misjafnlega við fárinu. Þannig gékk sálfræðingur einn ætíð vopnaður hlaupvíðri skamm- byssu en háhýsakona nokkur þorði ekki fyrir sitt litla líf inní lyftuna og varla niður stigann. Ætli maður láti ekki nægja að ferðast til N.Y. á vængjum ljóðs- ins — í bili að minnsta kosti. ólafur M. Jóhannesson „Eftir tvö“ Á dagskrá rás- 1 4 00 ar 2 í dag klukkan 14—15 er þátturinn „Eftir tvö“. Umsjónarmaður þáttar- ins er að vanda Jón Axel Ólafsson. Þegar Jón var inntur frétta af efni þáttarins kvað hann það ekki end- anlega ákveðið. Þó væri nokkuð víst að eldri lög, einkum frá árunum 1975 til 1981, yrðu ráðandi í þættinum, en einnig yrðu kynnt glæný lög, sem eru að koma út á plötum um þessar mundir. „Það verð- ur í öllu falli fullt af skemmtilegri tónlist í þættinum og vonandi verður veðrið gott, því þá verður tónlistin ennþá skemmtilegri," sagði Jón Axel Ólafsson. Þessi herramaöur kemur við sögu í myndaflokknum um Kyrrahafslönd, en hann hefst í sjónvarpinu kl. 20.40 í kvöld. Kyrrahafslönd — nýr heimildamyndaflokkur — ■■■■ { kvöld klukkan aA 40 20.40 hefur — göngu sína í sjónvarpinu nýr heimilda- myndaflokkur í átta þátt- um og nefnist hann Kyrrahafslönd (The New Pacific). Við Kyrrahaf eru heimkynni þriðja hluta mannkyns. Þar búa marg- ir kynþættir með gjör- ólíka menningu og atvinnuhætti, enda á milli þeirra mesta úthaf jarð- arinnar. í þáttunum er brugðið upp myndum af ýmsum sviðum; náttúru, þjóðlífi og stjórnmálum í sautján Kyrrahafslöndum. Þar virðist nú framþróun vera einna örust i heiminum, en jafnframt er gömul menningararfleifð víðast i miklum heiðri höfð. í þættinum i kvöld verður meðal annars fjall- að um hinn mikla hagvöxt sem nú er i löndum í Asíu sem að Kyrrahafinu l'ggja, og hvernig hann hefur breytt viðskiptum i heiminum nú á seinni ár- um. Til dæmis eiga Bandaríkin nú meiri viðskipti við Kyrrahafs- lönd en við Evrópuríki. Einnig er fjallað um hvernig Japanir reyna nú að efla viðskiptatengsl við ríki þau, sem þeir reyndu fyrr á öldinni að sölsa undir sig með hervaldi. Þátturinn um Kyrra- hafslönd hefst eins og áð- ur sagði kl. 20.40 og tekur 55 mínútur í sýningu. Þýðandi hans og þulur er Óskar Ingimarsson. Maður er nefndur Þórarinn Guðmundsson tónskáld sýndur í sjónvarpinu árið 1973. Það er Pétur Pét- ursson sem ræðir við Þór- arin. Þórarinn var kunnur fiðluleikari og ástsælt tónskáld. Hann var einnig þekktur fyrir að vera stjórnandi Útvarpshljóm- sveitarinnar. ■■■■ í kvöld klukkan 00 35 22.35 verður í ~~ sjónvarpinu þáttur í flokknum „Úr safni sjónvarpsins". Að þessu sinni verður endur- sýndur þátturinn „Maður er nefndur Þórarinn Guð- mundsson tónskáld". Þessi þáttur var áður íslensk tónlist — flutt verða þrjú verk ■■■■ Á dagskrá rás- 1 A 30 ar 1 í dag kl. A rt 14.30 er íslensk tónlist. Leikin verða þrjú verk: 1. „Sigurður Fáfnis- bani“, forleikur eftir Sig- urð Þórarinsson. Sinfón- íuhljómsveit íslands leik- ur undir stjórn Páls P. Pálssonar. 2. „Völuspá" fyrir ein- söngvara, kór og hljóm- sveit eftir Jón Þórarins- son. Guðmundur Jónsson og Söngsveitin Fílharm- ónía syngja og Sinfóníu- hljómsveit tslands leikur. Karsten Andersen stjórn- ar. 3. „Sex vikivakar" eftir Karl O. Runólfsson. Sin- fóníuhljómsveit tslands leikur undir stjórn Páls P. Pálssonar. Sinfóníuhljóm.sveit íslands ÚTVARP MIÐVIKUDAGUR 10. júll 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi. Tilkynningar. 7A5 Daglegt mál. Endurt. páttur Sigurðar G. Tómas- sonar frá kvöldinu áður. A00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð — Helga Sveins- dOttlr, Bolungarvik, talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Litli bróöir og Kalli á pak- inu“ eftir Astrid Lindgren. Sigurður Benedikt Björnsson les þýöingu Sigurðar Gunn- arssonar (17). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn- ingar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir. Forustugr. dagbt. (útdr.). Tónleikar. 10.45 fslenskar skáldkonur. Unnur Eiríksdóttir. Umsjón: Margrét Blöndal og Sigrlöur Pétursdóttir. RÚVAK 11.15 Morguntónleikar Leikin verður tónlist eftir Scarlatti, Bach og Hándel. 1200 Dagskrá. Tilkynningar 12J20 Fréttir. 12.45 Veöur- fregnir. Tilkynningar. Tón- leikar. 13.30 Inn og út um gluggann Umsjón: Emil Gunnar Guö- mundsson. 13A0 Tónleikar. 14.00 „Uti I heimi“, endurminn- ingar dr. Jóns Stefánssonar. Jón Þ. Þór les (5). 14J0 Islensk tónlist a. „Siguröur Fáfnisbani", torleikur eftir Sigurð Þórð- arson. Sinfónluhljómsveit Is- lands leikur; Páll P. Pálsson stj. b. „Völuspá", tónverk fyrir einsöngvara, kór og hljóm- sveit eftir Jón Þórarinsson. Guðmundur Jónsson og söngsveitin Fllharmónla syngja með Sinfónluhljóm- sveit Islands: Karsten Ander- sen stj. c. „Sex vikivakar“ eftir Karl O. Runólfsson. Sinfónlu- hljómsveit Islands leikur; Páll P. Pálsson stj. 15.15 Staður og stund — Þórður Kárason. RUVAK 14.45 Tilkynningar. Tónleikar. 1000 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 1600 Popphólfiö - Bryndls Jónsdóttir. 1700 Fréttir á ensku 1705 Barnaútvarpiö Stjórnandi: Ragnheiður Gyöa Jónsdóttir. 1705 Slödegisútvarp — Sverrir Gauti Diego. Tónleikar. Tilkynningar. 1005 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. kynningar. Málræktarþáttur Ólafur Oddsson flytur. 20.00 Sprotar Þættir af unglingum fyrr og nú. Umsjón; Slmon Jón Jó- hannsson og Þórdls Mós- esdóttir. 2000 Frá sumartónleikum I Skálholti 1985 Lars Ulrik Mortensen og Toke Lund Christiansen leika á barokkflautu og sembal. a. Sónðtur eftir Domenico Scarlatti. b. Flautusónata I G-dúr eftir Georg Friedrich Hándel. c. Flautusónata I h-moll eftir Georg Friedrich Hándel. d. Flautusónata I h-moll eftir Johann Sebastian Bach. 2100 Ebenezer Henderson á ferð um Island sumariö 1814 Fyrsti þáttur: A leiö til Eyja- fjaröar. Umsjón: Tómas Ein- arsson. Lesari með honum: Snorri Jónsson. 22.05 Tónleikar. 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orö kvöldsins. 22.35 Þannig var þaö Þáttur Ólafs Torfasonar. RUVAK 2320 Tónleikar frá kanadlska útvarpinu Hljómsveit Þjóölistasafnsins I Ontario leikur. Stjórnandi: Claudio Scimone. Einleikar- ar: Walter Prystawski, Row- SJÓNVARP 1925 Aftanstund Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni. Söguhornið — Starrahreiör- ið eftir löunni Steinsdóttur, höfundur flytur. Kanfnan með köflóttu eyrun, Dæmi- sögur og Högnl Hinriks, sögumaöur Helga Thorberg. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 2020 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Kyrrahafslönd (The New Pacific) Nýr flokkur — Fyrsti þáttur. MIÐVIKUDAGUR 10. júll Breskur heimildamynda- flokkur i átta þáttum. Viö Kyrrahaf eru heimkynni þriöja hluta mannkynsins. I Iðndum þar eru gjörólfkir kynþættir, tungumál, menn- ing og atvinnuhættir enda er milli þeirra mesta úthaf jarö- ar. i þáttunum er brugöiö upp myndum af ýmsum sviðum: náttúru, þjóöllfi og stjórnmál- um I sautján Kyrrahafslönd- um. Þar virðist nú framþróun vera einna örust I heiminum þótt gömul menningararf- leifð sé vlöast hvar I heiöri höfö. Þýöandi og þulur Oskar Ing- imarsson. 2125 Dallas Vaktaskipti Bandarlskur framhalds- myndaflokkur. Þýöandi Björn Baldursson. 2225 Ur safni Sjónvarpsins Maöur er nefndur Þórarinn Guömundsson, tónskáld. Viðtalsþáttur frá 1973. Pétur Pétursson ræöir viö Þórarin. 2320 Fréttir I dagskrárlok. land Floyd, Gerald Corey og Donald Whitton. a. Sinfónla consertante I B- dúr op. 84 fyrir fiðlu, óbó, fagott, selló og hljómsveit eftir Joseph Haydn. b. Sinfónfa nr. 1 I C-dúr op. 19 eftir Carl Maria von Web- er. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. MIÐVIKUDAGUR 10. júll 10.00—12.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Kristján Sigur- jónsson. 14.00—15.00 Eftir tvö Stjórnandi: Jón Axel Ólafs- son. 15.00—10.00 Nú er lag Urvalslög aö hætti hússins. Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 16.00—17.00 Bræðingur Stjórnandi: Arnar Hákonar- son. og Eirlkur Ingólfsson. 17.00—18.00 Úr kvennabúrinu Hljómlist flutt og/eða samin af konum. Stjórnandi: Andrea Jóns- dóttir. Þriggja mlnútna fréttir sagö- ar klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og 17:00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.