Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1985
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Þorkell
Helena og Oddgeir Hjartarson hlýddu á leik félaga úr Lúðrasveit Reykjavíkur þegar þeir heiöruðu hjónin í
blíðviðrinu um helgina.
ODDGEIR
HJARTARSON
STOFNFÉLAGI
LÚÐRASVEITAR REYKJAVÍKUR:
„Við æfðum í tugthúsinu þvf
þar gistu fáir á þeim árum“
Oddgeir Hjartarson er eini
núlifandi stofnfélagi Lúðra-
sveitar Reykjavíkur sem nú
heldur upp á 63. starfsár sitt.
Hún var stofnuð árið 1922.
„Mitt tónlistarnám hófst
þannig að mér og kunningja
mínum Birni Jónssyni datt i hug
að gaman væri að læra á hljóö-
færi,“ sagði Oddgeir þegar
blaðamaður spurði um tildrög
þess að hann hóf flautuleik. „Mig
íangaði helst að læra á flautu og
við fórum á stúfana að leita að
hljóðfærum. Það var ekki um
auðugan garð að gresja því bæði
léku fáir á flautu og enginn átti
slík hljóðfæri. Loks frétti ég af
bakara nokkrum sem einu sinni
hafði ætlað sér að læra flautu-
leik en það fórst fyrir og ég fékk
hann til að selja mér forláta
flautu sem hann átti. Hún var
ekki eins og venjulegar flautur í
dag heldur mjórri í annan end-
ann og munnstykkið var breið-
ara en nú tíðkast.
Ég stundaði aðallega sjálfs-
nám en þegar lúðrasveitirnar
Gígjan og Harpan voru samein-
aðar 1922 og stofnuð var Lúðra-
sveit Reykjavíkur gekk ég i
sveitina. Reynir Gíslason sem
hafði verið í Danmörku var feng-
inn til að stjórna hljómsveitinni
og hann aðstoðaði mig við nám-
ið. Þannig var að ekki var til
nein gripatafla yfir nóturnar
eins og nú er notuð við flautu-
kennsluna heldur setti ég fing-
urna einhvern veginn á götin og
ef Reynir fann sama tón á píanó-
inu fundum við út hver tónninn
var.
Lúðrasveitin æfði vel en átti í
fá hús að venda og við æfðum
víða við mismunandi aðstæður.
Til að byrja með æfðum. við í
vinnuskúr sem stóð á Hverfisg-
ötu- 8 áður Alþýöuhúsið var
reisé á þeirri Ióð og þegar skúrs-
ins naut ekki lengur við fengum
við inni í einum klefanum i
tugthúsinu við Skólavörðustíg.
Þar var ekki margt um manninn
í þá daga og alltaf klefi laus sem
við fengum til afnota.
Ég hélt áfram að læra á flaut-
una og lék við og við á dansleikj-
um ásamt Þórarni Guðnasyni
tónskáldi og fleirum. Einnig
hafði lúðrasveitin þann sið að
leika einu sinni í mánuði á Aust-
urvelli.
Árið 1926 kom Jón Leifs tón-
skáld frá Hamborg ásamt félög-
um úr sinfóníuhljómsveit Ha-
mborgar. Sígild tónlist eins og
sú sem hljómsveitin lék hafði
mjög lítið heyrst opinberlega áð-
ur og íslenskir áheyrendur hrif-
ust mjög af leik þeirra. Ég og
konan mín, sem er þýsk, höfðum
þó nokkuð að gera með þessa
gesti og við flöndruðum með þá
um allar trissur til að sýna þeim
landið okkar. Þannig kynntist ég
öðrum af tveimur flautuleikur-
um hljómsveitarinnar sem var
kennari við tónlistarháskólann í
Hamborg. Það var ákveðiö að
hann kenndi mér á flautuna öll
kvöld meðan hann dveldi á ís-
landi og gerði hann það i næst-
um hálfan mánuð. Einnig var
ein varaflauta með í ferðinni og
ég fékk þá til að selja mér hana,
sem þó var nokkuð ólík þeirri
fyrri.
Ég lék með lúðrasveitinni
fram til ársins 1958 en þá var
sjónin heldur farin að daprast
svo ég hætti. En ég lagði flaut-
uleikinn ekki á hilluna því sama
ár talaði Karl 0. Runólfsson við
mig og fór þess á leit að ég
kenndi börnum á flautu á kvöld-
in, sem ég og gerði fram til árs-
ins 1973.“
Oddgeir sagði að Það kæmi
fyrir að hann gripi í flautuna, þó
það væri sjaldan hin síðustu árin
því sjónin væri farin. „En mér
finnst alltaf jafngaman að hlýða
á hljóðfæraleik og geri eins mik-
ið af því og ég mögulega get.“
Blásarar úr LúðrasveU Reykjavík-
ur leika fyrir utan heimHi
Qddgeirs og Helenu.
FRÁ VATIKANINU
í
BEINNI ÚTSENDINGU:
Frumkvæðið átti
Herbert von Karajan
Eins og sjónvarpsáhorfendur
fengu að líta fyrir skömmu
voru það tveir kórar, einsöngvarar
og Vínarfílharmóníuhljómsveitin
undir stjórn Herberts von Karaj-
an sem fluttu krýningarmessu
Mozarts við guðsþjónustu Jóhann-
es Páls páfa í St. Péturskirkju í
Róm.
Samkvæmt heimildum
Vatikansins er þetta í fyrsta
skipti í manna minnum sem svo
þekkt tónlistarfólk kemur fram
ásamt páfa í messugjörð í St.
Péturskirkjunni.
Herbert von Karajan átti frum-
kvæðið að þessum viðburði er páfi
var í heimsókn í Austurríki í sept-
ember árið 1983.
Með Vínarfílharmóníunni komu
fram ameríski sópraninn Kath-
leen Battle, vestur-þýska mezzo-
sópransöngkonan Trude Liese
Schmidt, sænski tenorinn Gosta
Winberg, ítalski bassinn Ferrucio
Furlanetto, hljómsveitarkórinn og
Sistine-kapellukórinn.
Meðal gesta er sóttu messuna
voru Gianni Agnelli eigandi Fíat-
bílaverksmiðjanna og fatahönnuð-
urinn Valentinu og Aga Khan.
Herbert von Karajan, sem átti frum-
kvæðið að þessum atburði.
Jóhannes Páll páfi II
Pat sem 85 ára