Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 10.07.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1985 3 Bygginganefnd Reykjavíkun Fjallað um hættu af völdum útigangsmanna í Fjalakettinum BYGGINGANEFND Reykjavíkur mun á fundi sínum á fimmtudag fjalla um Fjalaköttinn vid Adal- stræti í framhaldi af skýrslu lög- reglunnar í Reykjavík um ágang útigangsmanna f húsið og bruna- hættu af völdum þeirra. Bygginganefnd heimilaði niðurrif Fjalakattarins í fyrra að ósk eiganda hússins og var sú samþykkt staðfest í borgarráði. í framhaldi af því var hluti hússins rifinn. Skýrsla lögreglunnar um veru útigangsmanna í húsinu og hættu af völdum þess var tekin fyrir í bygginganefnd fyrir nokkru og þá vísað til borgarráðs. Borgarráð vísaði erindinu aftur til bygginganefndar og fól henni að leysa málið. Hilmar Guðlaugsson formaður bygginganefndar sagði í gær að um tvo kosti væri að ræða. Að láta ganga þannig frá húsinu að ekki stafaði hætta af því, þ.e. að gera það mannhelt eða þá að rífa það. „Glæsivilla á Spáni“ til sölu fyrir íslenskar krónur „Glæsivilla á Spáni“ er auglýst til sölu í fasteignaauglýsingum Morgunblaðs- ins á sunnudag fyrir 2,5 milljónir króna. f lýsingu á eigninni segir að um sé að ræða 160 fermetra, glæsilegt sjö herbergja einbýlishús á Costa del Sol, um 5 mínútna gang frá ströndinni. Það er fasteignasalan Huginn sem auglýsir húsið til sölu og hjá Óskari Mikaelssyni, löggiltum fast- eignasala, fengust þær upplýsingar að eigendurnir væru íslenskir og myndi verðið greiðast í íslenskum krónum. Það þyrfti því ekki að fara fram gjaldeyrisyfirfærsla vegna kaupanna, en talsverðar hömlur eru á því fyrir fslendinga sam- kvæmt íslenskum lögum að flytja fjármagn úr landi. Óskar sagði að talsvert hefði ver- ið spurt eftir þessari eign hjá fast- eignasölunni, enda um sérlega glæsilegt hús að ræða með falleg- um garði. Húsið stæði á eignarlóð í þriggja kílómetra fjarlægð frá Torremolinos. Hann sagði að verð- ið væri i samræmi við markaðsverð á svona húsum á Spáni, en ekki væri hægt að bjóða sambærileg kjör og þar, enda þekktust senni- lega ekki neins staðar f heiminum sams konar kjör í fasteignavið- skiptum og hér á landi. Verðið á húsinu er sambærilegt við verð á 4ra herbergja íbúð hér á landi og að sögn óskars koma skipti á eign hér á landi einnig til greina. V/€RZLUNRRBRNKINN -(aúuícci tneð þér ( Ennþá meiri sveigjanleiki Vaxtauppbót, þrátt fyrir úttekt. Nú geturðu tekið út af KÁSKÓ-reikningi þínum einu sinni á vaxtatímabili án þess að missa vaxtauppbótina fyrir það tímabil, nema af úttekinni fjárhæð. DÆMI: 1. júlí ’85 er höfuðstóll reiknings kr. 100.000,-, 1. ágúst ’85 eru teknar út kr. 10.000,-. Fjárhæðin sem tekin var út kr. 10.000,- fær sparisjóðsvexti frá 1. júlí til 1. ágúst, en kr. 90.000,- fá fulla vaxtauppbót í lok vaxtatímabilsins 30. sept. ’85. Önnur lykilatriði KASKÓ-reikningsins: 1. Stöðugur samanburður á kjörum verð- og óverðtryggðra reikninga tryggir raunvexti og verðtryggingu á KASKÓ- reikningum. 2. KASKÓ-reikningurinn er óbundinn og því alltaf hægt að losa fé án fyrirvara. 3. Vaxtauppbót leggst við KASKÓ-reikninginn eftir hvert þriggja mánaða tímabil og reiknast því vaxtavextir fjórum sinnum á ári. Velkomin í KASKÓ-hópinn, - þar fá allir örugga ávöxtun! AUK hf 43 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.