Morgunblaðið - 10.07.1985, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLl 1985
17
Fjallaskóli á
Fimmvörðuhálsi
„SKÓLANUM ER ætlað að kenna fjallamennsku og skíðagöngu og verður
starfrsktur í júlímánuði. Reyndar er fyrsta námskeiðinu þegar lokið og gekk
það mjög vel,“ sagði Hermann Valsson annar af kennurum Nýja fjalla- og
skíðaskólans á Fimmvörðuhálsi sem nýlega bóf göngu sína í samvinnu við
Ferðaskrifstofu ríkisins.
Hér er um að ræða helgarnám-
skeið sem haldin verða í júlimán-
uði á Fimmvörðuhálsi og að sögn
forráðamanna er ætlunin að koma
til móts við þann sívaxandi fjölda
fólks sem stundar fjallaferðir og
skíðagöngur. „Okkar megintil-
gangur er að leiðbeina fólki sem
vill ferðast allan ársins hring á
gönguskiðum, utan hinna hefð-
bundnu göngubrauta eða á jöklum
landsins . Einnig ætlum við að
kenna hvernig á að ferðast á ör-
uggan hátt og bregðast við þeim
vanda sem upp kemur á slíkum
ferðum."
Að sögn Hermanns er nám-
skeiðinu skipt i tvo hluta. „Annars
vegar kennir Halldór Matthíasson
skiðagöngugarpur ýmsa tækni i
skiðagöngu og annað er viðkemur
göngunni, meðferð skiðanna,
hvernig á að bera á þau og annað í
þeim dúr. Hins vegar sé ég um
fjallamennskuna. Þar kenni ég
hvernig á að velja leiðir á jökla,
hvernig eigi að varast sprungur og
þegar að þeim kemur hvernig eigi
að komast klakklaust yfir þær.
Einnig kenni ég jöklaförum
hvernig eigi að bjarga sér í vond-
um veðrum, grafa sig í fönn og
krækja framhjá snjóflóðasvæðum
og fleira þess háttar."
Hvert námskeið stendur í þrjá
daga og er lagt af stað úr Reykja-
vik á föstudagskvöldum og haldið
austur að Skógum þar sem gist er
á Eddu-hótelinu báðar næturnar.
Kennslunni er þannig háttað aö
á laugardag og sunnudag er ekið
strax eftir morgunverð upp i skála
Flugbjörgunarsveitarinnar að
Skógum á Fimmvörðuhálsi, þar
sem eins konar miðstöð námskeið-
isins er. Þar verður snæddur há-
degisverður og hægt að fá heitan
drykk. Kennt er fram eftir degi og
komið aftur til Skóga um kvöld-
matarleytið. Þar er gestum gefinn
kostur á kvöldverði en þeir sem
hafa meö sér nesti geta naslað það
i ró og næði. Ef þannig liggur á
fólki verður haldin stutt kvöld-
vaka en á sunnudagskvöldinu er
haldið til Reykjavíkur eftir snæð-
ing og komið i bæinn síðla kvölds,
- MorgunblaAið/Emilía
Kennarar vid nýja fjallaskólann eru Herraann Valsson og Halldór Matthías-
son.
en til Skóga eru um 160 km á
bundnu slitlagi."
Hermann sagði að jafnframt
kennslunni yrðu farnar lengri og
styttri skíðaferðir um Fimm-
vörðuháls. „Ef veður og aðstæður
leyfa verður farið á Eyjafjallajök-
ul, sem er í 1660 metra hæð og er
kennslunni fléttað inn i ferðirnar
eins og efni og ástæða þykir til.
Þegar vel viðrar er einstætt útsýni
frá jöklinum til allra átta og m.a.
má þaðan sjá til Vestmannaeyja,
Tindfjalla, Þórsmerkur og austur
til Öræfa.
Námskeiðin eru fyrir ungt fólk
á öllum aldri en þó ekki yngra en
10 ára gamalt. Þátttakendur skulu
hafa með sér skiði, skó, stafi,
vatns- og vindheld hlífðarföt og
annan almennan ferðafatnað, sól-
gleraugu og sólkrem. Einnig er
léttur bakpoki nauðsynlegur og
þeir sem eiga isaxir og brodda
ættu að grípa þá með sér. Við
búumst þó ekki við að allir geti
útvegað sér slik tæki og þvi er
hægt að fá sérhæfðari fjallabúnað
hjá skólanum. Við ráðleggjum
fólki líka eindregið að slysa- og
ferðatryggja sig, því skólinn tekur
ekki ábyrgð á slysum eða farangri
gesta.“
Hermann var bjartsýnn á að
námskeiðunum yrði vel tekið. „I
fyrsta lagi er Fimmvörðuháls
kjörinn staður fyrir námskeið sem
þessi. Þar eru engar sprungur sem
gætu reynst skeinuhættar og hann
býður upp á fjölmarga möguleika
bæði fyrir byrjendur og þá sem
lengra eru komnir í skíðagöngu og
fjallamennsku. 1 annan stað
stunda fjölmargir þessar íþróttir
og ef einhverjir þeirra hugsa sér
að vera í snjónum fram á sumar
eða stunda lengri ferðalög að vetr-
arlagi verða þeir að kunna nokkur
undirstöðuatriði i fjallamennsku
til að ferðirnar heppnist sem
best.“
Þegar veóur leyfir er farið upp i Hámund, hæsta tind Eyjafjallajökuls, og var
þessi mynd tekin í blíðunni um síðustu belgi þegar fyrsta námskeiðið var
haldið.
Verk Leifs Breið-
fjörð vígt í Edinborg
SUNNUDAGINN 30. júní sl. var vígður við hátíðlega athöfn steindur gluggi,
sem Leifur Breiðfjörð hefur gert fyrir SL Giles’-dómkirkjuna f Edinborg.
Glugginn er til minningar um skoska þ.
kirkjunni af alþjóðlega Burns-félaginu.
Glugginn, sem er á vesturhlið
kirkjunnar, er þrískiptur. Neðst
eru fimm samstæðir hlutar, sem
tákna grænan heim grósku og fag-
urrar náttúru. Þá taka við í miðj-
unni fimm hlutar, sem leiða hug-
ann að mannlegu samfélagi og
bróðuranda. Efsti hlutinn og sá
langstærsti er tákn kærleiks og
ástar í anda margra ljóða Roberts
Burns, en þykir þó einkum minna
á ljóðlínuna frægu „My love is like
a red, red rose“. Þessi táknræna
tjáning Leifs Breiðfjörð á lífi og
verkum skoska þjóðskáldsins hef-
ur hlotið góða dóma, m.a.
dagblaðsins „The Scotch-man“.
ið Robert Burns og var gefinn
í kirkjuathöfninni í St. Giles’
predikaði kirkjupresturinn, Sr.
Gilleasbuig MacMillan, en vígslu
gluggans framkvæmdi forseti
skoska kirkjuþingsins, sem er leið-
togi skosku kirkjunnar, Dr. David
Smith. Húsfyllir var og þurfti fólk
frá að hverfa. Þar voru m.a.
frammámenn í Burns-félögum í
Skotlandi og fremstu leikarar og
söngvarar Skota. Við athöfnina
voru einnig viðstaddir sendiherr-
arnir Richard Thomas og Einar
Benediktsson svo og ræðismaður
íslands í Edinborg, frú Snjólaug
Thomson.
(FrétUlilkynning.)
Sesselja Guðmundsdóttir, eigandi hársnyrtistofunnar Fexa í Mosfells-
sveit, í stofunni.
Hársnyrtistofan Fexa opnar
í Mosfellssveit
Nýlega var Hársnyrtistofan FEXA opnuð að Urðarholti 4 í Mosfells-
sveiL
Eigandi stofunnar er Sesselja Guðmundsdóttir. Fexa er opin
mánudaga kl. 13—17 og þriðjudaga til föstudaga kl. 9—17.
(Fréttatilkynning)
Sérfræðingar MÁLMINQAR h.f.
Kunna þrjú ráð í viðarvörn utanhúss
KJORVARI er olíubundln gegnsæ vlðarvörn af hefðbund-
inni gerð, sem gengur inn í vlðlnn og mettar hann.
KJORVARI hefur shamma endingu þar sem mihlð mæðlr
á. hann ver viðlnn fyrlr vatni, en hlndrar ehhl niðurbrot vlðar
af völdum sólarljóss KJÖRVARI hleyplr vel í gegnum slg
raha, flagnar því ehhl 0g er auðveldur í viðhaldi.
TREAKRYL er vatnsþynnanleg 100% ahrýlbundlnmálnlng,
sem harðnar ehhl né gulnar TRÉAKRÝL Inniheldur ehhl
fúavarnarefnl
TRÉAKRÝL smýgur illa og hrefst því olíugrunns, QRUniT-
KJÖRVARA, á beran við fyrir yfirmálun
TRÉAKRÝL hleyplr mjög vel í gegnum slg raha, heldur mýht
slnnl og fylglr því hreyflngum vlðar/ns.
TRÉAKRÝL hylur vel og ver því vlðinn gegn mðurbrotl af
völdum sólarljóss.
ÞEKJU-KJORVARI er þehjandl vatnsþynnanleg vlðarvörn
sem Innlheldur bæði olíu og ahrýl og samelnar því hostl
KJÖRVARA og TRÉAKRÝL5. ÞEKJU-KJÖRVARI hylur
flötlnn án þess að fylla hann, þannlg að vlðaræðar verða eftlr
sem áður sýnilegar. ÞEKJU-KJÖRVARI smýgur vel og
hrefst því ehhi sérlegs grunns. ÞEKJU-KJÖRVARI hylur
vel og ver vlðlnn fyrlr vatnl og nlðurbrotl sólarljóss. ÞEKJU-
KJÖRVARI heldur^mýht slnnl og hleypir auðveldlega í
gegnum
málninghf
Fæst i byggingavöruverslunum um land allt
méhvng I