Morgunblaðið - 10.07.1985, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ1986
27
Bandalag kennarafélaga:
vkjAUCs-
Stofnun Tjarnarskóla brýtur í bága við
skólamálastefnu kennarasamtakanna
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi álvktun frá stjórn
Bandalags kennarafélaga, varöandi
stofnun Tjarnarskóla í Reykjavík:
„Stjórn BK vill ítreka það sem
viða hefur komið fram að með
stofnun Tjarnarskóla eru engar
nýjungar á döfinni hvað varðar
skólastarf, aðrar en þær að for-
eldrum er ætlað að greiða auka-
lega fyrir þá þjónustu sem skylt er
að veita hverju barni samkvæmt
grunnskólalögum. Þá þjónustu
hafa almennir skólar átt erfitt
með að rækja til fulls vegna fjár-
sveltis. með stofnun Tjarnarskóla
hafa yfirvöld menntamála í raun
viðurkennt að til þess að reka
skóla þarf mun meira fjármagn en
skólakerfinu er ætlað.
Kennarasamtökin hafa um langt
skeið hvað eftir annað lagt
áherslu á að farsælt skólastarf
grundvallast á því að skólum sé
þúin viðunandi starfsaðstaða og
kjör kennara bætt til muna.
Tjarnarskóli er kallaður „einka-
skóli" en verður í raun kostaður af
ríki og borg með við-
bótarskattheimtu á foreldra.
Stjórn BK varar eindregið við
þeirri stefnu sem þarna er tekin
upp og þeirri hugsun sem á bak
við liggur, að rétt sé að skatt-
leggja nemendur og foreldra sér-
staklega til að greiða hluta af eðli-
legum skólakostnaði. Sú stefna er
andstæð þeirri grundvallarreglu
sem jslendingar hafa um langt
skeið aðhyllst, að allir eigi að hafa
jafnan aðgang að menntun án til-
lits til efnahags eða búsetu. Sú
regla er grundvallaratriði í
skólamálastefnu kennarasam-
takanna og hún mótar núverandi
grunnskólalög. Fráhvarf frá henni
er þess vegna andstætt öllum anda
þeirra laga.“ (Fréuatiikyniiiiig)
Ráðstefna NUF
haldin á íslandi
NORRÆNIR kennarar í sjúkraþjálfun (Nordiske undervisende fysioterapeuter)
halda ir hvert riöstefnu, þar sem fjallaö er um kennslu í sjúkraþjilfun og skipst
á upplýsingum um skólamil. í tengslum við riöstefnuna er svo haldinn aöalfund-
Dagana 30. júni til 4. júli var
ráðstefna þessi haldin hér á landi í
fyrsta sinn. Öllum sjúkraþjálfurum,
sem þegar tengjast kennslu í sjúkra-
þjálfun eða hafa hug á að gera það í
framtíðinni, var heimil þátttaka.
Efni ráðstefnunnar var eftirfar-
andi:
1. Verkleg kennsla í sjúkraþjálfun.
Ella Kolbrún Kristinsdóttir dós-
ent flutti inngangsfyrirlestur en
síðan fóru fram hópumræður.
2. Notkun tölvu við kennslu í sjúkra-
þjálfun.
Fyrirlestur flutti Ben Barkman,
háskólakennari frá Amsterdam.
3. Aðalfundur og upplýsingaskipti.
Ráðstefnuna sóttu um 80 manns,
þar af 22 frá íslandi.
Stjörnubíó sýnir Síðasta drekann
Stjörnubíó hefur tekið til sýningar
kvikmyndina „Síðasti drekinn“, eöa
„The Last Dragon", eins og myndin
heitir á frummálinu.
1 fréttatilkynningu frá kvik-
myndahúsinu segir að myndin
fjalli um dreng nokkurn, sem
dreymi um að öðlast fullkomnun í
íþrótt sinni — karate. Ekki gengur
það þó átakalaust þar sem óvinir
hans reyna stöðugt að koma hon-
um fyrir kattarnef.
Með aðalhlutverk í myndinni
fara þau Taimak, Vanity, Julius J.
Carry, Chris Murney, Faith
Prince, Leo O’Brien, Mike Starr,
Glen Eaton og Jim Moody. Leik-
stjóri er Michael Schultz. Um
tónlistarflutning í Síðasta drekan-
um sjá m.a. DeBarge, Rockwell,
Stevie Wonder, Smokie Robinson,
The Temptations, Alfie og Faith
Prince.
Skora á borgaryfirvöld að bæta
kjör starfsfólks dagvistarheimila
TRÚNAÐARMENN 11. deildar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar héldu fyrir
skömmu fund með starfsfólki dagvistarheimila borgarinnar. í fréttatilkynningu
deildarinnar segir að i fundinum hafi verið samþykkt iskorun til borgaryfírvalda
og viðkomandi stéttarfélaga, að leggja ríka iherslu á að bæta launakjör alls
starfsfólks dagvistarheimila, faglærðra sem og ófaglærðra.
Sem leið til lausnar er f tilkynn- greidda, starfsfólk öðlist forgang að
ingunni bent á úrræði eins og fleiri
undirbúningstíma fóstra, fjölgun
starfsmannafunda, að stöður yfir-
fóstra fáist á öll dagvistarheimili, að
forstöðumenn fái alla yfirvinnu
dagvistarheimilum fyrir börn sín og
greiði lægra dagvistargjald, auk þess
sem hugað verði að lagfæringum á
vinnutima starfsfólks.
(f'r frétutilkrnningu)
Reykjanes:
Blað sjálf-
stæðismanna á
Suðurnesjum
Vojjum, 8. júlí.
í sl. viku kom út 1. tölublað af
blaðinu „Reykjanes" sem gefíð er út
af sjálfstæðismönnum á Suðurnesj-
um. Fyrst um sinn kemur blaðið út
hálfsmánaðarlega á miðvikudögum,
en ef vel gengur eru hugmyndir um
vikulega útgáfu. Blaðiö kemur út á
miövikudögum, er prentað í 4000
eintökum og dreift ókeypis í versiun-
um.
f grein eftir ritstjóra blaðsins
Fylgt úr hlaði segir m.a.: „Reynt
verður að byggja þetta blað upp
sem almennt fréttablað og mál-
efnalegan miðil fyrir Suðurnes",
og síðar segir: „Efni blaðsins verð-
ur sótt í alla þéttbýliskjarna á
Suðurnesjum og eru vel þegnar
greinar, frásagnir og fréttir, því
alltaf er töluvert að gerast hér á
Suðurnesjum." Að lokum segir rit-
stjórinn: „Góðir Suðurnesjamenn.
Við munum reyna að gera þetta
blað eins vel úr garði og kostur er
og vonum að þið hafið bæði gagn
og gaman af.“
Efni 1. tölublaðs er fjölbreytt,
en blaðið er 12 blaðsíður að stærð.
Meðal efnis eru fréttir og viðtöl,
fjölskyldusíða með smásögu og
vísnaþætti, greinar um ýmis mál-
efni ö.fl.
Ristjóri blaðsins er Hákon Að-
alsteinsson og Halldór Leví ann-
ast framkvæmdastjórn. E.G.
Á AD ENDURNÝJA ÞANN GAMLA
-FÁ SÉR EITTHVAD
MEIRA SPENNANDI?
Það þarf ekki að verða mjðg erfitt
D hefjir þú söfnun nú,
B safnir ö Plúslönareikning með Ábót,
B og fáir svo Plúslán.
Um þetta getur þú samið við okkur.
Hittu Ráðgjafann í Útvegsbankanum
D og segðu honum hvað til stendur.
0 Þið finnið það út sameiginlega hve
mikið þú getur sparað mánaðarlega,
0 í hve langan tíma og
□ í hversu hátt lán þú stefnir að sþarn-
aðartíma loknum.
Þú getur því strax farið að hlakka til.
Hefurðu skoðað nýju módelin?
PLÚSLÁN
MED ABOT
ÚTVEGSBANKINN
i EINN BANKI • ÖLL WÓNUSTA