Morgunblaðið - 11.12.1985, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
Hafskip
Það má með sanni segja að
Hafskipsmálið svokallaða
hafi skyggt. á önnur dægurmál
liðinna vikna í blessuðum ríkis-
fjölmiðlunum. Allir eru náttúru-
lega búnir að gleyma okurmálinu
og uppboðsmálum húsbyggjenda.
En þannig eru nú einu sinni fjöl-
miðlarnir að þeir bera dálítinn
keim af því einkennilega fári er
slúður nefnist. Ég Hki slúðrinu við
sjúkdómsfár því það gengur yfir
þjóðina eins og pest, svo slotar
hrinunni og fyrr en varir ríður ný
plága yfir. Persónulega fellur mér
verst við þetta fjölmiðlafár hversu
oft það leggst á saklaust fólk og
dregur það niður í svaðið. Haf-
skipsmálið þarf að skoða í heild
af óvilhöllum aðilum og hafi mis-
ferli átt sér stað þá verður að
draga hina seku til ábyrgðar. Við
höfum löglærða menn í landi voru
er hafa þann starfa með höndum
að sanna eða afsanna sekt þeirra
er hafa verið ákærðir. Það á ekki
að líðast að menn setjist í dómara-
sæti í ríkisfjölmiðlum fyrir fram-
an alþjóð og ákæri menn nánast
um sviksamlegt athæfi. Ég veit
ekki til þess að Ólafur Ragnar
Grímsson hafi verið skipaður í
dómarasæti af alþjóð né heldur
veit ég til þess að Albert Guð-
mundsson sé í stúku sakbornings
þótt hann hafi máski tengst Haf-
skipsmálinu með óvenjulegum
hætti — enda fátítt meðal vest-
rænna þjóða að þingmenn sitji í
bankaráðum. Afskipti Alberts
Guðmundssonar af Hafskipsmál-
inu verða náttúrulega könnuð rétt
eins og tengsl annarra aðila við
hið horfna fyrirtæki. Fjölmiðlarn-
ir eiga ekki að hafa minnstu áhrif
á rannsókn þessa máls þótt hinn
almenni borgari eigi að sjálfsögðu
rétt á að frétta af gangi mála.
Frekir fréttamenn
Ég hef rætt við einn af yfir-
mönnum hins látna skipafélags
um atgang þann er fylgt hefir máli
þessu og spurði ég hann meðal
annars þeirrar spurningar hvað
hefði komið honum mest á óvart
í moldviðrinu: „Ég held að mér
hafi komið mest á óvart frekja
fjölmiðlamannanna þótt sumir
hafi reyndar verið kurteisir. En ég
veit til þess að einn forstjóranna
var nánast í umsátursástandi og
ein blaðakonan gerðist sálusorgari
frúarinnar, gott ef hún tók ekki
að sér að passa barn þeirra hjóna.
Hin siðrænu mörk
Eins og ég sagði áðan þá er ég
hlynntur því sem lýðræðissinni að
almenningur sé upplýstur um sem
flest mál er snerta almannaheill
og vissuiega er fátt varasamara
en gleyma blessuðum stjórnmála-
mönnum því sú hætta er alltaf
fyrir hendi að stjórnmálamennirn-
ir beiti flokkunum líkt og uxa fyrir
eigin vagn. Það er því mikil gæfa
hverjum stjórnmálaflokki að hafa
á að skipa mikilhæfum, heiðarleg-
um og stefnuföstum leiðtogum er
hafa hemil á sníkjudýrunum í
eigin flokki. Einhver greindasti
embættismaður er hér hefir stýrt
þjóðarskútu, Magnús Stephensen
landshöfðingi, hafði að kjörorði:
Festina lente er útleggst flýttu þér
hægt. Það væri betur að fleiri
hefðu tileinkað sér þetta kjörorð,
þá væru hér máski ekki hundruð
manna er horfðu fram til dauf-
legra jóla sökum atvinnumissis
eða flekkaðs mannorðs. Hvað
okkur fjölmiðlamenn varðar þá
höfum við sjaldnast tíma til að
vera vitrir nema eftirá. En þó
megum við aldrei gleyma mitt í
orrahríðinni að eitt sinn gistum
við öll í vöggu og brostum til
heimsins.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Land og saga
— þáttur helgaður afmæli
Reykjavíkur
■■ Þátturinn
40 „Land og saga“
~~ hefst í útvarpi
kl. 10.40 í dag í umsjá
Ragnars Ágústssonar.
Lesari með honum er
Unnur Ágústa Sigurjóns-
dóttir.
Efni hans hefur vakið
athygli enda hefur áhugi
manna fyrir hvers konar
þjóðlegum fróðleik vaxið
að undanförnu að sögn
umsjónarmanns. Þáttur-
inn er sá síðasti á árinu
og verður því efni hans
helgað Reykjavík, sem á
merkisafmæli á næsta ári.
Meðal efnis í dag verður
frásögn um Austurvöll
eftir Árna Óla blaðamann
og ávörp sem haldin voru
á Reykjavíkursýningu
árið 1949. Ávörpin fluttu
Jóhann Hafstein, Jón Axel
Pétursson og Sigfús Sigur-
hjartarson. Gunnar Thor-
oddsen var borgarstjóri á
þeim tíma.
Ólafsfjörður
Sögublik
Bókaþáttur
— Ijóðabók Jóhanns Hjálmarssonar
■■ Bókaþáttur í
25 umsjá Njarðar
— P. Njarðvík
hefst í hljóðvarpi, rás 1,
kl. 22.25 í kvöld. í þættin-
um verður fjallað um ný-
útkomna ljóðabók Jó-
hanns Hjálmarssonar,
blaðafulltrúa Pósts og
síma og bókmenntagagn-
rýnanda Morgunblaðsins.
Ljóðabókina nefnir Jó-
hann „Ákvörðunarstaður
myrkrið". Njörður spjall-
ar við Jóhann um skáld-
skap hans og yrkisefni, en
að sögn Jóhanns felst
yrkisefnið að miklu leyti í
bókartitlinum. Jóhann les
úr bók sinni nokkur ljóð-
anna, en bókin er fyrsta
Jóhann Hjálmarsson
ljóðabók sem hann sendir
frá sér ísjöár.
— hvers vegna varð Ólafsfjörður kaupstaður?
■■ Þátturinn
30 Sögublik er á
— dagskrá út-
varps, rásar 1, í kvöld kl.
21.30 og verður í honum
leitast við að svara spurn-
ingunni hvers vegna Ól-
afsfjarðarkaupstaður hafi
orðið til. Umsjónarmaður
þáttarins er Friðrik G.
Olgeirsson. Lesari með
honum er Guðrún Þor-
steinsdóttir. Sögublik er á
dagskrá hljóðvarps annan
hvern miðvikudag og
ýmist er fjallað um efni úr
almennri sögu landsins
eða héraðssögu, eins og í
þættinum að þessu sinni.
Áður en vikið er beint
að efni spurningarinnar
er litið til fortíðarinnar
og bent á hve fiskveiðar
voru mikilvægar í daglegu
lífi fólks um allan mið-
hluta Norðurlands: í
Siglufirði, ólafsfirði, Dal-
vík og víðar. En vegna
þess að Norðurland var
fyrst og fremst landbún-
aðarsvæði hefur þessi sér-
staða áðurnefndra byggð-
arlega legið í láginni.
Hafnaraðstaða var
misjafnlega góð á þessum
stöðum, t.d. mjög góð í
Siglufirði en léleg í ólafs-
firði. Þessi aðstöðumunur
kom skýrt í ljós þegar
þilskip urðu helstu fiski-
skip landsmanna, þá varð
þéttbýlismyndum örust á
þeim stöðum sem höfðu
bestu hafnirnar. Þrátt
fyrir slæm hafnarskilyrði
myndaðist kauptún í ól-
afsfirði en vafalaust hafði
hafnleysan slæm áhrif á
uppbyggingu staðarins.
Um 1940 var svo komið
að stærstu skip Ólafsfirð-
inga var vart hægt að gera
út frá heimahöfn og þá
loks neyttu þeir ýtrustu
krafta sinna til þess að fá
hafnarlög fyrir byggðar-
lagið og voru þau sam-
sinna til þess að fá hafnar-
lög fyrir byggðarlagið og
voru þau samþykkt árið
1943. I lögunum var gert
ráð fyrir því að sýslunefnd
Eyjafjarðarsýslu yrði að
ábyrgjast öll þau lán sem
tekin yrðu til hafnarfram-
kvæmdanna. En í febrúar
1944 neitaði sýslunefnd
ólafsfirðingum um slíka
ábyrgð. Neitunin kom
mönnum á óvart og torvelt
að sjá hvað væri til ráða.
Kom þá fram sú tillaga
að reynt yrði að fá kaup-
túnið tekið í tölu kaup-
staða, sem þá voru aðeins
níu, en ljóst var að þá
þyrfti ekki ábyrgð sýslu-
sjóðs. Á ýmsu gekk en
haustið 1944 voru sam-
þykkt lög um kaupstaðar-
réttindi Ólafsfjarðar með
ákvæði þess efnis að þau
tækju gildi 1. janúar 1945.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
11. desember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Elvis Elvis" eftir Mariu
Gripe. Torfey Steinsdóttir
þýddi. Sigurlaug M. Jónas-
, dóttir les (11).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál.
Endurtekinn þáttur frá kvöld-
inu áður sem Sigurður G.
Tómasson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna.
10.40 Landogsaga.
Ragnar Agústsson sér um
þáttinn.
11.10 Or atvinnullfinu.
Sjávarútvegur og fiskvinnsla.
Umsjón: Glsli Jón Kristjáns-
son.
11.30 Morguntónleikar.
Þjóðlög frá ýmsum löndum.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan:
„Feðgar á ferð" eftir Heðin
Brú. Aðalsteinn Sigmunds-
son þýddi. Björn Dúason les
(6).
14.30 Óperettutónlist.
15.15 Sveitinmín.
Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(Frá Akureyri.)
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Slðdegistónleikar.
a. Rómansa eftir Wilhelm
Stenhammar. Arne Tellefsen
leikur á fiðlu með Sinfónlu-
hljómsveit sænska útvarps-
ins. Stig Westerberg stjórn-
ar.
b. Þrjú Ijóðræn lög eftir Jean
Sibelius. Erik T. Tawast-
stjerne leikur á planó.
c. Fimm planólög eftir Carl
Nielsen. Elisabeth Westen-
holz leikur.
19.00 Stundin okkar
Endursýndur þáttur frá 8.
desember.
19.30 Aftanstund
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni. Söguhornið
— Palli var einn I heiminum
eftir Jens Sigsgaard, Vil-
bergur Júltusson þýddi.
Sögumaður Viðar Eggerts-
son. Sögur snáksins með
fjaðrahaminn, þýðandi Ólöf
Pétursdóttir.
19.50 Fréttaágrip a táknmáli
d. Tvær rómönsur eftir
Edward Grieg. Eva Knardahl
leikuráplanó.
e. Tvö pianólög eftir Svein-
björn Sveinbjörnsson. Jónas
Ingimundarson leikur.
17.00 Barnaútvarpið.
Meðal efnis: „Kjötkrókur
lendir I veislu", ævintýri eftir
Iðunni Steinsdóttur. Arnar
Jónsson ies. Stjórnandi:
Kristln Helgadóttir.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19A0 Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur.
Helgi J. Halldórsson flytur
þáttinn.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Maöurogjörð
(A Planet for the Taking)
7. Herjað á dauðann.
Kanadlskur heimildamynda-
flokkur I átta þáttum um
tengsl mannsins við uppruna
sinn, náttúru og dýrallf og
firringu hans frá umhverfinu
á tækniöld. Umsjónarmaður
David Suzuki. Þýðandi og
þulur Öskar Ingimarsson.
19.50 Eftir fréttir.
Bernharður Guðmundsson
flytur þáttinn.
20.00 Hálftlminn.
Elín Kristinsdóttir kynnir
popptónlist.
20.30 Iþróttir.
Umsjón: Samúel örn Erlings-
son.
20.50 Hljómplðturabb
Þorsteins Hannessonar.
21.30 Sögublik.
Hvers vegna varð Ólafsfjörð-
ur kaupstaður? Umsjón:
Friðrik G. Olgeirsson. Lesari
með honum: Guðrún Þor-
steinsdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins.
21.50 Dallas
Jafnræði
Bandarlskur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi
Björn Baldursson.
22.45 Chet Baker I Óperunni
Slöari hluti tónleika á vegum
Jassvakningar I fyrravetur
með trompetleikaranum
Chet Baker ásamt (slenskum
djassleikurum. Upptöku
stjórnaöi Tage Ammendrup.
23.20 Fréttir I dagskrárlok
22.25 Bókaþáttur.
Umsjón: Njörður P. Njarðvlk.
23.05 A óperusviðinu.
Leifur Þórarinsson kynnir
óperutónlist.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
11. desember
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
Hlé.
14.00—15.00 Eftirtvö
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
15.00—16.00 Núerlag
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins. Stjórnandi:
Gunnar Salvarsson.
16.00—17.00 Dægurflugur
Nýjustu dægurlögin.
Stjórnandi: Leopold Sveins-
son.
17.00—18.00 Þræðir
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
Þriggja mlnútna fréttir sagð-
ar klukkan 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.
17.00—18.00 Rlkisútvarpið á
Akureyri — Svæöisútvarp.
SJÓNVARP
MIÐVIKUDAGUR
11. desember