Morgunblaðið - 11.12.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
49
r
Söngskemmtun
Stykkishólmi, 9. desember.
í Stykkishólmi
KÓR Snæfellingarélagsins í Reykja-
vík heimsótti Stykkishólm í gærdag
og hélt þar tónleika í Félagsheimil-
inu. Kórinn er skipaður 28 söng-
mönnum þar af 18 konum. Kórinn
hefir æft í haust og vetur það sem
af er undir stjórn Friðriks Kristins-
sonar frá Stykkishólmi og var auð-
heyrt að hann var í góðri æfingu.
Undirleikari var Þóra Guðmunds-
dóttir en bæði söngstjóri og undir-
leikari eru Snæfeliingar. Þess má
geta að kirkjukór Stykkishólms
undir stjórn Jóhönnu Guömunds-
dóttur tók þátt í þessari söng-
skemmtun ásamt Jóni Svan Péturs-
syni hljóðfæraleikara.
Er ekki að orðlengja það að þessi
söngskemrntun var öllum aðilum
til stórsóma enda fögnuðu Hólm-
arar þeim innilega. Söngskráin var
mjög viðamikil og verk meistar-
anna voru þar á meðal. Meðal laga
var Allsherjar drottinn eftir César
Franck og þar söng Friðrik söng-
stjóri einsöng. Þá skiftust söng-
stjórarnir á að stjórna söngnum.
Að söngnum loknum ávarpaði
Kúabændur
áSuðurlandi:
Átelja seina-
gang ráðherra
við ákvörðun
svæðabúmarks
STJÓRN Félags kúabænda á Suð-
urlandi hefur sent landbúnaðarráð-
herra bréf þar sem seinagangur í
ákvörðun svæðabúmarks er harð-
lega átalinn.
Bréf kúabændafélagsins til
landbúnaðarráðherra er svohljóð-
andi: nStjórn Félags kúabænda á
Suðurlandi átelur harðlega þann
seinagang sem ríkt hefur við
ákvörðun á framleiðslurétti ein-
stakra búvöruframleiðenda á yfir-
standandi verðlagsári. Nú þegar
er liðinn fjórðungur yfirstandandi
verðlagsárs án þess að fullvirðis-
réttur framleiðenda sé þeim ljós.
Stjórnin lítur þetta ástand mjög
alvarlegum augum og skorar á
landbúnaðarráðherra að hraða
ákvarðanatöku í þessu máli.“
Leiðrétting
frá sjón-
varpsþýðanda
f fræðslumynd um Halley-hala-
stjörnuna sem sýnd var í sjónvarpi
3.12. fór ég sem þýðandi rangt með
nafn halastjörnunnar. Ég hef
ávallt notað o-hljóð og sagt „Hol-
lei“ — sbr. t.d. enska orðið hall
(frb. „hol"). Réttur enskur fram-
burður þessa nafns er hins vegar
„Hallei" — með venjulegu a-i. Svo
tamur var mér fyrstgreindur
framburður að ég tók ekki eftir
framburði þular í frumútgáfu
myndarinnar.
Hlustendur eru beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum og hefur
hann vonandi ekki orðið til þess
að menn misstíga sig við framburð
þessa hábreska nafns.
Þá er rétt að geta þess, til að
girða fyrir hugsanlegan misskiln-
ing, að þar sem koma fram í ís-
lenska textanum að Halley-hala-
stjarnan hverfur sjónum manna í
„rúma hálfa öld“ og í „tvo þriðju
hluta úr öld“ er um að ræða til-
raunir til að forðast endurtekning-
ar. Umferðartími Halley-
halstjörnunnar er 75-76 ár og er
þá miðað við örfáa mánuði meðan
hún sést berum augum. Á það er
minnst í upphafi myndar og aftur
síðar. Sé hins vegar reiknað með
þeim tíma sem hún sést í öflugum
sjónaukum má draga frá 6 til 7
ár. Taldi þýðandi sér óhætt að
nota ofangreinda setningarhluta;
skv. sinni málvitund.
Ari Trausti Gudmundsson
oddviti okkar, Ellert Kristinsson,
kórfélaga í Snæfellingakórnum,
þakkaði komuna og færði þeim til
minja fána Stykkishólms. Minnt-
ist hann tengsla burtfluttra og
heimamanna og kvað bæði nauð-
syn og gaman að halda þessum
tengslum við. Hreppsnefndin bauð
síðan komumönnum til kaffisam-
sætis og var þar ánægjulegur
fagnaður. Ég átti tal við nokkra
kórfélaga sem voru bæði ánægðir
og hrifnir yfir móttökunum, enda
var vel mætt og viðtökur ljúf-
mannlegar eins og gestirnir áttu
skilið.
Áður hafði kór Snæfellingafé-
lagsins sungið á Ólafsvík og
Grundarfirði á laugardag, var
þetta því nokkuð strangur túr því
lagt var af stað heimleiðis að söng
loknum.
Þess má að lokum geta að að-
gangseyrir rann til hinnar nýju
kirkjubyggingar í Stykkishólmi.
Við þökkum fyrir komuna og
góðan söng.
Árni
MABJOÐAÞER
SKAITFRIA15A
TEKNJHÆKKUN?
TEKIUHÆKKUN
Þú getur hœkkað tekjur þínar af innstœðum á bankareikningi með
þvfað fœra féð yfirá Öndvegisreikning með 18 mánaða bindingu.
Öndvegisreikningur gefur af sér hœrri vexti en allir aðrir
inniánsreikningar, nema um lengri binditíma sé að rœða.
SKATTFREISI
Vaxtatelqur af sparifé eru skattfrjálsar skv. lögum.
Ráðgjafinn í Útvegsbankanum sýnir þér hvernig þú ferð að.
\
GYLMIfVStA