Morgunblaðið - 11.12.1985, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
Myndarleg
Jolakort
Jólakortin bera innilegar
jólakveðjur til ástvina
um allan heim. Falleg og
persónuleg Ijósmynd með
jólakortinu gefur kveðjunni
meira gildi < < m ___
og er ennþá FRAI\/IKf)L // LI\L og umslag
iulporn ril«l nm/LU/rW kostar25kr.
Við bjóðum jólakort með
stórri litmynd (10x15 sm),
eftir þinni fyrirmynd og
með nœgu plássi inni í
fyrir ,jstóra“ jólakveðju.
Kort, mynd
ánœgjulegra..
fÆ~m m+M <
wtmi
xiiiii
wmtwtwa
AUSTURSTRÆTl 22 - S 6213SO
Þokkalegt
verð á fyrsta
refaskinnaupp-
boði vetrarins
FYRSTA rcfa.sk innauppboð vetrar-
ins var í uppboðshúsi finnska loð-
dýraræktarsambandsins í Helsing-
fors í síðustu viku. Verð reyndist
svipað eða hærra reiknað í dollurum
en var á desemberuppboðinu í fyrra
og eru forsvarsmenn loðdýrabænda
þokkalega ánægðir með það.
Jón Ragnar Björnsson fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
loðdýraræktenda sagði í gær að
83% þeirra 220 þúsund blárefa-
skinna sem í boði voru hefðu selst
fyrir 2.100 kr. íslenskar að meðal-
tali. Meðalverð skuggaskinna hefði
verið 2.530 krónur og hefðu selst
93% þeirra 70 þúsund skinna sem
boðin voru upp. Þá hefðu 97%
framboðinna blásilfursskinna
selst, fyrir 3.690 kr. að jafnaði, en
í boði voru um 14 þúsund skinn.
Jón Ragnar sagði að þetta verð
fyrir blárefinn væri svipað miðað
við Bandaríkjadollar og á upp-
boðinu í Helsingfors í fyrra en
hinar tvær tegundirnar hefðu selst
á um 10% hærra verði en í fyrra.
Verðið væri lægra en í fyrra ef
miðað væri við norrænu gjald-
miðlana. Sagði hann að menn
hefðu ekki búist við öðru og væru
því þokkalega ánægðir. Fyrstu
íslensku refaskinnin sem seld
verða í norrænu uppboðshúsunum
verða boðin upp í Kaupmannahöfn
í febrúar.
1
HCggSðð
CA^nnap
Gerð A:
Breidd 40 cm
Hæð 22 cm
Dýpt 30 cm
Cartomobili boxið er
framleitt úr sérstaklega
styrktum harðpappa
með áferðarfallegri
glanshúð.
Tilvalin geymsla t.d. fyrir
skóladót, blöð, leikföng,
fatnað, prjónadót og
margt fleira. Einnig má
útbúa úr boxinu skápa-
pláss og skrifborð. Enda-
lausir uppröðunarmögu-
leikar.
5 litir: Hvítt, rautt, gult,
grænblátt og bleikt.
1 stk. 250 kr.
lOstkipk. 2.249 kr.
Dreifing á íslandi:
r diopinn
Hafnargötu 90 - 230 Keflavík
Símar: 92-2652 og 92-2960
HOðgSðS
CAgOpUNNAB
Gerð B:
Breidd 40 cm
Hæð 40 cm
Dýpt 25 cm
Cartomobili kassinn er
framleiddur úr sérstak-
lega styrktum harð-
pappa með áferðarfal-
legri glanshúð.
Kassinn er styrktur með
járnumgjörð.
Mjög hentugt sem
geymslupláss fyrir
bækur og ýmislegt ann-
að.
Litir: Hvítt, rautt, gult,
grænblátt og bleikt.
1stk.340kr.
6stk ipk. 1.890 kr.
Dreifing á Islandi:
r diopinn
Hafnargötu 90 - 230 Keflavik
Símar: 92-2652 og 92-2960
Gerð D:
Breidd 40 cm
Hæð 40 cm
Dýpt 25 cm
Cartomobili skúffurnar
eru framleiddar úr sér-
staklega styrktum harð-
pappa með áferðarfal-
legri glanshúð.
Styrkt með járnumgjörð.
Gott skúffupláss. Hent-
ugt við rúmið, skrifborð-
ið og alls staðar þar sem
geymslupláss vantar.
Litir: Hvítt, rautt, gult,
grænblátt og bleikt.
1stk.775kr.
3stk2.245kr.
6stk.(5B + 1D)2.245kr.
Dreifing á Islandi:
r diopinn
Hafnargötu 90 - 230 Keflavík
Símar: 92-2652 og 92-2960
n L J 1 alltíeinum dropa n k J allt í einum dropa,
n
. J
Krakkarnir í 4. og 5. bekk Myllubakkaskóla f Keflavík glöð og ánægð
með vel heppnaða hlutaveltu, til styrktar öldruðum.
Keflavík:
Vel heppnuð hlutavelta
til styrktar öldruðum
UM miðjan nóvember stóðu nem-
endur 4. og 5. bekkjar Myllu-
bakkaskóla f Keflavík fyrir hluta-
veltu, til styrktar „Styrktarfélagi
aldraðra á Suðurnesjum".
Söfnun og undirbúningur gekk
mjög vel og var hlutaveltan hald-
in laugardaginn 16. nóvember.
Fór hún fram á göngum skólans
og gekk í alla staði mjög vel.
Þegar upp var staðið höfðu komið
inn kr. 51.150.- Formanni Styrkt-
arfélagsins, Guðrúnu Sigur-
bergsdóttur, var síðan boðið á
„diskótek" í Myllubakkaskóla,
þar sem fulltrúi nemenda afhenti
henni peningana. Ekki er hægt
að segja annað en að krakkarnir,
sem unnu að hlutaveltunni, hafi
staðið sig vel og eiga þeir hrós
skilið fyrir frammistöðuna, segir
í frétt frá Myllubakkaskóla af
þessu tilefni.
Athugasemd frá norsk-
um hjúkrunarkonum
Morgunblaðinu hefur borizt eftir-
farandi athugasemd frá norsku
hjúkrunarkonunum, sem viðtal birt-
ist við hér í blaðinu fyrir skömmu.
Með tilvísun til fréttaviðtals í
Morgunblaðinu 27. nóvember sl.,
sem var í tilefni af viðtali við okkur
í blaðinu 23. nóvember, sjáum við
okkur tilneyddar að koma á fram-
færi eftirfarandi:
Við leggjum áherslu á, að nokk-
uð af því, sem við vildum beina
athygli fólks að, varðar mótsögn,
sem við verðum varar við í okkar
daglega starfi á Borgarspítalan-
um. Annars vegar er það lítil
gagnrýni á notkun dýrra einnota-
hluta en hins vegar umræðan um
slæman efnahag. Við vildum að
þetta ósamræmi kæmi fram.
Hjúkrunarfólk hér tilheyrir lág-
launahópi og fær ekki laun í sam-
ræmi við mikla og góða starfs-
menntun. Það er niðurlægjandi á
sama tíma og svo lítið er spurt
hvað hlutir til rekstrarins kosta.
í viðtalinu við okkur voru hlutir,
sem notaðir eru í lyfjameðferð,
teknir sem dæmi. Það ætti að
koma skýrt fram, þegar textinn
er lesinn í heild. Það er ekki í okkar
verkahring að ákveða hvaða lyf
eiga að vera til staðar og ef Jó-
hannes Pálmason og Kristján
Linnet, sem rætt er við i umræddu
fréttaviðtali, skilja orð okkar
þannig, að við séum að finna að
þeirri hlið þykir okkur það leitt.
Að sjálfsögðu erum við sammála
um að aðalatriðið sé, að þau lyf
og þær hjúkrunarvörur sem í boði
eru eigi að vera fullnægjandi.
Við tjáum okkur sem hjúkrunar-
konur og leyfðum okkur að bera
saman reynslu okkar hér við
reynsluna á norskum sjúkrahús-
um. Þar hafa víðtækar sparnaðar-
ráðstafanir verið gerðar síðustu
árin með tilliti til útgjaldaliðarins
rekstrarvörur og er þar stanslaust
metið eftir þörfum. Þetta hefur
m.a. verið gert með því að meta,
hvort þörf er á hinum gífurlega
fjölda einnotahluta sem eru á
markaðinum, auk þess sem lögð
hefur verið áhersla á endurmat og
að haft sé vakandi auga með þess-
um útgjaldalið innan hverrar
sjúkrahúsdeildar.
Eins og við sögðum hér í upphafi
var það mótsögnin lág laun og há
rekstrarútgjöld sem við vildum
koma á framfæri og vonum við að
nú sé þetta ljóst.
Að lokum viljum við að fram
komi, að við söknum mjög gagn-
rýnins mats á útgjaldaliðum. Til
þess að gera það eftirsóknarvert
fyrir hjúkrunarkonur að stunda
vinnu sína í stað þess að byggja
afkomuna á miklum fjölda auka-
vakta, er nauðsynlegt að fram fari
launalegt endurmat.
Anne Grete Bli
Astrid M. Borgen
Bente I. Tettum