Morgunblaðið - 11.12.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1986
15
Við tímans
fljót
Við tímans fljót
Frásögur frá ýmsum löndum.
Endursögn: Alan Boucher.
Þýðing: Helgi Hálfdanarson.
Myndskreyting: Þóra Sigurðardótt-
ir.
Litgreining: Prentmyndastofan hf.
Prentverk: Prentsmiðjan Hólar hf.
Útgefandi: Mál og menning.
Á för mannsins frá hellinum til
halla nútímans hefir margt skeð
sem týnist í sinu og ryki slóðar.
Orð buldu á hlustum, voru síðan
borin burt af blænum, leystust upp
og gleymdust. Athafnir þóttu
glæstar, vöktu aðdáun, en reynd-
ust, er tímans tönn tók að narta í
þær, hismi, hjóm sem eftir
skamma stund sá hvergi stað. En
svo var annað, sem manninum
þótti svo merkilegt á vegferð sinni,
að hann reyndi að muna og kenna
börnum sínum öld af öld, þar til
fest var á bókfell. Úr slíku varð
til arfleifð, mannkynssaga. f hana
sækir höfundur efni í bók sína Við
tímans fljót. Sjálfsagt má um það
þrátta, hvað á erindi í slíka bók,
það verður alltaf matsatriði. Sjálf-
um finnst mér vopnaglamið of
hávært, of margir þáttanna snúist
um aðdáun á herkóngum og slátur-
húsastörfum þeirra. Ég hefði kosið
fleiri þætti um fólk í taktstigi við
grómögn lífsins, eins og Stúlkan
sem varð leið á dansi. Boucher
hefir sér til málsbóta, að sjálfsagt
yrði það talin litlaus lýsing á því
er merkilegt þykir í sögu manns-
ins, ef strikað væri yfir vopnaskak
hans og drápsfýsn. Þættirnir 22
eiga það allir sammerkt að hafa
þótt svo ágæt saga, að þuldir hafa
þeir verið lengi, sumir í aldir.
Höfundur þylur af snilld hins
þjálfaða sögumanns dregur kjarna
fram í stuttu máli, segir svo frá
að auðvelt er að muna. Þetta er
hið fyrra er veldur, að ég tel að
bókin ætti að vera skyldulesning
í efstu bekkjum grunnskóla. Hið
annað er, hvernig til tókst um
snörun bókarinnar á íslenzku. Hér
birtist tungan í tign, þróttmikil,
fögur. Já, Helgi kann það mál, sem
ungum væri hollt að líkja eftir.
Hér hefir menntamálaráðherrann
setuna sína, og meira til, dæmi um
það, hvílíka gersemi við eigum í
móðurmáli okkar, þegar rækt er
við hana lögð. Að vísu er hljómfall
þáttanna ekki alltaf jafn ferskt og
tært, eins og skáldinu hafi hálf-
leiðst og gert hlé milli heillandi
spretta. Slíkur er háttur gæðinga,
gerir skeiðhljóðið töfrahljómi lík-
ast. Víst er Helgi sérvitur, stafset-
ur sum gömul og gild landanöfn
uppá nýjan hátt. En hvað er rétt
eða rangt í slíku? Skáld hafa jú
rétt á að vera öðruvísi en fjöldinn.
Myndir Þóru eru af kunnáttu
gerðar, fíngert skraut konu, bókar-
prýði. Próförk mjög vel unnin. Bók
sem vert er að veita athygli, því
að hér er afbragðsverk fyrir þrosk-
aða unglinga. Hafi útgáfan þökk.
Guðmundur
skipherra
Rjæmested
síðara bindi
skráð af Sveini Sæmundssyni
Saga hatrammra átaka,
taugastríds og ofbeldisverka
Þetta er líka saga um harðfylgi og þrautseigju
íslenskra varðskipsmanna og óumdeildan foringja
þeirra í baráttunni við ofurefli sem að lokum laut í
lægra haldi.
Sveinn Sæmundsson skráir sögu Guðmundar
skipherra og baráttunnar við breska Ijónið sem náði
hámarki er herskip reyndi að sökkva varðskipinu Tý.
Breskir útgerðarmenn kröfðust þess að Guðmundur
yrði rekinn í land og herskipamenn óttuðust hann og
hötuðu.
„Við erum ekki stríðsmenn," sagði Guðmundur, „en
þegar ráðist er á okkur með ofbeldi legg ég allt í
sölurnar til að verja sjálfstæði íslands."
ÞETTA RITVERK ER ÓMETANLEG HEIMILD UM
BARÁTTU ÞJÓÐAR FYRIR TILVIST SINNI
OG öftlYQtJfl
KE.KristianKalund
ÍSLENZKlR
SögustaðiR
VESTflRÐfNGA
EJÓRDUNGUR
...— .-....- ~ ~ ~ V| 11| I I ^
íslenzklr sögustaðir
Vestflrðingafjórðungur
„Annað bindi
öndvegisrits"
„Höfundur hefur ferðina . . . við Hvítá í
Borgarfirði . . . Á leið hans verða
sögustaðir íslendingasagna hver á fætur
öðrum og lýsir hann þeim og tengir
sögunum og atbuðum þeirra. Er bókin
þannig, öðrum þræði eins konar
handbók fyrir þá er vilja ferðast um fsland
sagnanna og fræðast um menn og atburði
sem þar er frá greint og skoða um leið
sögustaði." j^n p pór (Tíminn 26/11/85)
Bemska
Minningar Huldu Á.
Stefánsdóttur
— bemska
Hulda Á. Stefánsdóttir er ein þeirra
kvenna sem sett hafa svip á öldina og
þjóðin öll þekkir og ann.
Erásögn hennar stendur djúpum rótum í
þjóðlífi og sögu. Mannlýsingar eru skýrar
og hispurslausar, yljaðar kímni og
næmum skilningi.
í HÓPI MERKUSTU MINrHMGABÓKA
Sjómannsævi
— lokablndið —
eftir Karvel Ögmundsson
í þessu bindi segir Karvel frá sjósókn
sinni á Hellissandi, ísafirði og Hjarðvík-
um. Mikill fengur er að tveimur köflunum,
leiftrandi frásögn af Ólafi Thors og
frásögnum af yflrnáttúrulegum fyrirbær-
um, draumum, dulheym, hugboðum og
aðvörunum, en Karvel er gæddur
dulrænum hæfileikum sem hann kann að
nýta bæði sér og öðrum til góðs.
BOKAUTGAFAN ÖRN fif ÓRLYGUR
Síðumúla 11, sími 84866
|
| P.s. Minnið þið pabba og mömmu á að á
morgun drögum viö út fyrsta bílinn.
13 dagar til jóla.
í dag leysum viö húsnæðisvandann:
11 Fisher Price dúkkuhús í vinning.
Númerin eru:
T3i3— iisirs- lb29bH— zoqio4
S-23b2- I229ÚI- R5MH9-
7D527-