Morgunblaðið - 11.12.1985, Page 26

Morgunblaðið - 11.12.1985, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985 Frá Jónasi á Hriflu til Ómars Ragnarssonar MINNI o(» kynni, frásagnir og viðtöl, heitir bók eftir séra Emií Björnsson, sem nýlega kom út hjá Erni og Örlygi. Heiti bókarinnar lýsir efni hcnnar vel; Emil skrifar þar um kynni sín, misjafnlega mikil, af fólki sem hefur brennt sér leið inn í minni hans. Efnivið- inn ber hann fram ýmist í formi viðtals eða beinnar frasagnar. I formálsorðum segir Emil að öllum þeim sem sagt er frá á blöðum bókarinnar hafi hann kynnst per- sónulega, auk þess sem langflestir þeirra hafi orðið öllum almenningi á Islandi minnisstæðir og átt sinn þátt í að móta sögu þjóðarinnar á þessari öld. „Þetta er fólk sem hefur horft upp á og tekið þátt í að móta íslenskt samfélag á ein- hverjum mestu umrótstímum þess, fram að seinna stríði og upp úr því, þegar þjóðfélagið nánast steypti stömpum; mesta byltingar- skeiði í landsögunni, sem orðið hefur í tíð einnar kynslóðar,“ seg- ir Emil. „Ég held að engin kynslóð hafi lifað jafn stórkostlega lífsháttar- byltingu og sú sem frá er sagt í bókinni og ég tilheyri. Þótt ég hafi síðar séð og lifað kjarnorku- öld, geimferðaöld og tölvuöld, mörkuðu þær stökkbreytingar ekki sömu skil í íslensku þjóð- félagi og straumhvörfin í kring- um stríðið, þegar við stukkum, má segja, á einni nóttu út úr fornöldinni inn í tækniveröld nútímans. Aðalheiði Bjarnfreðs- dóttur finnst hún hafa lifað í þúsund ár. Ég skil hana vel; mér finnst ég hafa lifað í 1100 ár, eða frá upphafi ísiandsbyggðar!" segir hann. Emi! segir frá tólf manns í bók sinni, átta lýsir hann í beinni frásögn, en fjórum í viðtölum. Bókin skiptist í samræmi við þetta í tólf sjálfstæða kafla. Bók- in er að mestu leyti skrifuð á þessu ári, en sumar frásagnirnar eru eldri, tvær hafa áður birst á prenti og sumar hafa heyrst í útvarpi eða sjónvarpi, sem hefur verið aðalstarfsvettvangur Em- ils. Fólkið sem Emil fjallar um er: Aðalbjörg Sigurðardóttir, Brynjólfur Bjarnason, Guðlaug Helga Þorgrímsdóttir, Gylfi Þ. Gíslason, Halldór Laxness, Hen- rik Ottósson, Jóhanna Egilsdótt- ir, Jónas Jónsson frá Hriflu, María Maaek, Ómar Ragnarsson, Sigurður Nordal og Vigfús Þórð- arson. „Ég valdi að skrifa um þetta fólk af tveimur ástæðum," segir Emil, „það hefur orðið mér minnisstætt og risið upp á bylt- ingarkenndum tímum. Það er af ólíkum stéttum og af ólíkum toga, en flest á það sammerkt að hafa á einhvern hátt átt þátt í því að móta samtíð sína. Ékki svo að skilja að þetta sé eina fólkið sem mér er minnisstætt í 1100 ára lífshlaupi mínu! — þvert á móti, en einhvers staðar varð að byrja," En út frá hvaða sjónarhorni er skrifað? Er um hlutlausa sagnfræði að ræða eða situr persónulegt mat í öndvegi? „Hvað viðtölin snertir eru það viðmælendurnir sjálfir sem tala. Það kom ekki til mála að ég legði mitt persónulega mat á þeirra orð, og að því leyti er um sagn- fræðilega upprifjun að ræða, bæði á þeirra lífshlaupi og sam- tíð. Það eru tengsl í allar áttir. Viðtölin við Brynjólf Bjarnason fyrrum ráðherra og dr. Sigurð Nordal eru til dæmis unnin upp úr sjónvarpsviðtölum sem ég átti við þá og skrifuð nánast orðrétt upp úr þeim. Það var mikið í þau lagt á sínum tíma af hálfu þess- ara merku viðmælenda minna. Viðtalið við Sigurð er elsta efni bókarinnar. Það birtist í sjón- varpinu árið 1969, en hefur aldrei áður komið á prent. Þar leysti hann frá skjóðunni. Hin tvö við- tölin eru við Gylfa Þ. Gíslason og Ómar Ragnarsson. Samtalið við Ómar er lengsti kafli bókar- innar, 30 blaðsíður, einkaviðtal frá síðasta sumri. Ómar rifjar upp barnæsku sína og unglings- brek, og ýmislegt úr starfi sínu Séra Emil Björnsson sem skemmtikraftur og sjón- varpsmaður. Ég held að Ómar hafi ekki áður rifjað upp minn- ingar sínar á bók. Viðtalið við dr. Gylfa birtist í sjónvarpinu í haust og vakti mikla athygli. Frásagnirnar eru af öðrum toga. Þær eru um mennina sem frá er sagt og störf þeirra og þar kemur lífsafstaða mín sjálfsagt nokkuð við sögu. Þó hef ég öðrum þræði reynt að setja mig í hlut- lægar stellingar. Ég hef starfað svo lengi við fréttamennsku að mér er eðlilegt að greina hlut- laust frá án þess að blanda per- sónu minni og skoðunum mikið inn í. Því hvað erum við frétta- menn annað en annála- og sögu- ritarar okkar tíma? En sumar frásagnirnar eru fyrst og fremst mannlýsingar og þar hlýtur mat mitt að liggja til grundvallar. Eins og til dæmis þátturinn af sóknarprestinum mínum, Vig- fúsi Þórðarsyni. Ég kalla þá frá- sögn „Á annarri stjörnu", sem er við hæfi, því séra Vigfús var sem af annarri stjörnu. Hann var sannur Jón prímus; gerði við allt milli himins og jarðar, klukkur, úrverk, koppa og kirnur og allt þar á milli — fann meira að segja upp dúnhreinsunarvél. Og velti mikið fyrir sér lífi á öðrum stjörnum. Aðrar frásagnir eru jafn mikið um verk og áhrif mannanna sem persónu þeirra. Til dæmis þætt- irnir af Jónasi frá Hriflu og Halldóri Kiljan Laxness, sem báðir eru langir. Þeir voru ein- hverjir umtöluðustu menn í samfélaginu á fyrri hluta aldar- innar. Halldóri Laxness hef ég kynnst einna minnst persónulega af því fólki sem ég fjalla um, og segi því fyrst og fremst af les- andakynnum mínum við hann. Einkum frá þeim tíma þegar hann var hvað umdeildastur, áður en hann fékk Nóbelsverð- launin. Enda heitir frásögnin „Höfuðsetið höfuðskáld“. Hall- dór er ekki lengur umdeildur maður, en það er Jónas hins vegar, og ef til vill er ekki hættu- laust fyrir unga menn að nálgast svo eldfimt efni, en ég er orðinn svo gamall! Þáttur Jónasar í bók- inni er byggður á útvarpserindi sem ég flutti á sínum tíma og heitir „Enginn millivegur". Hjá honum var enginn millivegur fær. Annar merkilegur maður sem ég greini frá var Henrik Ottós- son. Hann var það sem ég kalla friðelskandi bardagamaður, hann var svo ljúfur að börn löð- uðust að honum eins og flugur að ljósi, en á hinn bóginn gall- harður baráttumaður fyrir hönd þeirra sem hann taldi að væru beittir órétti. „Guðhrædd bæði og mikil- menni" nefni ég kaflann um Maríu Maack, og vitna þar til Gríms Thomsen, „mild var hún við snauða og arma“ — svo kvað Grímur um Olöfu ríku. María var þjóðsaga í lifanda lífi og ég efast um að nokkur manneskja hafi verið vinsælli á sinni tíð. Hún hjúkraði sjúkum í Farsóttar- húsinu í Reykjavík í hálfa öld, og áður á Holdsveikraspítalanum og Franska spítalanum. Þar háði hún baráttu með fólkinu við dauðann. Hún var einnig ókrýnd drottning óbyggðanna; ferðaðist með „hirð“ manna um óbyggðir landsins og sló tjöldum nánast hvar sem var. Hún var mild kona og þrekmikil, eins og reyndar aðrar konur sem fjallað er um í þessari bók, Jóhanna Egilsdóttir, Aðalbjörg Sigurðardóttir og móðir mín, Guðlaug Helga Þor- grimsdóttir." Hér fellum við talið, en það er við hæfi að birta í lokin stutta frásögn úr kaflanum þar sem Emil segir frá móður sinni. Það skerpir skilning lesandans á þeirri sjálfsskoðun sinni, að hann hafi lifað svo marga tíma og ólíka að honum finnist hann hafa taugar aftur í aldir. „Við systkinin vissum að það var heilög skylda hennar að fara og hjálpa á nótt sem degi þegar kallið kom. En við báðum þess samt oft heitt og innilega að maðurinn með lausa hestinn í taumi, sem kom til að sækja hana í fyllingu tímans, kæmi ekki þegar veðrin voru voðaleg- ust og nóttin svörtust. En því miður kom hann ekki síst þá að okkur virtist, þegar eigi varð greindur munur á svörtum hesti og hvítum sökum myrkurs. Ég minnist einnar slíkrar vitj- unar sérstaklega er móðir okkar hvarf út í sótsvartan hríðarbyl um miðja vetrarnótt, og sá eng- inn á henni hik eða kvíðavott þótt hún ætti fyrir höndum ferð á innsta bæinn í dalnum. Þessa nótt og alla næstu viku var ekki farið milli bæja sökum veðurs nema líf lægi við og ekkert síma- samband milli bæja. Það var því fyrst eftir rúma viku, er eðlilegar samgöngur gátu hafist innan sveitar að nýju, að við fréttum að hún hefði komist lífs á leiðar- enda og getað hjálpað. Þeirri löngu bið milli vonar og ótta barf ekki að lýsa.“ Rætt við séra Emil Björnsson, fyrr- verandi fréttastjóra sjónvarps, um nýútkomna bók hans, Minni og kynni Doktor í stjórnmála- heimspeki frá Oxford Föstudaginn 22. nóvember síðast- liðinn varði Hannes Hólmsteinn Gissurarson doktorsritgerð í stjórnmálaheimspeki við Oxford- háskóla. Nefndist ritgerðin „Hay- ek’s Conservative Liberalism" og fjallaði um þá sátt eða sameiningu íhaldsstefnu og frjálslyndisstefnu, sem gæti að líta í kenningu Fried- richs A. Hayeks og nokkurra ann- arra stjórnmálahugsuða, svo sem þeirra Humes og Tocquevilles. Ritgerð Hannesar skiptist í fjóra meginkafla. í fyrsta kaflanum er hugtak það sem lagt er til grund- vallar, frjálslynd íhaldsstefna eða „conservative liberalism", skil- greint og síðan er það skýrt með tilvísun til þeirra hugsuða, sem komist hafa næst því að beita því. í öðrum kaflanum er gerð grein fyrir meginhugmynd frjálslyndra íhaldsmanna, hugmyndinni um sjálfstýringu á markaði (spont- aneous order), og rakin er til frekari skýringar ritdeila þeirra Hayeks og Oskars Langes á fjórða áratugn- um um hvort væri heppilegra mið- stýring á grundvelli ríkiseignar á atvinnutækjum eða sjálfstýring á markaði. í þriðja kaflanum er hugmyndin um sjálfstýringu útfærð á siðferði- leg efni og rök leidd að því að sið- ferðilegt aðhald sé frelsinu nauð- synlegt. í þessum kafla ræðir Hannes meðal annars hugmyndir Tocquevilles um siðferðilega sjálf- stýringu í fámennum byggðum og gagnrýni Hegels í Réttarspeki hans á borgaralegt skipulag. í fjórða kafla ritgerðarinnar er síðan rætt um ýmis rök frjálslyndra manna gegn íhaldsstefnu. í þeim kafla og öðrum er frjálslynd íhaldsstefna í anda Hayeks borin saman við ýms- ar aðrar kenningar, er borið hefur hátt síðustu árin, svo sem þeirra Rawis og Nozicks, en nokkuð hefur verið skrifað um tvo hina fyrr- nefndu á íslensku. Meginniðurstaða í doktorsritgerð Hannesar Hólmsteins er, að íhalds- semi og frjálslyndi geti myndað rökræna og sjálfri sér samkvæma heild, ef notuð sé hugmyndin um sjálfstýringu. Leiðbeinandi Hann- esar í Oxford var dr. John Gray, félagi á Jesús-garði, en hann hefur gefið út bækur um John Stuart Mill og Hayek. Andmælendur við doktorsvörnina voru þeir dr. Zbigniew Pelczynski og John R. Lucas. Luku þeir lofsorði á rit- gerðina, töldu hana frumlega og athyglisverða, en gerðu að umtals- efni þau atriði, sem þeir væru ekki sammála höfundi um. Hannes Hólmsteinn Gissurarson fæddist í Reykjavík 19. febrúar 1953, sonur hjónanna Ástu Hannes- dóttur kennara og Gissurar J. Kristinssonar trésmiðs. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík með ágætiseinkunn árið 1972, B.A. prófi í sagnfræði og heimspeki og cand. mag. prófi í sagnfræði frá Háskóla íslands, hvort tveggja með fyrstu einkunn, en hóf nám í stjórnmálaheimspeki í Oxford-háskóla haustið 1984. Hann var R.G. Collingwood Scholar í Pembroke College 1984—1985, en sú viðurkenning er veitt einum stúdent á ári í einhverri af þeim greinum, sem heimspekingurinn Collingwood lagði fyrir sig: sögu, heimspeki, stjórnfræði eða forn- leifafræði. Hannes var virkur í félagslífi á háskólaárum sínum hérlendis, sat í stjórn Vöku, var formaður Týs, félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, í tvö ár og tók þátt í því 8. maí 1979 að stofna Félag frjáls- hyggjumanna. Hann hefur verið ritstjóri tímaritsins Frelsisins frá 1980 og framkvæmdastjóri nýrrar rannsóknastofnunar í efnahags- Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson málum og stjórnmálum, Stofnunar Jóns Þorlákssonar, frá ársbyrjun 1983. Hann hefur birt fjölda greina og ritgerða í íslenskum blöðum og tímaritum, en einnig hafa ýmsar ritgerðir hans og greinar verið prentaðar erlendis, svo sem í Wall Street Journal, Economic Affairs og tveimur enskum bókum um stjórnmái. Ráðstefna um frammi- stöðumat STJÓRNUNARSVIÐ viðskiptadeild ar Háskóla fslands heldur sína ár- legu ráðstefnu um starfsmannamál miðvikudaginn 11. desember kl. 13.30 í Odda, hugvísindahúsi Há- skólans. Efnið að þessu sinni er frammi- stöðumat. Frummælendur verða Jón B. Stefánsson frá Eimskip, Jón Marínósson frá IBM og Grétar Snær Hjartarson frá SKYRR. Á ráðstefnunni verður m.a. reynt að svara spurningunni: Er frammistöðumat vænlegt til árangurs hérlendis? Hvernig á að meta starfsmenn? Hverjir eiga að meta? Hverja á að meta? Höfðar til .fólksíöllum starfsgreinum!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.