Morgunblaðið - 11.12.1985, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
29
Jólasveinninn J.R.
AP/Símamynd
Lari-y Hagman, sem fer meö hlutverk J.R. Ewing í Dallas-þáttunum, bregður hér á leik í Hvíta húsinu.
Skrýddur jólasveinajakka og með mikið jólasveinaskegg slær hann á létta strengi ásamt Nancy Reagan,
forsetafrú. Til vinstri er Hans Rafert, matsveinn í Hvíta húsinu, sem á heiðurinn af piparkökuhúsi raiklu, sem
grillir í að baki J.R. og Nancy. Forsetafrúin heldur á nýjum hundi, sem maður hennar, Ronald Reagan
Bandaríkjaforseti, færði henni að gjöf á dögunum.
Nýja-Sjáland:
Umdeilt stjórnar-
frumvarp lagt fram
Bannar m.a. komu skipa, sem knúin eru
kjarnorku eða hafa kjarnorkuvopn innanborðs
Wellington, Nýja-Sjálandi, 10. deaember. AP.
RÍKISSTJÓRN Nýja-Sjálands
lagði í dag fram í þinginu hið
umdeilda lagafrumvarp um bann
við komu skipa, sem knúin eru
kjarnorku eða hafa kjarnorkuvopn
innanborðs, til landsins. Samherjar
Ný-Sjálendinga í Anzus-bandalag-
inu lögðu mjög að ný-sjálensku
stjórninni að falla frá þessari frum-
varpsgerð.
Akvörðun stjórnarinnar mun
vísast verða til þess að einangra
Nýja-Sjáland enn meira en orðið
er, ef marka má viðvaranir
Bandarikjamanna um að Anzus-
bandalagið væri úr sögunni yrði
frumvarpið að lögum.
Samstarfssamningur Anzus-
hernaðarbandalagsins, þ.e. Astr-
alíu, Nýja-Sjálands og Bandaríkj-
anna, var undirritaður árið 1951.
I samningnum er kveðið á um,
að ríkin hafi samráð sín á milli,
ef „sameiginleg ógn“ steðji að eða
ráðist sé á eitthvert þeirra.
Bandaríkjamenn töldu, að
óframkvæmanlegt hefði orðið að
framfylgja þessum ákvæðum eft-
ir að Ný-Sjálendingar bönnuðu
bandaríska herskipinu Buchann-
an að koma til hafnar í Nýja-
Sjálandi í febrúarmánuði síðast-
Bandaríkjadollar hækkaði enn
gagnvart Evrópugjaldmiðlum í dag.
Sterlingspundið fór hins vegar
áfram lækkandi í verði en talið er
að lækkun þess tcngist ef til vill
hugsanlegu olíuvcrðstríði olíuút-
flutningsríkjanna. Gullverð tók litl-
um breytingum.
1 dag kostaði sterlingspundið
liðnum á þeim forsendum, að
verið gæti að það væri með kjarn-
orkuvopn innanborðs.
Það er ófrávíkjanleg stefna
stjórnvalda í Bandaríkjunum að
gefa ekki út yfirlýsingar um hver
af herskipum bandaríska flotans
séu búin kjarnorkuvopnum.
Frumvarp ný-sjálensku stjórn-
arinnar gerir m.a. ráð fyrir að á
Nýja-Sjálandi sé kjarnorku-
vopnalaust svæði og þangað megi
heldur ekki koma efnavopn.
1,4355 dollara, en kostaði 1,4620
dollara síðdegis á mánudag. Að
öðru leyti var gegni dollarans
þannig að fyrir hann fengust:
2,5400 vestur—þýsk mörk (2,5310)
2,1187 svissneskir frankar (2,1113)
7,7500 franskir frankar (7,7200)
2,8590 hollensk gyllini (2,8515)
1,728.00 ítalskar lírur (1,723.00)
1,3979 kanadískir dollarar (1,3978)
GENGI GJALDMIÐLA
London, 10. desember. AP.
Málflutningi Þjóð-
viljans mótmælt
— eftir Matthías
A. Mathiesen
1 Þjóðviljanum laugardaginn 7.
desember svo og í leiðara blaðsins
í dag, 10. þ.m., og í grein merktri
Sdór er ég borinn þeim sökum að
hafa farið vísvitandi með rangt
mál í umræðum á Alþingi 18. júní
sl. er ég svaraði fyrirspurn Guð-
mundar Einarssonar, alþingis-
manns. Auk þess er gefið í skyn
að ég hafi leynt skýrslu frá Seðla-
bankanum til viðskiptaráðuneytis-
ins um málefni Hafskips hf., dags.
3. júní sl.
Um leið og ég mótmæli slíkum
málflutningi þar sem farið er með
hrein ósannindi, vísvitandi eða af
vanþekkingu, vil ég koma á fram-
færi því sem rétt er:
1.
Á Alþingi 18. júní svaraði ég
Guðmundi Einarssyni alþm. og
vísaði þá til yfirlýsingar banka-
stjóra (Jtvegsbankans sem birzt
hafði í Mbl. 16. júní, en þar segir:
„Bankastjórn Utvegsbanka
íslands vill taka fram að full-
yrðingar, sem fram koma í
blaði yðar hinn 12. þ.m. í grein
Halldórs Halldórssonar rit-
stjóra Helgarpóstsins um
tryggingar bankans vegna
skuldbinga Hafskips hf. eru úr
lausu lofti gripnar. Tryggingar
bankans eru í eignum fyrirtæk-
isins og hluthafa."
Ég lagði ekkert mat á yfirlýs-
ingu bankastjóranna, en sagði:
„Hv. þm. vék að reikningum
þessa ákveðna fyrirtækis, og
las út úr þeim reikningum
ákveðna niðurstöðu sem ég skal
ekki dæma um. En þar verðum
við að gera greinarmun á út-
komu fyrirtækisins annars
vegar og svo þeim tryggingum
sem bankinn hefur hins vegar.
Nú hafa bankastjórar þessa
banka opinberlega gert grein
fyrir því að bankinn hafi trygg-
ingu fyrir þeim lánum, sem
hann hefur veitt, í eignum
fyrirtækisins og eignum hlut-
hafanna, þannig að reikningar
fyrirtækisins þurfa ekki að
sýna og sýna ekki, skv. þessu,
þær tryggingar sem bankinn
hefur fyrir þeim skuldum sem
fyrirtækið er í.
Varðandi fsp. sem er fram-
hald af fsp. frá því fyrr í vetur,
þá hafa, að ég best veit, þeir
aðilar sem fara með eftirlit
undir þessum kringumstæðum,
ekki talið ástæðu til að gera
sérstaka athugun á því tilviki
sem hér er að vikið.“
Það er því með öllu ósatt, að ég
hafi sagt, eins og segir í leiðara
Þjóðviljans í gær, „að full veð væru
fyrir hendi hjá Hafskip fyrir
skuldum þess hjá Útvegsbankan-
um“.
2.
í grein merktri Sdór í Þjóðvilj-
anum 10. des. sl. er eftirfarandi
ritað um svar mitt 18. júní sl. svo
og það sem viðskiptaráðherra
Matthías Á. Mathiesen
Matthías Bjarnason sagði á Al-
þingi 14. nóvember sl.:
„Matthias Bjarnason sagði í
umræðum um Hafskipsmálið
14. nóvember sl., að þann 3. júní
hefði legið fyrir að Hafskip hf.
átti ekki veð fyrir skuldum.
Orðrétt sagði Matthías Bjarna-
son:
f júnímánuði á þessu ári fékk
Seðlabankinn skv. beiðni upp-
lýsingar um stöðu Hafskips
gagnvart Útvegsbankanum
sem dagsett er 3. júní en þar
kom fram að nokkuð vantaði
til þess að tryggingar bankans
nægðu fyrir heildarskuldbind-
ingum Hafskips gagnvart
bankanum að meðtöldum víxl-
um vegna annarra ábyrgða."
Þegar Matthías Á. Mathie-
sen bankamálaráðherra þáver-
andi sagði 18. júní á þingi, að
full veð væru fyrir skuldum
Hafskips vitnaði hann í opin-
bera yfirlýsingu bankastjóra
Útvegsbankans. Spurning
vaknar hvort Matthías sagði
vísvitandi ósatt, eða fylgdist
hann ekki betur með en það að
hálfum mánuði eftir að banka-
eftirlitið sendir honum og
Seðlabankanum skýrslu um
málið, hafi hann ekki lesið
skýrsluna."
Það er rangt, að viðskiptaráðu-
neytinu hafi borist skýrsla um
stöðu Hafskips gagnvart Útvegs-
bankanum 3. júní sl., enda kemur
það ekki fram hjá núverandi við-
skiptaráðherra, heldur er skáld-
skapur greinarhöfundar, Sdór.
Viðskiptaráðuneytinu barst fyrst
skýrsla frá bankaeftirlitinu dags.
30. júlí og hafði engin skýrsla þar
um borist frá bankaeftirlitinu frá
því að ég tók við embætti við-
skiptaráðherra.
Á Alþingi í dag kom fram í ræðu
viðskiptaráðherra Matthíasar
Bjarnasonar að Seðlabankinn fékk
síðari hluta júnímánaðar yfirlit
frá Útvegsbaknanum um yfirlit
skulda- og tryggingastöðu Haf-
skips við Útvegsbankann. Sú
greinargerð barst ekki viðskipta-
ráðuneytinu á meðan ég gegndi
störfum viðskiptaráðherra.
Fullyrðingar Sdór þess efnis, að
ég hafi vísvitandi sagt ósatt eöa
ekki fylgst betur með, eru því upp-
spuni frá rótum.
10. desember, 1985
Matthías Á. Mathiesen.
Verslun — póstverslun, Laugavegi 13, sími 25808.