Morgunblaðið - 11.12.1985, Qupperneq 33
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985
33
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr.
eintakiö.
Páll Pétursson
hopar
Tillaga Páls Péturssonar,
formanns þingflokks fram-
sóknar, um að Islendingar greiði
atkvæði með frystingu kjarn-
orkuvopna á þingi Sameinuðu
þjóðanna náði ekki fram að
ganga í þingflokknum. Páll Pét-
ursson gerði þessi tillögu eftir
að Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, krafðist
skýrra svara af Framsóknar-
flokknum um það, hvort hann
styddi stefnu ríkisstjórnarinnar
í þessu máli eða ekki. Utanríkis-
ráðherra og forsætisráðherra
lýstu því yfir á Alþingi síðastlið-
inn fimmtudag, að ísland myndi
sitja hjá við atkvæðagreiðslu
um þetta mál á allsherjarþing-
inu eins og gert hefur verið
undanfarin ár. Páll Pétursson
tók á hinn bóginn undir sjónar-
mið stjórnarandstæðinga og
vildi, að íslendingar skiptu um
skoðun, af því að Norðmenn
hefðu gert það.
Formaður þingflokks fram-
sóknar hefur ekki aðeins í þessu
máli heldur mörgum öðrum
valið þann kost undanfarið a&
taka fremur undir með stjórnar-
andstæðingum en þeim, sem
tala máli ríkisstjórnarinnar.
Þessi árátta oddvita Framsókn-
arflokksins í þingsölunum hefur
stuðlað að því, að upplausnar-
svipur einkennir stjórnarsam-
starfið. NT, málgagn Framsókn-
arflokksins, segir í forystugrein
í gær, að því sé „varlega trúað
að ástæða þessa upphlaups
sjálfstæðismanna sé framkoma
Páls Péturssonar." Morgunblað-
ið er ósammála þessari skoðun
NT. Af hálfu sjálfstæðismanna
var tekið þannig á upphlaupi
Páls Péturssonar vegna tillög-
unnar um frystingu kjarnorku-
vopna, að það var í hendi þing-
flokksformannsins að standa við
stóru orðin og fella þar með
ríkisstjórnina á þessu máli.
Páll Pétursson valdi þann
kost að hopa. Krafa hans um
breytta afstöðu íslendinga á
þingi Sameinuðu þjóðanna náði
ekki fram að ganga í þingflokkn-
um, sem hann stjórnar að nafn-
inu til að minnsta kosti. Páll
lenti í minnihluta með sjónar-
mið, sem gat ráðið úrslitum um
stjórnarsamstarfið. Hann hélt
ekki fast við sitt heldur gaf eftir
og gerðist sjálfur fyrsti flutn-
ingsmaður tillögu, sem er í raun
hvorki fugl né fiskur. í henni
felst, að íslendingar hafi frum-
kvæði að sameiginlegri stefnu-
mótun Norðurlandanna í því
skyni, að þau flytji tillögu á
þingi Sameinuðu þjóðanna um
frystingu á framleiðslu kjarn-
orkuvopna. Upphlaupið sem var
á Alþingi síðastliðinn fimmtu-
dag út af afstöðu ríkisstjórnar
íslands til tillögu Mexíkó o.fl.
er að engu orðið. Það hefur
gufað upp í höndum Páls Péturs-
sonar og stjórnarandstæðinga.
Þannig fer um mörg fleiri mál,
sem vinstrisinnar taka upp á
sína arma. í raun bendir margt
til þess, að oft fylgi hugur alls
ekki máli, þegar þeir láta sem
hæst. Markmiðið sé ekki að
vinna málefnum fylgi heldur
slá keilur á kostnað pólitískra
andstæðinga. Mörg mál verða
beinlínis afkáraleg, þegar þau
hafa hlotið vinstrisinnaða aug-
lýsingameðferð á Alþingi.
Kjarnorkumálin eru að fá á sig
þennan stimpil fyrir tilstuðlan
manna eins og Páls Péturssonar.
BJ orðið
að flokki
Sú hugmyndafræði bjó að
baki, þegar Bandalag jafn-
aðarmanna (BJ) var stofnað, að
það mætti ekki þróast yfir í
flokk með hefðbundnu skipu-
lagi. Undanfarnar vikur og
mánuði hafa mikil átök orðið
innan BJ. Öflugir forvígismenn
hafa hætt þátttöku í starfi
Bandalagsins og sundrung sett
svip á það.
A landsfundi BJ um síðustu
helgi urðu þáttaskil í störfum
þess. Bandalagiö hefur fengið á
sig flokksmynd með sérstökum
formanni, Guðmundi Einars-
syni, alþingismanni, og þing-
flokksformanni Stefáni Bene-
diktssyni. Auk þeirra bera aðrir
formanns- og varaformannstign
í flokknum. Nú verður ekki leng-
ur deilt um það, að BJ er skipu-
lagsbundinn stjórnmálaflokkur.
Það á hins vegar ekki samleið
með „fjórflokkunum", segir hinn
nýkjörni flokksformaður.
Sé þessi fullyrðing skoðuð má
segja, að hún hafi jafn mikið
gildi og það, þegar menn lýsa
því yfir, að þeir eigi ekki samleið
með öðrum, af því að mannkyns-
sagan geymi svo mikið af spill-
ingu og ófögnuði. Stefna BJ sker
sig úr fyrir þá sök einna helst,
sé litið á almenn málefni, að
Bandalagiö vill stíga afgerandi
skref til frjálsræðis til dæmis í
gjaldeyrismálum. Kröfur af
þessu tagi njóta skilnings um
land allt og meðal stuðnings-
manna allra flokka.
Bandalag jafnaðarmanna
verður á hinn bóginn marklaust,
þegar til þess er litið, að öll
atriði í stefnu þess verða að
víkja fyrir skilyrðinu um afnám
þingræðis. Ætla mætti að þetta
skilyrði væri áréttað jafn sterk-
lega og gert er í þeim tilgangi
einum að fá átyllu til að vera
„stikkfrí". Stjórnmálaflokkar
ávinna sér ekki traust með þeim
hætti.
Áhættuþættir kransæðasjúk-
dóms — átak Hjartaverndar
— eftir Þórð
Harðarson
I.
Á tuttugu ára ferli hefur starf-
semi rannsóknarstöðvar Hjarta-
verndar einkum beinst að krans-
æðasjúkdómi og áhættuþáttum
hans. Sjötíu þúsund íslendingar
hafa verið kvaddir í rannsóknar-
skyni til stöðvarinnar að Lágmúla
9 og menn síðan fengið vitneskju
um niðurstöðurnar, sem einnig eru
sendar viðkomandi heimilislækn-
um. í skýrslum Hjartaverndar er
að finna ítarlegar lýsingar á sjúk-
dómseinkennum og dánartíðni af
völdum kransæðasjúkdóms, einnig
úttekt á hugsanlegum orsakaþátt-
um, svo sem háþrýstingi, reyking-
um og miklu kólesteróli í blóði.
Þessar niðurstöður hafa verið birt-
ar og kynntar víða um heim og
hvarvetna vakið verðskuldaða
athygli.
Rannsóknarstöðin hefur einnig
tekið til skoðunar fjölda fólks, sem
þangað er vísað af heimilislæknum
eða öðrum læknum. Á þennan hátt
hafa fundist þúsundir íslendinga,
sem hafa háan blóðþrýsting, syk-
ursýki, mikið kólesteról í blóði
o.fl., án þess að hafa vitneskju um
það. Þess má vænta að flestir hafi
síðan hlotið viðeigandi meðferð
hjá læknum sínum. Þannig hefur
rannsóknarstöð Hjartaverndar
fyrir löngu sannað tilverurétt sinn.
Hingað til hefur rannsóknar-
stöðin ekki beitt sér fyrir meðferð
sjúklinga. Hér kann þó að verða
breyting á. Nú hefur tekist sam-
starf milli Hjartaverndar og
heilsugæslulækna á tveimur stöð-
um utan Reykjavíkur um átak til
að draga úr tíðni helstu áhættu-
þátta kransæðasjúkdóms. Ef þetta
samstarf ber ávöxt og nær víðari
útbreiðslu, er brotið blað í starf-
semi Hjartaverndar.
II.
Kransæðasjúkdómur er langal-
gengasta dánarorsök íslendinga
og verður þriðja hverjum manni
að aldurtila. Á sjúkrahúsum í
Reykjavík vistast 400—500 manns
á ári vegna kransæðastíflu og
margir látast, áður en komið er á
sjúkrahús. Enginn þekkir til hlítar
orsakir kransæðasjúkdóms, en
vitað er, að þrír þættir (áhættu-
þættir) eru oftast fylgifiskar sjúk-
dómsins, reykingar, háþrýstingur
og mikið kólesteról í blóði. Mynd
1 sýnir vaxandi lífshættu og
heilsutap miðaldra manna með
vaxandi reykingum. Tölurnar eru
byggðar á bandarískum rannsókn-
um. Rannsóknir sýna einnig að
hættan snarminnkar, þegar
reykingum er hætt.
Mynd 2 sýnir samband dauðs-
falla og kransæðasjúkdóms annars
vegar og blóðþrýstings hins vegar.
Sýnt hefur verið fram á, að góð
meðhöldun háþrýstings dregur úr
áhættu fólks að fá heilablæðingu,
hjartabilun og nýrnabilun. Mynd
3 sýnir að með auknu kólesteróli
í blóði fer vaxandi áhætta á ótíma-
Þórður Harðarson
„Nú hefur tekist sam-
starf milli Hjartavernd-
ar og heilsugæslulækna
á tveimur stööum utan
Reykjavíkur um átak til
að draga úr tíöni helstu
áhættuþátta kransæða-
sjúkdóms. Ef þetta
samstarf ber ávöxt og
nær víðri útbreiðslu, er
brotið blað í starfsemi
Hjartaverndar.“
bærum dauða og kransæðastíflu.
Bandarískar rannsóknir sýna, að
hægt er að draga úr dánartíðni af
völdum kransæðasjúkdóms með
því að minnka kóleterólmagn í
blóði. Ef fleiri en einn áhættuþátt-
ur fer saman, margfaldast líkurn-
ar á kransæðastíflu og ótímabær-
um dauða.
Víða um heim hefur verið reynt
að draga úr vægi kransæðasjúk-
dóms með því að ráðast gegn öllum
áhættuþáttum í senn. Þekktasta
tilraunin af þessu tagi var gerði í
Kirjálahéruðum Finnlands, en
Kirjálar voru lengi heimsmethafar
í tíðni kransæðasjúkdóms. Tilraun
þessi hófst árið 1972 og stendur
enn. Árið 1982 hafði tekist að
draga úr reykingum sem nam 28%
og hlutfall reykingamanna hafði
minnkað úr 52% í 39%. Einnig
tókst að draga verulega úr kóleste-
rólmagni í blóði Kirjála og lækka
blóðþrýsting þeirra, sem höfðu
háþrýsting.
Árangurinn lét ekki á sér
standa. Dánartíðni miðaldra karla
af völdum kransæðasjúkdóms
minnkaði um 22%. Sömuleiðis dró
meira úr heiladánartíðni í Kyrj-
álasveitunum, en öðrum héruðum
Finnlands, þótt þar yrðu menn
einnig langlífari á rannsóknartí-
manum. í öðrum löndum hafa
svipaðar tilraunir verið gerðar, og
ganga niðurstöður mjög í sömu átt.
III.
Það er tímabært að gera svipaða
tilraun á íslandi. Til þess þarf
Hjartavernd að eiga gott samstarf
við heimilislækna og annað heil-
brigðisstarfsfólk víðs vegar um
landið. Einnig þarf nokkurn fjár-
stuðning. Eins og fyrr segir, mun
Hjartavernd á næstunni hefja af
eigin rammleik átak í tveimur
þéttbýlisstöðum utan Reykjavíkur
til að draga úr áhættu kransæða-
sjúkdóms hjá miðaldra fólki. Fyr-
irætlanir Hjartaverndar eru eftir-
farandi:
1. Hafin verður leit að fólki með
háþrýsting og því veitt stöðluð
meðferð á heilsugæslustöð.
Þeim, sem reynast hafa mikið kól-
esteról í blóði, verður ráðlagt
mataræði og/eða lyfjagjöf eftir
atvikum.
3.Reynt verður að fá fólk til að
hætta reykingum með viðtali við
lækni og skriflegum leiðbeining-
um, en beri það ekki árangur,
gefst fólki kostur á sérstöku
reykingarnámskeiði.
Mikilsvert er, að mál þetta fái
góðan byr og viðtökur hjá öllum
þeim, sem um það fjalla, læknum,
hj úkrunarfólki, fj árveitingarvald-
inu, og væntanlegum þátttakend-
um. Takist það, er ekki efi á því,
að unnt verður að ná drjúgum
árangri á íslandi í því að draga úr
sjúkleika og dauða af völdum
meinvættarinnar miklu, krans-
æðasjúkdóms.
Höfundur er prófessor lyflækn-
ingadeild Landspítalans.
DAUÐI EÐA KRANSÆÐASTÍFLA Á 10 ÁRUM
pr. 1000 KARLAR 30-59 ÁRA
DAUÐI EÐA KRANSÆÐASTÍFLA Á 10 ÁRUM
pr. 1000 KARLAR 30-59 ÁRA
150 -----------------—150
VINDLA 1----- REYKIR VINDLINGA ---1
KOLESTEROL í SERMI (BLÓÐVATNI) mg/100ml
DAUÐI EÐA KRANSÆÐASTIFLA A 10 ARUM
pr. 1000 KARLAR 30-59 ÁRA
200
150
100
50
0 —
48
< 75
52
87
99
188
200
150
100
--50
75-84 85-94 95-104 105 >
BLÓÐÞrÝSTINGUR (NEÐRI MÖRK) mmHg
DAUÐI EÐA KRANSÆÐASTIFLA A 10 ARUM
ÁHÆTTUÞÆTTIRNIR ÞrÍR: (MIKIÐ KOLESTEROL í SERMI,
HÁÞRÝSTINGUR OG REYKINGAR)
150
100
50
Embætti skipulags-
stjóra ríkisins
— eftir Gest
Ólafsson
Fyrir nokkrum vikum auglýsti
Félagsmálaráðuneytið embætti
skipulagsstjóra ríkisins laust til
umsóknar.
Um þetta embætti sóttu ellefu
menn og vissu þeir ekki fyrri til
en þeir fréttu í fjölmiðlum að
einum umsækjanda, sem sjálfur
átti sæti í skipulagsstjórn ríkisins,
hefði verið veitt embættið.
Skömmu seinna fengu aðrir um-
sækjendur bréf frá Félagsmála-
ráðuneytinu, þar sem þeim var
þakkaður áhuginn.
Ef hér hefði verið um lítilvægt
embætti að ræða hefði ef til vill
ekki verið ástæða til að fjölyrða
um slíka málsmeðferð. Þar sem
hér er hins vegar um að ræða
æðsta embætti íslenska ríkisins í
skipulags- og byggingarmálum
sem veitt er til lífstíðar skiptir það
miklu fyrir alla landsmenn hvern-
ig að veitingu þess er staðið. Enda
taldi félagsmálaráðherra sem
skipar í stöðuna rétt að leita fyrst
umsagnar skipulagsstjórnar ríkis-
ins um hæfni umsækjenda.
í stað þss að eiga viðtal við
umsækjendur eins og almennt
tíðkast bæði hjá fyrirtækjum og
' stofnunum greiddi skipulagsstjórn
atkvæði um málið á sama fundi
og það var kynnt og ákvað að
mæla með einum úr sínum hópi í
embættið. Viðkomandi aðili sat þó
ekki þennan fund, heldur vara-
maður hans.
Um þessa málsmeðferð er það
að segja, að allt frá dögum bibl-
íunnar hafa menn verið vegnir, og
þá fundnir annaðhvort þungvægir
eða léttvægir. Þótt mönnum hafi
líkað þessi aðferð misjafnlega eins
og gengur, þá er fólk þó farið að
venjast henni. Að dæma menn með
atkvæðagreiðslu á einum fundi, án
þess að vega þá gegnir vonandi
öðru máli. Þá aðferð verður að
telja beina móðgun bæði við þá
umsækjendur sem hafa varið
miklum tíma og fjármunum við
að afla sér sérþekkingar á þessu
sviði, og félagsmálaráðherra, sem
skipulagsstjórn er ráðgefandi fyrir
Gestur Ólafsson
„Auövitaö vill allt lýö-
ræðislega sinnað fólk á
íslandi aö lýðræðislega
sé staðiö að veitingu
æðstu embætta þjóðar-
innar. Hér er um algert
grundvallaratriði að
ræða og sú átylla að hér
sé endanlega um póli-
tíska embættisveitingu
að ræða ætti ekki að
hafa nein áhrif á máls-
meðferð.“
og endanlega þurfti að veita ofan-
greint embætti — nema skipulags-
stjórn hafi áður verið búin að
mynda sér skoðun um málið.
Auðvitað vill allt lýðræðislega
sinnað fólk á íslandi að lýðræðis-
lega sé staðið að veitingu æðstu
embætta þjóðarinnar. Hér er um
algert grundvallaratriði að ræða
og sú átylla að hér sé endanlega
um pólitíska embættisveitingu að
ræða ætti ekki að hafa nein ahrif
á málsmeðferð. í öllum lýðræðis-
ríkjum hafa slíkar embættisveit-
ingar, eins og kunnugt er, löngu
verið aflagðar. Jafnvel á Filipps-
eyjum, þar sem einn kunningi
minn er ráðgjafi Markosar forseta,
segir hann mér að þeir hafi alfarið
tekið upp þann sið að veita emb-
ætti eftir menntun og reynslu.
þetta hafi þeir gert eftir að þeir
komust að því að menn með aðrar
stjórnmálaskoðanir reyndust oft
bestu starfsmenn — og kalla þeir
þó ekki allt ömmu sína þar í landi.
Með annarri tilvitnun í biblíuna
er þó afgreiðsla skipulagsstjórnar
ríkisins fyrirgefanleg. Þegar frá
er talinn sá meðlimur skipulags-
stjórnar, sem hún mælti með til
þessa embættis, þá hefur enginn
þeirra aðila sem þar sitja hlotið
sérmenntun í skipulagsfræðum.
löggjafinn hefur ekki heldur ennþá
talið ástæðu til þess að skilgreina
hvaða menntun skipulagsstjóri
ríkisins þurfi að hafa. Þess vegna
hefði skipulagsstjórn líka geta
greitt hvaða íslendingi atkvæði
sitt, sem um hefði sótt, því allir
íslendingar hafa eins og alkunna
er eitthvað vit á skipulagi.
f þessum orðum er á engan veg
verið að draga í efa getu og hæfi-
leika nýskipaðs skipulagsstjóra
ríkisins. Án efa er hann hæfasti
maður sem vill vinna þjóð sinni
vel. Hins vegar verður að telja
fulla ástæðu til þess að hlutverk
og skipan skipulagstjórnar ríkis-
ins sé tekin til endurskoðunar, en
grundvöllur að skipun hennar var
lagður fyrir meira en 60 árum. f
drögum að nýjum skipulagslögum
sem nú liggja fyrir er líka gert ráð
fyrir að hlutverk skipulags ríkisins
nálgist það mikið hlutverk
Byggðastofnunar að um óhjá-
kvæmilega skörun verði þar að
ræða.
Við lifum í fátæku og fámennu
landi, þar sem við höfum ekki efni
á öðru en að aðlaga það stjórnkerfi
sem við búum við breyttum að-
stæðum. Því hefði hugsanlega
verið betri kostur að sameina ofan-
greindar tvær stofnanir, og flytja
þá þætti þessarar starfsemi útá
land, sem þar geta verið, en að
endurráða fólk til þeirra í svo til
óbreyttri mynd.
Höfundur er arkitekt og skipulags-
fræðingur.
„Okkur þykir VR hafa
komið í bakið á okkuru
— segir talsmaður Dagsbrúnar um nýjan
samning VR við öryggisþjónustuna Vara
HELDUR stirt er nú milli Dagsbrúnar og Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur eftir að VR gerfti kjarasamning vift öryggisþjónustufyrirtækift Vara á
þriðjudaginn í fyrri viku — sama dag og áætlaður var fyrsti samningafund-
ur Dagsbrúnar og Vara hjá ríkissáttasemjara. Þegar kom til fundarins
kvaftst fulltrúi Vara hafa leyst málift í samvinnu vift Verslunarmannafélagið
og hefði hann því ekki um neitt að semja við Dagsbrún. Nýr fundur hefur
ekki verið boðaður og verður ekki boðaður nema annar hvor aðila óski
þess, að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissáttasemjara.
„Þetta er ómöguleg framkoma
af hálfu VR. Það gengur náttúr-
lega ekki að annað stéttarfélag
grípi inní yfirstandandi samninga-
viðræður á þennan hátt,“ sagði
Halldór Bjömsson, varaformaður
Dagsbrúnar, í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins. Dagsbrún
hyggst ekki falla frá gerðum kröf-
um um samning við Vara fyrir
sína félagsmenn hjá fyrirtækinu
en af hálfu VR og Vara er litið svö
á, að málið sé afgreitt og að samn-
ingur þeirra taki til allra starfs-
mannahjá Vara.
Það var í janúar sl. að Dagsbrún
óskaði eftir viðræðum við Vara
vegna félagsmanna sinna þar, sem
Magnús Geir Einarsson hjá Dags-
brún, segir vera „þrjá og líklega
fjóra" af átta starfsmönnum fyrir-
tækisins. „Síðan hefur verið unnið
að þvi látlaust að gera samning
við fyrirtækið en gengið mjög illa
því forstjóri þess hefur ekki viljað
við okkur tala,“ sagði Magnús.
„Krafa okkar gengur út á að Vari
geri samskonar samning við okkur
og Securitas gerði á dögunum enda
um samskonar öryggisvörslu að
ræða. Því þykir okkur sem Versl-
unarmannafélagið komi nú í bakið
á okkur, því þeir vissu fyrir 2—3
vikum að við ættum I þessum
samningum." Magnús kvaðst ekki
telja útilokað að af hálfu VR væri
verið að „kvitta“ fyrir ársgamalt
ágreiningsmál félaganna tveggja,
sem upp kom er gerðir voru nýir
samningar fyrir starfsfólk við
Reykjavíkurhöfn. Þá var deilt um
hvort tiltekinn hópur starfsmanna
ætti að vera í VR eða Dagsbrún
og endaði sú deila með „sigri“
Dagsbrúnar.
Elís Adolphsson hjá Verslunar-
mannafélaginu, sem var annar
tveggja fulltrúa VR er gerði um-
ræddan samning við Vara, sagði í
gær að sér kæmi á óvart ef illindi
væru hlaupin í samskipti félag-
anna. „Ekki búum við til þau ill-
indi,“ sagði hann. „Ekki höfum við
reynt að ná til okkar þeirra fólki,
eins og þegar þeir reyndu að yfir-
taka okkar fólk við höfnina á sín-
um tíma. Þessi samningsgerð er
mjög einföld: við erum að semja
um kjör við þá vinnu, sem heyrir
undir VR. Samningurinn tekur til
talstöðvarþjónustu, símavörslu,
öryggisþjónustu í síma, úrvinnslu
boða frá tölvutengdum öryggis-
kerfum, vinnu við spjaldskrá og
skipulag og svo eignagæslu og
eignaumhirðu samkvæmt nánari
fyrirmælum fyrirtækisins."
— En er það ekki einmitt eigna-
gæsla og eignaumhirða, sem ör-
yggisverðir hjá Securitas annast
— öryggisverðir sem eru í Dags-
brún?
„Félagsaðild starfsmanna ræðst
af því hver eru meginstörf þess.
Eignagæsla og eignaumhirða eru
ekki nema lítill hluti starfa okkar
félaga hjá Vara og eðli starfsins
samkvæmt eiga allir starfsmenn
hjá Vara að vera í Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur," svar-
aði Elís Adolphsson. „Þegar Vari
fór að kanna hvort þessi störf
væru á okkar samningssviði þá
reyndist það vera og þá erum við
ekkert að hlaupa í önnur félög.“