Morgunblaðið - 11.12.1985, Side 35

Morgunblaðið - 11.12.1985, Side 35
MORGUNBLA ÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR11. DESEMBER1985 35 Laugarasbíó: „Aftur til framtíð- ar“ jólamyndin í ár Michael J. Fox leikur Marty og Lea Thompson framtíóarmóóur hana I jóla- mvnd Laugarásbiós. LAUGARÁSBÍÓ frumsýnir á morg- un, fimmtudag, jólamyndina í ár „Aftur til framtíðar". Myndin er nýjasta framleiðsla Stevens Spiel- berg og er leikstjóri Robert Zemeckis sem leikstýrði einni vin- sælustu ævintýramynd seinni ára, „Romancing the stone“. Myndin fjallar um Marty McFly, venjulegan nútímaungling sem Búnaðarfélag Hvolhrepps 100 ára á föstudaginn Búnaðarfélag Hvolhrepps verðui 100 ára föstudaginn 13. desembei nk. Á afmælisdaginn kl. 21.00 taka félagar á móti gestum í Félags- heimilinu Hvoli þar sem afmælisins verður minnst. Ákveðið hefur verið að stofna sjóð í tilefni af þessum tímamótum til styrktar skóggræðslu í Hvol- hreppi. Sjóðurinn verður í vörslu stjórnar félagsins og mun styrkja skrúðgarðyrkju, skjólbeltarækt eða annan nytjaskóg eftir því sem tilefni gefst til á hverjum tíma. Lúsíuhátíð Islensk- sænska félagsins íslensk-sænska félagið efnir til Lúsíuhátíðar 13. desember nk. í veitingahúsinu Nausti. Boðið verður upp á jólaglögg og piparkökur auk þess sem stiginn verður dans. Húsið verður opnað kl. 18.00 fyrir matargesti, en um kl. 21.00 kemur svo Lúsia með þernum sín- um og er hún Katrín Sigurðardótt- ir óperusöngkona. Henni fylgja einnig „stjörnustrákar" og verða þar á ferðinni nokkrir þjóðkunnur menn. Atli Heimir Sveinsson tón- skáld sér um tónlistina og Stein- unn Sigurðardóttir rithöfundur spjallar um gildi ljóssins. Sú gamla siðvenja að fagna Lús- íu þennan dag hefur legið niðri hjá félaginu í nokkur ár, en Lúsía var löngum önnur aðalhátíð fé- lagsins, sem hélt mjög fjölsótta Valborgarmessu í vor og minntist síðan aldarafmælis skáldsins og vísnasöngvarans Birger Sjöbergs í haust. Jólapottar Hjálpræðis- hersins Söfnunarjóiapottar Hjálpræð- ishersins eru nú komnir hver á sinn stað í Reykjavík, á ísafirði og Akureyri. Hjálpræöisherinn hefur starfað hér á landi í 90 ár og hefur hann safnað saman á þennan hátt allt frá byrjun. í frétt frá Hjálpræðishern- um segir að sá skerfur er veg- farendur hafa látið af hendi rakna í jólapottana gegnum árin hafi vakið mikla gleði og blessun á meðal þeirra er verr eru staddir á meðal okkar. þekkir allfurðulegan uppfinninga- mann, Dr. Emmcret Brown. Dokt- or þessi hefur smíðað tímavél og biður Marty að aðstoða sig við sína fyrstu tímaferð. En fyrir slysni er það Marty sem fer fyrstu tímaferð- ina í stað doktorsins. Ferð hans lýkur ekki fyrr en árið 1955. Fyrsta verk hans er að leita uppi doktor- inn til að fá aðstoð hans við að komast aftur til framtíðar. Á meðan doktorinn reynir að finna leið til að hjálpa Marty, kynnist Marty tveimur unglingum, tilvonandi foreldrum sínum. Við það lærir Marty margt nýtt um foreldra sína. í aðalhlutverkum eru Michael J. Fox, vinsæl sjónvarpsstjarna í Bandaríkjunum, Lea Thompson, ung og upprennandi leikkona sem m.a. lék í „Red dawn", og Christo- pher Lloyd sem lék í Óskarsverð- launamyr 'inni Gaukshreiðrinu. Fræðafund- ur um réttarsögu Félag áhugamanna um réttar- sögu heldur fræðafund annað kvöld, fimmtudag, í stofu 103 í Lögbergi og hefst hann kl. 20.30. Guðrún Ása Grímsdóttir, cand. mag., flytur erindi er hún nefnir „Voðaverk í Bláskógum", sem er samanburður á réttar- skilningi í Ölkofraþætti og Jónsbók ásamt dæmum úr öðrum íslendingasögum. Að fyrirlestrinum loknum er gert ráð fyrir fyrirspurnum og umræðum. Fundurinn er öllum opinn. Kjamásultur og Kjamamarmelaöieru nýjungar sem vert er að veita athygli. Öll framleiðsla Kjamavara er unnin í nýrri verksmiðju fyrirtækisins í Reykjavík, sem er ein sú fullkomnasta á Norðurlöndum. Unnið er eingöngu úr ferskum ávöxtum í lokuðu kerfí, þannig að mannshöndin kemur þar hvergi nærri. Kjamasultur fást í 4 tegundum; jarðarberja- blönduð berja-, sólberja- og hindberjasulta. Kjamamannelaði fæst í 2 tegundum; appelsínu- og aprikósumarmelaði. Frantleiðandi er Kjamavörur/Sultu- og efnagerð bakara. p h *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.