Morgunblaðið - 15.12.1985, Síða 20

Morgunblaðið - 15.12.1985, Síða 20
áo MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985 Jólatré eina og þau voru gjarnan. Þetta er heimasmíðað tré skreytt með sortulyngi. Síðan var kveikt á kertum. Myndin er eins og hinar jólatrésmyndirnar fengin að láni frá Þjóðminjasafninu. Þessi jólatré voru þar til sýnis um jólin 1983. Mikið skreytt jólatré frá því eftir stríð. Þessi jólatré voru nokkuð algeng á tfmabili. Það er gert úr vír og gervihárum þannig að greinarnar geta lagst upp að stofninum sem er úr tré. Hér hefur pappír verið vafið um kvistana og kerti og skraut sett á. Nú líður að jólum og margir eru farnir að huga að kaupum á jóla- trjám. En hver er saga þessa trés og hefðin að baki því og þeim skemmtunum sem því tengjast? Arni Björnsson, þjóðháttafreðingur, segir í bók sinni í jólaskapi, sem kom út hjá bókaútgáfunni Bjöllunni árið 1983, að jólatréð eins og við þekkjum það í dag, sé ekki mjög gamalt í heiminum. Ýmiss konar trjádýrkun sé hins vegar ævagömul. í helgileikjum frá miðöldum var aldingarðurinn Eden oft látinn vera sjónarsviðið, og stóð þá skilningstré góðs og ills eða lífstréð á miðju svið- inu hlaðið eplum og jafnvel öðru skrauti. Að sögn Árna eru elstu heimildir um skreytt tré í heimahúsum á jólum frá Suður-Þýskalandi á 16. öld, en ekki eru nema tvö hundruð ár frá því farið var að festa kerti á þessi grenitré. Sá siður að hafa jólatré í stofunni á jólum breiddist síðan norður eftir Evrópu, einkum meðal mótmælenda. Á Norðurlöndum tók þessa að gæta nokkru eftir 1800 og breiddist þá fyrst í stað einkum út í borgum og meðal heldra fólks, en síðar til sveita. Hér á landi munu allra fyrstu jólatrén hafa sést í kringum 1850, þá helst hjá dönskum eða danskmenntuðum fjölskyldum. Þau urðu svo ekki algeng fyrr en eftir síðustu aldamót. „Það er mjög skiljanlegt, af hverju siðurinn festi ekki fyrr rætur á íslandi. Hér var víðast engin grenitré að hafa, og flestar aðrar vörutegundir hefur þótt nauðsynlegra að flytja inn. Auk þess tók sigling oft svo langan tíma, að örðugt hefði reynst að halda þeim lifandi. Þetta gerðu þó sum félög til að halda jólatrés- skemmtanir fyrir börn, og milli 1890-1900 má sjá auglýst bæði jólatré og jólatrésskraut," segir Árni Björnsson í bók sinni. Margir muna án efa eftir gömlu heimasmíðuðu jólatrjánum, en Árni segir að meira en hundrað ár séu frá því þau fóru fyrst að sjást hér á landi. Þau voru mörg hver þannig búin til að tekinn var mjór staur, sívalur eða strendur, og festur á stöðugan fót. Á staurinn voru svo negldar álmur eða borað- ar voru holur og álmunum stungið í. Þær voru lengstar neðst, en styttust upp eftir og stóðu á mis- víxl. Álmurnar voru hafðar flatar í endann og á honum stóðu gjarnan logandi kerti. Venjulega var staur- inn málaður grænn eða hvítur og vafið um hann sígrænu lyngi. Oft voru mislitir pokar hengdir á tréð og eitthvert sælgæti sett í þá. Þetta voru þau jólatré sem mest voru notuð hér á landi þar til fyrir nokkrum áratugum. Þá var farið að flytja inn grenitré í stórum stíl og á síðustu árum hafa svo íslensk jólatré komið á markaðinn í aukn- um mæli. Einnig er alltaf nokkuð um að fólk sé með innflutt gervi- jólatré og hefur svo verið frá siðari heimsstyrjöldinni. Jólatrésskemmtanir fyrir börn eru óaðskiljanlegur hluti jólahá- tíðarinnar. Nokkuð tók að bera á þeim á síðari hluta 19. aldar og segir Árni Björnsson frá því að fyrsta jólatrésskemmtunin hafi verjð á vegum hins nýstofnaða Thorvaldsensfélags 28. desember 1876. Þessi skemmtun var haldin í „sjúkrahúsinu" í Reykjavík. „Það hús stóð þar sem nú er Herkast- alinn, og var þar svo merkilegt sambýli, að spítalinn var á efri hæðinni, en dansskemmtenir haldnar á þeirri neðri," segir Árni. Sagt er frá þessari jólatrés- skemmtun í blaðinu Þjóðólfi 18. janúar 1877: „Ýmsir fátækari hér í bænum hafa beðið oss að þakka ýmsu höfðingsfólki bæjarins fyrir jóla- Eftirvæntingin leynir sér ekki. Þessi mynd var tekin i jólatrésskemmtun hji Hjilpræðishernum um síðustu alda- mót. Maðurinn sem heldur i herfina fyrir miðri mynd er Hans Christian Bojsen, dróttstjóri, og kona hans, Else, situr hjá. Þau komu hingað til lands skömmu fyrir aldamót, en fóru síðla irs 1902. Myndina tók Magnús Ólafs- son, en hún var fengin að lini f Ljósmyndasafninu. UM J0LATRE OG JÓLATRÉSSKEMMTANIR gjafir og aðrar velgjörðir. En þar eð vér höfum ekki rúm fyrir allt þess konar, og þar eð vér ætlum að slíkt fólk gefi ölmusu í ailt öðrum tilgangi en þeim að sjá nöfn sín í blöðunum, flytjum vér við- komendum öllum í einu nefndar þakkir. Þó þykir oss sérstaklega vert að nefna — það sem og flestir hafa beðið oss að votta fyrir — jólagleði þá , er fjöldi yngismeyja bæjarins fyrir forgöngu frú Þórunnar Jón- assen héldu rúmt 100 börnum hinna fátækari heimila. Það var eitt kvöldið milli jóla og nýárs. Var skemmtun þessi haldin á sjúkrahúsinu með tveim stórum jólatrjám fullum ljósa og jólagjafa handa börnunum. Þar var spilað og sungið fyrir börnin, meðan þau léku sér og dönsuðu, allt þar til er „Kvöldúlfur" tók að sigra hina smáu samsætiskappa." í Þjóðólfi er síðan vísað til neð- anmálsgreinar þar sem útskýring- ar er að finna við orðið Jólatré". Þar kemur fram að jólatré sé grenitré, ekki hærra en svo að húsrúm leyfi. Síðan segir: „Eru greinarnar alsettar vaxkertum og allt tréð alsett stássi (jólagjöfum) og sætindum, eins og ódáins-eplum og aldinum. Þegar börnin hafa dansað og sungið kringum tréð, er gjöfunum skipt upp í milli þeirra. Jólatré má og búa til úr spýtum og eini, ef vill.“ Árni segir að þetta sé elsta heimild sem hann hafi fundið fyrir jólatrésskemmtun hér á landi og sýni hún hversu óvana- legt fyrirbæri var hér á ferðinni. Árni segir svo frá því að eftir að barnastúkur Góðtemplararegl- unnar voru stofnaðar hafi þær brátt tekið upp þennan sið og 1897 hafi til dæmis verið auglýst jóla- trésskemmtun þeirra í barnablað- inu Æskunni. Hér hafi sjálfsagt verið um innflutt grenitré að ræða, sennilega frá Noregi. Einnig eru til heimildir fyrir því að um líkt leyti hafi nokkrar barnastúkur tekið sig saman um að kaupa eitt jólatré í félagi. í Reykjavík og fleiri kaupstöðum tóku síðan önnur félög smám saman að halda jólatrésskemmt- anir fyrir börn, svo sem kvenfélög, en síðar starfsmannafélög og verkalýðsfélög. Einnig tíðkaðist í sumum sveitum, þorpum og kaup- túnum að sett var upp jólatré í samkomuhúsi byggðarinnar og dansað í kringum það á barnaballi. Jólatrén voru þá oftast skreytt logandi kertum og var mikillar aðgátarþörf. Samantekt: Elísabet Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.