Morgunblaðið - 15.12.1985, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985
67
Efniviður í andófsmenn
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
REGNBOGINN: ANOTHER CO
UNTRY - ANNAÐ LAND ★★
Leikstjóri Marek Kanievska. Hand
rit Mitchell, byggt á samnefndu leik-
riti hans. Klipping Gerry Hambling.
Kvikmyndataka Peter Biziou, B.S.C.
Framleiðandi Alan Marshall. Aðal-
hlutverk Rupert Everett, (k)lin Firth,
Robert Addie, Michael Jenn, Rupert
Wainright, Tristan Oliver, Frederick
Alexandcr. Bresk, frá Goldcrest/
Virgin 1984.90 mín.
Föðurlandssvik enskra mennta-
manna af hástéttum hafa í marg-
gang komið Breska Ijóninu til að
kyngja óþægilegum munnbitum;
Blunt, Philby, Burgess og McLean,
svo nokkrir séu nefndir. Allir stór-
ættaðir gáfumenn, vel menntaðir
úr hinum nafntoguðu, bresku
einkaskólum. Þessi hneisa hefur
að sjálfsögðu ollið Bretum miklum
álitshnekkjum, enda hafa þeir oft
og víða leitað ástæðnanna fyrir
tilurð þessara háþróuðu sýkla sem
búið hafa um sig allt inní innstu
viðjum stjórnkerfisins.
Meðal þeirra sem tilraun hafa
gert að brjóta til mergjar rússa-
daður og óheilindi þessara kump-
ána í garð fósturmoldarinnar, er
Julian Mitchell. Er myndin byggð
á samnefndu leikriti hans sem
flutt var fyrir skömmu við tals-
verðar vinsældir í London.
Ekki þarf stórbrotið hugmynda-
flug til að álykta að aðalsöguhetj-
an, Guy Benneit, sé sóttur að ein-
hverju leyti til njósnarans Guy
Burgess, svo margt er líkt með
þeim. Orðheppinn, skarpgáfaður,
kominn frá sterkefnuðu heimili en
með hálf-mislukkað uppeldi að
baki — minningarnar um föður
hans fremur óyndislegar en ástin
því meiri á móðurinni. í hinu
hrokafulla og ómannúðlega skóla-
kerfi kemst hann um síðir uppá
kant við vaidaklíkurnar, þar sem
hann þó virðist borinn til forystu.
Bæði lendir hann á skjön í valda-
taflinu en einkum er það kynvillan
sem dæmir hann í útlegð frá æðstu
metorðum — og draumum um
sendiherrastöður í stórborgum. En
þó ekki fyrr en hann verður ást-
fanginn af öðrum pilti og hættir
að blekkja sjálfan sig og aðra. Á
meðan Guy fór dult, (þrátt fyrir
að hann lægi flesta skólabræður
sína, að manni skilst), með hvatir
sínar og allir gátu látið sem þær
væru ekki til, lék flest í lyndi.
Þessi hræsni og tvískinnungur
er uppistaða myndarinnar og rök
höfundar fyrri andúð þessara efni-
legu ungmenna á eigin réttarfari
og stjórnkerfi og hugarfarsbreyt-
inga til vinstri. Og flestir hölluðust
þeir að sama kyni.
Það fer sjálfsagt best á því að
hver og einn velti vöngum uppá
eigið sjálfdæmi yfir þessu há-
breska efni en það er sett bærilega
uppá á tjaldinu. En myndin er
byggð á leikriti þar sem látið er
móðan mása og því nokkur skuggi
af fjölunum, mikið uppstillt samtöl
og fjöldasenur. En orðheppni text-
ans og þróttmikill leikur í lang-
flestum hlutverkum, samfara frá-
bærri myndatöku og lýsingu í
forneskjulegu umhverfi heima-
vistarskólans, halda athygli áhorf-
andans oftast vakandi.
Rupett Everett og Colin Firth, tveir
úr vel samstilltum leikhóp í Öðru
landi.
Grafík gefur
út nýja plötu
ÚT ER komin platan, „Stansað,
dansað og öskrað“, með hljóm-
sveitinni Grafík. Platan inniheld-
ur átta lög eftir meðlimi hljóm-
sveitarinnar, en þeir eru Rúnar
Þórisson, sem leikur á gítar og
gítarsynthesiser, Rafn Jónsson,
sem leikur á trommur og Helgi
Björnsson, sem sér um sönginn.
Þetta er fjórða plata hljómsveitar-
innar.
Kunnir tónlistarmenn aðstoð-
uðu við upptöku hljómplötunnar.
Þeir eru Hjörtur Howser og
Styrmir Sigurðsson, sem leika á
synthesiser, Jakob Magnússon og
Haraldur Þorsteinsson leika á
bassa, Einar Bragi leikur á alt
saxófón og Ásgeir H. Steingríms-
son á trompet.
Upptökur áttu sér stað í stúdíói
Mjöt og Hljóðrita í vor og I haust.
Um hljóðritun sáu Sigurður Bjóla
og Tryggvi Herbertsson. Hljóð-
blöndun sá Sigurður Bjóla um
ásamt Grafík. Studio Mjöt gefur
plötuna út.
C terkur og
k/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Áttu í vandræðum
með að fínnavandaða gjöf?
Ef svo er, ættir þú að líta inn hjá okkur.
Þú getur valið úr vönduðum gjafavörum og búsáhöldum frá WMF
í V-Þýskalandi - sannkölluðum gæðavörum sem standast ströngustu kröfur
þínar um endingu og fallegt útlit.
Monique glerskál fyrir ávexti,
grænmeti o.fl. Falleg og vönduö skál
á ótrúlegu veröi:
Aðeins kr. 1.295,-
Hringahaldari úr kristal. Falleg
og skemmtileg nýjung sem gerir svo
sannarlega sitt gagn - loksins eai
hringamir á vísum stað!
Verð kr. 595,-
Kaffimæliskeið úr gæðastáli - ein-
föld, formfögur og sérlega ódýr.
Verð aðeins kr. 295,-
Kristalskaröflur - sérlega hreinar
og mjúkar línur, falieg hönnun. Til í
ýmsum stærðum og gerðum, allar úr
sléttum kristal.
Verð frá kr. 1.500,-
Mozart kristalskál falleg og stíl -
hrein skál á stofuborðið. Ekta kristail
- og verðið aðeins kr. 1.140,-
Glerskál á fæti. Tilvalin undir salat,
ávexti o.þ.h. Stór og rúmgóð skál
með fallegu lagi.
Verð kr. 1.856,-
Glerkertastjakar 2 stykki. Setja
svip á veisluborðið. Víður glerkraginn
kemur í veg fyrir að vax renni niður
á dúkinn.
Verð kr. 595,-
- Næg bílastæði - Mikið gjafaúrval
- Þægilegra getur það varla verið!
Glæsilegar W. Borðbúnaður
gjafavörur fwff og búsahöld
studiohúsiö
AUSTURVERI • SÍMI 31555