Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985
Maðurinn sem framleiddi „Gaukshreiðrið“ og „Amadeus“:
Saul Zaentz
TRÚIN flytur fjöll, var sagt í
gamla daga, og þad virðist vera
eina máltckið sem heimfæra má
yfir á kvikmyndaframleiðandann
Saul Zaentz — hann hefur alla tíð
farið eigin leiðir. Hann hefur sýnt
á undangengnum árum að hug-
myndir, sögur, eða leikrit, sem
fæstir töldu mögulegt að gera
kvikmynd eftir, eru í rauninni efni
í stórbrotin listaverk. Það var
Saul Zaentz sem kom því í kring
að gerðar voru kvikmyndir eftir
skáldverki Ken Keseys, Gauks-
hreiðrinu (One Flew Over the
Cuckoo’s Nest) og leikriti Peter
Shaffers, Amadeus. Hann hefur
beint augum fjöldans að verkum
sem margir töldu að aðeins fræð-
ingar vegsömuðu.
„Þeir sem fara eftir
smekk aimennings eru
á eftir tímanum“
Enginn vill sjá slíka mynd, var
viðkvæði manna þegar Zaentz
leitaði að fjármagni til að fram-
leiða Gaukshreiðrið fyrir tíu
árum. Gaukshreiðrið varð ein
umtalaðasta og rómaðasta kvik-
mynd áttunda áratugarins. Og
sagan endurtók sig þegar Zaentz
lagði í það þrekvirki að kvik-
mynda Amadeus. Sérfræðingar í
kvikmyndaheiminum sögðu:
47% þeirra, sem sækja bíóin
að jafnaði, eru undir 18 ára aldri.
Zaentz svaraði: Þá gerum við
myndina fyrir hin fimmtíu og
þrjú prósentin.
Saul Zaentz hefur aldrei látið
blekkjast af talnaleikjum mark-
aðsrannsókna og hann hefur lítið
álit á þeim sem flokka kvikmynd-
ir eftir ákveðnum heitum (ungl-
ingamyndir, o.s.frv.) Hann er
sannfærður um að þeir sem fara
eftir smekk og áliti almennings
séu ætíð á eftir tímanum. Hann
kærir sig kollóttan um hvort
hugmynd eða saga, sem hann
heillast af, sé líkleg til vinsælda
eða ekki.
Þú verður að trúa heilshugar
á það sem þú ætlar að gera, segir
Zaentz, annars gengur þér illa,
hvorttveggja í einkalífi og starfi.
Zaentz hefur auðgast á stað-
festu sinni og frumleika, lífið
hefur verið honum ávaxtarikur
aldingarður. Hann stofnaði
í ósköpunum er hægt að gera
kvikmynd úr þesu?
Zaentz er þegar kominn á skrið
með Tilveruna eftir Kundera.
Hann hefur fengið Philip Kauf-
man til að skrifa handritið og
leikstýra. Þeir félagar eru ekki
bangnir við hugleiðingar skálds-
ins um kærleikann, tónlist, bók-
menntir og heimspeki, sem eru
meginuppistaða bókarinnar.
Zaentz lítur ekki á bókina sem
heimspekirit, heldur sem inni-
haldsríka föblu um ástir og vin-
áttu fólks sem lifir á tímum óróa
og uppreisnar, nánar tiltekið í
Prag 1968. Kaufman er ákaflega
hamingjusamur þessa dagana,
enda metur hann engan bókar-
höfund meir en Milan Kundera.
Hann segir að bókin sé svo
merkileg að mörgum hafi sést
yfir hana, hreinlega ekki komið
auga á dramatíska möguleika
hennar, að einungis hugdjarfur
og frumlegur og nægilega galinn
maður eins og Saul Zaentz skuli
leggja það á sig að umbreyta
henni í kvikmynd. Framleiðand-
inn og leikstjórinn eru sammála
um að kvikmyndina „Óþolandi
léttleiki tilverunnar" verði engan
veginn hægt að flokka eftir
gömlu aðferðinni, því hún sé ekki
aðeins um fullorðið fólk fyrir
fullorðna, heldur einnig fyrir þá
og þær sem bíða þess að fullorðn-
ast.
Samantekt: HJÓ.
plötufyrirtækið Fantasy Records
á sjötta áratugnum. Hann byrj-
aði strax að veðja á óþekkta
hæfileikamenn, en það var ekki
fyrr en á sjöunda áratugnum að
Zaentz fór að sjá árangur erfiðis
síns. Hann gaf út plötur fjöl-
margra listamanna, þeirra á
meðal hina vinsælu Creedence
Clearwater Revival. Zaentz sneri
sér að kvikmyndunum um það
leyti sem sú ágæta hljómsveit
hætti. Fyrstu myndina fram-
leiddi hann árið 1972, það var
„Pay Day“. Því næst kom Gauks-
hreiðrið (1975), Lord of the Rings
(1978), en sex ár liðu þar til
Amadeus sá dagsins ljós.
Þaö er eins með þessar áætlan-
ir Zaentz og hinar fyrri, vinir,
samstarfsmenn og aðrir hrista
höfuðin í forundran og spyrja:
hvernig dettur manninum annað
eins í hug? Það er nefnilega með
þessar tvær bækur að ekki virðist
hægt að kvikmynda þær; Bý-
flugnaströndin er yfirgripsmikil
lýsing manns á flótta hans undan
siðmenningu Vesturlanda inn í
frumskóga Hondúras (minnir á
„Henderson The Rain King eftir
Bellow); Óþolandi léttleiki tilver-
unnar er blanda af skáidskap og
heimspekilegum hugleiðingum.
Er það nema von að menn reki
upp stór augu, og spyrji: hvernig
Fyrsta þrekvirki Zaentz á kvik-
myndasviðinu var að kaupa kvik-
myndaréttinn að Gaukshreiðrinu
og heyja stríð gegn fordómum og
efasemdum vina og samstarfs-
manna.
Með tvö stórvirki
Saul Zaentz er bókabéus og er
því ekki að undra þótt hann sæki
gjarnan efni í kvikmyndir sínar
úr hugarheimum góðra skálda.
Hann hefur þegar tryggt sér
kvikmyndaréttinn að tveimur
bókum og vinnur um þessar
mundir að myndunum eftir þeim.
Þessi verk eru „The Mosquito
Coast" eftir Paul Theroux og
„The Unbearable Lightness of
Being (Hinn óþolandi léttleiki
tilverunnar) eftir tékkneska
hugsuðinn ogrithöfundinn Milan
Kundera, sem býr í Frakklandi.
Úr Amadeus, sem Saul Zaentz framleiddi. Amadeus hefur farið sigurför
um heim allan, fékk helstu Óskara síðasta árs og hefur hresst upp á
minninguna um Mozart sjálfan og Salieri.
Kvikmyndafram-
leiðandinn Saul
Zaentz.
9
■ ' '• ->■
SKRIFSTOFUFÓLK!!!!!
KYNNUM í DAG LABOFA-HEILSUSTÓLINN Á MILLI KL. 14—17.
Sjúkraþjálfarar leiöbeina um rétta setu og annað sem máli skiptir í
sambandi við hollustuvernd.
Láttu sjá þig — viö bjóöum uppá kaffi í nýja húsinu viö Hestháls 2—4.
krisdAn SIGGEIRSSON
SKRIFSTOFUHUSGOGfM
Hesthálsi 2-4 • sími 672110