Morgunblaðið - 15.12.1985, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985
Svipmynd á sunnudegi/Corazon Aquino
Frá flugvellinuni á Manilla eftir morðið á Benigno Aquino.
Hljóðlát húsmóðir er að verða
sameinmgartáknið í and-
stöðunni við Marcos forseta
Corazon Aquino Salvador Laurel
Sú ákvörðun Corazon
Aquino, ekkju Ben-
igno Aquino, að bjóða sig
fram í forsetakosningun-
um á Filippseyjum, gegn
Marcosi forseta, kemur í
kjölfar vangaveltna og
viðræðna milli stjórnar-
andstöðu hópa sem telja
öllu skipta fyrir lýðræði
og velferð Filippseyja að
Marcos verði ýtt úr sessi.
Corazon Aquino og Salvador
Laurel, einn af helztu andstæð-
ingum Marcosar, höfðu, að því
er talið var, ætlað að reyna að
ná sem víðtækastri samstöðu og
sögðu bæði fyrir fáeinum vikum,
að þau stefndu að því að snúa
bökum saman. Bæði létu þá að
því liggja, að það skipti ekki
máli, hvort yrði í framboði til
forseta og hvort til varaforseta.
Salvador Laurel lýsti yfir ein-
dregnum stuðningi við Corazon,
eftir að þær raddir tóku að gerast
háværari að framboð þar sem
hún væri forsetaefni en Laurel
skipaði sæti varaforsetafram-
bjóðanda. Þetta kom fram í ýms-
um viðtölum og greinum, meðal
annars í Far Eastern Economic
Review sem er eitt áreiðanleg-
asta ritið sem er gefið út í Suð-
austur-Asíu. Um hríð leit út fyrir
að allt væri komið í háa loft
innan stjórnarandstöðunnar og
Laurel tregaðist við að viður-
kenna að hann hefði lýst yfir
stuðningi við Corazon. Þessi
klofningur innan stjórnarand-
stöðunnar kætti Marcos forseta
og stuðningsmenn hans og bentu
á að þetta kæmi auðvitað ekki á
óvart, þar sem stjórnarandstað-
an væri bæði veik og auk þess
allt logandi þar í sundurlyndi.
Síðustu fregnir benda nú til
að ágreiningurinn hafi verið
lagður til hliðar og er það fagn-
aðarefni að margra dómi.
Corazon Aquino var án efa
treg til að láta undan áskorunum
að fara í framboð gegn Marcosi.
Þó að tilkynning um kosningarn-
ar hafi komið ári fyrr en ætlað
var hafði fyrir löngu verið byrjað
að skeggræða þann möguleika
að Corazon yrði stefnt gegn
honum þegar þar að kæmi. Hún
fór fram á umhugsunarfrest og
síðan sagðist hún ekki myndu
fara fram nema að minnsta kosti
milljón kjósendur undirrituðu
áskorun til hennar. Nú hefur ein
milljón kjósenda og rösklega það
beðið hana með undirskrift sinni
að bjóða sig fram og hún hefur
orðið við þeirri áskorun.
Corazon Aquino er auðvitað
ekki stjórnmálamaður og af-
skipti hennar af stjórnmálum
hófust ekki fyrr en eftir morðið
á eiginmanni hennar fyrir tveim-
ur árum. Hún þykir ekki mikil
ræðumanneskja, en hún höfðar
fyrst og fremst til tilfinninga
fólks; hún er sameiningartákn
Filippseyinga þeirra milljóna
sem andsnúnir eru Marcosi.
Corazon Aquino fæddist 25.
janúar 1933 og er af efnuðum
foreldrum komin. Hún var í
einkaskóla sem rekinn var af
kaþólskum nunnum í Manilla og
hélt síðan til framhaldsnáms í
Bandaríkjunum og nam við
Ravel Hill-háskólann í Fíladelfíu
og Notre Dame í New York. Að
svo búnu hugðist hún leggja
stund á laganám i Manilla eftir
að hún flutti heim. Um þær
mundir kynntist hún mannsefni
sínu, Benigno Aquino, sem þá var
að hefja stjórnmálaferil sinn og
var yngsti borgarstjóri í Con-
ception, heimaborg sinni, sem því
embætti hafði gegnt. Innan fárra
ára ætlaði hann sér að verða
landsstjóri í fylkinu og hann var
yngsti þingmaður sem hafði
verið kjörinn á þing og þá þegar
var hann tekinn að renna hýru
auga til forsetaembættisins.
Þegar hér var svo komið sögu,
ár eftir af kjörtímabili Marcosar
forseta og hann lét leiða í gildi
herlög í landinu og Aquino var
handtekinn og sat í fangelsi
næstu áttaárin.
Corazon Aquino segir að þau
átta ár hafi verið erfiðasti tími
ævi hennar fyrir hana og fimm
börn, sem bætzt höfðu í bú þeirra
hjóna. Eftir átta ára fangavist
var Aquino sleppt af heilsufars-
ástæðum og vegna mikils þrýst-
ings erlendis frá meðal annars
frá Bandaríkjamönnum. Hann
og fjölskylda hans fóru þá til
Bandaríkjanna og eftir að Aqu-
ino hafði leitað læknishjálpar,
ákváðu þau að setjast að í Boston,
þar eð Aquino gerði sér mæta
vel grein fyrir því að Marcos
myndi láta grípa hann ef hann
sneri aftur heim.
Eftir nokkurra ára dvöl í
Bandaríkjunum ákváðu þau hjón
að halda heimleiðis. Niðurstaða
Benigno var sú, að Filippseyjar
römbuðu á barmi borgarastyrj-
aldar. Efnahagsmálin voru í rúst.
Stjórnarandstaðan gat ekki
sameinazt gegn Marcosi og áhrif
kommúnista fóru vaxandi. Þau
ár sem Aquino var búsettur I
Bandaríkjunum kom æ skýrar á
daginn, að andstæðingar Marcos-
ar treystu Aquino manna bezt
til að fylkja stjórnarandstöðunni
að baki sér og hefja pólitíska
baráttu fyrir því að Marcos færi
frá.
En þetta fór allt á annan veg
eins og margsinnis hefur verið
fjallað um í fréttum og greinum.
Aquino var skotinn til bana á
flugvellinum og nú hefur hæsti-
réttur komist að þeirri niður-
stöðu að Ronald Galman sem
upprunalega var grunaður um
verknaðinn hafi framið ódæðið
og stuðningsmenn Marcosar,
einkum og sér í lagi Fabius Ver,
yfirmaður herafla landsins, verið
sýknaður. í hugum Filippseyinga
— að minnsta kosti mikils fjölda
þeirra — er þessi úrskurður enn
eitt dæmið um það spillingarbæli
sem Filippseyjar eru orðnar
undir stjorn Ferdinands Marcos-
ar. Corazon var spurð að því
nýlega hvort hún myndi fyrir-
gefa Marcosi það sem hann hefði
gert á hluta fjölskyldunnar og
gleyma því ef hún næði kosningu.
»Ég er ósköp venjuleg mann-
eskja," hreytti hún út úr sér. „Ég
er ekki dýrlingur."
Corazon Aquino hafði, sem fyrr
segir, naumast engin afskipti af
stjórnmálum meðan maður
hennar lifði. Hún annaðist um
börn þeirra fimm af stakri alúð
og sinnti heimilisstörfum. Stöð-
ugur gestastraumur áhangenda
Aquinos var á heimilinu og hús-
freyja hafði í mörg horn að líta.
Hún er sögð vingjarnleg í við-
móti, laus við tilgerð og þrátt
fyrir að foreldrar hennar ólu
hana upp i allsnægtum er hún
fjarri því að vera lúxusmann-
eskja. Hún er vel menntuð, sögð
eðlisgreind og það sem meira er
manneskja með heilbrigðar skoð-
anir. Hún hefur tekið við hug-
sjónakyndli þeim sem maður
hennar reyndi að halda á lofti.
Takist henni að heyja hressa og
raunsæja kosningabaráttu, ná
sáttum við fylgismenn Salvadors
Laurels, að ekki sé nú minnzt á
ef þeim tekst að vinna saman og
mynda breiðfylkingu gegn Marc-
os forseta — kynni svo að fara
að ekki einu sinni bellibrögð
þeirra Imöldu og Marcosar dygðu
til að koma í veg fyrir að hún
bæri sigurorð af Ferdinand
Marcosi.
(Heimildir m.a. Ap. Far Eastern Economic
Review o.fl.)
Samantekt: Jóhanna
Kristjónsdóttir
Eskifjörður:
Góðar gjafir til
Grunnskólans
Eakifirdi, 13. desember.
LIONSKLÚBBIIK Eskifjarðar
afhenti Grunnskóla Eskifjarðar að
gjöf fullkomið litasjónvarpstæki,
myndbandstæki og upptökuvél fvrir
myndband. Var skólastjóra grunn-
skólans, Jóni Inga Kinarssyni, form-
lega afhentar gjafirnar nú á dögun-
um.
Skólastjórinn lýsti ánægju sinni
með gjafirnar og þakkaði klúbbn-
um stuðning hans við skólann og
kvað skólanum nú berast margar
góðar gjafir. Fyrir nokkrum dög-
um fékk skólinn þrjár tölvur að
gjöf frá Halldóri Jensen fyrrver-
andi framkvæmdastjóra Pöntun-
arfélags Eskfirðinga.
- Ævar
M orgu n blaðið/ Ævar
Frá afhendingu gjafanna I grunnskólanum. Jón Ingi Einarsson skólastjóri (t.v.) tekur við tækjunum frá Kristni
Guðmundssyni formanni Lionsklúbbs Eskifjarðar.