Morgunblaðið - 15.12.1985, Síða 42

Morgunblaðið - 15.12.1985, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985 Æðstallraeika eitttréðberskjól. Þarvildiégleika þrihelgölljól. sungu menn í viðlagi gamals vikivakakvæðis. Jólin nálgast. Hægt í hugum barnanna, hratt hjá húsfreyjunum. En þau koma örugglega - þegar þeirra tími er kominn. Það liggur spenna í loft- inu. Þegar litið er á almanakið til að skipuleggja jólaboðin kemur í ljós að nú er mikið svig- rúm. Þetta verða drjúg jól. Allir ættu að geta komist að með sitt boð. Eiginlega alveg óskafyrir- komulag fyrir nútíma jól. Helg- arfrí frá vinnu rétt á undan jól- unum til að þrífa baka og undir- búa heimilið, þá aðeins ein löng Þorláksmessa með opnum búðum fram á kvöld til að útrétta það sem eftir er og ljúka störfum, síðan kemur aðfangadagur á þriðjudegi. Þá eigum við hér á landi tvo góða jóladaga til há- tíðahalda og síðan er ekki nema einn vinnudagur til helgarinnar, sem allt eins má nýta til áfram- haldandi jólaboða. Og svo aftur einn vinnudagur til gamlársdags með tveggja daga gleði og glaumi, eða a.m.k. kveðju- og fagnaðarstund áramótanna í hálfan annan dag. í þetta sinn erum við semsagt rík af dögum til að gleðjast saman um jólin. Stór hluti af jólunum er að hlakka til - þeir sem ekki hafa glatað þeim hæfileika sem von- andi eru fáir þegar allt kemur til alls. Sá þáttur er nú í fullum gangi á aðventunni. Jólin eru enn nokkuð hefðbundin, en líklega er það aðfaratími jólanna sem hef- ur breyst mest á undanförnum árum. Kannski er það rökrétt og eðlileg afleiðing af minnkandi fjölskyldum og þá fámennari fjölskylduboðum. Pélagslífið utan heimilisins er orðið meira og fjölbreyttara og það er einmitt það sem hefur bólgnað út á að- faratíma jólanna. Varla það fé- lag eða sá vinnustaður sem ekki efnir til Jólaglöggs“ á jólaföst- unni. Byrjar strax í byrjun des- ember, svo að við sem víða förum og erum þáttakendur í sitt- litlu- af- hverju- gætum verið synd- andi ljúf af rauðvínsdrykkju og södd af áfengum rúsínum á hverju síðdegi alla jólaföstuna — svona ef vilji er fyrir hendi. Þetta kemur nú að nokkru í staðinn fyrir samverustundir stórfjöl- skyldunnar við jólaundirbúning- inn: laufabrauðs- eða piparköku- baksturinn, jólaskrautsgerð í loft eða á jólatré, sælgætisfram- leiðslu úr súkkulaði og marsipani o.s.frv. Eflaust eðlileg fram- þróun í samfélagi þar sem félags- skapurinn hefur færst út á vinnustaðina af fámennum heimilum — en leyfist ekki samt að sjá svolítið eftir því sem var. óþarfi þarna „að kasta því frá sér svo maður missi það ekki“, eins og evrópskur málsháttur hvetur til. Við þessir duglegu íslendingar getum sem best inn- byrt þetta allt saman af okkar alkunnu lífsgræðgi. Að minnsta kosti þar til við missum það. Ættum kannski í tilefni jólanna og minningu höfundar Jólaævin- týrisins, Charles Dickens, að hlusta eftir orðum hans, þegar hann segir um fólkið: „Látið það hlæja, látið það gráta en umfram allt látið það doka við.“ Jólahaldið sjálft er þó enn býsna hefðbundið á mörgum heimilum með kirkjuferðum, fjölskyldusamkomum og miklum oggóðum mat. í hverri fjölskyldu hafa svo skapast vissir siðir sem alltaf eru hafðir uppi á hverjum jólum og ekki í annan tíma. Teknir fram ákveðnir hlutir og hafðir til að gleðja augað, kannski hlutir sem engum öðrum þykja fallegir en öllum viðstödd- um þykir vænt um. Hafa kannski séð þá á hverjum jólum frá því að þeir voru börn. Þegar þeir eru komnir upp, þá eru komin jól. Og þegar rjúpurnar, hamborgar- hryggurinn, svínakjötið, heima- lagaða kæfan, síldin eða rúllu- pylsan, eða eitthvað annað, er á borðinu þá tilheyrir það jólunum. Ekki haft fyrir því í annan tíma. Eða þegar á kaffiborðinu blasir við randalínan eða vínartertan, hvort sem við viljum kalla það, hálfmánarnir, piparkökurnar eða aðrar heimilissmákökur þá setur það jólasvipinn á. 1 bruðl- samfélaginu þegar allt má kaupa nýtt á næstu jólum væri mikið misst ef slíkir siðir hyrfu. Þeir geta verið allfjölbreyttir eftir fjölskyldum. Einn hefur á jóla- trénu sínu ekkert annað en gyllt- ar hnetur og lifandi ljós, annar epli og fígúrur úr piparkökum auk rauðra rafljósa og sá þriðji gylltar kúlur, englahár og mikið glys. Hver eftir sinum smekk. Ekki aðalatriðið hvað, heldur að það sé alltaf það sama, jól eftir jól, verði orðin hefð í fjölskyld- unni. Hver ung fjölskylda ætti að koma sér upp nokkrum hefð- bundnnum siðum. Sama hvað er, t.d. að alltaf sé farið í sama leik- inn sem þeir yngstu koma inn í smám saman og halda við. Þá þarf eitthvað einfalt sem allir geta verið með í, allt frá 5 ára til áttræðs. Að þeir hafi gaman af honum saman. Ekki að krakk- arnir fari í annað herbergi með sína leiki og þeir fullorðnu sitji eftir. Þá missa menn af þessu tækifæri til samveru við bestu skilyrði — jólin. Eða eins og örn Arnarson segir í síðasta erindinu af Ijóði sínu um jól: Og ellin tekur hlutdeild í helgi jólanætur, en heimur skrýðist ljóma frá barnsins jólasól. En innst í hugans leynum er lítið bam sem grætur - oglitlabarniðgrætur aðþaðfær enginjól. Þegar talað er um samveru á jólum verður eflaust ýmsum að orði að svona drjúg jólahátíð eins og í ár verði þeim þá æði löng sem fáa eða engan hafa til að eyða henni með. Mikið rétt. Sem betur fer eru þeir ekki margir sem engan þekkja til að vera hjá einu sinni á ári. Þá er það einmitt gjarnan sem allt í einu er munað eftir gleymda ættingjanum - hann tilheyrir einmitt á jólunum. En við höfum líka komið okkur upp ágætum sið um jólin, að lesa bók. Það tilheyrir og samvist við góða bók býður oft upp á heilmikið „sel- skap“. Velja hana þá vel fyrir- fram. Þeir sem liggja í skýrslum allan ársins hring og hafa ekki tima til að líta nema rétt í blöðin lesa óskabókina yfir jólin. Bók sem maður hefur tryggt sér með ábendingu í jólagjöf eða freistast til að kaupa. Það er ein af hefðun- um okkar, sem kemur af þessum sið að gefa út allar bækur fyrir jólin og láta þá dynja á mann- skapnum hvatningu til að kaupa þessa og hina bókina. Kannski þetta sé öfugt, jólalesararnir haldi þeim skikk í landinu að gefa út allar bækur fyrir jólin. Sama hvort kemur á undan, eggið eða hænan, góða bókin eða lesandinn. Við valið mætti kannski minnast hins ágæta heilræðis Piets Heins eins og Magnús Ásgeirsson þýddi það (held ég): Viturleg bók er best að fái svo berleg spjöll af heimsku, að einnig heimskir sjái að hún er snjoll. En hvort sem maður ætlar að eyða þessum drjúgu jólum í samfélagi við ættingja eða sögu- persónur er rétt að hafa fyrir- hyggju - núna. Þaðfœst marql skemmtilegt í Alafossbúðinni. t.d. stílhrein matar- og kaffistell úr fivítu postulíni frá fiinum þekkta framleiðanda Arzberg Þarna erauk þess að finna listilega hönnuð vínglös, hnífapörog ýmsa skrautmuni /tofossbúðin VESTURGOTU 2 SIMI 13404 GIAFAVORUR Hitaeiningar og kolvetnisinnihald á augabragði Langar þig til þess að vita hve margar hitaeiningar eru í eþlinu sem þú ert að fara að borða — eða hve mörg kolvetni eru í því? Kannski langar þig til að vita hve miklar hitaeiningar eru í lambakótelettunni sem þú ert að fara að leggja þér til munns, nú eða einum disk af kornflögum. Þetta og margt flelra færöu að vlta á augabragöi meö nýrri rafelndavog sem komin er á markaðinn. Þetta er eldhúsvog sem gerlr ýmis- legt flelra en að mæla hveitl og sykur. • Hún gefur upp hltaeinlngar-, fltu-, kolvetna- og trefjalnnlhald teg- unda. s • Breytirgrömmumlúnsurogöfugt á augabragði. • Hefur tímastilli frá 30 sek. upp (99 mtnútur. • Hægt er að vigta margar tegundir samtímis. vogln gengur fyrir venjulegri 9 volta rafhlöðu, sem á að duga í eitt ár Með henni fylgir bók á ensku par sem er að flnna kóða tll að f Inna út næringarglldi nokkur hundruð f æöutegunda. Islensk býðing á bóklnnl er væntanleg innan skamms. útsölustaðir: Glóey, Armúla, H. Blering, Laugavegl, H. G. Guðjóhsson, Stigahlfö, Hagkaup, Skeifunnl, Helmilistækl, Sætúnl, Rafbúð Domus Medica, Egilsgötu, versl. Rafmagn, vesturgötu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.