Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 44

Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985 Eftir ÖNNU THEODÓRSDÓTTUR K enndi pönnuköku- bakstur í kanadíska sjónvarpinu Edda Ólafsdóttir Hún er glaðleg og skemmtileg og í ná- vist hennar er ómögulegt að láta sér leiðast. Fyrir tilviljun frétti ég að hún væri í heimsókn hér á landi og ákvað að ná tali af henni og forvitnast um hennar hagi á erlendri grund. Við höfð- um ekki sést um árabil enda báð- ar búsettar erlendis, sitt hvoru megin Atlantshafsins. Hún heitir Edda Ólafsdóttir, íslensk kona sem fluttist árið 1973 ásamt manni og börnum af landi brott. Fyrirheitna landið var Kanada, óskaland f slendinga sem flytja vestur um haf. Þau settust að í Winnipeg. Maður hennar, Þráinn Kristjánsson, hafði lært hótelstjórn og honum bauðst gott starf. 1 dag eiga þau tvo veitingastaði, Round Table og Grapes, sem eru mjög vinsæl- ir staðir. Á Round Table er hægt að gæða sér á Edda’s Browncake, 4 hæða brúnköku með rabarb- ara, jarðarberjum, kremi og rjóma. Tímarit í New York bað um uppskriftina en Edda neitaði auðvitað. Hún hefur kennt ís- lenska matreiðslu og kökubakst- ur í sjónvarpi á rás 7 í Kanada, t.d. bakstur á vínartertu, pönnu- kökum og kaniltertu. Einnig hvernig útbúa á rúllupylsu o.fl. Skemmtilegast af öllu var þegar hún hellti upp á kaffi með gamla laginu og útbjó kaffipokann úr gömlum nærbol. Hún setti það sem skilyrði að sjónvarpsþætt- irnir yrðu sem íslenskastir. Þul- urinn var klæddur í lopapeysu sem Edda hafði prjónað. Sviðið var skreytt með íslenskum værð- arvoðum, sokkum og gæruskinn- um og úr þessu urðu allra þjóð- legstu þættir. Hægt var að hringja í sjónvarpið á eftir. Um 2 þúsund manns hringdu til að fá uppskriftir af kökum og einn- ig til að vita hvernig ætti að búa til íslenska kæfu. Mikill áhugi er hjá Vestur-íslendingum að halda í allt sem íslenskt er. Ótrúlegt er hversu vel eldra fólk- ið talar íslenskuna, jafnvel það fólk sem aldrei hefur til fslands komið. Það talar hreina og góða íslensku fyrir utan fáein orð sem ekki voru til í málinu á þeim tíma er foreldrar þeirra fluttust úr landi. í dag er þetta öðruvísi hvað unga fólkið varðar. Fólk yngra en 40 ára talar ekki ís- lensku nema í litlum mæli. For- eldrar þeirra töluðu ekki ís- lensku sín á milli nema þegar um einhver leyndarmál var að ræða og börnin áttu ekki að skilja. Smátt og smátt lét ís- lenska undan síga. Ungu fólki í dag leiðist að kunna ekki málið sem forfeður þeirra töluðu og er nú íslenska vinsælasta fagið i háskólanum í Winnipeg. Hægt er líka að fá einkatíma í málinu á Gimli og í barnaskólanum i Árborg. Athyglisvert er að ekki ein- ungis fólk af íslensku bergi brot- ið er að læra málið heldur fólk af mörgum þjóðernum. Edda hefur ferðast mikið um Kanada, skoð- að flesta staði þar sem fslend- ingar settust að. Hún hefur kynnt sér sögu landnemanna og dáist mjög að dugnaði þeirra og þrautseigju við ótrúlega erfiðar aðstæður. Það hefur vakið at- hygli hennar hversu gott sam- komulag hefur alltaf verið milli fslendinga og indjána. íslendingadagurinn er alltaf mikill hátíðisdagur i Manitoba og er sá dagur fyrstu helgina í ágúst ár hvert. Þá koma menn saman og gæða sér á íslenskum réttum, slátri og lifrarpylsu. Einnig reynum við á hverju ári að fá hingað fólk frá fslandi til að koma fram á þessum degi. Þetta ár kom t.d. karlakórinn Stefnir úr Mosfellssveit og söng fyrir okkur. Með hlutverk Fjallkonu er valin fullorðin vestur-islensk kona og við hvora hlið hennar standa ungar konur og er farið með minni fslands. Mikið er dansað og islenskir söngvar sungnir. Fljótlega eftir að Edda fluttist vestur var hún svo heppin að kynnast konu að nafni Bew Ros- inkrans, en hún er hálfur Norð- maður og hálfur íslendingur. Bew er þekkt fyrir mannúðar- og hjálparstörf. Edda segist eiga henni mikið að þakka í sambandi við persónulega velgengni sína. Þessi kona bauð henni að selja Shakkle-vörur, fjölvítamin og fleira. Áhugi hennar var vakinn og hún fór að kynna sér nær- ingarfræði. Hefur hún nú í mörg ár verið að bæta við sig þekkingu í þeim efnum og kynna sér mat- aræði fólks. Hefur hún lengi verið sðlu- hæsta konan hjá Shakkle i Manitoba-fylki. Þetta er afar skemmtilegt starf svo það má sannarlega segja að ég sé á réttri hillu. Shakkle-vítamin eru nokk- urs konar fæðuuppbót unnin úr náttúrulegum efnum, undir ströngu eftirliti sérfræðinga. Vestan hafs er vitað að oft er vöntun á ýmsum nauðsynlegum efnum í þeim mat sem fólk borð- ar. Finnst mér ástandið i þessum efnum miklu betra hér heima mest vegna þess hve hráefnið hér er miklu nýrra, t.d. fiskur- inn. Til að byrja með þjáðist Edda mikið af heimþrá en Vestur- íslendingarnir hjálpuðu henni yfir erfíðasta hjallann. Margs er að sakna héðan finnst henni, fólkið hennar, góða loftið og landið sjálft. Núna finnst henni Manitoba vera einn besti staður sem íslendingar geta flust til. Kanada hefur reynst mér land tækifæranna. Ég þakkaði Eddu spjallið og óskaði henni alls góðs í framtíðinni. Gerður Ævisaga myndhöggvara eftir Elínu Pálmadóttur Æviferill Gerðar Helgadóttur, myndhöggvara, var stórbrotinn. Leið hennar til heimsfrægðar, úr Handíða- og myndlistaskóla Lúðvígs Guðmundssonar til Flórens og Parísar var bæði örðug og grýtt. Erfið einkamál áttu þar hlut að máli. Nánasta vinkona Gerðar, Elfn Pálmadóttir, segir hér sögu hennar af ástúð, virðingu og mikilli hreinskilni. ’ Petta er áhrifamikil og vel rituð saga um stórbrotinn æviferil mikillar listakonu, sem lést árið 2 1975, langt fyrir aldur fram. Elin Rilmadúttir Gerður Ævísagi rrtyndhíiggvara BÓK AUÐVITAÐ ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ. AUSTURSTRÆTI 18, StMI 25544. SKYRTUR BINDI SOKKAR HANZKAR PEYSUR NÁTTFÖT SLOPPAR SKÓR SNYRTIVÖRUR INNISKÓR FÖT FRAKKAR HATTAR HÚFUR £ VANDAÐAR TREf LAR GÓÐAR JÓLAGJAFIR FRÁ H E R RA 13 LD

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.