Morgunblaðið - 15.12.1985, Side 47

Morgunblaðið - 15.12.1985, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985 47 Islensk hljómsveitartónlist Hljómplötur Egill Friðleifsson Hlið I. Óbókonsert eftir Leif Þórar- insson. Hlið II. Klarinettkonsert eftir John Speight og Choralis eftir Jón Nordal. Elytjendur: Sinfóníuhljómsveit ís- lands undir stjorn Páls P. Pálssonar og Jean-Pierre Jacquillat. Einleikarar: Kristján Þ. Stephensen, óbó, og Einar Jóhannesson, klari- nett. Á plötunni „íslensk hljómsveit- artónlist", sem út kom á vegum íslensku tónverkamiðstöðvarinnar fyrir skömmu, er að finna þrjú verk eftir þá Leif Þórarinsson, John Speight og Jón Nordal. Flytj- endur eru Sinfóníuhljómsveit ís- lands undir stjórn þeirra Páls P. Pálssonar og Jean-Pierre Jacquill- at, en einleikarar eru þeir Kristján Þ. Stephensen óbóleikari og Einar Jóhannesson klarinettleikari. ís- lensk hljómsveitartónlist á sér ekki langa sögu, eins og fram kemur í grein Jóns Þórarinssonar, er fylgir plötunni. Þórarinn Guð- mundsson, fyrsti fullmenntaði fiðluleikarinn okkar, setti saman 20 manna hljómsveit, er hélt tón- leika 1921 og upp úr því var Hljóm- sveit Reykjavíkur stofnuð. Það var mikill viðburður þegar Jón Leifs tónskáld, kom með Fílharmóníu- hljómsveitina frá Hamborg árið 1926 og hélt hér nokkra tónleika.- Fyrsti tónlistarskólinn komst á laggirnar þjóðhátíðarárið 1930 og loks var Sinfóníuhljomsveit ís- lands stofnuð 1950. Hljómsveitin hefur fyrir löngu unnið sér fastan sess og sannað tilverurétt sinn i íslensku menningarlífi, þrátt fyrir að úrtölumenn fagurlista dragi nauðsyn hennar stundum í efa, og telji þeim fjármunum illa varið, sem ekki sér stað í stáli eða steypu. Nú er brýnasta verkefni tónlistar- unnenda og annarra að reisa veg- legt hús yfir það margvíslega, gróskumikla tónlistarlíf, sem nú blómstrar í landinu, Hús Tónlist- arinnar, en það er önnur saga. Á hlið I er konsert fyrir óbó og hljómsveit eftir Leif Þórarinsson, allmikið verk í einum þætti, þó formið sé þrískipt. Mér finnst langur vegur frá Sinfóníu nr. 1 frá 1963, sem er erfitt verk í hlust- un, til óbókonsertsins, sem höfðar ekki síður til tilfinninga en kaldrar útspekúleðrar skynsemi. Kristján Þ. Stephensen fer með einleiks- hlutverkið og stendur sig með mikilli prýði í góðri samvinnu við hljómsveitina undir stjórn Páls P. Pálssonar. Á hlið II er fyrst að finna klari- nettkonsert eftir John Speight er ber yfirskriftina „Melodius Birds Sing Madrigals". Þetta er liflegt verk í einum þætti, sem spunnið er út frá þeim stefjum, sem klari- nettan kynnir í upphafi. Einar Jóhannesson klarinettleikari bað John Speight um tæknilega erfitt verk og fékk það. Einar er snjall hljóðfæraleikari, sem gerir þessari tónsmíð hin bestu skil ásamt hljómsveitinni undir stjórn Jean- Pierre Jacquillat. „Choralis" eftir Jón Nordal er síðara verkið á hlið II. Mikið og verðskuldað lof hefur verið borið á þetta verk Jóns, sem frumflutt var vestur í Washington D.C. árið 1982 undir stjórn Cterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! Rostropovich. Sjálfum finnst mér þetta eitt allra besta verk Jóns, vel samið, áhrifaríkt og áleitið. Þar kemur gamla lagið um Lilju, sem allir vildu kveðið hafa, mjög við sögu, og er unnið úr því á meistara- legan hátt. Jón hefur oft vitnað i þetta fallega lag, m.a. í litlu en yndislegu kórverki er ber nafnið „Salutatio Mariæ". Því miður heyrist það verk of sjaldan. Það er fengur í þessari plötu, eins og hinum, sem út komu hjá íslensku tónverkamiðstöðinni um sama leyti, og verður fróðlegt að fylgjast með áframhaldandi út- gáfu. Þessi vinsæla barnabók er komin aftur á markaöinn. Bókin er meö 16 vísum sem sungnar eru viö lagiö „GAMLI NÓI“. Textar eru eftir Stefán Júlíusson. Dreifing: Andvarl hf., Sundaborg, simi 84722 Fullkominn plötuspilari með magnara og tveimur hátölurum Magnarinn er 2x15 wött sem nægir flestum. Plötu- spilarinn er geröur fyrir allar Stærðir af hljómplötum og er með tveimur hröðum 33 og 45 snúninga. Auk þess er vökvalifta á arminum svo krakkarnir fari bet- ur með plöturnar. Tækið er auk þess með innstungu fyrir heyrnartæki og fimm-pinna stungu fyrir segul- band eða útvarp. Þessu öllu saman fylgja síðan tveir vandaðir hátalarar. Krakkarnir láta nú stóru, dýru græjurnar í friði og allir eru ánægðir. TAKMARKAP MA6N VIÐ TDKUM VEL w, Á MÓTI ÞÉR SKIPHOLTI 19 SIMI 29800

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.