Morgunblaðið - 15.12.1985, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985
Blönduós:
Kaupfélag Hún-
vetninga 90 ára
opið hús á afmælisdaginn
Blönduósi, 13. desember.
90 ÁR eru liðin frá stofnun Kaup-
félags Húnvetninga (KH). Það voru
þeir Jón Guðmundsson á Guðlaugs-
stöðum og Þorleifur Jónsson al-
þingismaður á Syðri-Löngumýri sem
boðuðu til stofnfundar félagsins á
Blönduósi þann 16. desember 1895.
Fyrsti formaður var kosinn Þorleifur
Jónsson.
Geysilegar breytingar hafa orð-
ið á rekstri og umsvifum KH þessa
tæpu öld sem það hefur starfað.
Fyrsta hús kaupfélagsins var
byggt 1899 en núna rekur KH þrjú
verslunarhús, eitt á Blönduósi þar
sem jafnframt er skrifstofa félags-
ins, og tvö á Skagaströnd. Auk
þessa rekur KH meðal annars vél-
smiðju, pakkhús og söluskála á
Blönduósi. Nýjasta verkefnið sem
KH hefur ráðist í er kaup á súpu-
gerðinni Vilko og er áætlað að
fyrirtækið flytji norður eftir ára-
mótin.
Hjá Kaupfélagi Húnvetninga
starfa nú um 80 manns og mun
heildarumsetning félagsins á ár-
inu vera um það bil 350 milljónir.
Til gamans má geta þess að KH
leggur fram um það bil 500 þúsund
krónur til félags-, íþrótta- og
menningarmála í héraðinu á þessu
ári.
Á afmælisdaginn, mánudaginn
16. desember, ætlar kaupfélagið
að minnast dagsins með því að
hafa opið hús i félagsheimilunum
á Blönduósi og Skagaströnd. For-
maður stjórnar er Björn Magnús-
son bóndi á Hólabaki, en kaup-
félagsstjóri Árni S. Jóhannsson.
Jón Sig.
Guðmundur
sklpherra
Kjæmested
síðara bindi
skráð af Sueini Sæmundssyni
Saga hatrammra átaka,
taugastríðs og ofbeldisverka
Þetta er líka saga um harðfylgi og þrautseigju
íslenskra varðskipsmanna og óumdeildan foringja
þeirra í baráttunni við ofurefli sem að lokum laut í
lægra haldi.
Sveinn Sæmundsson skráir sögu Guðmundar
skipherra og baráttunnar við breska Ijónið sem náði
hámarki er herskip reyndi að sökkva varðskipinu Tý.
Breskir útgerðarmenn kröfðust þess að Guðmundur
yrði rekinn í land og herskipamenn óttuðust hann og
hötuðu.
„Við erum ekki stríðsmenn," sagði Guðmundur, „en
þegar ráðist er á okkur með ofbeldi legg ég allt í
sölurnar til að verja sjálfstæði íslands."
ÞETTA RITVERK ER ÓMETANLEG HEIMILD UM
BARÁTTU ÞJÓÐAR FYRIR TILVIST SINNI
ðfíN 06 OftLYGU*
PE.KristianKálund
ISLENZKlR
SögustaðiR
VESTfjRÐinGA
FJÓRÐUMGUR
íslenzkir sögustaðir
Vestflrðlngafjórdungur
„Annað bindi
öndvegisrits"
„Höfundur hefur ferðina . . . við Hvítá í
Borgarfirði . . . Á leið hans verða
sögustaðir (slendingasagna hver á fætur
öðrum og lýsir hann þeim og tengir
sögunum og atbuðum þeirra. Er bókin
þannig, öðrum þræði eins konar
handbók fyrir þá er vilja ferðast um ísland
sagnanna og fræðast um mennogatburði
sem þar er frá greint og skoða um leið
sögustaði." jón Þ. Þór (Tíminn 26/11/85)
MINNINGAR
HULDU Á.
STEFÁNSDÓTTUR
Bernska
Ninningar Huldu Á.
Stefánsdóttur
— bemska
Hulda Á. Stefánsdóttir er ein þeirra
kvenna sem sett hafa svip á öldina og
þjóðin öll þekkir og ann.
Frásögn hennar stendur djúpum rótum í
þjóðlífi og sögu. Mannlýsingar eru skýrar
og hispurslausar, yljaðar kímni og
næmum skilningi.
í HÓPI MERKUSTU MinnmGABÓKA
Sjómannsævi
— lokablndld —
eftir Karuel Ögmundsson
í þessu bindi segir Karvel frá sjósókn
sinni á Hellissandi, ísafirði og Hjarðvík-
um. Mikill fengur er að tveimur köflunum,
leiftrandi frásögn af Ólafi Thors og
frásögnum af yflmáttúrulegum fyrirbær-
um, draumum, dulheyrn, hugboðum og
aðvörunum, en Karvel er gæddur
dulrænum hæfileikum sem hann kann að
nýta bæði sér og öðrum til góðs.
BÓKAÚTGÁFAN ÖRN & ÖRLYGUR
Síðumúla 11, sími 84866
Norræna
listasambandið:
Verk eftir
íslenska
listamenn
á afmælis-
sýningu
NORRÆNA listasambandið
minnist 40 ára afmælis síns með
afmælissýningu f húsakynnum á
Valdimarsodda í Stokkhólmi og var
sýningin opnuð í byrjun nóvember
sl. Tveir íslenskir listamenn taka
þátt í sýningunni, þeir Jóhannes S.
Kjarval fyrir hönd þeirra lista-
manna, sem voru starfandi á
fimmta áratugnum þegar samband-
ið var stofnað og Jón Gunnar Árna-
son fyrir hönd starfandi listamanna
af yngri kynslóðinni.
I umsögn um sýninguna, sem
birtist í Dagens Nyheter, segir að
verk Jóhannesar S. Kjarval beri
merki uppruna síns. Hann túlki í
verkum sínum íslenskt landslag
og fjöll, sem eigi sér enga hlið-
stæðu. Um Jón Gunnar Arnason
segir, að hann gefi höggmyndum
sínum frjálst rými i rúminu eins
og sjá megi í verki hans Draum-
bátur unninn úr stálrörum, sem
upphefur náttúrulegt þyngdarlög-
mál.
Aðrir norrænir listamenn sem
taka þátt i. sýningunni eru þeir
Arne Ekeland og Gunna Torvund
frá Noregi, Henry Heerup og Niels
Reumert frá Danmörku, Birger
Carlstedts og Leena Luostrinens
frá Finnlandi, Sven X-et Erixson
og Curt Asker frá Sviþjóð og
Annelise Josefsen fyrir hönd
Sama, sem nýlega hafa orðið aðilar
að samtökunum.
Jólabasar
hjúkrunar-
fræðinema
ÞEGAR skýrt var frá jólabasar
4. árs hjúkrunarfræðinema í HÍ
sem haldinn verður í Hjúkrunar-
skóla íslands í dag, sunnudag, láð-
ist að geta þess að basarinn hefst
kl. 14.' Er því hér með komið á
framfæri.
XJöfóar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!