Morgunblaðið - 15.12.1985, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. DESEMBER1985
65
JÓHANN ÓLAFSSON & CO
43 Sundaborg -104 Reykjavík • Sími 82644
iiíihi
Andrés Sveinbjörnsson, frkvstj. Virkis hf. og Luis Oiiveira, fiskimálaráó-
berra Guinea Bissau takast f hendur, að lokinni undirritun samningsins.
Veitir Afríkumönnum
ráðgjöf í sjávarútvegi
Söguhetjan við tímavélina, sem reyndar er endurbætt útgáfa af þeim fræga
sportvagni De Lorean!
FYRIR skömmu var undirritaður
samningur varðandi ráðgjöf um
uppbyggingu sjávarútvega, milli ráð-
gjafarfyrirtækisins Virkis hf. og rfk-
isstjómar Guinea Bissau { Vestur-
Afrfku.
Verkefnið verður sameiginlega
unnið af Virki hf. og IceFishCo
hf. á næstu sjö mánuðum. Virkir
hf. endurskipuleggur nú starfsemi
sína með tilliti til þessa og annarra
verkefna, sem í undirbúningi eru
á erlendum vettvangi.
Fréttatilkynning
nokk
Varanlegar vestur-þýskar gæðavörur.
Utsölustaðir:
Árvirkinn sf. Selfossi
Bjamabúð Tálknafirði
Borgarljós Skeifunni
Búsáhöld og leikföng Hafnarfirði
Búsáhaldaverslun B.V. Hólagarði
Domus, raftækjadeild
Einar Guðfinnsson Bolungarvík
Elís Guðnason Eskifirði
G. H. Ljós Garðabæ
Garðakaup Garðabæ
Gellir Skipholti
Glóey Ármúla
Guðni E. Hallgrimsson Grundarfirði
H. G. Guðjónsson Suðurveri
Hagkaup
Heimiiistæki Sætúni
Heimilistæki Hafnarstræti
Hekla hf. Laugavegi
Húsið Stykkishólmi
Þetta eru aðeins
dæmi um geysimikið úrval
frábærra heimilistækja
fráGrossag sem stuðla
að því að heimilisstörfin
verði leikur einn.
JL-húsið
Vöruhús K.Á. Selfossi
Verslunin Kassinn Ólafsvlk
Kaupfélag A-Skaftfellinga Höfn
Kaupfélag Borgfirðinga Borgamesi
Kaupfélag Borgfirðinga Akranesi
Vöruhús KEA Akureyri
Kaupfélagið Fram Neskaupstað
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga Fáskrúðsfirði
Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstððum
Kaupfélag Hrútfirðinga Borðeyri
Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi
Kaupfélag Langnesinga Þórshöfn
Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
Kaupfélag Vopnfirðinga Vopnafirði
Kaupfélag Þingeyinga Húsavík
Kjami sf. Vestmannaeyjum
Mikligarður
Mosraf Mosfellssveit
Norðurfell hf. raftækjas. Akureyri
Óttar Sveinbjörnsson Hellissandi
Radio- og sjónvarpsstofa Selfossi
Radiohúsið Hverfisgötu
Rafbær Siglufirði
Rafmagn Vesturgötu
Raforka hf. Akureyri
Rafha Austurveri
Raffækjaverslun Gríms og Áma Húsavík
Rafviðgeröir Blönduhlið
Rafbúð R.Ó. Keflavfk
Rafbúðin Auðbrekku
Rafpjónusta Sigurdórs Akranesi
Rafbúðin Átfaskeiði
Samkaup Njarðvik
Sveinn Guðmundsson verslun Egilsstöðum
Straumur fsafirði
Verslun Sig. Pálmasonar Hvammstanga
Vestur-þýsk fullkomnun
Grossag er eitt af elstu
Það hefur ætíð verið í
og vandaða vöru, sem
Grill á 1,2 og 3 hæðum.
Spennandi nýjung sem
gæðir veisluna lífi og fjöri.
Hentar jafnt
innan dyra
sem
fyrirtækjum heims á sviði heimilistækja.
fararbroddi og lagt áherslu á örugga
hægt er að treysta.
einmg er nægt að
nota til að hita upp
bollur og rúnnstykki.
best.
15 bolla
kaffivél
hlaðin
tækninýjung-
um sem miða
að því að gera
kaffið sem allra
Vann sófa í get-
raun hjá Habitat
VERSLUNIN Habitat Laugavegi
13, efndi í haust til getraunar sem
áskrifendum að verðlista Habitat
gafst kostur á að taka þátt í, og
voru verðlaunin sófi frá Habitat í
Frakklandi. Dregið var úr öllum
innsendum seðlum og upp kom
nafn Magnfríðar Sigurðardóttur,
Öldugranda 3. Meðfylgjandi mynd
var tekin er Sigriður Þorbjarnar-
dóttir, verslunarstjóri Habitat
afhenti Magnfriði sófann sem hún
hlaut í verðlaun.
Afturábak og áfram
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó: Aftur til framtíðar —
Back to the Future ★ ★ ★
Leikstjóri Robert Zemeckis. Handrit
Zemeckis og Bob Gale. Tónlist Alan
Silvestri. Framleiðendur Bob Gale
og Neil Canton. Aðalhlutverk: Mic-
hael J. Fox, Christopher Lloyd, Lea
Thompson, Crispin Glover. Amblin
Production, (Spielberg), Bandarísk.
Universal 1985.116 mín.
Enn erum við sest í töfrahring-
ekju þeirra Spielberg og félaga,
ekkert er raunverulegt, hér gerast
ævintýrin. Einkunnarorðin þau
sömu: Skemmtum okkur! Og Afíur
til framtíðar er engin undantekning
frá fyrri myndum þessarar nafn-
toguðu maskínu, enda létt og
græskulaust gaman frá upphafi til
enda.
Að vísu er skemmtunin nokkuð
misjöfn í þessari vinsælustu mynd
vestan hafs í ár, en þá á svipaðan
máta og rússíbanaferð, eftir væna
dýfu kemur slakandi millikafli svo
næsti skrekkur verður enn magn-
aðri.
Annars er Aftur til framtíðar nýj-
asta tilbrigðið við hina frægu tíma-
vél Wells, (það síðasta á undan var
hin ágæta Time After Time, greini-
leg fyrirmynd). Piltur (Michael J.
Fox) í smábæ í Bandaríkjunum,
ferðast fyrir mistök 30 ár aftur í
tímann í furðutæki (undirstaða
þess er sá frægi bíll, af endemum,
De Lorean) samansettu af vini
hans sem er dálítið klikkaður vís-
indamaður, (Christopher Lloyd).
Atburðarásin verður ekki tíund-
uð hér mikið nánar, en ferðalagið
er hið kúnstugasta. M.a. kynnist
hann móður sinni sem verður bál-
skotin í stráksa sem leggur sig,
að vonum, allan fram að tryggja
sinn eigin tilverurétt. Gerist því
harður áróðursmaður fyrir kven-
hylli — stráks föður síns. Skellur
þar hurð nærri hælum!
Zemeckis er lipur. Leikur aftur
sama leikinn og í Romancing the
Stone, drífur atburðarásina áfram,
létt og skemmtilega og skilur
tæpast eftir dautt augnablik.
Hinar sérstöku kringumstæður
söguhetjunnar bjóða uppá spaugi-
lega möguleika sem eru vel nýttir.
Sögufléttan sjálf er smellin og
gengur prýðilega upp þó oft sé illa
gengið frá endunum, en þetta er
nú einu sinni ævintýri. Hinsvegar
veldur endirinn nokkrum von-
brigðum, engan veginn eins fynd-
inn og útsjónarsamur og það sem
á undan er gengið. Frekar ódýr
lausn sem verður lítið betri fyrir
tilkomu lokaferðar þremenning-
anna. En þetta er minni háttar
vankantur.
Það þarf ekki að fjölyrða um
tæknivinnu né útlit myndarinnar,
Spielberg og félagar standa fyrir
fagmennsku eins og hún gerist
best í kvikmyndum í dag. Því
miður reiknast nokkuð á kostnað
hinns mannlega þáttar því oft eru
persónurnar eins og til uppfylling-
ar. En þrátt fyrir handritsgalla
standa hinir ungu leikarar sig með
prýði, en bestur er Christopher
Lloyd (sem um þessar mundir
bregður fyrir í hverri myndinni á
fætur annarri), hann er óborgan-
legur í hlutverki hins hálfóða vís-
indamanns.
Og Spielberg-verksmiðjunni
hefur tekist að ná settu markmiði,
eina ferðina enn, að koma manni
í gott skap.