Morgunblaðið - 22.01.1986, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
Nefið stóra
Það er álitamál hvort þriggja
tíma leiksýningar eiga erindi
í sjónvarp. Leikverkið: Cyrano de
Bergerac er sýnt var nú á mánu-
dagskveldið hygg ég að hafi þreytt
margan manninn, þrátt fyrir að
fjögurra mínútna hléi væri skotið
inní útsendinguna. í þessu sam-
bandi koma upp í hugann ummæli
ungrar konu er hún viðhafði í síma-
tíma rásar 2 á dögunum þess efnis
að kvikmyndimar I sjónvarpinu
væru gjaman of seint á dagskrá.
„En menn geta þá sofið út á laugar-
dags- og sunnudagsmorgnum..."
skýtur Páll rásarstarfsmaður inní.
„Bömin vakna, Páll, jafn snemma
á helgum og virka daga." Ég held
að þeir sjónvarpsmenn ættu að hafa
í huga ummæli ungu konunnar sem
vafalaust talar fyrir munn mikils
fjölda bamafólks. Hvemig væri að
flýta kvikmyndasýningum í sjón-
varpinu þannig að bamafólk nyti
myndanna? Væri ekki upplagt að
sýna ýmsa tónlistarþætti um mið-
næturskeið?
Cyrano
Þrátt fyrir að ég tali hér um
vökur baraafólks þá er ekki þar
með sagt að ég hafí sofnað yfír
Cyrano de Bergerac á mánudags-
kveldið, þó get ég ekki neitað því
að Óli lokbrá sveimaði um sjón-
varpsskálann allt fram að þriðja
þætti en þá tók Eyjólfur að hressast
enda fannst mér sýningin vaxa er
frammí sótti. Upphafsatriðið þá
Cyrano er kynntur fór hins vegar
í mínar fínustu taugar, leikaramir
tilgerðarlegir, sviðsmyndin grá-
móskuleg og Cyrano uppfullur af
orðavaðli slíkum er snertir máski
lítt nútímafólk, en höfundurinn
Edmond Rostand (1868—1918) var
frakkneskur, nánar til tekið frá
Marseille og hefír orðstír hans
varðveist fyrst og fremst vegna
hins rómantíska skáldlega texta —
suðræna flúrs — sem þýðandinn
Óskar Ingimarsson kom prýðilega
til skila. Þar var vel að verki staðið
en á slíkur texti erindi til okkar
nútímamanna, erum við ekki slíkir
fangar hraðrar atburðarásar og
kaldhamraðs texta slíks er gjaman
birtist á síðum dagblaða — að við
þreytumst á orðagnótt og skáldlegu
flúri? Ég segi fyrir mig að ég hafði
mikla ánægju af að bera saman
hinn erlenda texta og íslensku þýð-
inguna er Iíða tók á sýninguna,
fyrst og fremst vegna þess að þá
mögnuðust atburðir þeir er textan-
um fylgdu, leikurinn varð laus við
alla tilgerð og sviðsmyndin fyllti
hugann líkt og málverk. Hér væri
kannski ástæða til að rekja efni
leiksins en ég sleppi því vegna
plássleysis og svo vegna þeirrar
staðreyndar að sjaldan eða aldrei
hefír efni sjónvarpsmyndar verið
rakið jafn ítarlega í íslenskum
dagblöðum og efnisþráður Cyrano
de Bergerac.
Jacobi
Ekki má gleyma þeim leikara er
fór fyrir Konunglega Shakespeare-
leikflokknum að þessu sinni, sjálf-
um Derek Jacobi er lék Cyrano hinn
nefstóra. Leikur Jacobi var óað-
finnanlegur hvort sem hann upp-
tendraðist af tærustu ástarsælu eða
sjálfsfyrirlitningu utangarðsmanns-
ins. Jacobi flutti hinn safaríka texta
með hljómmikilli röddu og lifði
hveija hugsun og ekki var síður
ánægjulegt að sjá hversu þjálfaður
þessi leikari er f skilmingum — þar
skín hin langa shakespírska hefð
af hverri sveiflu.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
I dagsins
önn
Heimili og skóli
Þátturinn „í
-| Q 30 dagsins önn“ er
ö —“ á dagskrá rásar
1 í dag kl. 13.30 og fjallar
Bogi Amar Finnbogason
að þessu sinni um heimili
og skóla..
Að sögn Boga verður í
þættinum fjallað um að-
stæður við heilsugæslu
bama í grunnskólum
landsins og hvort ástæða
sé til þess að gera þar
einhverjar meginbreyting-
ar og í því sambandi verður
rætt við Hrafn Friðriksson
skólayfirlækni.
„Lítillega verður rætt
um þá hugmynd að stofna
til nýrrar námsgreinar í
grunnskólanum sem héti
t.d. heilbrigðisfræði og þar
yrði sameinað í einni grein
hugsanlega umfjöllun um
Hrafn Friðriksson
slysavamir meðal bama,
en slys hjá bömum eru
algengari á íslenskum
bömum en hjá bömum
annarra Evrópuþjóða sam-
kvæmt nýútkominni
skýrslu landlæknis. Þá yrði
hugsanlegt að fjalla um í
Bogi Amar Finnbogason
þessari nýju námsgrein um
kynfræðslu, eiturlyfjavam-
ir og undirstöðuatriði í
uppeldis- og sálarfræði
m.a. með tilliti til þess hve
algengt er orðið að börn
eru sjálf farin að eignast
böm,“ sagði Bogi.
Dallas
Stundin okkar
■i Nú fara þætt-
40 imir um heimil-
isfólkið á South-
fork, sem stendur rétt fyrir
utan Dallas í Texas, að líða
undir lok í bili og er þáttur-
inn í kvöld sá næst síðasti
í þessari syrpu.
Þátturinn í kvöld nefnist
„Er öllu lokið?“ og hefst
kl. 20.40. Þá er bara um
að gera að bíða og sjá hvað
J.R. gerir í kvöld.
■ Stundin okkar
Ó0 frá sl. sunnu-
— degi verður end-
ursýnd kl. 19.00 í kvöld.
Umsjónarmaður er Jó-
hanna Thorsteinson.
í þættinum verða sýnd
þijú stutt atriði úr Skottu-
leik, bamasýningu Revíu-
leikhússins, sem frumsýnd
var í Breiðholtsskóla í vik-
unni. Höfundur og leik-
stjóri er Brynja Benedikts-
dóttir. Lesin verður sagan
„Strákurinn með pottlokið"
eftir Heiðdísi Norðfjörð
með teikningum eftir Sig-
rúnu Eldjám. Ljósálfa-
flokkurinn Baldintátur úr
Kópavogi kemur í heim-
sókn og bregður á leik.
Rætt verður við blaðsölu-
strák í Reykjavík og ekkiu
má gleyma Lobba, sem
skreppur niður að Reykja-
víkurtjöm til að gefa önd-
unum.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
22. janúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.16 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Stelpurnar gera
uppreisn” ettir Fröydis
Guldahl. Sonja B. Jónsdóttir
lýkur lestri þýöingar sinnar.
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áöur
sem Siguröur G. Tómasson
flytur.
10.10 Veöurfregnir.
10.25 Lesiö úr forystugreinum
dagblaöanna.
10.40 Land og saga. Ragnar
Ágústsson sér um þáttinn.
11.10 Morguntónleikar.
a. „I got rhythm", tilbrigöi
eftir George Gershwin.
David Parkhouse og Hátíö-
arhljómsveitin í Lundunum
leika, Bernard Herrmann
stjórnar.
b. Rondo úr Píanókpnsert
nr. 5 i Es-dúr op. 73 eftir
Ludwig van Beethoven Fri-
edrich Gulda leikur meö Fíl-
harmoníusveit Vinarborgar,
c. Marsúrki í a-moll op. 17
nr. 4 eftir Frédéric Chopin.
Sinfóníuhljómsveit Lundúna
leikur, Leopold Stokowski
stjórnar.
d. Allegro-þáttur úr Sinfóníu
nr. 8 í h-moll eftir Franz
Schubert. Fílharmoniusveit-
in í Vínarborg leikur, Karl
Múnchinger stjórnar.
e. Elly Ameling syngur „An
die Musik" og „Frúhlings-
laube" eftir Franz Schubert.
Jörg Demus leikur með á
píanó.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Heimili
og skóli. Umsjón: Bogi
Arnar Finnbogason.
14.00 Miödegissagan „Ævin-
týramaður" - af Jóni Ólafs-
syni ritstjóra. Gils Guö-
mundsson tók saman og
les (5).
14.30 Óperettutónlist.
a. Fritz Wunderlich syngur
tvö lög úr óperettunni „Rós-
in frá Stambúl" eftir Leo
Fall meö Sinfóníuhljómsveit
Graunkes í Múnchen; Carl
Michalski stjórnar.
b. Fritz Ollendorf, Hilde
Gúden, Rudolf Schock o.fl.
flytja atriði úr „Betlistúdent-
inum" eftir Carl Millöcker
með kór og hljómsveit undir
stjórn Roberts Stolz.
c. Régine Crespin syngur
þrjú lög úr óperettunni „Þrir
valsar" eftir Oscar Strauss
meö Óperuhljómsveitinni í
Vín; Alain Lombard stjórnar.
15.15 Hvaö finnst ykkur?
Umsjón: Örn Ingi. (Frá Akur-
eyri).
15.45 Tilkynningar.Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Síödegistónleikar
a. Hornkonsert nr. 2 í Es-
dúr eftir Richard Strauss.
Barry Tuckwell og Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna leika;
Istvan Kertesz stjórnar.
b. Fjögur sönglög eftir
Gustav Mahler. Jessye Nor-
man og John Shirley-Quirk
syngja meö Concertge-
bouw-hljómsveitinni í Amst-
erdam; Bernard Haitink
stjórnar.
17.00 Barnaútvarpið. Meöal
efnis: „Stína" eftir Babbis
Friis Baastad í þýöingu Sig-
urðar Gunnarssonar. Helga
Einarsdóttir les (6). Stjórn-
andi: Kristín Helgadóttir.
17.40 Úr atvinnulffinu - Sjáv-
arútvegur og fiskvinnsla.
Umsjón: Gísli Jón Kristjáns-
son.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Málræktarþáttur. Helgi
J. Halldórsson flytur þáttinn.
19.50 Eftir fréttir. Bernharöur
Guðmundsson flytur þátt-
inn.
20.00 Hálftíminn. Elín Kristins-
dóttir kynnir popptónlist.
20.30 íþróttir. Umsjón: Samú-
el Örn Erlingsson.
20.50 Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
21.30 Skólasaga - Agi og
refsingar í skólum á 16., 17.
og 18. öld. Guölaugur R.
Guömundsson tók saman.
Lesari meö honum Kristján
Sigfússon
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Bókaþáttur. Umsjón:
Njöröur P. Njarðvík.
SJÓNVARP
19.00 Stundinokkar
Endursýndur þáttur frá 19.
janúar.
19.30 Aftanstund
Barnaþáttur meö innlendu
og erlendu efni. Söguhorniö
— Fitukeppurinn, saga úr
bókinni Gestir í gamla trénu.
Þorsteinn frá Hamri þýddi.
Sögumaöur Hallgrimur Ind-
riöason. Myndir: Valgeröur
Jónasdóttir.
Sögur snáksins meö fjaðra-
haminn, spænskur teikni-
myndaflokkur, og Feröir
Gúllivers, þýskur brúöu-
myndaflokkur.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
MIÐVIKUDAGUR
22.janúar
20.00 Fréttirog veður
20.30 Auglýsingarogdagskrá
20.40 Dallas
Eröllu lokiö?
Bandarískur framhalds-
myndaflokkur. Næstsiöasti
þáttur syrpunnar. Þýöandi
Björn Baldursson.
21.35 Áliöandi stundu
Þáttur meö blönduðu efni.
Bein útsending úr sjón-
varpssal eöa þaöan sem
atburöir líöandi stundar eru
aö gerast ásamt ýmsum
innskotsatriðum.
Umsjónarmenn Ómar
Ragnarsson, Agnes Braga-
dóttir og Sigmundur Ernir
Rúnarsson. Stjórn útsend-
ingar og upptöku: Tage
Ammendrup og Óli örn
Andreassen.
22.25 Höfum við gengiö til
góös?
Siðari hluti.
(Global Report II)
Heimildamynd frá breska
sjónvarpinu, BBC. ( mynd-
inni er litið um öxl og kannaö
hvaö áunnist hefur frá þvi
að síöari heimsstyrjöldinni
lauk í velferöarmálum jarö-
arbúa. Þýöandi Jón O.
Edwald.
23.30 Fréttirídagskrárlok.
23.00 Á óperusviðinu. Leifur
Þórarinsson kynnir óperu-
tónlist.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
10.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
12.00 Hlé
14.00 Eftirtvö
Stjórnndi: Jón Axei Ólafs-
son.
15.00 Núerlag
Gömul og ný úrvalslög aö
hætti hússins. Stjórnandi:
GunnarSalvarsson.
16.00 Dægurflugur
Leopold Sveinsson kynnir
nýjustu dægurlögin.
17.00 Þræöir
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar í þrjár
mínútur kl. 11.00, 15.00,
16.00og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
Svæðisútvarp virka
daga vikunnarfrá mánu-
degitilföstudags.
RETKJAVfK
17.03—18.00 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKURJEYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.