Morgunblaðið - 22.01.1986, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
19
ísal-sveitin undir forystu Ragnars Halldórssonar hafði ekki tapað leik þegar hún mætti „dönsku"
sveitinni. Þar hittu þeir félagar ofjarla sina og töpuðu leiknum illa meðan sveit Schou tyllti sér
örugglega í efsta sætið þar sem þeim var ekki haggað. Talið frá vinstri: Ragnar Halldórsson, Steen
Schou, Hannes Jónsson og Sævar Þorbjörnsson snýr baki í myndasmiðinn.
Bridshátíð lokið:
Dansk-íslenzka sveit-
in vann yfirburðasigur
Brids
Guðmundur Páll Arnarson
SVEIT Steen Schou frá Dan-
mörku sigraði með yfirburðum
í sveitakeppni bridshátíðar,
Fiugleiðamótinu, lauk á mánu-
dagskvöldið. í sjö umferðum,
Monrad, gerði sveitin eitt jafn-
tefli, en vann alla aðra leiki sína
stórt og hlaut samtals 151 stig
af 175 mögulegum. Það er
tæplega 87% skor. 1 sveit Scho-
us spila Blakset-bræðumir
Lars og Knut, og Sævar Þor-
björasson og Schou. Þeir Sævar
og Schou hafa ekki spilað
saman fyrr en nú á bridshátíð.
Fyrsta sætið var nokkuð tryggt
þegar ein umferð var eftir af
mótinu, en baráttan um annað
sætið var hins vegar mjög hörð
og komu þar margar sveitir til
greina. Hlutskörpust varð þó sveit
Jóns Hjaltasonar, náði sér í 131
stig samtals og það þrátt fyrir
að tapa fyrsta leiknum 5—25 á
móti sveit heimsmeistarans, Erics
Rodwell.
4. og 2. umferð
í fyrstu tveimur umferðunum
er það meira og minna tilviljun
háð hvaða sveitir lenda saman.
Athyglisverðasti leikurinn var í
annarri umferð, milli sveita Scho-
us og Rodwells. Danimir og
Sævar unnu þann leik af öryggi,
20—10. í þriðju umferð fór Mon-
rad-kerfíð að virka og efstu sveit-
imar að takast á. Aðeins ein
sveit, sveit Siguijóns Tryggvason-
ar, var með fullt hús stiga eftir
tvær umferðir. En í þriðju umferð
urðu helstu úrslit þessi:
Zia — Schou 10—20
ísal — Samvinnuferðir 16—14
Delta — Massimilla 15—15
Siguij. Tryggvas. — Úrval 9—21
4. umferð
Sveit Steens Schou leggur
hvert stórveldið af öðru og hefur
tekið stefnuna á fyrsta sætið í
mótinu. En í fjórðu umferð mættu
þeir einu sveitinni sem stóð í þeim,
sveit Úrvals, sem hefur unnið
þessa keppni einu sinni og varð í
öðru sæti í fyrra. Helstu úrslit:
ÚrvaL — Schou 15—15
Rodwell — Delta 8—22
ísal — Siguij. Tryggvas. 16—14
Samv.f. — Steinb. Ríkh. 19—11
Massimilla — Joensen 22—8
Sigur Delta-sveitarinnar á
Rodwell teljast merkustu tíðindi
þessarar umferðar. Þrátt fyrir
jafntefli Úrvals og Schous halda
sveitimar forystu sinni eftir fjórar
umferðir. Staðan:
Úrval 84
Schou 80
Samvinnuferðir 79
ísal 78
Delta 78
Massimilla 74
Siguijón Tiyggvason 73
Jón Hjaltason 72
ZiaMahmood 72
Þrátt fyrir hið slæma tap Jóns
Hjaltasonar í fyrstu umferð er
sveitin orðin meðal efstu sveita
eftir fjórar umferðir. Banda-
ríska/kanadíska sveitin, sem hafði
aðeins hlotið 65 stig þegar þama
var komið sögu og blandaði sér
aldrei í toppbaráttuna.
5. umferð
í fímmtu umferð gerðist það
helst að Schou rótburstaði sveit
ísals, 25—0, og tók þar með for-
ystuna í mótinu.
Ónnur úrslit:
Zia — Steinberg Ríkharðss. 15—15
Úrval — Samvinnuferðir 11—19
Delta - Siguijón Tryggvas. 14—16
Massimilla —JónHjaltas. 15—15
6. umferð
Schou styrkti enn stöðu sína
með því að vinna- Samvinnuferðir
23-7 í sjöttu umferð. Meðal ann-
arra úrslita vom þessi:
Rodwell — Massimilla 21-9
Siguij- Tryggvas.— Zia 17-13
Úrval — Delta 10-20
Jón Hjaltas. — Sjóvá (Ak.) 25—5
Staðan fyrir síðustu umferð var
þessi: .
Schou 128
Jón Hjaltason 112
Delta 112
Rodwell 111
Úrval 106
Siguijón Tryggvas. 106
Samvinnuferðir 105
Ragnar Magnússon 104
Zia 100
Massimilla 98
7. umferð
Það þurfti mikið að gerast til
að sveit Schous missti niður það
forskot sitt í síðustu umferðinni.
Og þó. Sveitin átti að keppa við
liðsmenn Delta, og ef Delta-menn
ynnu þann leik 23—7 yrðu sveit-
imar jafnar með 135 stig. Og þá
væri jafnvel hugsanlegt að sveitir
Jóns Hjaltasonar og Rodwells
skytust upp fyrir þær. Fræðilega
gátu því fjórar sveitir unnið fyrir
síðustu umferð.
Leikur Schous og Delta var
sýndur á tjaldi í sýningarsal Hót-
els Loftleiða. Strax í fyrstu spilun-
um komust Danimir 20 stigum
yfír og áhorfendur misstu áhug-
ann. Úrslitin voru ráðin. Leiknum
lauk svo með 23—7 sigri Schous.
Önnur úrslit:
Jón Hjaltason —
Siguijón Tryggvason 19—11
Rowell —
Samvinnuferðir 11—19
Úrval —
Ragnar Magnússon 17— 13
Masimilja —
Elín Ólafsdóttir 19— 11
Jón Hjaltason tryggði sé* ann-
að sætið með sigri sínum á Sigur-
jóni Tryggyasyni og Samvinnu-
ferðir þriðja sætið með því að
vinna Rodwell. Samvinnuferðir og
Zia enduðu að vísu með jafn mörg
stig, en þar sem sveit Samvinnu-
ferða var stigahærri fyrir síðustu
umferð taldist hún í þriðja sæti.
Úrslitin
Schou 151
JónHjaltason 131
Samvinnuferðir 124
Zia 124
Rodwell 122
Úrval 122
Delta 119
Siguijón Tiyggvason 117
Ragnar Magnússon 117
Það er oft mikil þröng i kring um sveitiraar sem beijast um
efstu sætin. Það var leikur ferðaskrifstofuveldanna Úrvals og
Samvinnuferða-Landsýn sem fjöldinn fylgdist með en þessar
sveitir hafa verið í toppbaráttunni í áraraðir.
Morgunblaðið/Amór
Jón Baldursson ræðir við Lars Blakset en Steen Schou og Knut
Blakset fylgjast með. Lars hefir komið nokkrum sinnum á brids-
hátíð og fer ekki öðru visi heim en að taka með sér eitthvað af
dölunum sem í verðlaun eru.
STEYPIBAÐ
Þú stillir vatnshitann með
einu handtaki á hitastýrða
baðblöndunartækinu frá
Danfoss, og nýtursíðan
steypibaðsins vel og lengi.
= HEÐINN =
SEUAVEGI 2,SlMI 24260
Niður
með hita-
kostnaðinn
OFNHITASTILIAR
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-ÞUÓNUSTA
IZUMI
STÝRILIÐAR
Allar stærðir fyrir allar
spennur. Festingar fyrir
DIN skinnur. 1
Gott verð. I
= HÉÐINN =
VÉLAVÉRZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-WÓNUSTA