Morgunblaðið - 22.01.1986, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
21
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1986:
Færeyingurinn Rói Paturs-
son lilaut þau fyrir ljóðabók
Morgunblaðið/RAX
Niðurstaða dómnefndar var kynnt á fundi með fréttamönnum í
gær. Formaður úthlutunarnefndar, Finninn Irmeli Niemi, hellir
kaffi í bolla Jóhanns Hjáimarssonar, en hann og Sveinn Einarsson
voru fulltrúar íslands í dómnefndinni. Lengst til vinstri á mynd-
inni er færeyski fuUtrúinn, Malan Simonsen.
FÆREYSKA skáldið Rói Pat-
ursson hlýtur Bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs 1986
fyrir ljóðabókina Likasum.
Dómnefnd kynnti niðurstöðu
sína á fundi með fréttamönnum
i Reykjavík í gær. í umsögn
dómnefndar um bókina Likas-
um segir: „Með ljóðrænum
þrótti og bersýni leggur Rói
áherslu á samhengi færeysks
raunveruleika og áleitinna
spurninga um tilvist okkar í
samtímanum." Verðlaunin
verða afhent í Ráðhúsi Kaup-
mannahafnar af forseta Norð-
urlandaráðs 4. mars næstkom-
andi, en þá stendur yfir 34.
þing Norðurlandaráðs.
Rói Patursson er 38 ára gam-
all. Hann nam heimspeki í Dan-
mörku og hefur magistergráðu í
þeim fræðum. Likasum er þriðja
ljóðabók hans; sú fyrsta var nafn-
laus og kom út árið 1969. Fyrir
hana hlaut Rói færeysk bók-
menntaverðlaun, M.A. Jakobsen-
verðlaunin. Annað ljóðasafn hans,
Á alfaravegi, kom út 1976. Fær-
eyski fulltrúinn í dómnefnd Bók-
menntaverðlauna Norðurlanda-
ráðs, Malan Simonsen, segir í
umsögn sinni, að í því verki yrki
Rói um bæjarlífíð, ástarþrá, til-
gangsleysi og eyðileggingarhvatir
í nútíma samfélagi, auk þess sem
hann lofar móðurmálið.
Malen Simonsen segir að bókin
Likasum sé nýtískulegri en hinar
eldri. Að efni spanna ljóðin vítt
svið. Rói fjallar um útleggingar á
Marx og Freud, vígbúnaðarkapp-
hlaupið og baráttuna fyrir friði,
veltir fyrir sér eðli ljóðsins, og
merkingu orða og stafrófs. „Burð-
arljóð verksins," segir Simonsen,
„Sólareygað, segir frá sálrænu
ferðalagi í tíma og rúmi. Ferðast
er yfir sundurlaust einskismanns-
land, þar sem fyrst er leitast við
Færeyska skáldið Rói Paturs-
son. Hann hlýtur bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs
1986 fyrir ljóðabók sína, Likas-
um.
að endurbyggja sjálfíð stig af
stigi, þar til það samlagast „þú-
inu“, sem kom fram í byrjun ljóðs-
ins, og verður á endanum heil-
steypt manneskja. Ferðalagið er
sett saman úr myndröðum, sem
sækja efnivið sinn til náttúrunnar
og nútíma tilveru. Hver myndröð
er byggð á ákveðnu meginstefí,
sem er útfærð og dýpkuð með
öðrum myndum, og að lokum
mætist hinn margbrotni veruleiki
heimsins í kjama tilverunnar,
auga sólarinnar."
Kom mér á óvart
„Það kom mér mjög á óvart
að ég skyldi verða fyrir valinu og
ég er að sama skapi þakklátur,"
sagði Rói Patursson í símaviðtali
við Morgunblaðið í gær.
— Hver eru meginyrkisefni
þín?,
„Eg yrki mikið um tungumál
og ljóðið sjálft, náttúruna og þjóð-
félagið sem heild, stöðu mannsins
á ótryggum tímum og þær miklu
breytingar sem hafa orðið á lífs-
háttum okkar síðustu áratugi."
— Þú hefur heimspekilegan
bakgrunn. Er það skýringin á
áhuga þínum á tungumálinu?
„Nei, það er frekar á hinn
veginn; ég fór að ástunda heim-
speki vegna áhuga míns á tungu-
málinu sem slíku."
— Nú yrkir þú á máli sem fáir
skilja. Veldur það þér áhyggjum?
„Alls ekki. Öll tungumál eru í
sjálfu sér fullkomin og það er
hægt að segja nánast allt á fær-
eysku eins og öðrum málum."
— Hvað ertu að fást við þessa
dagana?
— Ég held áfram að yrkja, auk
þess sem ég er að vinna að mínu
fyrsta leikrit, sem fært verður upp
í Reykjavík í sumar á norrænni
leiklistarhátíð. Það fjallar um
mannlíf í Færeyjum og er fyrst
og fremst skrifað til að gefa út-
lendingum innsýn í færeyskt þjóð-
félag nú til dags," sagði Rói
Patursson.
Noregur:
„A-Ha“ vinnur stóra
sigra í poppheiminum
I efsta sæti á
Þeir félagar í „A-Ha“ voru tilnefndir til tvennra „Spellmanns“-
verðlauna sem norska ríkisútvarpið úthlutar árlega og féllu hvor
tveggja þeim i skaut. Hér eru þeir með gripina.
vinsældalistan-
um á Englandi
Osló, 21. janúar. Frá Jan Erik Lauré,
fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSKA popphljómsveitin
„A-Ha“ hefur unnið nýja sigra í
poppheiminum. Félagamir þrír,
þeir Morten Harket, Pál Waak-
taar og Magne Furuholmen era
nú komnir í efsta sæti á enska
vinsældalistanum með smáskíf-
una „The Sun Always Shines on
TV“ og einnig er vitað að breið-
skífan „Hunting High and Low“
er á leið á toppinn.
„A-Ha“ er komin í hóp helstu
popphljómsveita í heimi og hefur
frami norsku strákanna verið ævin-
týri líkastur. Fyrir aðeins ári mældu
þeir götumar í London í ieit sinni
að einhveijum plötuútgefanda, sem
vildi miskunna sig yfír þá.
Á síðastliðnu hausti var smáskíf-
an „Take on Me“ í efsta sæti banda-
ríska vinsældalistans og var það
ekki síst að þakka myndbandsút-
færslunni sem unnið hefur til
margra verðlauna. „A-Ha“ hefur
einnig verið tilnefnd til nokkurra
Grammy-verðlauna í Bandaríkjun-
um og „Take on Me“ hefur að auki
verið í efsta sæti í Svíþjóð, Noregi,
Austurríki, Belgíu, Vestur-Þýska-
landi, Frakklandi, Ítalíu, Sviss,
Japan og Ástralíu. Á Énglandi
komst lagið aðeins í annað sæti en
nú hefur verið bætt úr því. Um
helgina voru þeir þremenningamir
í Osló og tóku þar á móti tvennum
svokölluðum „Spellmanns-verð-
launum" en em nú aftur komnir til
London.
Til þessa hefur hljómsveitin selt
fímm milljónir smáskífa og tvær
milljónir breiðskífa og em heildar-
tekjumar um 165 milljónir fsl. kr.
Að öllu frátöldu koma í hlut strák-
anna um 55 millj. króna.
„A-Ha“ er sest að í Englandi þar
sem skattbyrðin er léttari en í
Noregi og hafa þeir á sínum snær-
um marga fjármálasérfræðinga
sem kunna að ávaxta auðinn með
skjótum hætti.
Gengi gjaldmiðla
London, 21. janúar. AP.
BANDARÍKJADOLLAR lækk-
aði í dag gagnvart öllum helztu
gjaldmiðlum heims nema sterl-
ingspundinu og kanadíska doli-
aranum. Ástæðan var orðróm-
ur um óhagstæðari hagtölur í
Bandaríkjunum fyrir síðasta
ársfjórðung nýliðins árs en áð-
ur hafði verið gert ráð fyrir.
Hagtölur þessar verða birtar á
morgun, miðvikudag.
Dollarinn hækkaði hins vegar
gagnvart pundinu, sem nú stend-
ur ver en áður sökum lækkandi
olíuverðs, en Bretland er fímmta
mestu olíuframleiðsluland í heimi.
Síðdegis í dag kostaði pundið
1,4120 dollara (1,4168), en ann-
ars var gengi dollarans þannig,
að fyrir hann fengust 2,4540
vestur-þýzk mörk (2,4700),
2,07925 svissneskir frankar
(2,0957), 7,5250 franskir frankar
(7,5725), 2,7605 hollenzk gyllini
(2,7840), 1.675,00 ítalskar lírur
(1.683,25), 1,40495 kanadískir
dollarar (1,40065) og 202,25 jen
(202,95).
Höfundur: Claire Luckham.
Þýðendur: Páll Baldvin Baldvinsson og Magnús Þór
Jónsson.
Glimuþjálfun: Clifford Twemlow og Brian Vete.
Dansar: Sóley Jóhannsdóttir.
Búningar: Dóra Einarsdóttir.
Föröun og hár: Ragna Fossberg.
Tónlistarútsetningar: Jakob Magnússon.
Leikendur:
Edda Heiðrún Bachman — Guöjón Pedersen — Edda
Björgvinsdóttir — Leifur Hauksson — Kristín Kristjáns-
dóttir — Andri Örn Clausen.
Leikstjórn og yfirumsjón: Páll Baldvin Baldvinsson.
Frumsýning föstudag 24. jan. kl. 21. Uppselt.
2. sýning sunnudag 26. jan. kl. 20.30. Uppselt.
3. sýning fimmtudag 30. jan. kl. 20.30.
4. sýning föstudag 31. jan. kl. 20.30.
Miöasala í Gamla Bíói kl. 15—19. Sími 11475.
Minnum á símsöluna med Visa.
H/TT Ldkhúsið