Morgunblaðið - 22.01.1986, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
„Þurfumað taka ábyrga
afstöðu til staðreyndanna“
— segir talsmaður Samtakanna ’78 um niðurstöður ónæmistæringarprófa
á íslenskum hommum
„ÞESSAR niðurstöður sýna al-
vöru málsins og að ónæmistær-
ing er fyrir hendi meðal okkar
íslenskra homma. Við þurfum
þvi að taka ábyrga afstöðu til
þessarar staðreyndar," sagði
Þorvaldur Kristinsson, talsmað-
ur stjórnar Samtakanna ’78, sem
er félagsskapur homma og lesbía
á íslandi, er blm. leitaði við-
bragða hans við frétt blaðsins sl.
laugardag af ónæmistæringar-
prófum, sem íslenskir hommar
hafa gengist undir. Af 51
homma, sem farið hefur í slíkt
próf, reyndust 27,5% vera með
mótefni gegn ónæmistæringu.
„Það er skylda okkar að upplýsa
sem flesta úr okkar röðum um eðli
ónæmistæringar og ég vil því hvetja
alla, sem eru í áhættuhópi, til að
nýta sér þá þjónustu sem boðið er
upp á, bæði af íslenskum heilbrigð-
isyfirvöldum og okkur í samtökun-
um. Það er vitaskuld afar brýnt að
menn komist að hinu sanna í þessu
máli til að lifa ekki með óvissu og
ótta,“ sagði Þorvaldur.
Hann lagði áherslu á að þótt
komið hefði í ljós að 14 íslenskir
hommar hefðu reynst mótefnajá-
kvæðir, þá væru þeir ekki þar með
sýktir af ónæmistæringu eða
gengju með veiruna í sér. „Það eru
liðnir um þrír mánuðir síðan farið
var að leita skipulega að smituðum
einstaklingum hér á landi," sagði
Þorvaldur Kristinsson. „Læknar
segja mér og okkur í Samtökunum
’78, að reynslan erlendis frá sýni
glögglega, að fyrst komi þeir, sem
hafa einkenni og því sé ekki óeðli-
legt, að hlutfall þeirra, sem hafa
jákvæða svörun, sé svona hátt í
upphafí. Eftir því sem lengri tími
líður koma fleiri einkennalausir og
þá snarlækkar heildarhlutfallið. Ég
hef því ekki trú á að nærri 30%
íslenskra homma séu með mótefnið,
eins og má skilja af Morgunblaðs-
fréttinni sé hún ekki iesin ræki-
lega.“
Hann sagði að af hálfu samtak-
anna, og í samráði við íslenska
lækna, væri nú verið áð undirbúa
útgáfu á upplýsingabæklingi um
sjúkdóminn og að með útgáfu hans
gerðu samtökin sér vonir um að ná
til homma, sem enn eru „í felum",
eins og það er kallað. „Við munum
einnig á næstunni stofna stuðnings-
hóp við homma, sem gætu sýkst
af ónæmistæringu hér. Slíkir hópar
eru til í nágrannalöndunum og hafa
skilað góðum árangri þar - ekki- síst
við að létta undir með sýktum ein-
staklingum, sem að sjálfsögðu eru
undir gífurlegu andlegu álagi.“
Þorvaldur sagði að á samtökun-
um hvfldi nú rík skylda um að fylgj-
ast rækilega með fregnum af sjúk-
dómnum og þróun hans, upplýsa
félagsmenn sína um eðli hans og
vamir gegn honum, hollustuhætti,
ábyrgt kynlíf samkynhneigðra og
fleira. „Og síðast en ekki síst,“ sagði
hann, „þá verðum við að beijast
af öllum mætti gegn ónauðsynleg-
um ótta, forðast móðursýkisleg
viðbrögð við þessum ógnvaldi."
Félag íslenskra iðnrekenda og IBM:
Sýning á framleiðslu
danskra undirverktaka
„LIN missir tilgang sinn
ef tillögur menntamálaráð-
herra ná fram að ganga“
FÉLAG íslenskra iðnrekenda og
IBM á íslandi halda sýningu í
húsakynnum IBM í Skaftahlíð 24,
dagana 22.-24. janúar nk. á
hlutum sem dönsk iðnfyrirtæki
framleiða fyrir ýmsar verksmiðj-
ur IBM.
Sýningin, sem er öllum opin, er
haldin í kjöifar námsstefnu sömu
aðila þar sem fjallað var um mögu-
leika fslenskra iðnfyrirtækja til að
gerast undirverktakar flölþjóðafyr-
irtækisins IBM.
Meðal fyrirlesara á námsstefn-
unni voru þrír Danir sem hafa
reynslu í þessari grein iðnaðarins.
Alls framleiða 99 dönsk fyrirtæki
ýmsa hluti, tæki og stykki fyrir
IBM. Á undirverktakasýningunni
getur að líta sýnishom af fram-
leiðslu frá 20 dönskum undirverk-
takafyrirtækjum IBM. Sýningin er
öllum opin sem áhuga hafa á þessu
máli, dagana 22.-24. janúar kl.
09.00 til 17.00.
(Úr fréttatilkynningu.)
— segir Björk Vilhelmsdóttir, formaður nýrrar stjórnar SHÍ
NÝ STJÓRN Stúdentaráðs Háskóla íslands var mynduð síðastliðinn
sunnudag með þremur fulltrúum Félags vinstri manna og þremur
fulltrúum Félags umbótasinnaðra stúdenta. Björk Vilhelmsdóttir var
kosin formaður stjórnar SHÍ og Hrólfur Ölvisson varaformaður.
Þórir Haraldsson var kosinn gjaldkeri, Gylfi Ástbjartsson fuUtrúi
hagsmunanefndar, Birna Gunnlaugsdóttir fulltrúi menntamálanefnd-
ar og Ingvar Á. Þórisson fuUtrúi utanríkisnefndar. Þá var Guðmund-
ur Auðunsson, í Félagi vinstri manna, tilnefndur af Stúdentaráði í
stjórn Lánasjóðs islenskra námsmanna og Hrólfur Ölvisson sem
varamaður hans. Sigurður Pétursson var tilnefndur sem aðalmaður
i stjórn Félagsstofnunar stúdenta og Ólína Þorvarðardóttir varamað-
ur hans.
Mynduð hefur verið 12 manna
samstarfsnefnd ijögurra hreyfínga
og eiga sæti í henni þrír fuiltrúar
frá hverri þeirra: Bandalagi ís-
lenskra sérskólanema, Sambandi
íslenskra námsmanna erlendis,
Iðnnemasambandi íslands og Stúd-
entaráði HÍ. Björk Vilhelmsdóttir,
formaður stjómar SHÍ, sagði í
samtali við blaðamann að þessi
nefnd hefði verið mynduð til að allar
námsmannahreyfingamar gætu
sameiginlega unnið að hagsmuna-
málum stúdenta, en ekki sitt í hvoru
lagi eins og verið hefur til þessa.
T.d. hefði Iðnnemasambandið aldrei
átt fulltrúa í stjóm LÍN þó svo að
á þeirra vegum séu fjölmargir lán-
takendur.
„Menntamálaráðherra tók reglu-
gerðarbreytingu sína um frystingu
námslána frá 3. janúar sl. úr gildi
og er ekkert nema gott um það að
segja ef hann hefði ekki komið með
aðrar niðurskurðarhugmyndir í
kjölfarið sem síst eru betri. Við
teljum að ef hugmyndir hans nú
ná fram að ganga, þá hefur LÍN
misst tilgang sinn. Okkur sýnist að
ráðherra sé með þessum fyrir-
huguðu breytingum sínum að stíga
fyrsta skrefíð í þá átt að leggja
sjóðinn niður og taka í staðinn upp
einhvers konar styrkjakerfí fyrir
ákveðna forréttindahópa," sagði
Björk.
Hún sagði að stjóm SHÍ hefði
nú þegar tilnefnt mann, Guðmund
Auðunsson, í stjóm LÍN í stað
Vökumannsins Olafs Amarssonar
og það m.a.s. með fullu samþykki
Ólafs sjálfs, en menntamálaráð-
herra neitaði í gærmorgun að til-
nefna hann í stjómina. „Þetta eru
auðvitað furðuleg vinnubrögð
menntamálaráðherra og augljóst er
að Sverrir Hermannsson vill ekki
tilnefna vinstri mann í stjóm LÍN
nú til þess að halda meirihluta ríkis-
valdsins í henni vegna komandi
niðurskurðartillagna, sem hann er
nú að sjóða saman. Ráðherra veit
að ef við fengjum okkar mann inn
í stjóm LÍN, myndi sá maður aldrei
fallast á þessar tillögur ráðherra.
Við hyggjumst beita hörðu ef ráð-
herra snýst ekki hugur, en ef svo
vildi til að þessar breytingartillögur
hans færu fyrir þing, gerum við
fastlega ráð fyrir að námsmenn
njóti stuðnings framsóknarmanna."
Samstarfsnefnd námsmanna
hyggst beita sér mjög á næstu
dögum, að sögn Bjarkar, og mun
m.a. senda þingmönnum bréf, þar
sem sjónarmið námsmanna verða
sett fram. Leitað verður eftir stuðn-
ingi launþegasamtaka, þar sem
launafólki og námsmönnum hefur
verið att mjög saman að undan-
förnu og einnig hyggst nefndin
reyna að breyta almenningsáliti
því sem skapast hefur í garð náms-
manna. Þá mun nefndin senda
dreifírit til allra námsmanna, þar
sem lánamálin verða skýrð. Haldnir
verða fundir í öllum skólum landsins
sem eiga aðild að BÍSN, SÍNE og
INSÍ og fyrirhugað er að halda
fund í Háskólabíói í byijun febrúar
og á fundinn er ætlunin að bjóða
menntamálaráðherra og þingmönn-
um svo þeim gefist tækifæri til að
koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi við nemendur og svara fyrir-
spumum.
Moi^unblaðið/Árni Sœberg
Hluti sýningar danskra undirverktaka i sýningarsal IBM i Skaftahlíð 24.
„Asakanir um aðgerðarleysi frá-
farandi stjórnar SHÍ út í hött“
— segir Guðmundur Jóhannsson, fráfarandi formaður stjórnar SHÍ
virkaði hvetjandi á námsmenn en
ekki letjandi eins og lánaúthlutun-
um er nú háttað. Þá höfum við
ævinlega haldið því ffam að lánin
skuli greiðast að fullu, annars væri
ekki um lán að ræða,“ sagði Guð-
mundur.
Stúdentaráð Háskóla íslands:
Mótmælir tilnefningu
í lektorsstöðu við HI
Morgunblaðinu hefur borist
ályktun frá fundi Stúdentaráðs
Háskóla íslands sem haldinn var
síðastliðinn sunnudag:
„Stúdentaráð HI mótmælir harð-
lega vinnubrögðum menntamála-
ráðherra að ganga gegn tillögu
heimspekideildar og dómnefndar
hennar við setningu í stöðu lektors
í íslenskum bókmenntum. Deildir
Háskólans eru sjálfstæðar um til-
högun kennslu sinnar og bera einar
ábyrgð á henni. Aðferðir ráðherra
bera vott um lítilsvirðingu í garð
viðkomandi deildar sem sæmir ekki
ráðherra menntamála í landinu.
Háskólinn á þá kröfu til mennta-
málaráðherra hveiju sinni að hann
meti störf háskólamanna að verð-
leikum og sjálfstæði Háskóla ís-
lands sem vísindastofnunar."
Guðmundur Jóhannsson, frá-
farandi formaður stjóraar SHÍ,
sagði að aðgerðir fráfarandi
stjóraar hefðu nú greinilega
borið árangur þar sem mennta-
málaráðherra hefði fallið frá
reglugerðarbreytingu sinni síðan
3. janúar sl. „Ásakanir um að-
gerðarleysi stjóraar SHI eru því
alveg út í hött og vantraustsyfir-
lýsingin hlýtur að vera af öðrum
ástæðum. Mér líst alls ekki á að
Umbótasinnar séu að hleypa
vinstri mönnum upp í æðstu
stjórn stúdenta og furða mig á
því að þeir skuli lýsa vantrausti
á eigið fólk sem þýðir að Um-
bótasinnum er alls ekki treyst-
andi. Nýju stjórnina verður hins-
vegar að dæma eftir verkunum.
Þó óttast ég að þessi stjórn fylgi
ekki fordæmi fráfarandi stjóra-
ar um að færa sig nær nemend-
um sjálfum t.d. með þvi að efla
félagslifið, en fráfarandi stjórn
reyndi mikið til þess að höfða til
nemenda á nýjan hátt t.d. með
því að standa fyrir íþróttamóti,
sem ekki voru dæmi fyrir. Stúd-
entaráð liðinna ára hafa lagt
mesta áherslu á stjórnmál og ég
óttast að með tilkomu vinstri
manna inn í stjórn, muni umræð-
an beinast aftur inn á sömu
braut. Við töldum hinsvegar að
stjórain ætti beint að einbeita sér
að hagsmunabaráttu stúdenta í
Stúdentaráði."
Guðmundur sagði að skoða bæri
núverandi tillögur ráðherra í sam-
hengi og ýmislegt bæri að endur-
skoða í starfsemi LÍN. „Vökumenn
hafa þó alla tíð lagt áherslu á að
auka tekjuumreikning svo að vinna
Stúdentaráð Háskóla íslands:
Harmar skerðingu
á námslánunum
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Stúd-
entaráði Háskóla íslands sem
samþykkt var einróma síðastlið-
inn sunnudag:
„Stúdentaráð HÍ fagnar yfírlýs-
ingu Sverris Hermannssonar
menntamálaráðherra þess efnis að
hann sé reiðubúinn að draga til
baka reglugerð um LÍN frá 3. jan-
úar 1986.
Stúdentaráð Háskóla íslands
harmar hinsvegar ef Sverrir Her-
mannsson menntamálaráðherra
hyggst beita sér fyrir breytingum
á lögum og reglugerðum Lánasjóðs
íslenskra námsmanna sem hefðu í
för með sér skerðingu fyrir lántak-
endur.
Stúdentaráð Háskóla íslands
skorar á menntamálaráðherra,
Sverri Hermannsson, að láta nú
þegar af öllum niðurskurðaráform-
um því námslán eru grundvöllur
fyrir jafnrétti til náms.“
Þá samþykkti Stúdentaráð HÍ
samhljóða á fundinum að skora á
Sverri Hermannsson menntamála-
ráðherra að taka til greina nú þegar
afsögn Ólafs Arnarssonar úr stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna og
hlýta tilnefningu ráðsins um Guð-
mund Auðunsson, sem sæti á í
Félagi vinstri manna.