Morgunblaðið - 22.01.1986, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
Soffía Hóseas-
dóttir — Minning
Fædd 8. ágúst 1916
Dáin 13. janúar 1986
í dag er borin til grafar ástkær
tengdamóðir okkar Soffía Hóseas-
dóttir. Stórt skarð hefur myndast
í fjölskyldur allra við fráfall hennar
því „amma Soffía", eins og bömin
kölluðu hana, var mikill þáttur í lífi
okkar. Hún iét velferð bamabama
sinna sig miklu skipta og var ávallt
áhugasöm um óskir þeirra og þarfír.
Það var viss ljómi sem fylgdi
heimsóknum hennar, eins og „hátíð
í bæ“. Þá vildu allir fíölskyldumeð-
limir vera sem mest heima til að
geta verið í samvistum við hana og
þannig vildi hún hafa það, hún kom
til að vera ein af flölskyldunni.
Mikill söknuður hefur strax gert
vart við sig, ekki síst hjá bömunum,
en við munum öll getað yljað okkur
við hugljúfar minningar og það er
ekki svo lítils virði.
Elsku Soffíu þökkum við fyrir
ómetanlegar samvemstundir og
hlökkum til nýrra endurfunda.
Tengdadætur
„Enginn ræður sínum nætur-
stað,“ vom orðin sem ég sagði
þegar dóttir mín sagði mér að
Soffía væri búin að kveðja þennan
heim.
Það er alltaf sárt að kveðja góða
vini og ekki síst þegar kallið kemur
svona fyrirvaralaus.
Leiðir okkar Soffíu lágu saman
fyrir um það bil tólf ámm, þegar
bömin okkar felldu hugi saman og
stofnuðu heimili. Góð vinátta tókst
með okkur sem ætíð hélst síðan.
Soffía var var vinur vina sinna
og áttum við oft góðar stundir
saman og má þar nefna hin árlegu
þorrablót sem hún var vön að vera
með okkur á, núna vantar hana í
hópinn og því verður það ekki eins
að þessu sinni.
Eg þekkti vel hvað Soffíu var
hugleiknast, það vom bömin henn-
ar og bamaböm. Alltaf var hún að
hugsa um hvað þeim væri fyrir
bestu og gjafmildi hennar átti sér
engin takmörk.
Stuttu áður en ég kynntist Soffíu
varð hún fyrir þeirri þungu raun
að missa son sinn, Þór Kjartansson.
Eg veit að hún varð aldrei söm eftir
það. Og aftur á snöggu augabragði
kom annað kall, þegar lítill sonar-
sonur sem líka hét Þór fékk heila-
himnubólgu og dó á örfáum klukku-
stundum. Þessar raunir bar hún í
hljóði, en þegar við töluðum saman
tvær einar fann ég hvað þetta
snerti hana djúpt.
Ég vil með þessum örfáu orðum
senda Soffíu kveðju yfir móðuna
miklu með hjartans þökk fyrir hve
hún var dóttur minni góð tengda-
móðir og drengjunUm hennar góð
amma.
Farþúífriði,
friður guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V.Briem)
Rúna
í dag kveðjum við móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Soffíu Hóseasdóttur.
Maðurinn með ljáinn var ekki
með neitt hik, þegar hann kvaddi
dyra til þess að bæta við söfnuð
sinn í þetta sinn. Það var eins og
hendi væri veifað, engin kvöl eða
þjáning, aðeins svefninn langi.
Dauðann fær enginn umflúið og
sæll er sá sem ekki þarf að berjast
við sjúkdóma að lokinni starfsævi.
Það má segja, að það hvemig
dauðann bar að hjá Soffíu hafí borið
svipmót athafna hennar um ævina.
Hún gekk hratt og óhikað að hveiju
verki og vann fljótt og vel. Eftir
að hafa komið á legg fimm bömum
og skilað vel sínum hlut til framtíð-
arinnar hóf hún störf hjá íslenska
álfélaginu þar sem hún starfaði sem
flokkstjóri til hinstu stundar. Þar
verður hennar saknað vegna ósér-
hlífni og forystuhæfíleika sem nutu
sín vel í hennar starfi þar.
Hennar verður einnig sárt saknað
af dótturdóttur og dóttursyni sem
frá fæðingu nutu umhyggju ömmu
sinnar. Dótturdótturdóttir, nú
tæpra 3ja ára, naut sömu umhyggju
frá fæðingu þar sem fjórir ættliðir
bjuggu undir sama þaki.
Kallið kom of fljótt, heilsan virtist
óbiluð og þótt hún sæi fram á að
þurfa að hætta núverandi starfí um
næstu áramót var engan bilbug að
fínna. Þegar var farið að ræða
möguleika á annarri atvinnu því
óhugsandi var að hafa ekki eitthvað
fyrir stafni meðan heilsa og kraftar
entust.
En hér sannaðist hið fomkveðna
að enginn ræður sínum næturstað.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við Soffíu Hóseasdóttur
og biðjum henni allrar blessunar á
nýjum slóðum. Hafí Soffía þökk
fyrir allt.
K.S.
t
Þökkum auösýnda samúð og hlýhug við andlát og útför fööur
okkar, tengdaföður og afa,
GUÐMUNDUR SIGURGEIRSSONAR,
Laufskógum 43, Hveragerði.
Kristinn Guðmundsson, Jónína Gunnarsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir, Elvar Jónsson,
Arnór Guðmundsson,
Sigri'ður Guðmundsdóttir, Atli Hraunfjörð,
Herdís Guðmundsdóttir, Yngvi Eiriksson,
Anna Guðmundsdóttir,
Þórey Guðmundsdóttir, Ragnar Jónsson,
Þorkell Guðmundsson, Elín Aspelund,
Kristfn Guðmundsdóttir,
Kolbrún Guðmundsdóttir, Ásmundur Jónsson,
Guðmundur Guömundsson, Guðmunda Maríasdóttir,
Sigurgeir Guðmundsson
og barnabörn.
in/i/o/n/Yíi/' _ fo/So# inlwGÍnnor
v raoaugiysingar — / duciL igiyöirigdí i duciugiyou igdf
Auglýsing um prófkjör
Ákveðið hefur verið prófkjör um val frambjóðenda sjálfstæðisflokks-
ins i Ólafsvik við næstu bæjarstjórnarkosningar. Prófkjörið fer fram
23. febrúar nk. Kjörnefnd tekur viö framboðum og veitir upplýsingar
um prófkjörsreglur. Framboðum sé skilaö til undirritaös í síðasta
lagi 31. janúar nk.
Fyrir hönd kjörnefndar.
Helgi Kristjánsson,
Sandholti 7, Ólafsvik,
simar 6258 og 6561.
Garðabær
Fundur i fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ verður haldinn
fimmtudaginn 23. janúar nk. kl. 20.00, Lyngási 12. Dagskrá:
1. Bæjarstjómarkosningarnar. Ákvörðun tekin um tilhögun fram-
boðs.
2. Önnur mál.
Félagar hvattir til að fjölmenna.
Stjórnin.
Borgarnes — Mýrasýsla
Aðalfundur sjálfstæöisfélags Mýrasýslu verður haldinn í sjálfstæöis-
húsinu Borgarnesi, Borgarbraut 1, fimmtudaginn 23. janúar kl. 21.00
síðdegis. Fundarefni: Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin.
Kópavogur— Kópavogur
Hinn árlegi skemmtifundur fyrir eldri bæjarbúa í Kópavogi verður í
Hamraborg 1, fimmtudaginn 30. jan. kl. 20.00.
Bílar til reiðu fyrir þá er þurfa, simi 40708. Mætiö hress og kát.
Sjálfstæðisfélögin i Kópavogi.
Prófkjör sjálfstæðis-
manna á ísafirði
vegna bæjarstjórnarkosninga 1986
Prófkjörið fer fram laugardaginn 8. og sunnudaginn 9. febrúar 1986.
Rétt til framboös í prófkjöri hafa þeir sjálfstæðismenn á ísafiröi sem
kjörgengi hafa á kjördag og hafa aflað sér 20 stuðningsmanna.
Framboði skal skila fyrir kl. 12 á hádegi laugardaginn 25. janúar
1986 til formanns kjörnefndar, Ólafs Helga Ólafssonar, Hliöarvegi
15, ísafiröi.
Sjálfstæðisfélag ísafjarðar
Aðalfundur
Aöalfundur sjálfstæðisfélags isafjarðar verður haldinn laugardaginn
25. janúar kl. 14.00 í húsi félagsins, Hafnarstræti 12. 2. hæð.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál.
Stjórnin.
Sauðárkrókur
— Skagafjörður
Almennur stjórn-
málafundur veröur
haldinn í Sæborg á
Sauðárkróki föstu-
daginn 24. janúar
nk. kl. 21.00.
Frummælendur
verða alþingis-
mennirnir Pálmi
Jónsson og Eyjólfur
Konráð Jónsson.
Fundurinn er öllum
opinn.
Sjálfstæðisfélögin.
ÓKEYPIS BÆKLINGUR
Starfsframi, betri vinna, betri laun
Eftir nám í ICS-brófaskólanum átt þú möguleika á auknum
starfsframa og betur launaðri vinnu. Þú stundar námiö heima
hjá fjór á þeim hraða sem þér hentar. Nú stunda rúmar 8 milljón-
ir manna nám í gegnum ICS-bréfaskólann! Líttu á listann og
sjáöu öll þau tækifæri sem þér gefast. ICS-bréfaskólinn hefur
örugglega námskeiö sem hæfir áhuga þínum og getu. Prófskír-
teini í lok námskeiöa. Sendu miöann strax í dag og þú færö
ÓKEYPIS BÆKLING sendan í f lugpósti. (Setjiö kross í aöeins
einn reit). Námskeiöin eru öll áensku.
□ Tölvuforritun
□ Rafvirkjun
□ Ritstörf
□ Bókhald
□ Vélvirkjun
□ Almennt nám
□ Bifvólavirkjun
□ Nytjalist
Stjórnun
□ fyrirtækja
□ Garóyrkja
□ Kjólasaumur
Innanhús-
□ arkitektúr
Stjórnun hótela
□ og veitingastaóa
□ Blaóamennska
Kælitækni og
□ loftræsting
............................................................
Heimilisfang:...............................................
ICS International Correspondence schools Dept. YYS, 312/314 High
Street, Sutton, Surrey SM11PR, England.
P7]T!n
Þrýstimælar
Ailar stæröir og gerðir.
SöyFOgKLflSKLÐr
Vesturgötu 16, sími 13280
Athugið Athugið
Umsjónarmenn og
eigendur frosk- og
reykköfunartækja.
Reglulegt eftirlit með útbúnaði frosk- og reykkafara er
öryggismál. Við bjóðum upp á sérhæfða og viðurkennda
þjónustu sem vert er að kynna sér.
Yfirförum og stillum frosk- og reykköfunartæki
Þrýstireynum og speglum lofthylki
Hlöðum lofthylki
Utvegum varahluti i flestar gerðir tækja
Lítið inn og fáið ráðleggingar um viðhald og notkun
búnaðarins ykkur að kostnaðarlausu.
Fljót og góð þjónusta-
PRÓFUN HF.
Fiskislóð 119 B
121 Reykjavík
P.O. Box 1406
Sími: 91-26085