Morgunblaðið - 22.01.1986, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
-
• >
~~y
Lendlbestur
Ivan Lendl frá Tékkóslóvakíu sannaói það á sunnudag að hann
er besti tennisleikari heims í dag. Hann sigraði þá Boris Becker
í úrslitaleik, 6—2, 7—6 og 6—3 á meistaramótinu sem fram fór
í Madison Square Garden í Nýju Jórvík. Lendl vann þama sinn
35. sigur í 36 leikjum f árinu. Sannariega frábaar árangur hjá
þessum 25 ára gamla Tékka. Á myndinni heldur hann á verðlaun-
unum sem hann fékk fyrir sigur á mótinu, auk þess fékk hann
vænlega peningafúlgu.
Körfuknattleikur:
Landsliðshópur
kvenna valinn
KKÍ HEFUR valið 16 manna
A-landsliðshóp kvenna til æfinga
fyrlr Polar-Cup sem haldið verður
f Uppsala f Svfþjóð f apríl nk.
Þetta er í fyrsta sinn sem ís-
lenskt kvennalandslið í körfuknatt-
leik tekur þátt í þessu móti. En
landsliðsmál í kvennaboltanum
hafa legið niðri um ianga hríð.
Þetta er því fyrsta skrefið í að
koma upp öflugu kvennalandsliði.
Þjálfari Iðisins er Kolbrún Jóns-
dóttir.
Æfingar munu hefjast strax að
loknum úrslitaleikjum í bikarkeppn-
inni um miðjan mars.
Eftirtaldar stúlkur hafa verið
valdar:
Anna Björk Bjarnadóttir, ÍS
Anna María Sveinsdóttir, (BK
Björg Hafsteinsdóttir, ÍBK
FríðaTorfadóttir, ÍR
Guðlaug Sveinsdóttir, ÍBK
Guðrún Gunnarsdóttir, ÍR,
Hafdís Helgadóttir, (S
Helga Friðriksdóttir, ÍS
Hrafnhildur Pálsdóttir, Haukum
Kolbrún Leifsdóttir, ÍS
María Jóhannsdóttir, UMFN
Sóley Indriðadóttir, Haukum
Sólveig Pálsdóttir, Haukum
Vala Úlfljótsdóttir, ÍR
Þóra Gunnarsdóttir, ÍR
Þórunn, Magnúsdóttir, UMFN
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
• Flosi Jónsson, formaður LRA, og Hermann Sigtryggsson (til
hægri) við próteinkökuna. Ekki náðu þelr að iyfta henni — en ekki
var annað að sjá en hún rynni Ijúflega niður er gestirnir brögðuðu á
henni.
Kareem Jabbar
valinn sá besti
3. deild:
Týr
vann
sinn 13.
leikíröð
TÝR frá Vestmannaeyjum vann
sinn 13. sigur í röð er liðið sigraði
Völsung frá Húsavfk, 27—21, f 3.
deild karla á íslandsmótinu f
handknattleik. Týr er nú með
þriggja stiga forystu í deildinni.
Sverrir Sverrisson var marka-
hæstur í liði Eyjamanna með 8
mörk. Gamla kempan, Pálmi
Pálmason, fyrrum Framari, skoraði
flest mörk Völsungs eða 10.
(A krækti sér í annað sætið í
deildinni er þeir unnu Fylki, 23—20.
Reynir sigraði Skallagrím 25—28 í
Sandgerði og Njarðvíkingar sigr-
uðu Ögra, 22—23. Loks vann Sel-
foss (H með 19 mörkum gegn 16.
Staðan í 3. deild er nú þannig:
Týr 16 14 0 2 425-309 28
(A 16 11 3 2 414—330 25
(BK 15 12 0 3 400-293 24
Reynir S 16 10 3 3 387-335 23
ÞórA 15 9 2 4 347-307 20
Selfoss 15 6 3 6 327-330 15
Fylkir 15 7 1 7 323-303 15
UMFN 16 5 3 8 391-388 13
Hveragerði 16 5 1 10 378—441 11
IH 14 5 0 9 322-375 10
Völsungur 15 4 1 10 348-368 9
Skallagr. 15 3 1 11 310-377 7
ögri 16 0 0 16 226—454 0
Lyftingamenn á Akur-
eyri í nýjan æfingasal
Akureyri, 20. Janúar.
LYFTINGARÁÐ Akureyrar hélt á
laugardag upp á 10 ára afmæli
sitt, sem reyndar var seint á sfð-
asta ári, með því að opna nýjan
æfingasal f íþróttahöllinni.
Fram að þessu hafa lyftinga-
menn haft sal í kjallara Lundar-
skóla til umráða en hafa nú flutt
alla starfsemi sína í Höllina. Nýi
salurinn er 100 fm að flatarmáli —
10x10 metrar — sem er svipað og
sá gamli var, en að sögn Flosa
Jónssonar, formanns LRA, nýtist
nýja æfingastaðan mun betur en
sú gamla.
A veggjunum hanga Ijósmyndir
af hinum ýmsu lyftinga- og kraft-
lyftingagörpum landsins sem Flosi
Jónsson og fleiri hafa tekið á
undangengnum árum. Flosi sagð-
ist hafa farið í gegnum filmusafniö
að gamni sínu fyrir skömmu og
útbúiö þessar myndir — og gaf
hann Lyftingaráðinu þær í tilefni
af afmælinu. Alls 17 myndir.
Gestum á laugardag var boðið
upp á veitingar — m.a. stóra tertu
í laginu eins og lyftingastöng með
lóðum, próteinköku svokallaða, en
80% kökunnar var prótein sem
lyftingamenn leggja sér oft til
munns.
Ervin að hætta hjá 76ers?
Frá QunnaH Valgalruynl, fréttamanni MorgunblaAslna (Bandarflcjunum.
EKKI alls fyrir löngu var körfu-
knattlalksmaðurinn frábæri hjá
Los Angeles Lakers, Kareem
Abdul Jabbar, kjörinn besti
fþróttamaður ársins f Bandarfkj-
unum af fþróttablaðinu Sport III-
uajtrated en þessi kosning þykir
ein sú virðulegasta hér f landi.
Jabbar er nú 39 ára gamall en
þrátt fyrir háan aldur, miðað við
toppspiiara í körfuknattleik, þá
kom kosning hans ekki á óvart.
Hann lék frábæriega á síðasta ári
og nú nýverið framlengdi hann
samning sinn við félagið í eitt ár
og verður því fertugur er hann
hættir í NBA-deildinni.
Einn besti leikmaður Phoenix
liðsins, Rúmeninn Georgi Glouch-
kov, hefur 175 þúsund dollara í
árslaun hjá félaginu. Nýlega til-
kynnti hann að hann gæti ekki lifað
á þeim launum sem hann fær og
sagðist ekki vita hvað hann ætti
að gera. Nú kann einhver að
spyrja: Hvernig getur hann farið
að því að lifa ekki af þetta miklum
árslaunum? Ástæðan er sú að
búlgarska ríkið tekur mest allt af
honum og hann heldur aðeins eftir
3.000 dollurum á mánuði og það
er ekki nóg fyrir mann sem leikur
í NBA-deildinni bandarísku.
Mikiar vangaveltur eru um það
í bandarískum blöðum að Dr. J,
eða Julius Erving, hjá 76ers, ætli
að hætta eftir þetta keppnistíma-
bil. „Mig hefur lengi langað til að
snúa mér að öðru," sagði hann í
viðtali nýlega. Hann hefur leikið illa
með liði sínu í vetur, sýnst áhuga-
laus og það þarf því ekki að koma
á óvart þó hann hætti í sumar.
Margir leikmenn í NBA-deildinni
eiga við vandamál að stríða þar
sem er kókaínneysla. Deildin hefur
nú komið sér upp nokkurs konar
endurhæfingarstöð þar sem leik-
menn fá eitt tækifæri til að bæta
ráð sitt. Ef þeim tekst það ekki eru
þeir reknir úr deildinni.
Staðan í A-deild er nú þannig
að í öðrum riðlinum er Boston í
fyrsta sæti, átta stigum á undan
76ers. Milwaukee hefur 10 stiga
forystu á Atlanta í hinum riðlinum.
í V-deildinni hefur Houston fimm
stigum meira en Denver og í hinum
riðlinum er Los Angelse með 18
stiga forystu á Portland. Miklir
yfirburðir það.
Getrauna- spá MBL. 1 > o £ c c U 3 ? o I | • 2 2 cc Sunday Mirror Sunday People *![ 1 á News of the World SundayTelegraph SAMTALS
1 X 2
Arsenal — Rotherham 1 1 1 1 1 1 1 1 0 1 1 1 11 1 0
Aston Villa - Millwall 1 1 1 1 1 1 X 1 0 1 0 0 8 1 0
Chelsea — Uverpool 1 X 1 1 X 1 2 0 0 0 0 0 4 2 1
Everton — Blackburn 1 1 1 1 1 1 1 1 0 1 0 0 9 0 0
Hull — Brighton 1 2 X X 2 X 1 2 0 X 0 0 2 4 3
Luton — Bristol Rovers 1 1 1 i 1 1 1 1 0 1 0 0 9 0 0
Man. City — Watford 2 1 1 X X 1 1 1 0 1 X X 6 4 1
Notts County — Tottenham X 2 2 2 X 2 X 2 0 X 0 0 0 4 5
Peterboro — Carllsle 1 X 1 1 2 X 2 1 0 X 0 0 4 3 2
Readlng — Bury 1 1 1 1 1 1 1 1 0 1 0 0 9 0 0
Sunderland — Man. Utd. 2 2 X 2 2 2 2 2 0 2 0 0 0 1 8
West Ham — Ipswich 1 1 ! 1 1 - 1 1 ' 1 . 1 0 1 4 0 0 9 0 o-