Morgunblaðið - 22.01.1986, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 1986
4 r
•Tómas Holton ValsmaAur ar heldur betur klofstór á þessari mynd
Bjarna Eirfkssonar. Lárus Torlasfus úr Fram fylgist undrandi með.
Valsmenn unnu öruggan sigur á Fram f bikarkeppninni og eru komnir
í undanúrslit.
Valsmenn í
undanúrslit
— sigruðu Fram nokkuð örugglega, 92-79
VALUR tryggði sér réttinn til að leika f undanúrslitum bikarkeppni
KKÍ er þeir sigruðu Fram, 92-79, f Hagaskóla f gærkvöldi. Valur hafði
unnið fyrri leik þessara liða með tveimur stigum. Staðan í hálfleik
var 39-35 fyrir Val. Jafnt var á með liðunum f fyrri hálfleik en Vals-
menn höfðu yfirhöndina f seinni.
Framarar byrjuðu vel og skor-
uðu fimm fyrstu stigin og höfðu
frumkvæðið fram í miðjan hálfleik-
inn. Valsmenn voru þó aldrei langt
undan og náðu að jafna, 20-20,
um miðjan hálfleikinn. Síðan skipt-
ust liðin á að leiða leikinn með einu
til tveimur stigum. Valsmenn náðu
svo þriggja stiga forystu rétt áður
en flautað var til leikhlés.
Valsmenn byrjuöu seinni hálf-
leikinn eins vel og Fram byrjaði
þann fyrri. Komust í 45-37 eftir
tvær mínútur og juku svo smátt
og smátt forskot sitt og var mesti
munurinn í leiknum 19 stig er
staðan var 78-59 fyrir Val og fimm
mínútur til leiksloka. Framarar
náðu síðan aðeins að klóra í bakk-
ann og var munurinn 13 stig er
upp var staðið, 92-79.
Bakverðirnir, Tómas Holton og
Einar Ólafsson, voru bestu leik-
menn Vals ásamt Kristjáni Ágústs-
syni, sem tekið hefur fram skóna
á ný. Jón Steingrímsson átti einnig
góöa kafla.
Símon Ólafsson og Þorvaldur
Geirsson voru yfirburöamenn hjá
Fram og voru allt í öllu.
Stig Vals: Leifur Gústafsson 20, Kristján
Ágústsson 18, Einar Ólafsson 16, Tómas
Holton 16, Jón Steingrímsson 9, Torfi Magnús-
son 7, Siguröur Bjarnason 4 og Sturla örlygs-
son 2.
Stig Fram: Símon Ólafsson 21, Þorvaldur
Geirsson 20* Ómar Þróinsson 11, Auðunn
Elísson 8 og Lárus Thorlasíus, Jóhann Bjarna-
son, Björn Magnússon og Guöbrandur Lárus-
son 4 stig hver. SUS.
Skíði:
Guðrún í 41. sæti
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
alpagreinum skfðafþrótta tók
þátt f tveimur skfðamótum f
Austurrfki um helgina. Guðrún
H. Kristjánsdóttir frá Akureyri
varð í 41. sæti af 128 keppendum
f svigi á laugardaginn. Hinnr
stúlkurnar urðu úr leik.
Á sunnudaginn kepptu þær í
stórsvigi á mjög sterku móti. Þar
stóð Guðrún sig best og hafnaði
í 60. saeti á 2:44.02 mínútum.
Snædís Úlriksdóttir varð í 70. sæti
á 2:46.24 mín. og Tinna Trausta-
dóttir í 73. á tímanum, 2:49.21
mín. Keppendur í þessu móti voru
yfir 100. Sigurvegari var austur-
ríska stúlkan Birgitte Eder, á
2:29.03 mín.
Stúlkurnar keppa í tveimur mót-
um um næstu helgi, síðan koma
þær heim. Daníel Hilmarsson
keppti í svigi í heimsbikarnum í
síðustu viku, en varð fyrir því óláni
aðsleppa hliði.
Haecher stal sigrinum
TRAUDL Haecher frá Vestur-
Þýskalandi sigraði f sinni fyrstu
keppni f heimsbikarnum f alpa-
greinum kvenna á mánudaginn.
Stórsvigskeppnin fór fram f Ober-
staufen f Vestur-Þýskalandi.
Svissneska stúlkan, Vreni
Schneider, varð önnur eftir að
hafa haft forystu eftir fyrri um-
ferð.
Olga Charvatova frá Tékkóslóv-
akíu varö þriðja og heimsbikar-
hafinn frá í fyrra, Michela Figini, í
fjórða. Erika Hess, sem nú hefur
forystu í stigakeppninni, varð
fimmta.
Kef lavík komst áf ram á
fleiri stigum á útivelli
— sigraði IR með tólf stiga mun, 91-79
KEFLVÍKINGAR komust í undanúrslit bikarkeppni KKÍ er þeir sigruðu
ÍR-inga 91-79, f æsispennandi leik í Keflavfk í gærkvöldi. IR vann fyrri
leikinn 93-81 og höfðu þvf liðin sigrað sinn leikinn hvort með 12 stiga
mun. Keflvíkingar komust því áfram á fleiri stigum skoruðum á úti-
velli, jafnara gat þetta ekki orðið. Staðan f hálfleik var 49-46 fyrir
Keflavík.
Jafnræði var á með liðunum til
að byrja með, ÍBK leiddi þó oftar
í fyrri hálfleik. Þegar átta mínútur
voru til leikhlés yar staðan jöfn,
30-30. Síðan náði ÍR forystu í leikn-
um, 32-36, og var það mesti munur
sem ÍR haföi yfir í leiknum. Keflvík-
ingar tóku síðan góðan sprett og
náðu yfirhöndinni og voru þremur
stigum yfir í leikhléi, 49-46.
Keflvíkingar juku forskot sitt í
upphafi seinni hálfleiks og náðu
12 stiga forskoti um miðjan hálf-
leikinn, það var forskotið sem
þurfti til að komast áfram, því ÍR-
ingar byrjuðu leikinn með 12 stig
í plús. ÍR-ingar náðu að saxa á
forskotið aftur og var munurinn
sex stig, 75-69 er átta mínútur
voru eftir.
Keflavík náði svo aftur 10 stiga
mun en það var eins og þeir þyldu
það ekki og gerðu alltaf afdrifarík
mistök eftir það. ÍR náði þá aftur
að minnka muninn og þegar ein
mínúta og 17 sekúndur voru eftir
var munurinn aðeins sex stig,
83-77 og því á brattann að sækja
hjá ÍBK. Þegar 37 sekúndur voru
eftir náði ÍBK 10 stiga forskoti,
87-77. Þá skoraði Guðjón Skúla-
son þriggja stiga körfu fyrir Kefla-
vík og breytti stöðunni í 90-77.
ÍR-ingar fengu síðan víti og skor-
uðu þeir úr báðum og aðeins 11
sekúndur eftir, þessi munur hefði
nægt ÍR-ingum. Dæmdur var ruðn-
ingur á ÍBK og völdu ÍR-ingar inn-
kast í stað vítaskots. Sá sem fékk
sendinguna úr innkastinu hafði
Liverpool í
undanúrslit
LIVERPOOL sigraði Ipswich, 3-0,
i enska Mjólkurbikarnum f gær-
kvöldi. Staðan f hálfieik var 2-0.
Paul Walsh skoraði fyrsta markið
eftir aðeins 17 mfnútur.
Tíu mínútum síðar bætti Ronnie
Whelan öðru markinu við. Hann lék
nú aftur í stöðu miðvallarleik-
manns. Það var svo markaskorar-
inn lan Rush, sem bætti þriðja
markinu við í seinni hálfleik. Liv-
erpool mætir því Chelsea eða QPR
í undanúrslitum, en þau eigast við
í kvöld. Einnig leikur Aston Villa
við Arsenal og Oxford við Ports-
moth.
Þórður
íFram
ÞÓRÐUR Marelsson, knatt-
spyrnumaðurinn snaggaralegi
hjá Vfkingi, hefur genglð til liðs
við Fram. Þórður hefur yfirleitt
leikið f stöðu hægri bakvarðar
hjá Vfkingum.
Tveir ungir og efnilegir leik-
menn, sem urðu (slands- og bikar-
meistarar með 2. flokki Fram síð-
asta sumar, hafa ákveðið að leika
með Völsungi á Húsavík næsta
sumar. Þetta eru þeir Eiríkur Bjarg-
mundsson og Grétar Jóhannsson.
Þeir munu örugglega styrkja 2.
deildarlið Völsungs, sem nýlega
hefur ráðið Guðmund Ólafsson
sem þjálfara.
stigið út fyrir hliðarlínu og misstu
þeir því knöttinn í hendur Keflvík-
inga. Þegar níu sekúndur voru eftir
var mikill darraðardans undir körfu
ÍR-inga og var brotið á Jóni Kr. og
skoraði hann úr fyrra vítaskoti sínu
og tryggði Keflvíkinga i undanúr-
slit.
Leikurinn var mjög spennandi á
lokamínútunum. Dómarar leiksins
þeir Jón Otti og Jóhann Dagur
Haukar gátu leyft sér að láta tvo
sterkustu leikmenn sína, þá Pálm-
ar Sigurðsson og ívar Webster,
sitja á varamannabekknum mest
allan leikinn og gefið yngri og
óreyndari leikmönnum tækifæri.
Munurinn á liðinutn var of mikill
til að gaman væri að. Það var
helsta takmark Hauka að skora
yfir 100 stig, en það tókst ekki.
Bestir í liði Hauka voru ívar Ás-
grímsson og Henning Hennings-
son. Leifur Garðarsson, sem lék í
bakvarðarstööu Pálmars, komst
FRAKKINN Didier Bouvet vann í
gær sinn fyrsta sigur f heims-
bikarnum f þau sex ár sem hann
hefur verið með í keppninni.
Hann sigraði f svigkeppni sem
fram fór f Parpan í Sviss. ingemar
Stenmark varð f öðru sæti, tæp-
lega hálfri sekúndu á eftir.
dæmdu þennan erfiða og hraða
leik mjög vel.
Bestir í liði Keflvíkinga voru
Guðjón Skúlason og Jón Kr. Jóns-
son. Ólafur Gottskálksson var
einnig góður í fráköstunum og
Hreinn var góður í fyrri hálfleik.
Hjá ÍR-ingum var Ragnar Torfa-
son yfirburðamaöur. Þá áttu þeir
Jón Örn Guðmundsson og Karl
Guðlaugsson ágætan leik. Björn
Steffenssen var góður í fyrri hálf-
leik.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 29, Jón Kr.
Gíslason 16, Hreinn Þorkelsson 13, SigurÖur
Ingimundarson 13, Ólafur Gottskálksson 9,
Hrannar Hólm 7, Þorsteinn Bjarnason og
Ingólfur Haraldsson tvö hvor.
Stig ÍR: Ragnar Torfason 29, Jón öm
Guðmundsson 18, Karl Guölaugsson 12, Bjöm
Steffenssen 11, Vignir Hilmarsson 4, Jóhann-
es Sveinsson 3 og Björn Leosson 2. Ó.T.
mjög vel frá leiknum, fljótur og
skemmtilegur leikmaður.
Hjá ÍS voru Valdimar Guðlaugs-
son og Árni Sigurlaugsson bestir.
Stig IS: Valdimar Guðlaugsson 16, Lárus
Jónsson 11, Árni Sigurlaugsson 10, Helgi
Gústafsson 8, Lúðvlk Ólafsson 4 og Gestur
Snorrason 2.
Stig Hauka: Ivar Ásgrímsson 22, Henning
Henningsson 18, Ólafur Rafnsson 15, Eyþór
Árnason 11, Leifur Garðarsson 10, Pálmar
Sigurðsson 7, Sigurgeir Tryggvason 5, Ivar
Webster 5, Friðfinnur Hreinsson 4 og Bogi
Hjálmtýsson 3.
sus
Marc Girardelli frá Lúxemborg
og Paul Frommelt frá Liechten-
stein, sem hafði besta brautartím-
ann eftir fyrri ferð, urðu úr leik.
Þriðji varð Thomas Buergler frá
Sviss, fjórði var Joze Kuralt frá
Júgóslavíu og fimmti Svíinn ungi
Jonas Nilsson.
•Jón Kr. Gíslason tryggðl Keflvíkingum sigur er hann skoraði úr
vítaskoti er leiktíminn var úti.
Öruggt hjá Haukum
HAUKAR unnu stórsigur á Stúdentum, 98-51, f fyrri leik þessara liða
f bikarkeppninni f körfuknattleik í Hagaskóla f gærkvöldi. Það fór
ekkert á milli máta, að yfirburðir Hauka voru miklir þvf f hálfieik var
staðan 50-20.
Fyrsti sigur
Didier Bouvet