Morgunblaðið - 22.01.1986, Page 48
STAÐFEST1ÁNSTRAUST
MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR1986
VERÐILAUSASÖLU 40 KR.
Kjötinnflutningur varnarliðsins:
Deilur ráðherra
eru úr sögunni
— segir Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins um samkomulag
sitt við Albert Guðmundsson
SAMKOMULAG tókst í gær milli Þorsteins Pálssonar formanns Sjálf-
stæðisflokksins og Alberts Guðmundssonar iðnaðarráðherra um að
hreyfa ekki frekar málum varðandi innflutning varnarliðsins á
kjöti, að því er Þorsteinn sagði í samtali við Morgunbiaðið.
Á fundi Þorsteins og Alberts í
gærmorgun var meðal annars rætt
um afstöðu iðnaðarráðherra til
kjötinnflutnings vamarliðsins og
yfirlýsingar hans þess efnis, að taka
"""^þyrfti málið fyrir á Alþingi, þar sem
önnur lög giltu á Keflavíkurflugvelli
en annars staðar í landinu. Á fund-
inum lýsti Albert því yfir, að hann
ætlaði ekki að flytja málið inn á
Alþingi.
Þorsteinn Pálsson sagði eftir
fundinn með iðnaðarráðherra: „Ég
ræddi þessi mál við Albert Guð-
mundsson. Við erum sammála um
að ekki sé tilefni til að flytja þetta
mál inn á Alþingi. Ég geri ráð fyrir
þvi, að hann hafi óbreytta skoðun
sína á málinu hér eftir sem hingað
til. Á hinn bóginn var samkomulag
gert um að hreyfa málinu ekki
frekar. Ég tel að allar deilur meðal
ráðherra Sjálfstæðisflokksins
vegna málsmeðferðarinnar séu þar
með úr sögunni."
Morgunblaðinu tókst ekki að ná
í Albert Guðmundsson í gær.
Fiskeldi:
Rúmlega milljón seiði
flutt til Noregs og Irlands
— að verðmæti um 90 milljónir króna
ÚTLIT er fyrir að í ár verði flutt út til Noregs og írlands vel yfir
milljón laxa- og silungsseiði. Morgunblaðinu er kunnugt um að 7
seiðaeldisstöðvar hyggjast selja 700 þúsund laxaseiði og 400 þúsund
regnbogasilungsseiði til Noregs og 80 þúsund laxaseiði til Irlands.
Er þetta svipaður fjöldi seiða og framleiddur var hér innanlands á
síðasta ári, en einungis þriðjungur eða fjórðungur af áætlaðri göngu-
seiðaframleiðsiu hér á þessu ári. Útflutningsverðmætið er 86—90
milljónir kr. eftir þvi sem Morgunblaðið kemst næst.
Innflutningur seiða til Noregs er
bannaður, en undanfarin ár hafa
verið veittar undanþágur fyrir tak-
mörkuðum innflutningi. í fyrra kom
upp alvarlegur sjúkdómur í Noregi
sem rakinn var til innfluttra seiða
frá Skotlandi og hefur veiting
undanþága verið óljós þar til nýlega
að norsk yfirvöld lýstu því yfir að
undanþágur yrðu veittar til inn-
flútnings á takmörkuðu magni seiða
frá íslandi, Svíþjóð og Finnlandi,
en ekki frá Skotlandi. Seiðainn-
flutningurinn verður bundinn við
Norður-Noreg þar sem þörfin er
mest og þangað hafa íslensku seiðin
farið á undanfömum árum. Strangt
eftirlit verður með seiðainnflutn-
ingnum og þau m.a. sett í einangrun
úti.
Laxalónsstöðin í Reykjavík og
^Ölfusi er lang stærst í útflutningn-
um. Að sögn Ólafs Skúlasonar
framkvæmdastjóra munu þeir flytja
út 400 þúsund regnbogaseiði og
250 þúsund laxaseiði til Norður-
Noregs. Pólarlax hf. í Straumsvík
og Fiskeldi hf. á Húsavík selja
samtals 200 þúsund laxaseiði til
Noregs, Árlax í Kelduhverfí selur
100 þúsund seiði til Noregs og
einnig Fljótalax í Skagafirði. Hóla-
lax í Skagafírði selur 50 þúsund
seiði til Noregs og 50 þúsund til
írlands og Klakstöðin hf. á Húsavík
selur 30 þúsund laxaseiði til írlands.
Þetta eru þær stöðvar sem Morgun-
blaðið hefur spumir af að hyggi á
útflutning. Samningar eru ekki frá-
gengnir hjá öllum og útflutningur-
inn er einnig háður því að físksjúk-
dómayfírvöld í Noregi samþykki
það heilbrigðiseftirlit sem hér hefur
verið í gangi.
Morgunbiaðiö/Júlíus
Piltur á mótorhjóli fyrir híl
Piltur á litlu mótorhjóli varð fyrir bifreið á mótum Vonarstrætis
og Lækjargötu í Reykjavík um tíuleytið í gærkvöldi. Hann var
fluttur í slysadeild en mun ekki hafa verið alvarlega slasaður.
Grunur lék þó á að hann væri meiddur á fótum, jafnvel fótbrotinn.
Salan á Sigurfara:
Sjá viðtöl á bls. 4.
Mönnum mismunað
eftir landshlutum
Sjónvarp um gervihnetti:
Fjórir hafa
sótt um leyfi
til að reka
jarðstöðvar
FJÓRIR aðilar hér á landi hafa
nú þegar sótt um leyfi til sam-
gönguráðuneytisins um rekstur
jarðstöðva fyrir sjónvarpsefni
um gervihnetti, í kjölfar nýrrar
reglugerðar þar að lútandi.
Að sögn Halldórs Kristjánsson-
ar, skrifstofustjóra í samgöngu-
ráðuneytinu, er hér um að ræða
einstaklinga frá Garðabæ, Reykja-
vík, Ólafsfírði og Húsavík. Halldór
sagði að ekki væri enn ljóst hversu
hátt gjald menn þyrftu að greiða
fyrir afnot af móttökuskermum, en
unnið væri að tillögum þar að lút-
andi í samgönguráðuneytinu. Til
að fá leyfi fyrir notkun slíkra
skerma þarf að fá sérstakt leyfi
frá viðkomandi sjónvarpsstöðvum
erlendis og ennfremur leyifí frá Pósti
og síma, sem samkvæmt lögum ber
að vernda Qarskiptatíðni.
Að sögn innflutningsaðila á mót-
tökuskermum, sem Morgunblaðið
ræddi við í gær, fer eftirspum
vaxandi enda sé tiltölulega einfalt
mál að setja slíka skerma upp, en
þeir ódýrustu kosta frá 150 þúsund
krónum. Segir annar þeirra, að
fyrirtæki hans eigi tíu slíka skerma
á hafnarbakkanum og séu fímm
seldir. Sömu aðilar staðfestu enn-
fremur að framboð á sjónvarpsefni
um gervihnetti færi stöðugt vax-
andi og tiltölulega auðvelt væri að
fá tilskilin leyfí.
- seg-ir Guðni Jónsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Grundarfjarðar
„ÞEIM, sem áhuga hafa á kaup-
um á Sigurfara II, er því miður
stórlega mismunað. Því ræður
óréttlát kvótaskipting, þar sem
gert er upp á milli manna eftir
landshlutum. Verði hann keyptur
til Vestur- eða Suðurlands verður
mesti leyfilegi þorskafli á skipið
1.150 lestir, en verði hann keypt-
ur í aðra landshluta fást 1.750
lestir af þorski á skipið. Vegna
þessa geta menn á Vestfjörðum,
Norðurlandi og Austfjörðum
boðið 15 til 25 milljónum króna
meira í skipið en aðrir í Ijósi mun
meiri tekjumöguleika,“ sagði
Guðni Jónsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Grundar-
fjarðar, í samtali 'við Morgun-
F élögnm heimiluð kaup
á orlofshúsum erlendis
MATTHÍAS Bjarnason, viðskiptaráðherra, hefur í samráði
við Seðlabankann ákveðið að félagasamtökum með 50 félags-
menn eða fleiri skuli heimilt að kaupa orlofshús erlendis til
afnota fyrir félaga sína samkvæmt reglum sem Seðlabankinn
hefur sett. Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans fjallar um umsókn-
ir um kaup á orlofshúsum en í þeim skal greint frá verði,
stærð og staðsetningu húsanna ásamt greiðsluskilmálum og
samþykktum samtakanna.
Stjómarmenn samtakanna Sól-
arseturs fóru fram á það við ráð-
herra í haust að hann veitti leyfi
fyrir gjaldeyrisyfírfærslu til húsa-
kaupa á Spáni. Samtökin Sólarsetur
voru stofnuð í sumar í þeim tilgangi
að koma á fót dvalaraðstöðu fyrir
fullorðna íslendinga á félagslegum
grundvelli í sólarlöndum. Samtök-
unum barst tilboð frá umboðsmanni
Sun Spain á íslandi, Páli Jónssyni,
um kaup á 29 húsum í bænum
Torreviéja á Costa Blanca, sem er
30 km fyrir sunnan Alicante, og
myndi þrítugasta húsið fylgja með
fritt í kaupbæti.
Stjómarmenn Sólarseturs og Páll
Jónsson fóru utan í desembermán-
uði sl. til að skoða húsin, og full-
nægja þau, að sögn Páls, vel kröfum
íslendinga. Páll sagði að hann vissi
fyrir víst um 12 aðila sem væru
þegar ákveðnir í að festa kaup á
húsum í Torreviéja; tíu þeirra em
innan vébanda Sólarseturs, en hinir
tveir aðilamir em Qölmenn félaga-
samtök; Samtök iðnaðarmanna á
Sauðárkróki og Starfsmannafélag
Garðbæinga. Húsin hafa hins vegar
nokkuð hækkað í verði í kjölfar
þess að Spánn gekk í EB um ára-
mótin, því 12% skattur bætist við
kaupverðið sem rennur til spánska
ríkisins.
blaðið.
Samkvæmt gildandi lögum um
stjómun fískveiða fyrir næstu tvö
ár er áunnið þorskaflamark togar-
ans Sigurfara II 800 lestir. Eigend-
um hans verður heimilt að velja
milli sóknarmarks og aflamarks. í
sóknarmarki eru tvær leiðir; að
hækka aflamarkið um 20%, í þessu
tilfelii í 960 lestir, eða taka meðaltal
fyrir svæði 1, Vestur- og Suðurland,
1.150 lestir. Verði skipið gert út
frá öðram landshlutum verður
mestur leyfilegur þorskafli 1.750
lestir. Munurinn er því 600 lestir,
sem meta má á allt að 12 milljónum
króna miðað við heimalöndun og
enn meira, sé landað erlendis.
Hraðfrystihús Gmndarfjarðar
bauð 165 milljónir króna í Sigur-
fara, 25 milljónum króna lægra en
hæstbjóðendur frá Homafirði.
Sjá bls. 2 frétt um tilboð í
Sigurfara og Sölva Bjarnason.