Morgunblaðið - 11.03.1986, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR ll.MARZ 1986
Húsavík:
Endasprettur Ust-
inovs frumsýndur
Húsavík, 9. marz.
LEIKFELAG Húsavíkur frumsýndi sl. föstudagskvöld sjónleikinn
ENDASPRETT — Tilraun til ævisögu i þrem þáttum — eftir
Peter Ustinov, í þýðingu Odds Björnssonar og undir leikstjórn
Oktavíu Stefánsdóttur, sem jafnframt hannaði leikmynd og bún-
inga.
Það er margt sérstakt við þetta
leikrit og þá sérstaklega upp-
byggingin, þar sem sama persón-
an er látin birtast á §órum aldurs-
skeiðum og þeir skulu allir spjalla
saman. I leikritinu er ádeila bæði
á konur og karla og voru skiptar
skoðanir meðal áheyrenda á hvort
kynið væri meira hallað, en hvort
fékk sitt.
Aðalhlutverkið, Sam, leikur
Ingimundur Jónsson og gerir því
góð skil. Hann hefur lengi verið
einn aðalleikari leikfélagsins og
þetta tel ég eitt hans bezta hlut-
verk, þó hann hafi áður oft margt
gott gert. Sam aldraði er á sviðinu
allan tímann og á viðræður við
Sam sextugan, leikinn af Svavari
Jónssyni, Sam fertugan, leikinn
af Einari Þorbergssyni, og Sam
tvítugan, leikinn af Ævari Óla-
syni. Stellu, konu hans, áttræða,
leikur Hrefna Jónasdóttir, fertuga
Kristjana Helgadóttir og tvítuga
Aðalbjörg Sigurðardóttir. Aðrir
leikarar eru Snædís Gunnlaugs-
dóttir, Jón Friðrik Benónýsson,
Margrét Halldórsdóttir, Halldór
Skarphéðinsson og Geirþrúður
Pálsdóttir.
Leikaramir skila allir vel hlut-
Reginald Kinsale (Jón F. Benónýsson) t.v. og Sam (Ingimundur
Jónsson).
verkum sínum og flestir svo vel
að ekki er hægt að sjá að um
áhuga-ólærða leikara sé að ræða,
síður en svo.
Frumsýningargestir tóku sýn-
ingunni mjög vel og hylltu leikara
og leikstjóra með lófataki og
blómum í leikslok.
Önnur sýning er í dag og er
uppselt en næsta sýning verður á
þriðjudagskvöldið.
Fréttaritari
Könnun á fasteignamiðlun:
73% telja breytinga þörf í
fyrirkomulagi fasteignasölu
42% viðskiptavina fasteignasala telja þjónustu þeirra góða, sam-
kvæmt einkunnagjöf í könnun, sem framkvæmd var í byrjun febrúar
1985 á meðal kaupenda fasteigna er gengu frá kaupsamningi á tíma-
bilinu apríl til júní 1984. 12,1% telur þjónustu frábæra, 19,2% lélega,
18,4% nýög lélega og 8,3% töldu fasteignasala engar upplýsingar
veita. Þetta kemur fram í athugasemdum með stjórnarfrumvarpi
til nýrra laga um fasteigna- og skipasölu, sem lagt var fram á
Alþingi í gær. Hinsvegar töldu 73% aðspurðra breytinga þörf á
almennu fyrirkomulagi fasteignasölu.
Tæplega þrír §órðu telja sig hafa sú einkunnagjöf tíunduð hér að
fengið réttar upplýsingar um stærð, framan.
Rúmlega 60% þeirra, sem þátt
Það er því ljóst að ekki færri en
§órir kaupendur eru óánægðir á
móti hveijum einum, sem er ánægð-
ur með núverandi fyrirkomulag."
Sjá nánar um efnisatriði
frumvarpsins á þingsíðu
Morgunblaðsins í dag, bls. 29.
Vestmannaeyjabær:
Agreining-
ur um fjölgun
launaflokka
Starfsmannafélagið
neitar að undir-
rita kjarasamning
Vestmannaeyjum, 10. mars.
ÁGREININGUR er kominn upp
milli Starfsmannafélags Vest-
mannaeyjabæjar og samninga-
nefndar bæjarins um fjölgun
launaflokka og hvernig vænt-
anlegt starfsmat nýtist til röð-
unar í launaflokka. Hefur
starfsmannafélagið neitað að
undirrita nýgerðan aðalkjara-
samning vegna þessa og um
helgina veitti fundur í félaginu
stjórn og trúnaðarráði heimild
til verkfallsboðunar. Var sú
heimild samþykkt samhljóða.
Starfsmannafélagið krefst þess,
að ijölgað verði um fimm launa-
flokka, úr 19 í 24 og neitar að nýtt
starfsmat verði opnað fyrr en
samninganefnd bæjarins hafí geng-
ist inn á þessar kröfur með því að
undirrita bókun. Samninganefnd
bæjarins telur hins vegar að hægt
sé að byggja á niðurstöðum starfs-
matsins og leiðrétta röðun starfs-
heita í sérkjarasamningi án þess
að komi til Jjölgun launaflokka.
Ekki er ágreiningur milli aðila um
aðalkjarasamning. Ekki hefur verið
boðað til nýs fundar í þessari deilu.
- h.k.j.
aldur, efni, ástand og umhverfí
þeirrar eignar, sem þeir keyptu.
Þrír íjórðu kaupenda telja sig einnig
hafa fengið réttar upplýsingar um
áhvílandi lán, afborganir, verð-
tryggingu, upphæð og vexti. Lið-
lega 80% kaupenda telja sig hafa
fengið réttar upplýsingar um kvað-
ir, sem hvíla á eigninni. 13% kaup-
enda nefna hinsvegar dæmi um
atriði, sem þeir hafí síðar uppgötv-
að, en ekki verið upplýstir um.
Þáttakendur vóru beðnir að gefa
fasteignasölum einkunn fyrir þá
þjónustu, sem þeir veittu við
ákveðna þætti, „sem telja verður
mikilvæga við fasteignakaup". Er
Ávöxtun sf.:
Óskað eftir
opinberri
rannsókn
Ríkissaksóknara hefur borist
beiðni frá Seðlabanka íslands um
opinbera rannsókn á ákveðnum
þáttum í starfsemi fjárfestingar-
félagsins Ávöxtunar sf. Telur
Seðlabankinn að Ávöxtun sf. hafi
brotið gegn bankalöggjöfinni og
farið inn á verksvið viðskipta-
bankanna með starfsemi sinni.
Erindi Seðlabankans lítur að
broti á ákvæðum bankalaga varð-
andi viðtöku og ávöxtun fjármuna.
Telja Seðlabankamenn að viðtaka
Ávöxtunar sf. á fjármunum til
ávöxtunar sé andstæð einkarétti
banka og sparisjóða til slíkrar starf-
semi. Jónatan Sveinsson, saksókn-
ari, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ekki hefði verið tekin
ákvörðun um frekari meðferð máls-
ins að svo stöddu. Ríkissaksóknari,
Þórður Bjömson, væri erlendis auk
þess sem beðið væri nánari skýringa
á ákveðnum þáttum málsins meðal
annars frá lögmanni Ávöxtunar sf.,
sem hefði óskað eftir að koma á
framfæri athugasemdum við erindi
Seðlabankans.
tóku í könnuninni, töldu þijú atriði
aðfínnsluverð í fyrirkomulagi fast-
eignasölu: 1) Meiri ákveðni þurfí
varðandi réttindi fasteignasala, 2)
Fasteignasalar væru of margir, 3)
Auka þurfí ábyrgð fasteignasala.
Að mati 44% kaupenda þarf að
bæta gerð greiðsluáætlana. Ein-
ungis 12% töldu að núverandi þjón-
usta væri fullnægjandi. 38% gerðu
engar athugasemdir.
53% kaupenda telja að bæta þurfí
upplýsingagjöf um eignir I sölu.
Einungis 13% vóru ánægð með
núverandi fyrirkomulag. 28% tóku
ekki afstöðu.
48% kaupenda telja að veita þurfi
betri upplýsingar um verðgildi lána
og kjör á þeim. 13% vóru ánægð
með núverandi fyrirkomulag. 35%
gera ekki athugasemdir.
í niðurlagi athugasemda segir:
„ Vilji kaupenda er mjög augljós.
Einungis 3%—16% þeirra eru
ánægð með það fyrirkomulag og
þáþjónustu, sem nú erveitt.
44%—60% telja á hinn bóginn að
breyta þurfí þessum þáttum.
Þetta er raunhæf
ávöxtunarkrafa
- segir Þorsteinn Guðnason um vaxtahækkun
Lífeyrissjóös verslunarmanna
„MÉR finnst að lífeyrissjóðurínn geri með þessu raunhæfar ávöxtun-
arkröfur sem kaupandi skuldabréfa," sagði Þorsteinn Guðnason
hagfræðingur hjá Fjárfestingarfélagi íslands þegar leitað var álits
hans á þeirri ákvörðun stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna að
hækka vexti á óafgreiddum lánsbeiðnum fyrirtækja, stofnlánasjóða
og banka, þannig að þeir verði 1% yfir hæstu vöxtum spariskírteina
ríkissjóðs.
Þorsteinn sagði að ávöxtunar-
kröfur á hinum fijálsa verðbréfa-
markaði miðuðust meðal annars við
vexti spariskírteina ríkissjóðs. Nú
væru raunvextir fyrirtækjabréf-
anna 11—13%. Áhætta spariskír-
teinanna væri minni og því væri
þessi ákvörðun Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna eðlileg og ávöxtunar-
krafan í samræmi við markaðinn.
Sagði Þorsteinn að um leið myndi
þetta opna augu almennings fyrir
því að með vöxtum sínum á spari-
skírteinum stýrði ríkissjóður raun-
vaxtastiginu á verðbréfamarkaðn-
um. Nú væru raunvextir spariskír-
teinanna með þeim hæstu sem
þekktust á ríkisskuldabréfum í
heiminum og héldu raunvöxtum á
fijálsum verðbréfamarkaði uppi.
Höskuldur Jónssor. ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu sagði
þegar álits hans var leitað: „Eg
stend í þeirri trú að aðilar vinnu-
markaðarins hafí samið um
ákveðna vexti af því fé sem lífeyris-
sjóðimir leggja ríkissjóði til. Því
hlýtur þessi ákvörðun þeirra að eiga
við önnur skuldabréfakaup en þar
var samið um.“ Hann sagði að það
væri augljóst að það myndi skapa
ríkissjóði og Byggingasjóði mikinn
vanda ef allir lífeyrissjóðimir krefð-
ust 11% vaxta, það gæti aldrei
gengið upp.
o
INNLENT
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu:
Lagið „Vögguvísa“
flutt í leikriti hjá LA
Nokkrir Akureyringar höfðu samband við ritstjórn Morgun-
blaðsins eftir að lagið „Vögguvísa" var ieikið í kynningu á ís-
lensku lögunum sem valin hafa verið til úrslita í Sönglagakeppni
sjónvarpsstöðva í Evrópu. Sögðust þeir þekkja lagið; það væri
eftir Ólaf Hauk Símonarson og hefði verið sungið í bamaleikriti
sem leikið var hjá Leikfélagi Akureyrar og heitir „Kötturinn sem
fór sínar eigin leiðir“.
Að sögn Egils Eðvarðssonar
brýtur þetta þó ekki í bága við
reglur keppninnar, en samkvæmt
þeim mega lög í keppninni ekki
hafa verið leikin í útvarpi, sjón-
varpi, gefin út á nótum, snældum
eða leikin inn á myndbönd. Agli
var ekki kunnugt um höfund
lagsins, enda sagði hann nöfn
höfundanna innsigluð hjá borgar-
fógeta. „Enginn okkar sem stend-
ur að þessari keppni veit um
höfunda laganna, nöfnin vitum
við ekki fyrr en 15. mars.“
Hann sagði að það væri hvergi
tekið fram í reglunum að lagið
mætti ekki hafa verið leikið opin-
berlega áður, t.d. flutt af hljóm-
sveit fyrir áheyrendur. „Ef menn
vilja túlka þetta sein sama lagið,
Erna Gunnarsdóttir syngur lagið „Vögguvísa".
en það er það ekki að mínu mati,
þá var það eingöngu leikið í þessu
bamaleikriti á Akureyri", sagði
Ólafur Haukur. „Það lag var
aldrei flutt opinberlega í fjölmiðl-
um.“ Hann sagði að þekkja mætti
nokkra tóna úr þessu lagi sem
leikið var í leikritinu, en það væri
mikið breytt og útsetning öll
önnur þannig að varla væri nokk-
uð sameiginlegt með þessum
tveim lögum.