Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR ll.MARZ 1986
Stofnmæling botnfiska:
„Togararann-
sóknir“ hafnar
Styrkjum
úthlutað úr
námssjóði
Verzlunarráðs
Á AÐALFUNDI Verzlunarráðs
voru afhentir námsstyrkir úr
námssjóði ráðsins og að þessu
sinni hlutu Þuríður Helga Bene-
diktsdóttir og Hallgrímur Ing-
ólfsson styrkina. Þau fengu
bæði 75 þúsund krónur.
Námssjóður Verzlunarráðsins
var stofnaður fyrir rúmum tveim-
ur árum í því skyni að styrkja
efnilega nemendur til framhalds-
náms við erlenda háskóla.
Þuríður Helga stundar nú nám
á sviði kerfísgerðar við Verzlunar-
háskólann í Kaupmannahöfn en
hún lauk viðskiptafræðiprófí frá
Þuriður Helga Benediktsdóttir
Háskóla íslands á síðasta ári.
Hallgrímur er við framhaldsnám
í rekstrarhagfræði við Arizona
Hallgrímur Ingólfsson
State University. Hann útskrifað-
ist frá viðskiptadeild Háskóla ís-
lands 1984.
NÚ ERU að hefjast stofnmæling-
ar botnfiska á íslandsmiðum af
hálfu Hafrannsóknastofnunar í
samvinnu við sjómenn og út-
gerðarmenn með sama sniði og
var á síðasta ári. 5 togarar sömu
gerðar hafa verið leigðir til
verksins og munu þeir toga á 600
stöðum umhverfis landið.
í frétt frá Hafrannsóknastofnun
segir, að á síðasta ári hafí um-
fangsmikið verkefni hafízt á vegum
stofnunarinnar til rannsókna á
botnlægum fískum á íslandsmiðum.
Helzta markmið þess sé að meta
stærð botnlægra fiskistofna, eink-
um þorsks, með aukinni nákvæmni
og treysta þar með vísindalegan
grundvöll fískveiðistjómar. Annað
mikilvægt atriði verkefnisins sé að
auka samskipti og samvinnu við
sjómenn og aðra aðila í sjávarútvegi
með þátttöku í sameiginlegu verk-
efni.
Gert er ráð fyrir gagnasöfnun á
sjó í marzmánuði ár hvert og hófst
annar rannsóknarieiðangur verk-
efnisins 5. marz. Teknar verða um
600 togstöðvar umhverfís allt land
niður á 500 metra dýpi og að mið-
línu milli ísiands og Færeyja. Allar
helztu botnlægar fískitegundir
verða lengdarmældar. Tekin verða
kvamasýni af helztu tegundum og
þær kyngreindar. Einnig verður
safnað göngum tii rannsókna á
fæðu þorsks.
Leigðir hafa verið fímm togarar
af sömu gerð til þessa verkefnis.
Þessir togarar eru Vestmannaey
VE 54, skipstjóri Eyjólfur Péturs-
son, Páll Pálsson ÍS 102, skipstjóri
Guðjón A. Kristjánsson, Amar HU
1, skipstjóri Birgir Þórbjamarson,
Brettingur NS 50, skipstjóri Gunnar
Tryggvason og Ljósafell SU 70,
skipstjóri Albert Stefánsson. Á
hverju skipi er 13 manna áhöfn og
fímm rannsóknamenn frá Hafrann-
sóknastofnun. Leiðangursstjórar
em Einar Jónsson, Ólafur K. Páls-
son, Bjöm Æ. Steinarsson, Sigfús
A. Schopka, Guðni Þorsteinsson og
Gunnar Jónsson.
Rannsóknaskipið Bjami Sæ-
mundsson verður við rannsóknir
fyrir norðan land og austan á sama
tfma. Markmið þeirra rannsókna
verður að tengja fyrri verkefni
stofnunarinnar á sviði stofnmæl-
inga botnfísks við núverandi stofn-
mælingu. í þessum leiðangri verða
teknar um 80 togstöðvar á uppeldis-
stöðvum þorsks fyrir norðan land
og austan. Gagnasöfnun verður
með sama hætti og á rannsóknatog-
umnum, auk þess verður ljósáta
rannsökuð á ákveðnum sniðum.
Skipstjóri verður Sigurður Kr.
Ámason og leiðangursstjórar Ólaf-
ur Halldórsson og Viðar Helgason.
Úrvinnsla gagna hefst þegar að
ioknum leiðangri og raunar fyrr að
hluta til. Helztu niðurstöður liggja
væntanlega fyrir um 10 apríl næst-
komandi.
Sambandið hugar að
stofnun fjölmiðlunar-
fyrirtækis:
Ekki meining-
in að hætta
við ísfilm
„MÉR VITANLEGA eru engar
hugmyndir á lofti um að Sam-
bandið dragi sig út úr ísfilm.
Hins vegar telja menn eðlilegt
að athuga fleiri möguleika á
samstarfi á sviði fjölmiðlunar,"
sagði Kjartan P. Kjartansson,
formaður Fræðslu- og kaupfé-
lagadeildar SÍS. Hann fékk það
verkefni eftir sfðasta stjómar-
fund SÍS að kanna viðhorf aðila
innan samvinnuhreyfingarinnar,
bænda, ungmennafélaga og
verkalýðsfélaga á samvinnu um
stofnun fjölmiðlunarfyrirtækis.
Kjartan sagði að þessi athugun
væri gerð í framhaldi af umræðum
á aðalfundi SÍS sl. sumar, þar sem
hreyft var þeirri hugmynd að sam-
vinnuhreyfíngin kæmi sér upp sjálf-
stæðu fyrirtæki á sviði fjölmiðlunar.
Þessar umræður innan SÍS hafa
vakið spumingar um hvort Sam-
bandið hyggist draga sig út úr ís-
fílm, eins og Fijáls fjölmiðlun.
Að sögn Kjartans eru viðræður
hans enn bundnar við menn innan
samvinnuhreyfíngarinnar og könn-
unin öll á byijunarstigi.
I jc|í' .
»c.jol(Jonc)K;.ii:;j]o(j«
I i ii'J!;;i..o
(jröíiíom Vorcjanolhí
Bla::erjai
Se'" '
AbD. 10,
Blteenhe.
und Rock:
Se ■ e 6,
Ab:>. 7 und
10.000
pöntunarlistar
ókeypis!
10.000 fastir viðskipta-
vinir okkar fá pöntun-
arlistann ókeypis.
Nýir viðskiptavinir
borga 250 kr. sem
koma til frádráttar við
fyrstu pöntun.
'
■
Quelle
91-46033
Komdu, skrifaðu
eða hringdu!
/ «! ^ ! wm
\ 40 í , L
mm mé' - m-m* mmmrnmm m
800 blaðsíður á íslensku! I
íslensk þýðing auðveldar þér að panta úr |
ótrúlegu vöruvali Quelle listans. Hóflegt
verð.Öruggur afgreiðslumáti.
Quelle — stærsta póstverslun Evrópu
V/SA E
EUROCARD
Vinsamlega sendið mér nýja
vor- og sumarpöntunarlistann
frá Quelle í póstkröfu.
(Póstburðargjald ekki innifalið).
Nafn sendanda
heimilisfang
póstnúmer
sveitarfélag
Vinsamlega skrífið greinilega, helst
með prentstöfum.
Sendist til:
Quelle
verslun og afgreiðsla
Nýbýlavegi 18
200 Kópavogi.