Morgunblaðið - 11.03.1986, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR U.MARZ1986
Kosningar í
Háskóla Islands
eftir Bjarna
Arnason
í dag ganga stúdentar við Há-
skóla íslands til kosninga. Kosið er
um 13 fulltrúa í Stúdentaráð og tvo
fulltrúa stúdenta í Háskólaráð sem
eiga einnig sæti í Stúdentaráði.
Kosningabaráttan stendur nú á
hápunkti. Eitt framar öðru hefur
einkennt þessa kosningabaráttu og
er það staða Lánasjóðs íslenskra
námsmanna. Þar er stefna Vöku
skýr og ótvíræð. Við höfnum öllum
hugmyndum um vexti en teljum
eðlilegt að námslánin greiðist að
fullu til baka. Við gerum kröfu um
skuldabréfalán til fyrsta árs nema,
og viljum að frádráttur launa frá
námslánum verði minnkaður. Stúd-
entum á ekki að refsa fyrir að vilja
vinna fyrir sér. Annað sem einkennt
hefur þessa kosningabaráttu og
vinstrimenn hafa klifað á_ er seta
Ólafs Amarsonar í stjórn LÍN. Vaka
hefur talið eðlilegt að Ólafur Amar-
son viki sæti fyrir nýjum fulltrúa
stúdenta í stjóm LIN eftir að
„umbótasinnaðir" stúdentar slitu
samstarfí við Vöku í SHÍ í janúar-
mánuði sl. Þrátt fyrir þessa síbylju
vinstri manna hafa þeir viðurkennt
að Ólafur Amarson hafí ekki að-
hafst neitt það í stjóm LÍN sem
þeir hafa ekki getað skrifað undir.
Sýnir þetta einna best tvískinn-
ungshátt vinstri manna og rökleysi.
Þá hafa vinstri menn ekki komið
fram með neinar raunhæfar tillögur
í málefnum LÍN (annað en að títt-
nefndur Ólafur víki) og hugmyndin
að fundinum í Háskólabíó um lána-
málin var ekki einu sinni frá þeim
komin þar sem hann var einn þátt-
urinn í víðtækum tillögum um LÍN,
sem Vaka og minnihluti Umbóta-
sinnaðra stúdenta unnu í janúar-
byrjun en komust því miður ekki í
framkvæmd.
Nýir Garðar
Félagsstofnun stúdenta er annað
mál sem ætíð er í brennideplinum
þegar líða fer að kosningum. Vaka
leggur áherslu á að Félagsstofnun
veiti stúdentum sem besta þjónustu
á sem lægstu verði. Sum fyrirtæki
Félagsstofnunar standa sig mjög
vel og má þar nefna Ferðaskrifstofu
stúdenta. Meiri vandræðagripur er
á hinn bóginn Bóksala stúdenta sem
óhætt er að fullyrða að sé ein af
dýrustu bókabúðum á höfuðborgar-
svæðinu. Taka þarf reksturinn til
gagngerrar endurskoðunar og end-
urskipulagningar þannig að Bóksal-
an geti í framtíðinni sinnt því hlut-
verki sínu að veita stúdentum ódýr-
ari og betri þjónustu en annars
staðar er unnt að fá.
Bygging nýrra garða er eitt af
þeim málum sem hvað mest verða
í sviðsljósinu á næstu mánuðum.
Vaka leggur áherslu á að glæsihall-
ir úr gleri og stáli sé ekki sá kostur
sem velja á í því máli. Flottræfils-
háttur og óþarfa bruðl með pláss
Artemis
UNDIRKJÓLAR
— fyrir alla aldurshópa
fjölbreytt úrval - allar stœrðir.
Sérsaumum og breytum
efóskað er.
m
Glæsibæ
Álfheimum 74 s: 33355
og peninga eiga ekki að vera ein-
kennandi fyrir stúdentagarða.
Stúdentapólitík
í sjálfheldu
Eitt af því sem hvað mest hefur
verið gagnrýnt í sambandi við há-
skólapólitíkina er flokkspólitískt
þras og karp sem einkennt hefur
hana undanfarinn einn og hálfan
áratug, hið minnsta. Stúdentar eru
orðnir leiðir á þessu og er það ein
aðalástæða þes að áhugi á stúd-
entapólitíkinni og kosningum í Há-
skólanum er í lágmarki. Vaka hefur
gengið fram fyrir skjöldu í þessu
máli og gert um það kröfu að stúd-
entapólitíkinni verði bjargað úr
þeirri sjálfheldu sem hún vissulega
er komin í. Þetta var stefna okkar
í kosningunum til hátíðamefndar
1. des. sl. og augljóst var að stefnan
féll stúdentum vel í geð og að stigið
hafði verið fyrsta skrefíð til þess
að endurreisa virðingu stúdenta og
almennings í landinu á stúdenta-
pólitíkinni. Það er því blátt áfram
grátlegt að horfa upp á byltingar-
sósíalistana sem nú ráða ríkjum í
SHÍ draga stúdentapólitíkina, á
örfáum dögum, niður í svaðið aftur.
Þeir eru ekki fyrr sestir við stjóm-
völinn en skrifstofu SHÍ er breytt
í kosningaskrifstofu í forvali Al-
þýðubandalagsins í Reykjavík og
formaður SHÍ, sem er starfsmaður
stúdenta, þeysist um borgina á
MUPRO
Allar stœrðlr af
rðraklemmum. Auðveldar I
notkun. Hagstœtt veíð.
&
HEILDSALA —
SMÁSALA
VATNSVIRKINN/i/
ARMÚU 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REVKJAVlk
SÍMAR VERStUN 686455. SKRffSTOFA 685966
Þlofrífr
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
OG Á KASTRUP-
FLUGVELLI
Bjarni Árnason
„Eitt af því sem hvað
mest hefur verið gagn-
rýnt í sambandi við há-
skólapólitíkina er
f lokkspólitískt þras o g
karp sem einkennt hef-
ur hana undanfarinn
einn og hálfan áratug,
hið minnsta. Stúdentar
eru orðnir leiðir á þessu
og er það ein aðal-
ástæða þess að áhugi á
stúdentapólitíkinni og
kosningum í Háskólan-
um er í lágmarki.“
vinnustaðafundum með það að
markmiði að koma ríkisstjóminni
frá. Þetta gerir hann f sínum vinnu-
tíma og meðan hann er á fullum
launum (sem ekki eru lág) hjá stúd-
entum til þess að sinna málefnum
þeirra. Þetta er hneyksli.
Háskólaráð móti stefn-
una meir en verið hefur
Minna hefur farið fyrir átökum
um framboð til Háskólaráðs enda
er það mun friðsamari stofnun en
Stúdentaráð. í málefnum sem eiga
undir Háskólaráð leggur Vaka eink-
um áherslu á eftirfarandi atriði:
a) Hraða þarf sem kostur er
skipulagningu á háskólasvæðinu
þannig að unnt sé að hefjast handa
um nýjar framkvæmdir á svæðinu
hið allra fyrsta. Þá leggur Vaka
mikla áherslu á að Háskólinn missi
ekki húsnæði það við Eiríksgötu
sem hjúkrunarfræðinemar hafa
haft. Slíkt má ekki henda. Háskól-
anum veitir ekki af þessu húsnæði
undir sína starfsemi.
b) Tryggja þarf með öruggum
hætti að hagsmunir Háskólans
verði ekki fyrir borð bomir þegar
Landsbókasafn og Háskólabóka-
safn flytjast í Þjóðarbókhlöðuna. I
þessu sambandi teljum við nauðsyn-
legt að mynduð verði sérstök stjóm
um Háskólabókasafn þar sem í
ættu sæti m.a. rektor og háskóla-
bókavörður og fulltrúar nemenda.
c) Framfylgja þarf reglum um
hámarkstíma sem kennarar hafa til
þess að fara yfír prófúrlausnir.
Þessi frestur er nú 3 vikur en er í
mörgum deildum þverbrotinn. Stúd-
entar gera þær kröfur til kennara
að þessar reglur verði virtar og
kæmu einhverskonar viðurlög vel
til greina ef frá þessu yrðu brugðið.
Náskylt þessu er seinagangur með
uppsetningu stundaskráa. Til þess
að geta stundað nám sitt af ein-
hveiju viti og gert langtímaáætlanir
þurfa stúdentar að fá stundaskrár
sínar birtar tímanlega. Strax í
upphafí hvers misseris þarf að koma
fram stundaskrá og próftafla fyrir
næsta misseri á eftir. Eru mörg
dæmi til um vandræði sem stúdent-
ar hafa orðið fyrir af þessum sök-
um.
d) Þá leggur Vaka áherslu á að
hlutur Háskólaráðs í mótun heildar-
stefnu í málefnum Háskólans verði
aukinn. Verkefni sem mætti flokka
undir venjubundna afgreiðslu, og
fara fram í Háskólaráði, mætti að
ófyrirsynju flytja til annarra aðila
innan Háskólans.
Ekki er þessi stutta upptalning
á verkefnum sem Vökumenn munu
leggja áherslu á í Háskólaráði
tæmandi. Af fleiri málum mætti
sem dæmi taka könnun á grund-
velli sérstaks Háskólabókaforlags,
athugun á hugmyndinni um opinn
Háskóla og íjarkennslu.
Flokkspólitískt pot
út úr Stúdentaráði
og Háskólaráði
Háskóli íslands er æðsta mennta-
stofnun landsins og jafnframt
stærsti vinnustaður landsins. Það
er því mikið í húfí þegar velja á fólk
til þess að vera í forsvari fyrir stúd-
enta. Flokkspólitískt framabrölt og
ábyrgðarlaus vinnubrögð mega ekki
verða einkenni á starfí Háskólaráðs
og Stúdentaráðs. Vaka hefur sýnt
það og sannað á undanfömum árum
að þar fer eina stúdentahreyfíngin
sem virkilega er treystandi til þess
að taka á málefnum Háskólans og
stúdenta af þeirri festu og öryggi
sem til þarf. Því skora ég á háskóla-
stúdenta að láta skynsemina ráða
og veita Vöku gott brautargengi í
kosningunum sem fram fara í dag.
Höfundur skipar fyrsta sætið á
tista Vöku til Háskólaráðs.
Alþýðuflokkur-
inn sjötíu ára
Hátíðarsamkomur á Hótel Sögu
Alþýðuflokkurinn er sjötíu ára
um þessar mundir. í tilefni af-
mælisins verða tvær hátíðarsam-
komur á vegum flokksins á Hótel
Sögu sunnudaginn 16. mars nk.
Síðdegis þennan sunnudag verð-
ur hátíðarfundur með vandaðri
dagskrá. Hann hefst kl. 13.30 með
leik Lúðrasveitar verkalýðsins en
að því búnu setur Jóhanna Sigurð-
ardóttir varaformaður flokksins
fundinn. Kristinn Sigmundsson
óperusöngvari syngur við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar, erlendir
gestir flytja ávörp, leikarar munu
flytja þætti úr sjötíu ára sögu Al-
þýðuflokksins og Jón Baldvin
Hannibalsson formaður Alþýðu-
flokksins flytur ávarp. Að lokum
syngja átta Fóstbræður og stjóma
fjöldasöng. Kynnir á hátíðarfundin-
um verður Gunnar Eyjólfsson leik-
ari.
Um kvöldið hefst svo dagskráin
með sameiginlegum kvöldverði þar
sem Haukur Morthens skemmtir
matargestum. Laddi flytur
skemmtidagskrá og Hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar leikur
fyrir dansi. Veislustjóri verður
Bima Eyjólfsdóttir.
Þátttöku I kvöldsamkomunni er
hægt að tilkynna kl. 13—17 daglega
í síma 29244. Þar em einnig veittar
nánari upplýsingar um afmælis-
hátíðina.