Morgunblaðið - 14.03.1986, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. MARZ1986
Viðræður við Rio
Tinto fram á haust
NÚ ER áætlað að viðræðum við Rio Tinto Zink Metals um byggingu
og rekstur kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði ljúki um miðjan sept-
ember í haust. Fjórði formlegi viðræðufundur RTZ Metals Ltd. og
samninganefndar iðnaðarráðherra um byggingu verksmiðjunnar var
haldinn í Reykjavík 10. og 11. þessa mánaðar. Þá var aðalforstjóri
fyrirtækisins hér á ferð í boði iðnaðarráðherra 19.—21. febrúar og
kynnti sér aðstæður hér á landi.
Upphaflega var gert ráð fyrir að
Ijúka mætti tilteknum áfanga í
samningsgerðinni í þessum mánuði
þannig að leggja mætti fram á
Alþingi því er nú situr frumvarp til
laga um breytingu á lögum nr.
70/1982, um kísilmálmverksmiðju
á Reyðarfirði. Á viðræðufundunum
í Reykjavík 10. og 11. marz var
ákveðið að hverfa frá þessum
áformum og stefna að því að ljúka
samningagerðinni í heild næsta
haust, þannig að undirritun allra
samninga RTZ Metals og íslenzka
ríkisins, svo og fylgisamninga, geti
farið fram undir lok septembermán-
aðar 1986, takist samningar milli
aðila. Með því móti mætti leggja
málið í heild fyrir Alþingi strax í
upphafi þings næsta haust.
I framhaldi verður síðan stefnt
að því að semja um einstaka verk-
þætti við byggingu verksmiðjunnar
fyrir 1. janúar 1987 og að bygging-
arframkvæmdir hefjist vorið 1987.
Er þá við það miðað við að fram-
leiðsla frá fyrsta ofni verksmiðjunn-
ar (árleg framleiðslugeta 14.400
tonn af málmi) heíjist á árinu 1989
og að síðari ofninn (árleg fram-
leiðslugeta 14.400 tonn af málmi)
verði tekinn í notkun ári síðar, þ.e.
1990.
Arnarflug
framlengir
frest til
hluta-
fjárkaupa
ARNARFLUG hefur framlengt
þann frest sem nýir hluthafa
hafa til að kaupa viðbótarhiuta
fé í fyrirtækinu um tíu daga.
Áskriftarfresturinn átti að renna
út á morgun, en hefur verið
frestað til 24. mars.
Sighvatur Blöndahl blaðafulltrúi
Amarflugs sagði að stjómendur
félagsins teldu sig hafa vissu fyrir
því að verulegur hluti af hlutafénu
gengi út. Fresturinn hefði verið
framlengdur vegna óska frá nýjum
aðilum sem komið hefðu fram síð-
ustu daga og sýnt málinu áhuga.
Viðræðunefndimar hafa ákveðið
dagskrá viðræðufunda með ofan-
greint í huga sem hér segir:
Fimmti viðræðufundur í Reykjavík
22.-23. aprfl.
Sjötti viðræðufundur í Bristol
21.—22. maí.
Sjötti viðræðufundur í Reykjavík
30. júní—l.júlí.
Sjöundi viðræðufundur í Reykjavík
30. júní—1. júlí.
Áttundi viðræðufundur í Reykjavík
28.-29. júlí.
Níundi viðræðufundur í Bristol
27.-28. ágúst.
Tíundi fundurinn, sem gert er ráð
fyrir að verði lokafundur, verður
haldinn í Reykjavík um miðjan
september, segir í frétt frá iðnaðar-
ráðuneytinu.
A fullri ferð
VÉLSLEÐAR eru hið mesta þing í sveitum landsins og íbúar í þéttbýli nota þessi farartæki sömuleiðis
mikið yfír vetrartímann til að komast á fjöll. Á dögunum fór fram í Mývatnssveit keppni vélsleðamanna
og var hart barist. Myndin sýnir nokkra keppendur á fleygiferð.
Fjármálaráðherra sýknaður:
Ekkí fyrirframgreiðsla
launa í verkfalli BSRB
FJÁRMÁLARÁÐHERRA var í fullum rétti er hann ákvað
að greiða rikisstarfsmönnum ekki fyrirfram laun 1. október
1984, þegar þeir höfðu boðað verkfall frá 4. október. Þetta
er niðurstaða dóms, sem kveðinn hefur verið upp í Bæjar-
þingi Reykjavíkur í máli Einars Ólafssonar gegn fjármála-
ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.
í niðurstöðu dómsins kemur
meðal annars fram að Einar Ólafs-
son gerði kröfu til dráttarvaxta af
þeim launum fyrir vinnu sína í
október, sem ekki voru greidd út
fyrr en í nóvember, það er fyrir
vinnu þann 31. október. Einar
krafðist einungis vaxta af þeim
dagvinnulaunum sem hann átti að
fá samkvæmt eldri kjarasamningi,
þeim sem í gildi var þann 1. októ-
Útboð skipaflutninga
varnarliðsins:
Bandarísk
stjórnvöld
áfrýja ekki
BANDARÍSK stjórnvöld hafa
ákveðið að áfrýja ekki dómnum
í máli skipafélagsins Rainbow
Navigation á hendur ríkisstjórn-
inni vegna útboðs skipaflutninga
varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli. Ríkisstjórnin tapaði málinu
í undirrétti og áfrýjunarrétti en
átti kost á að áfrýja til fullskip-
aðs áfrýjunarréttar eða hæsta-
réttar.
Áfiýjunarfrestur rann út í gær.
Helgi Agústsson í sendiráði íslands
í Washington sagðist hafa fengið
þessar upplýsingar í bandaríska
dómsmálaráðuneytinú í gær. Ráðu-
neytis'menn hefðu ekki 'talið sig
getað náð annárri niðurstöðu með
áffýjun-en þegar liggur fyrir. Þeir
segðust vera að athuga a**ar leiðir,
en vildu ekki tjá sig nánar um það.
Umhleyping-
ar áfram
SPÁÐ er umhleypingum fram
yfír helgi, éljum af suðvestri og
rigningu af suðaustri til skiptis
á Suðvesturlandi. Norðanlands
verður veður skaplegra og til
muna minni úrkoma samkvæmt
upplýsingum Veðurstofunnar.
Þvi er þkki líklegt að sumarieik-
föng einsogþríhjól það er stúLk-
an leikur sér á’ vérði mikið í
notkuúfeícm yfír helgi.
ber. Með lögum frá 1954 um rétt-
indi og skyldur opinberra starfs-
manna var lögfest undantekning á
þeirri meginreglu á sviði vinnurétt-
ar, að launþegi þurfí fyrst að láta
vinnu sína af hendi, áður en hann
öðlast rétt til gagngjaldsins, þ.e.
fyrirframgreiðsla launa var ákveð-
in. Þegar ákvæði þetta kom í lög
höfðu ríkisstarfsmenn ekki verk-
fallsrétt, en hann fengu þeir fyrst
með lögum frá 1976. I þeim lögum
er ekki að finna beint ákvæði um,
hvemig fara skuli með fyrirfram-
greiðslu launa, þegar verkfall er
löglega boðað. Samkvæmt lögunum
frá 1954 eru eingöngu föst laun
greidd fyrirfram og samkvæmt
lögunum frá 1976 eru föst laun
ákveðin í kjarasamningi.
Dómarinn bendir á að forsenda
fyrir því, að föst laun skuli greidd
fyrirfram, sé því sú, að í gildi sé
kjarasamningur milli aðila um föst
mánaðarlaun.
í niðurlagi dómsins segir:
Af hálfu stefnanda Einars Ólafs-
sonar hafði launaliðum kjarasamn-
ings verið sagt upp og verkfall
boðað frá og með 4. október. Sátta-
nefnd hafði þegar nýtt heimild um
frestun verkfalls sbr. 22. gr. 1 nr.
29/1976 og sáttatillaga hafði verið
felld af báðum deiluaðiljum. Ljóst
var því, þegar til útborgunar októ-
berlauna kom, að yfirgnæfandi lík-
ur voru á, að verkfall skylli á þann
4. október. Verkfail hófst síðan eins
og boðað hafði verið þann 4. október
1984, og skv. 14. gr. 1 nr. 29/1976
náði greiðsluskylda stefnda (ríkis-
sjóðs) því ekki lengur en til þess
dags. Föst laun þau, sem stefnandi
fékk greidd fyrir 31. október 1984,
voru ákveðin í kjarasamningi, sem
gerður var þann 30. október 1984.
Því hefur ekki verið haldið fram
af hálfu stefnanda, að greiðslur
skv. hinum nýja kjarasamningi hafí
átt að gjaldfalla þann 1. október.
Það, að laun skyldu greidd fyrir-
fram allan mánuðinn árið 1977
þegar opinberir starfsmenn fóru í
verkfall, telst ekki bindandi for-
dæmi fyrir stefnda, enda girðir
niðurstaða þessi ekki fyrir það, að
stefnda hefði verið heimilt að greiða
októberlaunin fyrirfram.
Samkvæmt þessari niðurstöðu
ber að sýkna stefnda af öllum
kröfum steftianda í máli þessu.
Eftir atvikum þótti rétt að máls-
kostnaður félli niður. Dóminn kvað
upp Sigriður Ólafsdóttir borgar-
dómari.
Útsýn og flugfélögin:
Ferðakaupstefna í Broadway
KYNNING á nýjungum á sviði ferðamála verður haldin í Broad-
way sunnudaginn 16. mars næstkomandi. Verður kynningin með
svipuðu sniði og gerist á ferðakaupstefnum erlendis og er hún
haldin á vegum Ferðaskrifstofunnar Útsýnar, Flugleiða, Arnar-
flugs, SAS og ýmissa erlendra aðila.
„Forstjóri Útsýnar, Ingólfur
Guðbrandsson, er nýkominn af —
ITB — stærstu ferðakaupstefnu
heims, sem stóð yfír í Beriín dagana
28. febrúar — 7. marz með þátttöku
frá öllum heimsálfum og flestum
löndum heims. Sýningin gefur gott
yfirlit yfír hina íjölbreyttu ferða-
möguleika víðs vegar í heiminum.
Ingólfur var jafnframt fulltrúi ís-
lands á fundi UFTTA, alþjóðasam-
bands ferðaskrifstofa, þar sem fjall-
að var um nýjustu þróun ferðamála,
sem verða sífeilt rfkari þáttur í ,
atvinnu og neyzlu vestrænnaþjóða.
Á forðakaupstefnunni f'Broad-
jváý á sunnudaginn verður margt
foaVitnilegt að sjá og heyra, urmúll
döæklinga, korta og mynda til
ókeypis áfhendingár,.. frá' ýmsum.
löndum heims og bandmyndir í
gangi, m.a. ný bandmyndkynning
Utsýnar, sem kemur út af þessu
tilefni. Sérhæft starfsfólk Útsýnar
verður til leiðbeiningar um ferðaval,
auk fulltrúa frá Flugleiðum, Amar-
flugi, SAS og Almennum trygging-
um.
Þau lönd sem kynnt verða á
kaupstefnunni, er m.a. Bretland,
Norðurlönd, Þýzkaland, Austurríki,
Portúgal, Spánn, Mallorca og Ibiza,
Frakkland og Korsíka, Ítalía,
,þ. á m. Lignano, Bibione, Garda-
yatn og nýja glæsilega hressingar-
hótelið Savoia í heilsulindabæiyim
Abario Terme, Grísku eyjamar4
Korfu og Krít, Tyrkland, seVn riú •
dregur að sér fjölda ferðánianrta,..-
;Austurlönd §ær, Brazilía ög-Sorð-
ur-Ameríka, þ. á m. Hawaii, en
þangað verður heimsreisa Útsýnar
í haust.
Auk margháttaðs fróðleiks um
lönd og ferðir í máli og myndum,
verður tízkusýning, skemmtiatriði
og boðið upp á smakk á ýmsu góð-
gæti. Kaffiveitingar og drykkir
verða til sölu á vegum Broadway.
Allir gestir fá happdrættismiða, og
er vinningurinn sumarleyfisferð
með Útsýn. Dregið verður í happ-
drættinu að sýningunni lokinni á
sunnudag og vinningsnúmer birt í
blöðum næsta dag.
Sýningin verður opin kl.
13.30—17.00 á sunnudag. Útsýn
efndi til slíkrar kynningar fyrst ís-
lenzkra ferðaskrifstofa í fyrra, og
komu þá á þriðja þúsund gestir.
Nú verður sýningin íjölbreyttari,
og barna kann síðustu sætunum
-áð verða ráðstafað í margar, ferðir
dítsýnar, sem ekki hafa æpðjafn,
• eftíföóttar mörg.uaáanfarinór.4'
í " « (FréttatHkynning)