Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 30
30 MORGJJNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. MARZ1986 -----------------------------?----*------------------- Yfirl^sing* varðandi Vögguvísu eftir Olaf Hauk Símonarson Undirritaður vill taka eftirfar- andi fram varðandi sönglagið „Vögguvísa". 1) Kannað var sérstaklega hjá starfsmanni sönglagakeppninnar áðuren lagið var sent inn, hvort það bryti með einhverjum hætti í bága við reglur keppninnar, að lag hefði heyrst áður í leiksýníngu. Starfsmaður keppninnar upplýsti v að þó slík birtíng hefði átt sér stað væri lagið fyllilega gjaldgengt í keppninni. Starfsmenn sönglaga- keppninnar staðfesta að þessara upplýsínga hafi verið leitað og að þau svör hafi verið gefín, að ekkert væri athugavert við slíka birtíngu; lagið væri samt sem áður gjald- gengt. 2) Lagið, eins og það var flutt í leiksýníngunni, var um það bil þriðj- úngi styttra en það er í keppninni og tæplega þriðjúngur textans var aldrei fluttur á sviði og heldur ekki tengslum við sýnínguna. 3) Einúngis brot af laginu hefur verið leikið í sjónvarpi til kynníngar á leiksýningunni, þar er það borið fram sem hluti af lengra leiknu atriði enda samræmist það reglum keppninnar eftir því sem upplýst var fyrst af starfsmönnum keppn- innar og síðar af lögfræðíngi sjón- varpsins, Baldri Guðlaugssyni. 4) I svæðisútvarpi á Akureyri var einúngis flutt brot af undirleik lagsins, án söngs, án texta, enda var textann ekki til orðinn þegar viðkomandi brot var flutt inn í kynningar pistli frá leikhúsinu. Laglína kom þannig ekki fram. 5) Enginn fótur er fyrir því að lagið hafí verið leikið á rás 2. Slíks er hvergi geti í skýrslum samkvæmt upplýsíngum Þorgeirs Ástvaldsson- ar forstöðumanns rásarinnar, enda hefur engin greiðsla komið til höf- undar fyrir slíka birtíngu. Hafí slík birtíng einhverra hluta vegna átt sér stað eftir að sýníngum á leikrit- inu lauk, annaðhvort á hluta lagsins sem leikið var á Akureyri eða því öllu, þá hefur það verið flutt án leyfís eiganda höfundar og flutn- íngsréttar, þ.e.a.s. stolin upptaka, því í samníngi undirritaðs við Leik- félag Akureyrar er það strángt tekið fram að undirritaður sé einn eigandi að öllum tónlistarupptökum þar sem viðkomandi undirleikur heyrist og hafí einn óskoraðan ráð- stöfunarrétt á þeim. Leikfélag Akureyrar átti ekki og á ekki neinn rétt á að hafa undir höndum upp- töku á tónlistinni eftir að sýningum á viðkomandi leikriti lauk. Er það bundið í samníng undirritaðan af stjóm leikhússins. 6) Sá upptökumaður, Jónas R. Jónsson í Hljóðrita hf., sem vann að því ásamt höfundi og útsetjara, Gunnari Þórðarsyni, að lengja lagið Ólafur Haukur Símonarson og gánga frá því á segulbandi áður- en það var sentinní keppnina, vissi að lagið hafði heyrst í leiksýníngu á Akureyri. Jónas R. Jónsson var síðar skipaður í þá dómnefnd sem valdi lagið til keppninnar. Þessir menn, útsetjari og dómnefndarmað- ur, þekktu báðir feril lagsins og sá hvorugur ástæðu til að ætla að það væri ekki gjaldgengt í keppninni. 7) Vitanlega er á margra vitorði hveijir eru höfundar þeirra laga sem valin hafa verið í úrslitalotu Sönglagakeppninnar, enda fer ekki hjá því að tugir, ef ekki hundruðir manna komi við sögu undirbúníngs keppninnar, vinni að textagerð, upptökum o.s. frv., eða hafi heyrt lögin leikin meira eða minna opin- berlega. En um það ætti að vera samstaða að láta slíkt ekki hafa áhrif á val laga til keppninnar, jafnvel þó upplýsingar leki út eða séu fyrir hendi um höfunda; ekki á meðan lögin uppfylla öll önnur skil- yrði til að teljast gjaldgeng í keppn- inni. Það hlýtur að skipta megin- máli að lögin séu góð, að þau auki veg og virðingu sönglagahöfunda og flytjenda. Yfírlýsíng þessi hefur verið lesin fyrir Egil Eðvarðsson fram- kvæmdastjóra sönglagakeppninnar og hefur hann staðfest að þær upplýsingar sem hér koma fram séu í öllum atriðum réttar. Höfundur er rithöfundur Pening'amarkadurinn GENGIS- SKRÁNING Nr. 50. —13. mars 1986 Kr. Kr. Toll- Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala gengi DoIIiri 41,400 41,520 41,220 SLpund 60,465 61,640 60,552 Kan.doliari 29,619 29,705 28,947 Dönskkr. 4,8906 4,9048 5,0316 Norskkr. 5,7384 5,7551 5,9169 Senskkr. 5,6771 5,6935 5,7546 FLmark 8,0147 8,0379 8,1286 Fr.franki 5,8761 5,8931 6,0323 Belg. franki 0,8829 0,8855 0,9063 Sy.franki 21,4009 21,4629 21,9688 HoILgyllini 16,0124 16,0588 16,4321 ý-ji.mark 18,0798 18,1322 18,5580 ILlíra 0,02656 0,02664 0,02723 Austurr.ach. 2^780 2,5855 2,6410 PorLescudo 0,2742 0,2750 0,2823 Sp. pesetí 0,2878 0,2886 0,2936 Jap-yen 0,22968 0,23035 0,22850 írsktpund 54,631 54,790 56,080 SDB(SérsL 47,3155 47,4533 47^412 INNLÁNSVEXTIR: Sparísjóðsbœkur Landsbankinn................ 12,00% Útvegsbankinn............... 12,00% Búnaöarbankinn.............. 12,00% Iðnaðarbankinn.............. 13,00% Verzlunarbankinn............ 12,60% Samvinnubankinn............. 12,00% Alþýðubankinn............... 12,50% Sparisjóðir................. 12,00% Sparisjóðsreikningar með 3ja mánaða uppsögn Sparisjóðsreikningar með 3ja mánaða uppsögn Alþýðubankinn............... 14,00% Búnaðarbankinn.............. 13,00% Iðnaðarbankinn.............. 13,50% Landsbankinn................ 14,00% Samvinnubankinn............. 13,00% TH Sparisjóðir..................... 13,00% Útvegsbankinn............... 14,50% Verzlunarbankinn............. 14,00% með 6 mánaða uppsögn Alþýðubankinn............... 17,00% Búnaðarbankinn.............. 14,00% lönaðarbankinn.............. 15,00% Samvinnubankinn............. 17,00% ISparisjóðir........................... 14,00% Útvegsbankinn............... 15,50% Verzlunarbankinn............ 15,50% með 12 mánaða uppsögn Alþýöubankinn............... 18,50% Landsbankinn................ 15,00% Útvegsbankinn............... 18,00% Verðtryggðir reikningar miðað við lánskjaravísitölu -í með 3ja mánaða uppsögn Alþýðubankinn................ 1,50% Búnaðarbankinn............... 1,00% Iðnaðarbankinn............... 1,00% Landsbankinn................. 1,00% Samvinnubankinn.............. 1,00% Sparisjóðir.................. 1,00% Útvegsbankinn................ 1,00% Verzlunarbankinn............. 1,00% með 6 mánaða uppsögn Alþýöubankinn................ 3,50% Búnaðarbankinn............... 3,50% Iðnaðarbankinn............... 3,00% Landsbankinn....... ......... 3,50% Samvinnubankinn............. 3,00% Sparisjóðir................. 3,00% Útvegsbankinn............... 3,00% Verzlunarbankinn.... ..... 2,50% með18mánaða uppsögn: Samvinnubankinn............. 7,50% með 24 mánaða uppsögn: Samvinnubankinn............. 8,00% Að loknum binditíma 18 mánaða og 24 mánaða verðtryggðra reikninga Samvinnubankans er innstæða laus tvisvar á ári eins og á 6 mánaða reikn- ingum. Áv/sana- og hlaupareikningar: Alþýðubankinn - ávísanareikningar........ 11,00% - hlaupareikningar........... 4,00% Búnaðarbankinn............... 4,00% Iðnaðarbankinn............... 5,00% Landsbankinn................. 5,00% Samvinnubankinn.............. 4,00% Sparisjóðir.................. 4,00% Útvegsbankinn................ 5,00% Verzlunarbankinn')........... 5,00% Eigendur ávísanareikninga í Verzlun- arbankanum geta samið um ákveðna lágmarksinnstæðu á reikningi sínum og af henni eru reiknaðir almennir spari- sjóðsvextir auk uppbótar. Stjörnureikningar: Alþýðubankinn')......... 8-9,00% Alþýðubankinn býður þrjár tegundir Stjömureikninga og eru allir verð- tryggðir. I fyrsta lagi eru reikningar fyrir ungmenni yngri en 16 ára, með 8% vöxtum. Reikningurinn er bundinn þar til eigandinn hefur náð 16 ára aldri. í öðru lagi eru reikningar fyrir aldraða — lifeyrisþega — með 8% vöxtum. Upp- sagnarfrestur er mismunandi eftir aldri eiganda, 3 til 9 mánuðir. Vextir og verðbætur eru lausar til útborgunar í eitt ár. Þá eru þriggja Stjörnureikningar með 9% vöxtum. Hver innborgun er bundin í tvö ár. Vextir og verðbætur eru lausar til útborgunar i eitt ár. Afmælisreikningur Landsbankinn.......;....... 7,25% Afmælisreikningur Landsbankans er bundinn í 15 mánuði og ber 7,25% vexti og er verðtryggöur. Innstæða er laus í tvo mánuði eftir að binditíma lýk- ur. Heimilt er að leggja inn á reikninginn til31.desember1986. Safnlán - heimilislán - IB-tón - pkislán með 3ja til 5 mánaða bindingu Alþýðubankinn............... 14-17% Iðnaðarbankinn.............. 13,50% Landsbankinn................ 14,00% Sparisjóðir.................. 13,00% Samvinnubankinn............. 12,00% Útvegsbankinn............... 14,50% Verzlunarbankinn............ 14,00% 8 mánaða bindlngu eða lengur Alþýöubankinn................ 17,00% Iðnaðarbankinn.............. 14,00% Landsbankinn................ 15,00% Sparisjóðir.................. 14,00% Útvegsbankinn............... 15,50% Innlendir gjaldeyrísreikningar Bandaríkjadollar Alþýðubankinn................. 8,00% Búnaðarbankinn............... 7,00% Iðnaðarbankinn............... 7,00% Landsbankinn.................. 7,00% Samvinnubankinn............... 7,50% Sparisjóðir................... 7,50% Útvegsbankinn................ 7,00% Verzlunarbankinn...... .... 7,50% Steriingspund Alþýðubankinn................ 11,50% Búnaöarbankinn.............. 11,50% Iðnaöarbankinn.............. 11,00% Landsbankinn................. 11,50% Samvinnubankinn.............. 11,50% Sparisjóðir.................. 11,50% Útvegsbankinn............... 11,50% Verzlunarbankinn............. 11,50% Vestur-þýskmörk Alþýðubankinn................. 4,50% Búnaðarbankinn............... 3,50% Iðnaðarbankinn............... 4,00% Landsbankinn................. 3,50% Samvinnubankinn............... 4,50% Sparisjóðir................... 4,50% Útvegsbankinn................ 3,50% Verzlunarbankinn............. 4,50% Danskar krónur Alþýðubankinn................. 9,50% Búnaöarbankinn............... 7,00% Iðnaðarbankinn............... 8,00% Landsbankinn................. 7,00% Samvinnubankinn.............. 9,00% Sparisjóðir................... 8,00% Útvegsbankinn................ 7,00% Verzlunarbankinn............. 10,00% ÚTLÁN S VEXTIR: Almennirvíxlar{forvextir).. 19,50% Viðskiptavíxlar*) Landsbankinn................ 24,00% Sparisjóðir.................. 24,00% Skuldabréf, almenn................ 20,00% Viðskiptaskuldabróf*) Búnaðarbankinn...... ....... 24,50% Landsbankinn................ 24,50% Sparisjóðir.................. 24,50% *) I Útvegsbanka, Iðnaðarbanka, Verzlunarbanka, Samvinnubanka, Al- þýðubanka, Sparisjóði Akureyrar, Hafn- arfjarðar, Kópavogs, Reykjavíkur og nágrennis, Vélstjóra og i Keflavík eru viðskiptavíxlar og viðskiptaskuldabréf keypt miðað við ákveðið kaupgengi. Afurða- og rekstraríán í íslenskum krónum........... 19,25% í bandaríkjadollurum.......... 9,50% ísterlingspundum............. 14,25% ívestur-þýskum mörkum...... 6,00% ÍSDR........................ 10,00% Verðtryggð lán miðað við lánskjaravísítöiu í allt að Z'h ár................ 4%> lenguren 2'Aár.................. 5% Vanskilavextir.................. 23% Óverðtryggð skuldabréf útgefin fyrir 11.08. '84 .... 32,00% Skýringar við sérboð innlánsstofnana Landsbankinn: Ársvextir af kjörbók að 18,0% — ávöxtun hækkar eftir því sem inn- stæða er lengur óhreyfð. Á þriggja mánaða fresti er ávöxtun Kjörbókar borin saman við ávöxtun á þriggja mánaða verötryggöum reikningum og sú ávöxtun valin sem reynist hærri. Vextir eru reiknaðir tvisvar á ári á höfuð- stól. Kjörbók er óbundinn reikningur, en af hverri úttekt er reiknað 1% gjald. Ef reikningur er eyðilagður er úttektargjaldið 1,67%. Útvegsbankinn: Ábót er óbundinn reikning- ur. Borin er saman ávöxtun á óverðtryggðum reikningum og þriggja mánaða verðtryggðum reikningum og hærri ávöxtunin valin. Ef inn- stæða hefur verið hreyfð, reiknast almennir sparisjóðsvextir á reikninginn. Vextir eru færð- ir einu sinni á ári á höfuðstól, en veröbætur bætast við höfuðstól ef ávöxtun þríggja mán- aðareikningaervalin. Búnaðarbankinn: Sparibók ber allt að 18,0% vexti á ári — fara hækkandi eftir því sem innstæða er lengur óhreyfð. Gerður er samanburður við ávöxtun þriggja mánaða verötryggðra reikninga og ef hún er betri er hún valin. Vextir eru færöir tvisvar á ári á höfuð- stól. Ef tekið er út af reikningnum er reiknað 1 % úttektargjald og er það dregið frá áunnum vöxtum. Metbók Búnaðarbankans er bundinn reikningur til 18 mánaða. Hverju Innleggi er hægt að segja upp með 18 mánaða fyrirvara. Vextir eru lausir til útborgunar í 6 mánuði. Nafnvextir eru 19% og höfuðstólsfærslur vaxta tvisvar á ári. Gerður er samanburður á ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og Metbókar. Ávöxtun Metbókar er aldei lakari en ávöxtun 6 mánaöa reikninga. Verzlunarbanklnn: Kaskóreikningur. Þá ársfjórðunga (jan.—mars o.s.frv.) sem innstæða er óhreyfð eða einungis ein úttekt (eftir að lausir vextir hafa verið teknir út) fyfgja vextir þeim sparifjárreikningum bankans sem hæsta ávöxtun gefa. Af úttekinni fjárhæð reiknast almennir sparisjóðsvextir. Innstæða á Kaskóreikningi, sem stofnaður er í síðasta lagi á öðrum degi ársfjórðungs og stendur óhreyfö út ársfjórðunginn nýtur Kas- kókjara með sama hætti og innstæða á Kaskó- reikningi sem til hefur verið heilan ársfjórðung og fær hlutfallslegar verðbætur m.v. daga- fjölda í innleggsmánuði. Stofninnlegg siðar á ársfjórðungi fær hæstu ávöxtun í lok þess næsta á eftir sé reikningurinn í samræmi við reglur um Kaskókjör. Ef fleiri en ein úttekt er á ársfjórðungi, eftir að lausir vextir hafa verið teknir út, fær reikningurinn almenna spari- sjóðsvexti. Vextir og verðbætur leggjast við höfuðstól í lok hvers ársfjórðungs hafi reikn- ingurinn notið Kaskókjara. Vextir eru ávallt lausir og úttekt vaxta skerðir aldrei Kaskókjör. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur. Eftir því sem innstæða er lengur óhreyfð reiknast hærri vextir. Eftir tvo mánuði 13% vextir, eftir þrjá mánuði 14% o.s.frv. uns innstæða hefur verið óhreyfö í 6 mánuði þá reiknast 18% vextir. Áunnar vaxtahækkanir reiknast alttaf frá því aö lagt var Inn. Eftir 12 mánuði eru vextir 18,5% og eftir 18 mánuði 19% en þessar vaxtahækkanir eru ekki afturvirkar. Vaxtafærsla á höfuðstól er einu sinni á ári. Alþýðubankinn: Sérbók ber allt að 20% vexti en vextir hækka eftir því sem innstæða er lengur. Hver innstæða er meðhöndluð sérs- taklega. Höfuðstólsfærslur vaxta eru fjórum sinnum á ári. Þá er einnig gerður samanburður á ávöxtun Sérbókar og þriggja mánaða verð- tryggðra reikninga og sú hagstæðari valin. Sparísjóðir: Trompreikningar eru verð- tryggðir og bera auk þess grunnvexti 6 mán- aða verðtryggöra reikninga. Vextir eru færðir á höfuðstól fjórum sinnum á ári. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera sérstaka Trompvexti ef innstæða hefur verið óhreyfð í þrjá mánuði eða lengur, en annars almenna sparisjóðsbókarvexti. Sparisjóður Vélstjóra er einnig með Sparibók, sem er bundin í 12 mánuði og eru vextir 20%. Ávöxtun er borin saman við ávöxtun á sex mánaða verðtryggð- um reikningum og sú hagstæðari valin. Iðnaðarbankinn : Bónusreikningur er verð- tryggöur reikningur og ber 3% vexti. Óverð tryggð Bónuskjör eru 15% á ári. Mánaðarlega eru borin saman verðtryggð og óverðtryggð bónuskjör og ávöxtun miðuð við þau kjör sem eru hærri á hverjum tima. Hreyfðar innstæður bera sérstaka vexti. Vextir eru færðir á höfuð- stól tvisvar á ári. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili. Lífeyrissjóðslán: Lff eyríssjóður starfsmanna ríkisins: Lánsupphæð er nú 500 þúsund krónur og er lánið visitölubundið með lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 5%. Lánstimi er allt að 25 ár, en getur verið skemmri, óski lántakandi þess, og eins ef eign sú, sem veð er i er litilfjörleg, þá getur sjóðurinn stytt lánstímann. Greiðandi sjóðsfélagar geta sótt um lán úr lífeyrissjóðnum ef þeir hafa greitt iðgjöld til sjóðsins i tvö ár og tvo mánuði, miðað við fullt starf. Biðtími eftir láni er fjórir mánuöir frá því umsókn berst sjóðnum. Lffeyrissjóður verzlunarmanna: Lánsupphæð er nú, eftir 3ja ára aðild að lifeyr- issjóðnum, 216.000 krónur, en fyrir hvem árs- fjórðung umfram 3 ár bætast við lánið 18.000 krónur, unz sióðsfélagi hefur náð 5 ára aðild að sjóðnum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára sjóðs- aðild bætast við höfuðstól leyfilegar lánsupp- hæðar 9.000 krónur á hverjum ársfjórðungi, en eftir 10 ára sjóðsaðild er lánsupphæðin orðin 540.000 krónur. Eftir 10 ára aðild bætast við 4.500 krónur fyrir hvern ársfjórðung sem liöur. Því er í raun ekkert hámarkslán í sjóðn- um. Höfuðstóll lánsins er tryggður með láns- kjaravísrtölu, en lánsupphæðin ber nú 5% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár að vali lántakanda. Þá lánar sjóðurinn með skilyröum sérstök lán til þeirra, sem eru eignast sina fyrstu fasteign og hafa greitt til sjóðsins samfellt í 5 ár.kr. 590.000 til 37 ára. Lánskjaravísitala fyrir mars 1986 er 1428 stig en var 1396 stig fyrir febrúar 1986. Hækkun milli mánaðanna er 2,29%. Miðað er við vísitöluna 100 í júní 1979. Byggingavísitala fyrir janúar til mars 1986 er 250 stig og er þá miðað við 100 í janúar 1983. Handhafaskuldabréf í fasteignaviöskipt- um. Algengustu ársvextireru nú 18-20%. Nafnvextir m.v. Höfuðatóls Sérboð óverðtr. verðtr. Verðtrygg. fmrslur Óbundiðfé kjðr kjör tímabil vaxta á ári Landsbanki, Kjörbók: 1) ?—18,0 1,0 3mán. 2 Útvegsbanki, Ábót: 12-15,6 1,0 1 mán. 1 Búnaðarb., Sparib: 1) ?-18,0 1.0 3mán. 2 Verzlunarb., Kaskóreikn: 12,5-15,5 3,5 3mán. 4 Samvinnub., Hávaxtareikn: 12-19,0 1-3,5 3mán. 1 Alþýðub., Sérvaxtabók: 14-20,0 1.5 4 Sparisjóðir, Trompreikn: Bundlðfé: 16,5% 3,0 1 mán. 2 Búnaðarb., Metbók: 19,0 3,5 6mán. 2 Iðnaðarbanki, Bónus: 15,0 3,0 1 mán. 2 fP^aJfaleiSrléttirig (úftéktárgjaldj ór f,ð% 20,0 3,0 6mán. 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.