Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1986
3S
Ólafsvík:
Mikil þátttaka í
prófkjöri Al-
þýðuflokksins
Ólafsvik, 13. mars.
UM siðastliðna helgi fór fram
prófkjör tveg-gja framboðsaðila
í Ólafsvik vegna bæjarsljómar-
kosninganna á vori komanda.
Annars vegar hjá Alþýðuflokkn-
um, sem nú er i fyrsta sinn i 24
ár með sjálfstætt framboð, en
flokurinn hefur á undanförnum
árum staðið að H-listanum með
fleirum. Hins vegar var prófkjör
hjá L-lista, lýðræðissinnum, en
þeir eiga nú 2 fulltrúa af 7 í
bæjarstjóm.
Mikil þátttaka var í prófkjöri
Alþýðuflokksins, 107 tóku þátt. í
fyrsta sæti varð Sveinn Elinbergs-
son yfirkennari með 83 atkvæði í
1. sæti, 105 alls. í öðru sæti varð
Trausti Magnússon rafvirki með 59
atkvæði í 1.-2. sætið, 95 alls. í
þriðja sæti varð Sjöfn Aðalsteins-
dóttir bankamaður með 54 atkvæði
í 1.-3. sæti, 77 alls. í fjórða sæti
varð Kristín Guðmundsdóttir versl-
unarmaður og í fimmta sæti Börkur
Guðmundsson sjómaður. Bindandi
kosning var í öll þessi sæti.
Hjá lýðræðissinnum kusu 40
manns. I fyrsta sæti varð Kristján
Pálsson framkvæmdastjóri, í öðru
sæti Emmanúel Ragnarsson banka-
maður og í þriðja sæti Ragnheiður
Helgadóttir fóstra.
— Helgi
Samleikur á gitar og
orgel á Austfjörðum
SÍMON ívarsson gítarieikari og
dr. Orthulf Pmnner orgelleik-
ari halda þrenna tónleika á
Austfjörðum um helgina. Báðir
Borgarstjórn:
Ekki til umræðu að
fella kjarasamninga
— segir Sigurður E. Guðmundsson
Á FUNDI borgarstjómar
Reykjavíkur 6. mars sl. urðu
nokkrar umræður um nýgerða
kjarasamninga sem fulltrúar
allra flokka tóku þátt í. Af því
tilefni hefur Sigurður E. Guð-
mundsson, Alþýðuflokki, óskað
eftir að fá að skýra frá sjónar-
miðum sínum og flokksins sem
fram komu í umræðunum.
„Auðvitað er ljóst að lágu launin
mega ekki vera lægri og vitaskuld
er þörf á að þau hækki. í því
sambandi verður að hafa í huga að
gert er ráð fyrir að þeir tekjulægstu
fái sérstakar greiðslur tvisvar á ári
sem munu skila allt að 3,4% í
kaupmætti," sagði Sigurður. „Auk
þess hefur alla tíð verið litið þannig
á, að minnsta kosti í þeim Alþýðu-
flokki sem ég er fulltrúi fyrir í
borgarstjóm, að sem minnst verð-
bólgudýrtíð væri launafólki í hag.
Ekki síst þeim launalægstu."
Sigurður benti á að ekki mætti
gleyma þeim félagslegu umbótum
er kæmu til sögunnar eins og hjá
lífeyrissjóðum og í húsnæðismálum,
sem gagna hinum tekjulægstu sem
og öðrum. „í samingunum felast
það margir jákvæðir hlutir að ekki
er til umræðu að hafna þeim. Maður
veit hveiju er sleppt en ekki hvað
fæst í staðinn verði þeir felldir,"
sagði Sigurður að lokum.
Ferðaskrifstofan Polaris:
Sumaráætlun komin út
iial
FERÐASKRIFSTOFAN Polaris
sendir nú frá sér ferðabækling
og helgar hann ferðum til Mall-
orca og Ibiza.
Polaris tók við aðalumboði á ís-
landi fyrir bandaríska flugfélagið
Pan American 1976 og hefur starf-
að sem alhliða ferðaskrifstofa síðan
1978.
Allar götur síðan hefur ferða-
skrifstofan sérhæft sig í ferðum
vestur um haf og öðrum lengri
ferðum, jafnframt því að veita alla
hefðbundna þjónustu fyrir við-
skiptavini sína í orlofs- eða við-
skiptaferðum til Evrópu.
Nú er brotið blað í sögu ferða-
skrifstofunnar, með því að setja upp
Bíóhöllin:
Fyrsta páskamyndin frumsýnd
FÝRSTA páskamynd Bíóhallarinnar, bandariska gamanmyndin
„Njósnarar eins og við“, sem fjallar um njósnara í njósnaleiðangri,
hefur verið frumsýnd. Með aðalhlutverk fara þeir Chevy Chase og
Dan Aykroyd, leikstjóri er John Landis.
leiguflugsferðir til Mallorca og
Ibiza. Um er að ræða beint fram-
hald ferða, sem ferðaskrifstofan
Urval hefur verið með í fjöldamörg
ár við miklar vinsældir. Nú hefur
orðið að samkomulagi að Polaris
annist þennan rekstur.
Í Mallorca-ferðum sínum leggur
Polaris mesta áherzlu á ferðir fyrir
bamafólk, en einnig sérstakar ferð-
ir fyrir eldri borgara. Dvalið er á
Alcudia-ströndinni, sem hefur
byggst upp á síðustu árum, og er
nú án efa meðal fegurstu og best
búnu stranda á Spáni. Á Alcudia
verður starfandi pjakkaklúbburinn
sem var stofnaður í fyrra við miklar
vinsældir bama og foreldra. 75
pjakkar eiga kost á ókeypis ferð til
Alcudia.
Framkvæmdastjóri ferðaskrif-
stofunnar Pólaris er Karl Sigur-'
hjartarson fyrrum framkvæmda-
stjóri Úrvals og sölustjóri hjá Flug-
leiðum.
(Fréttatilkynning)
hafa leikið víða um land og
getið sér gott orð. Símon er nú
kennari við. Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar en Ort-
hulf Prunner er organisti við
Háteigskirkju og kennir m.a.
við Nýja tónlistarskólann.
Myndin að ofan er af þeim fé-
lögum Símoni og Orthulf.
Það mun vera harla óvenjulegt
að heyra leikið saman á gítar og
orgel, að því er segir í fréttatilkynn-
ingu frá listamönnunum. Bæði
hljóðfærin eiga sér margra alda
hefð og styðja hvort annað á hríf-
andi hátt.
Ifyrstu tónleikarnir eru í kirkj-
unni í Neskaupstað á laugardaginn
kl. 17. Á sunnudag kl. 20:30 leika
þeir í Egilsstaðakirkju og síðan í
Seyðisfjarðarkirkju á mánudags-
kvöldið kl. 21:00. Á efnisskránni
eru verk eftir J. Bach, A. Vivaldi
og Spánvetjann J. Rodrigo.
Samsýning
arkitekta:
„Hús til
^ sölu“
SÝNINGIN „Casa da Vendere" —
hús til sölu — samsýning arki-
tekta frá Bandaríkjunum, Sviss
og Portúgal, verður opnuð al-
menningi í Ásmundarsal við
Freyjugötu þann 16. mars. Sýn-
ingin verður opin út marsmánuð.
Samhliða sýningunni kemur
hingað þekktur svissneskur arkk''
tekt, Rudy Hunziker og heldur hann
fyrirlestur í Ásmundarsal miðviku-
daginn 19. mars kl. 20.30. Þeir
arkitektar sem eiga verk á samsýn-
ingunni — hús til sölu — , eru Rudy
Hunziker, Lugano, Sviss, Richard
Meir, New York, Bandaríkjunum,
Alvaro Siza, Portugal, Remo Leuz-
inger, Lugano, Sviss, Liviu Dimitr-
iu, New York, Bandaríkjunum, og
Bemegger Keuer og Quaglia, Lug-
ano, Sviss.
Sýningin verður opin daglega frá
14-22.
í
Leidrétting
f rá BSRB
BORIST hefur eftirfarandi leið-
rétting frá BSRB:
„Vegna mistaka hefur það rang-
hermi slæðst inn í fréttir í
BSRB-fréttum og fleiri blöðum, að
BHM skuli eiga fulltrúa í væntan-
legri nefnd til að endurskoða lífeyr-
issjóðslög. Hið rétta er, að þar mun
eiga sæti fulltrúi frá Launamálaráði
ríkisstarfsmanna innan BHM.
Beðist er velvirðingar á þessari
missögn."
Afrakstur vakningadag’a:
> _________
Utvarp Flensborg
Á MORGUN, laugardag, kl. 10.00
hefjast útsendingar hjá Útvarpi
Flensborg. Unnið hefur verið að
dagskrárgerð síðan miðvikudag-
inn 5. mars, en útsendingar munu
standa yfir laugardag og sunnu-
dag.
5. til 7. mars voru svokallaðir
vakningadagar í skólanum. Þá var
hefðbundið skólastarf brotið upp
og menn störfuðu í hópum að hinum
ýmsu verkefnum. Einn þessara
hópa var og er útvarpshópur, sem
í eru um 20 manns. Leiðbeinandi
hópsins yfír vakningadagana var
Stefán Jökulsson útvarpsmaður.
Sent verður út á tíðninni FM-96.7
(Mhz) og er áætlað að útvarpið
muni heyrast á öllu Stór-Reykjavík-
ursvæðinu.
Meðfylgjandi er dagskrá beggja
daganna:
Laugardagur 15. mars
10.00 Morgunþáttur.
11.00 Skemmtidagskrá. Þáttur um
skemmtidagskrá í skólanum
á vakningadögum.
12.00 Konfekt. Tónlistarþáttur,
algerlega laus við talað mál.
13.00 Hópastarf. Kynning á hóp-
unum sem störfuðu á vakn-
ingadögum.
14.00 Tónlistarþáttur ívars.
14.30 Hin hliðin. Viðtal við 3 kenn-
ara við skólann. Reynt að
fínna á þeim nýjar hliðar.
15.00 Tónlist. Halldór Magnússon.
15.30 Viðtal við spumingaliðs-
menn: Lið Flensborgarskóla
úr Denna-poppspuminga-
keppninni.
16.00 Grammy-verðlaunin 1985.
17.00 Oddatal.
17.30 Fréttir.
18.00 Vinsældalisti Flensborgara.
19.00 Stuðmenn.
19.30 íþróttir.
20.00 Rímur.
20.30 U2.
21.30 Fréttir.
22.00 Þungarokk
22.30 Jass.
23.00 Sterkir punktar. Bútar úr
gömlum gamanþáttum, létt
tónlist að auki.
24.00 Andvaka.
03.00 Dagskrárlok.
Sunnudagur 16. mars
10.00 Morgunþáttur.
ll.OOVerðandi embættismenn.
Verðandi forvígismenn í fé-
lagslífi nemenda í Flensborg
teknirtali.
11.30 Ellismellir
12.00 Eymakonfekt. Tónlistar-
þáttur án kynninga.
13.00 Hópastarf. (frh.)
14.00 Hinhliðin.
14.30 Eurovision-lög. Kynning á
lögunum sem koma til greina
í söngvakeppni sjónvarps-
stöðva.
15.30 Árshátíðarspjall. Árshátíf^
nemendafélagsins kynnt.
16.00 Spumingaþáttur. Spum-
ingakeppni milli kennara og
nemenda.
17.00 Óvinsældalistinn. Listi óvin-
sælustu laganna í Flensborg.
17.30 Fréttir.
17.33 Tónlist. Halldór Magnússon.
18.00 Skiptinemar. Viðtal við er-
lenda skiptinema í skólanum.
19.00 Eymakonfekt.
19.30 íþróttir.
20.30 Kvikmyndatónlist.
21.00 Bæjarmál. Fundur um bæj*-
armál, haldinn í Flensborg-
arskóla6. mars.
21.30 Fréttir.
21.33 DiraStraits.
22.00 Leiklist. Fjallað um leiklist-
arstarf í Hafnarfirði.
22.30 Tónlist. Valdimar Svavars-
son, Gísli Þ. Magnússon.
23.30 Tónlist. Þröstur Sverrisson.^
24.00 Dagskrárlok.