Morgunblaðið - 14.03.1986, Side 15

Morgunblaðið - 14.03.1986, Side 15
 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1986 Myndin er tekin á æfingn á leikritinu Kitium eftir Steinunni Jóhann- esdóttur. Það er Listaklúbbur Nemendafélags Fjölbrautaskólans á Akranesi sem stendur fyrir sýningunni. Á myndinni eru leikarar, höfundur og aðrir aðstandendur sýningarinnar. Jörundur Jóhannes- son sýnir í Jónshúsi JÖRUNDUR Jóhannesson list- málari opnaði málverkasýningu í Jónshúsi í Kaupmannahöfn sunnudaginn 2. mars síðastliðinn. Jörundur er búsettur í Dan- mörku. Þetta er önnur sýning hans. Jörundur byijaði sem landslagsmál- ari og málaði mest sjávarmyndir þar til hann aðhyltist súrrealisma. Olíumálverkin 14 sem eru á þessari sýningu eru öll í þeim stíl. Sýningin stendur til 22. mars. (Fréttatilkynning) Leikritið Kitlur frumsýnt í Fjölbrautaskólanum á Akranesi: Eg reyni að gefa unglingunum orðið — segir Steinunn Jóhannesdóttir höfundur og leikstjóri „LISTAKLÚBBUR Nemendafélags Fjölbrautaskólans á Akranesi fór þess á leit við mig að fá að sýna leikrit mitt „Dans á rósum“ og að ég yrði jafnframt leikstjóri þess. Þá sagði ég þeim frá þvi að ég ætti annað leikrit í handraðanum sem fjallaði eimitt um unglinga og ég taldi að væri frekar við þeirra hæfi. Þau vöidu það frekar" sagði Steinunn Jóhannesdóttir leikari. Unglingaleikritið „Kitlur“ eftir Steinunni verður frumsýnt í í dag, föstudag. Steinunn sagði að fyrir nokkrum árum hefði hún verið beðin um að skrifa leikrit um íslenska nútíma- unglinga og hefðu hún þá velt því fyrir sér hvaða tökum hún gæti tekið svo viðamikið verkefni. Hún ákvað að leita fanga hjá unglingun- um sjálfum. „Ég reyndi að skoða unglingana eins og þeir eru núna. Ég átti auðvelt með þetta þar sem ég er unglingamóðir og var í tengsl- um við hóp af unglingum. Auðvitað sóttu minningar frá mínum eigin unglingsárum einnig á mig“ sagði Steinunn. — Um hvað fjallar leikritið? „Leikritið fjallar um fyrstu ást fjögurra ungmenna, þeirra Ástu, Hlyns, Benna og Lottu. Hugmyndin varð til þegar ég var eitt sinn að skoða mig um í Breiðholtinu. Ég las í gegnum veggjarkrotið og sá þar ýmis skilaboð. Þar kenndi ýmissa grasa en ástaijátningamar voru mest áberandi. Þama sá ég mörg nöfn, en nöfnin fjögur, Ásta, Hlyn- ur, Benni og Lotta, komu oftast fyrir. Þar með var rammi leikritsins ákveðinn. Ég hafði velt því fyrir mér hvað væri merkilegast, hræði- legast og yndislegast við unglings- árin. Þama var svarið komið. Það var auðvitað sjálfur kynþroskinn og ástin. Fyrsta ástin." „Þessir fjórir unglingar eiga sér engar sérstakar fyrirmyndir. Krakkamir eru mjög ólíkir, koma frá ólíkum fjölskyldum og búa við ólíkar aðstæður, en samt sem áður eiga þeir mjög margt sameiginlegt. Unglingamir eru að búa sig undir lífið, hugsa mikið hver um annan og framtíðina. Sýnd em átök þeirra Fjölbrautarskólanum á Akranesi á milli og átök þeirra við foreldra sína. Skólinn kemur aðeins lítils- háttar við sögu." — Hvemig fannst þér að fylgjast með æfíngum á leikritinu? „Það var erfítt að setja þetta leikrit saman og tók mig langan tíma. Ég hef verið að vinna í því síðastliðin þijú sumur. En það er mjög gaman að sjá leikritið lifna og sjá hvemig krakkamir hafa tekið því. Leikritið hefur lítið breyst á loka- stiginu. Krakkamir hafa þó bent mér á orð og orð sem ég hef síðan breytt. En af því að leikritið hefur verið lengi í smíðum hef ég komist nær persónum þess og þær hafa smám saman orðið sterkari og tekið yfirhöndina. Kannski er þetta vegna þess að ég byggði ekki á minni eigin reynslu, en kannski vegna J>ess að maður er alltaf unglingur. Ég reyni að gefa unglingunum orðið og ég held að það sé ekki allt of mikið gert af því“ sagði Steinunn að lokum. Með aðalhlutverk fara Þóra Jóns- dóttir, Bjami Ármannsson, Kristján Kristinsson og Bjamheiður Halls- dóttir. Alls taka 22 leikarar þátt í sýningunni og þar af eru tveir gestaleikarar, níu ára gamlir nem- endur í Grunnskólanum á Akranesi. Einnig koma fram fiðluleikari og flautuleikari. Milli 30 og 40 manns starfa við sýninguna og hafa nem- endur Fjölbrautarskólans séð um allt sem til þarf í sýninguna, bún- inga, leikmynd, lýsingu o.fl. Að lokum má geta þess að leik- ritið Kitlur hefur verið tekið inn i bókmenntakennslu í Fjölbrauta- skólanum á Akranesi. Síöustu sýningar á Reykjavíkursögum ÁTTATÍU sýningar hafa nú verið á Reykjavíkursögum Ástu, sem Kjallaraleikhúsið hefur sýnt að undanförnu, en nú eru aðeins tvær vikur eftir. Sýningar verða m.a. um helgina. Leikgerð og leikstjóm annast Helga Bachmann. Leikendur eru: Emil Gunnar Guðmundsson, Guð- laug María Bjamadóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Helgi Skúlason og Þorsteinn M. Jónsson. Leikmynd og búningar eru eftir Steinunni Þórarinsdóttur, tónlist eftir Guðna Franzson og lýsingu annast Sveinn Benediktsson. — »n í hlufyerki sinu sögum Ástu“. Iðnverkhf, byggingaþjónustan Nóatúni 17, hefur flutt starfsemi sína í nýtt og glæsilegt húsnæði að Hátúni 6a (Fönixhúsið). Af þessu tilefni höfum við opið um helgina 15. og 16. mars og sýnum fram- leiðsluvörur 12 íslenskra fyrirtækja í byggingariðn- aði. Húsbyggjendum og húseigendum gefst hér tækifæri til að kynna sér allt er þarf til húsbygginga og innréttinga á einum og sama staðnum. Affar vörur á verksmiðjuverðs Komið við um helgina og fáið upplýsingar og ráðgjöf um verð og gæði íslenskrar framleiðslu. Hafið teikningarnar með og við leitum tilboða í alla byggingarþætti. Gerum einnig bein tilboð í ýmsa verkþætti. Veríð veikomin ísfenskra fyrírtækja: ■ Rammihf l “PfiíiaSuðumesja ■ rre-X-TresmiA;a h * . ■ GJerborghf ■ ™*<9«*Suðumesia - lívSS**"" ■SrTr09rá5®0' ■ Loftorkahf ■ Harpa hf ^mHl^rksmidianh/f IÐNVERK HF BYGGINGAÞJÓNUSTA Hátúni 6a-Sími: 25945-25930 i.’PúTM'HBSrerr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.