Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.03.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1986 27 Filippseyjar: Nunnur reyna að fá kommúnista til að hætta andspyrnu Manila, 13. mars. AP. SAUTJAN nunnur héldu í dag til eynnar Samar og munu þær freista þess að fá kommúnista til að leggja niður vopn. Skæru- iiðar kommúnista hafa um langt árabil átt í útistöðum við stjórn- arherinn. Nunnumar fara í umboði Corazon Aquino, forseta, og er ætlan þeirra að sannfæra skæru- liða að nú sé lag til að knýja fram umbætur með friðsamlegum hætti. Hafa þær fengið hersveitir, sem kljást við skæruliða, til að halda sig í stöðvum sínum meðan á friðammleitan stendur. Aquino hefur sagst ætia að lýsa yfír sex mánaða vopnahléi í stríð- inu við skæruliða, sem ekki hafa þó enn þegið boð hennar. Ráð- herrar í stjóm Aquino hafa lagt til að sett verði á laggimar nefnd, sem hafi það hlutverk að undirbúa sakaruppgjöf skæruliða. Sakar- uppgjöf yrði háð því skilyrði að þeir legðu niður vopn. Talið er að skæruliðar séu á bilinu 12—30 þúsund, en aðeins fáir þeirra séu harðlínumenn. Ferdinand Marcos, fyrmrn Fil- ippseyjaforseta, gengur illa að kaupa sér hús á Hawaii og skýrði fulltrúi bandaríska vamarmála- ráðuneytisins frá því að kostnaður ríkisins vegna Marcosar sé orðinn a.m.k. 450 þúsund dollarar, eða um 20 millj. ísl. króna. Vistun og varzla Marcosar og föruneytis hans i Hickam-flugstöðinni hefur þegar kostað um 250 þúsund dollara, eða 10 millj. ísl. króna, og þá var beinn kostnaður við að flytja hersinguna og hafurtask hennar frá Filippseyjum 200 þús- und dollarar. Óljóst er hvort Marcosi verði gert að greiða hluta þessa kostnaðar, en inni í dæminu em símasamtöl til útlanda og reikningur vegna úttektar í þjón- ustufyrirtækjum hersins í Hickaa og Guam að upphæð fleiri þúsund dollarar. Reikningur í Sviss Talsmaður nefndar, sem vinnur að því að kanna „eigur" Marcosar, sagði að í dag hefði verið upp- götvaður bankareikningur í naftii Marcosar í svissneskum banka og væri á honum 800 milljóna dollara innstæða, eða rúmlega 30 millj- arðar ísl. kr. í gær var bönkum skipað að „frysta inni“ allar eigur fyrram ráðherra. Bandarísk tollyfírvöld hafa fallizt á að afhenda bandarískri þingnefnd, sem kannar hversu miklar eignir Marcos á í Banda- ríkjunum, ljósrit af skjölum sem Marcos hafði meðferðis á flóttan- um frá Filippseyjum. Talið er að þar sé að fínna ýtarlegar upplýs- ingar um fasteignir hans og bankareikninga. Þá em fulltrúar stjómar Aquino komnir til Banda- ríkjanna til að vinna að því að stjóminni í Manila verði fengnar eigur Marcosar þar í landi. Talið er að fasteignir, sem Marcos hefur keypt í Bandaríkjunum og víðar, og innstæður á bankareikningum í hans nafni, nemi að verðmæti allt að 10 milljörðum dollara, eða rúmlega 400 milljörðum íslenzkra króna. Stjóm Corazon heldur því fram að þessir fjármunir séu eign fílippísku þjóðarinnar og vill því komast yfír þær. Fabian C. Ver, yfírmanni her- afla Filippseyja í tíð Marcosar, var í dag stefnt fyrir rétt á Hawaii vegna meintra peningagreiðslna til háttsettra manna í Manila i sambandi við framkvæmdir á vegum hersins, sem borgaðar vom af hemaðaraðstoð Banda- ríkjamanna. Hjákona Marcosar í vandræðum Dovie Beams Devillagran, fyrr- um hjákona Marcosar, hefur ósk- að eftir greiðslustöðvun meðan hún endurskipuleggur fjármál sín, en hún er umvafín skuldum. I umsókn sinni tilgreinir hún 110 lánardrottna, sem hún skuldar. Skuldar hún átta fjármálastofn- unum 3,3 milljónir dollara, þar af Bank of America eina milljón og Imperial Bank 900.000 dollara. Frú Devillagran tilgreinir engar eigur en ásamt manni sínum, Sergio Devillagran, er hún talin eiga fasteignir í Los Angeles og nágrenni að verðmæti 7,7 milljóna dollara. Em þær ýmist skráðar á hennar nafn eða þeirra hjóna. Hún var ástkona Marcosar á ámnum 1968—1970 og heldur þingmaður því fram að landareign hennar í Pasadena, sem á er 30 herbergja glæsihús, sé keypt fyrir peninga, sem Marcos lét henni í té. Frú Devillagran er 53 ára og fyrrver- andi kvikmyndaleikkona. AP/Símamynd Húseign, sem Ferdinand Marcos, fyrrum Filippseyjaforseti, hefur fengið augastað á á Hawaii. Hefur hann staðið í samningum við húseigendur en samkomulag ekki enn tekizt. Húsið er í Manoa-hverfi í Honolulu. , Stór- rymingar- sala Tilboð þessaviku!! Bolir150—195 Buxur 250—395 Peysur 250—350 Jogging peysur 250 kr. Mikið úrval af skóm Lakkskór m. háum og lágum hæl verð 395 Barnastrigaskór og stígvél verð 299 Strigaskór nr. 37—45 verð frá 890 Dra9tir~~verö kr. 950 Kuldaúlpur. Verð kr 1 oon ------- kar. lvær gerðir. Verð frá kr 290 r'290 Herrablússur. Verö tráyer0 kr. 1.490 Herra- og * 1.t90 Barnaioggrnggallar. 490 Herraskyrtur, m'k.ö urval . ve ^ í irx/al af barnasokkum. vero ________ -gængurverasett. Verð kr. 40 nespulopiioogr.Verð20kr------1-----------------_ ------------------------ jqq Meknar kassettur. Hiióntplbtur. vo^kn «^^^VerðivjW. °g Ódýra hornið Verö frá kr. 10 — 200 Sælgæti, gjafavörur o.fl. o.fl. Heitt á könnunni Greiöslukortaþjónusta Við opnum kl. 10 árdegis Vöruloftió Sigtúni 3, sími 83075 Gluggatjaldaefni í geysilegu úrvali. Verð frá 100 kr. rn. Stórís-efni. Verð frá 125 kr. m.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.