Morgunblaðið - 14.03.1986, Side 36

Morgunblaðið - 14.03.1986, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR14. MARZ1986 Búnaðarfélag Dyrhólahrepps: Neyðarástand skapast fáist ekki leiðrétting MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfrandi ályktanir frá Búnað- arfélagi Dyrhólahrepps: Fundur haldinn í Búnaðarfélagi Dyrhólahrepps að Ketilsstöðum 15. febrúar ’86 skorar á landbúnaðar- ráðherra og Framleiðsluráð, að endurskoða nýlega afgreitt fullvirð- isbúmark í mjólk, til bænda í Vest- ^ur-Skaftafellssýslu. Vart verður unað við svo mikla framleiðslu- skerðingu og bendir fundurinn á eftirfarandi {því sambandi. 1. Að fáir atvinnumöguleikar eru í héraðinu, sem bætt geta bænd- um upp þá miklu tekjuskerðingu sem hér um ræðir, þar sem landbúnaður er nær eina tekju- greinin og mjólkurframleiðsla aðal undirstaðan. 2. Lítið virðist vera tekið tillit til þess í fullvirðisútreikningi að viðmiðunarárin eru flest þau erfíðustu um langan tíma hér um slóðir og því iítt viðmiðunar- hæf. 3. Þá átelur fundurinn harðlega 3». þau vinnubrögð, að setja á þessa miklu framleiðsluskerðingu á miðju framleiðsluári og bændur því hagað framleiðslu sinni á allt annan hátt en hefði fram- leiðslumagni verið úthlutað strax á haustnóttum. 4. Svo virðist sem lítið eða ekkert tillit hafí verið tekið til þeirra, sem sjálfviljugir drógu saman framleiðslu, eftir beiðni Fram- leiðsluráðs, eins þeirra sem í uppbyggingu eru og hafa verið, þeirra hagur verður eflaust al- verstur. Þar er í flestum tilfellum um verulegar skuldabyrðar að ræða og lítil von fyrir dyrum ef leiðrétting fæst ekki eða aðstoð í öðru formi. Þá verða framleið- endur sem átt hafa í erfíðleikum með heilsufar kúa sinna á við- miðunarárum sérlega illa úti þar sem mjólkurmagn hefur þá í mörgum tilfellum verið í lág- marki. Þarna þurfa að koma til vottorð dýralækna eða ráðu- nauta til leiðréttingar. 5. Fundurinn bendir á í þessu sambandi hvort ekki megi taka fé úr Framleiðnisjóði landbúnað- arins sbr. 2. málsgr. 37. gr. laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Þá telur fundur- inn að auknar niðurgreiðslur á mjólk myndu stórauka sölu. 6. Fundurinn vill undirstrika þá staðreynd að landbúnaður á Is- landi er langminnst styrktur af öllum Evrópulöndum. 7. Fundurinn óttast mjög ef fram- fylgt verður þeirri miklu skerð- ingu á mjólkurframleiðslu sem boðuð hefur verið, komi til veru- legrar vöntunar á mjólk á fyrsta verðlagssvæði er líða tekur á Hljómleikar Lúðrasveit- ar Stykkishólms Styklcishólmi, 10. mars. LÚÐRASVEIT Stykkishólms efndi til tónleika í Félagsheimil- inu hér í gær. Var mikið fjöl- menni viðstatt og tók tónleikun- um af miklum fögnuði. Tónleikar þessir voru fjölbreyttir að efnis- vali, og það eina sem ég saknaði var að það vantaði á efnisskrána íslensk lög, þvi við eigum svo mikið af fallegum islenskum lögum eftir mörg tónskáld. Það var mikil ánægja að heyra hversu hinir ungu og ágætu meðlimir lúðrasveitarinnar hafa tekið ■►miklum framförum í vetur og eru samvaldir og leiknir á hin ýmsu hljóðfæri. Alls léku þarna 24 hljóðfæraleikarar og ágætur var einleikur Sólveigar Guð- mundsdóttur. 'Það er erfítt að gera upp á milli hljóðfæraleikaranna, samtökin voru góð og ótrúlegt hvað þeim tókst í erfíðum viðfangsefnum. Það er því mikill fengur fyrir Stykkishólm að eiga svona sveit sem kemur fram við ýmis hátíðleg tækifæri. Stjóm- andinn, Daði Þór Einarsson, skóla- stjóri Tónlistarskólans, hefir lagt sig mjög fram og kemur það vel fram í leik sveitarinnar. Hljóð- færaleikaramir hafa lagt sig fram enda til mikils að vinna því nú ætlar lúðrasveitin að fara um Norðurlönd- in Danmörku, Svíþjóð og Finnland, heilsa upp á vinabæi Stykkishólms og halda þar tónleika. Verður þetta hálfsmánaðarferðalegíjúnímánuði. Á tónleikunum í gær kom yngri lúðrasveitin fram undir stjóm Haf- steins Sigurðssonar tónlistarkenn- ara og vakti hún fögnuð áheyrenda. Báðum sveitunum var klappað lof í lófa og þær kallaðar fram til aukalaga. — Arni sumarið og menn búnir að fylla í sinn mjólkurkvóta. 8. Þá leggur fundurinn áherslu á þá staðreynd, að fáist ekki vem- lega leiðrétting á fullvirðisrétti í mjólkurframleiðslu í vestur- Skaftafellssýslu hlýtur að skap- ast neyðarástand á svæðinu, sem bitna mun ekki einungis á bændum en einnig þeim sem hafa óbeint framfæri sitt af landbúnaðarafurðum. Fundur haldinn í Búnaðarfélagi Dyrhólahrepps, 15. febrúar 1986, skorar á þingmenn Suðurlandskjör- dæmis, að þeir beiti sér fyrir því af alefii, að stöðvaður verði, allur innflutningur landbúnaðarvara til Vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Ef það mætti verða til þess að létta aðeins á þeirri miklu umfram fram- leiðslu landbúnaðarvara sem nú er í landinu. Fundur í Búnaðarfélagi Dyr- hólahrepps, haldinn að Ketilsstöð- um 15. febrúar 1986, skorar ein- dregið á Mjólkursamsöluna og Mjólkurbú Flóamanna, að hefja nú þegar framleiðslu, sölu og dreifingu á */< 1 femum með venjulegri geril- sneyddri nýmjólk. Þægilega út- búnum til drykkjar, t.d. í nesti fyrir skólaböm, böm í dagvistun, skyndi- bitastaði, o.fl. En mjólk í þannig pakkningum virðist einmitt vanta á markaðinn. Fundurinn bendir á að þetta yrði ódýrasti og hollasti drykkjarkosturinn fyrir neytendur og um leið sá þjóðhagslega hag- stæðasti, mundi að öllum líkindum stórauka mjólkursölu og þá um leið minnka tannskemmdir og fl. kvilla. Þá bendir fundurinn á þá staðreynd að sumar af þeim drykkjarvörum sem nú keppa við mjólkina, em blandaðar rotvamarefnum og hlýt- ur mjólkin að hafa þar yfírburði hvað hollustu snertir. Morgunblaðið/Emilía Birna Karlsdóttir starfsmaður Byggingaþjónustunnar með „litla lífvörðinn“ um hálsinn, öryggistæki fyrir aldraða og sjúka, sem hægt er að senda boð með til stjórnstöðvar allan sólarhringinn. Tryggingastofnun greiðir nú 70% af stofnkostnaði þessa tækis. Fyrir aftan hana er eldvarnarstjómstöð til nota í stærri byggingum, en stöðin hringir sjálf á siökkvilið ef boð koma frá reyk- og hita- skynjurum staðsettum viða um bygginguna. Sýning í Byggingaþjónustunni: Fleiri fá sér bruna- °g þjófavarnartæki SÝNING á bruna- og þjófavöra- um stendur nú yfir i húsakynn- um byggingarþjónustunnar við Hallveigarstíg. Rúmlega tutt- ugu fyrirtæki sýna þar vörur sínar, og fulltrúar frá Bruna- málastofnun rikisins, Bruna- varðafélagi Reykjavíkur, Eld- vamaeftirliti Reykjavikur, Landsambandi slökkviliðs- manna, Lögreglustjóranum í Reykjavik, Siglingamálastofnun rikisins og Slökkvistöð Reykja- vikur veita almenningi upplýs- ingar og ráðgjöf. Á sýningunni eru nokkrar teg- undir slökkvi- og eldvamartækja, þjófavamarkerfí, reykskynjarar og hitaskynjarar, eldvamargler, auk ýmissa efna á heimilum og stofn- unum sem eru eldvarin svo sem eldvarin gluggatjaldaefni, lökk, málning, hurðahúnar og fleira. Þá má sjá aðvörunarkerfí fyrir stofn- anir og fyrirtæki sem tengd eru mörgum vistarverum, kerfi sem sjá sjálf um að hafa samband við slökkvilið. Þama eru einnig þráð- laus öryggiskerfí fyrir aldraða og sjúka, lítil tæki sem sjúklingar hafa á sér, og ef eitthvað kemur fyrir þá, þrýsta þeir á tækið og um leið kviknar ljós í stjómstöð og aðstoð er send samstundis. Að sögn Baldurs Ágústssonar sem er með margs konar viðvörunartæki á vegum fyrirtækisins Vara, hefur almenningur í ríkara mæli fengið sér margs konar þjófavamarkerfí á undanfömum árum, til eru þráð- laus þjófavamarkerfí sem gætt geta um 300 fermetra húsnæðis, og auk hljóðmerkja er hægt að tengja þau við síma, þannig að þau hringi í ákveðin númer ef óvæntur umgangur eða hávaði á sér stað. Byggingaþjónustan er opin virka daga frá 10-18 og frá 14-18 um helgar meðan á sýningunni stendur, en henni lýkur í vikunni eftir páska. Lögregluf élag Kópavogs mótmæl- ir breytingum á skipan löggæslu Á FÉLAGSFUNDI, sem haldinn var í Lögreglufélagi Kópavogs nýverið var mótmælt harðlega þeim fullyrðingum fulltrúa dómsmálaráðuneytisins í fjöl- miðlum, að viðbrögð lögreglu- manna við fyrirhuguðum breyt- ingum á skipan lögreglumála á höfuðborgarsvæðinu hafi verið jákvæð. í fréttatilkynningu frá Lögreglu- félagi Kópavogs segir að félagið mótmæli harðlega fyrirhuguðum breytingum og hugmyndum um sameiningu lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu og telur að í þeim felist skerðing á öryggi og þjónustu við íbúa Kópavogs og vísar til ítar- legrar greinargerðar sem Lögreglu- félagið hefur samið um þessi mál. Þá bendir fundurinn á að bæjar- ráð og bæjarstjóm Kópavogs hafi einróma mótmælt harðlega þessum fyrirhuguðu breytingum á löggæsl- 9* raðauglýsingar raðauglýsingar raðauglýsingar 4 Egilsstaðir Sjálfstæðismenn á Egilsstöðum lýsa eftir framboðum til prófkjörs vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Tilkynningar berist Jónasi Jóhannssyni, Brávöllum 9, sími 1465, fyrir kl. 18.00,16. mars nk. Sjálfstæðisfólagið Egilsstöðum. Seltirningar — félagsvist Spiluö verður félagavist að Austurströnd 3, mánudaginn 17. mars kl. 2Q,3CL Mætum s^m flest stundvislega. - : Sljórnir.Sjálfstæðisfélaganna. Patreksfjörður — prófkjör Prófkjör Sjálfstaeðisflokksins á Patreksfirði, vegna sveitarstjórnar- kosninga 31. mai, verður haldið laugardaginn 15. mars nk. i Félags- heimili Patreksfjarðar. Kjörfundur hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 18.00. Rétt til þátttöku í prófkjörinu hafa allir 18 ára og eldri: a) flokksbundnir sjálfstæðismenn, b) þeir sem sækja um inngöngu i sjálfstæðisfélagið Skjöld fyrir lok kjörfundar, c) þeir sem undirrita stuðningsyfirlýsingu. Við hvetjum alla sjálfstæðismenn og stuðningsmenn þeirra til að taka þátt i prófkjörinu. Kjörnefnd. Akranes Almennur fundur verður haldinn í Sjálfstæöishúinu við Heiðargerði mánudaginn 17. mars kl. 21.00. Dagskrá: Ingimundur Sigurpálsson bæjarstjóri skýrir fjárhagsáætlun Akranes- kaupstaftar fyrir árlð t986. Bæjarfulltrúar-Sjálfstæöisflokksins mæta á fundinn. ‘ —Sjálfstaéóisféiögin Akranesi. HFIMDAL1.UR Heimsókn í Rangárþing Farið verður í dagsferð i Rangárvallasýslu laugardaginn 15. mars nk. Lagt verður af stað frá Valhöll kl. 9.00 árdegis og hádegisverður snæddur á Hvolsvelli. Stórbýlið Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum verður heimsótt og byggöasafnið i Skógum skoðað. Þátttaka tilkynnist i síma 82900. Félagsmenn hvattir til að fjölmenna. Stjórn Heimdallar. Sjálfstæðisfél. Kjalnesinga heidur fund mánudaginn 17. mars i Fólkvangi kl. 20.30. Dagskrá: Komandl sveitarstjórnarkosningar. - . . -' §tjÓrnio.\:'

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.