Morgunblaðið - 14.03.1986, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 14. MARZ 1986
----------------------,-------f-H------I----------------
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guömundsson
„Kæri stjömuspekiþáttur. Ég
er fædd (stúlka) í vogarmerk-
inu þann 7. október kl. 10.15
1962 í Reykjavík að kvöldi
til. Mig langar til að biðja þig
um að ráða fram úr þessari
persónu fyrir mig og segja
mér hvaða atvinnugrein hæfir
mér best. Með fyrirfram þökk
fyrir birtingu."
Svar:
Þú hefur Sól og Merkúr í
Vog, Tungl í Steingeit, Venus
í Sporðdreka, Mars í Krabba,
Krabba Rísandi og Vatnsbera
á Miðhimni.
Listrœn
Sól í Vog táknar að þú ert
félagslynd. Þú finnur sjálfa
þig í gegnum félagslegt
samstarf. Vog sem einangrar
sig og starfar ekki með öðrum
tapar lífsgleði og lífsorku. Þar
sem Sólin er í 5. húsi í korti
þínu þarft þú að fá útrás fyrir
sterka sköpunarþörf og því
er einhver listræn tjáning
æskileg. Ef þú kemur ekki
til með að starfa á listasviði
ættir þú að fást við listsköpun
í tómstundum. Sól, Venus í
5. húsi gefur einnig til kynna
gott samband við böm og
hæfileika til að starfa með
bömum. Að öðru leyti má
segja að þú leggur áherslu á
að vera kurteis og tillitsöm
og hefur sterka réttlætis-
kennd.
Varkár
Tungl í Steingeit og Venus í
Sporðdreka táknar að þú ert
tilfínningalega íhaldssöm og
varkár. í dagiegu lífí þarft
þú öryggi og þú leitar öryggis
í samböndum, t.d. hjóna-
bandi. Þú ert tilfinningalega
dul, en getur átt það til að
vera misjöfn, ert ýmist til-
finningaheit en átt síðan til
að loka á tilfinningar þínar.
Hlédrœgen kröftug
Krabbi Rísandi og Mars í
Krabba tákna að þú ert frekar
hlédræg í framkomu en eigi
að síður kraftmikil. Þú ert
frekar varkár en gengur af
ákveðni að þeim málum sem
þú fæst við. Mars rísandi er
ekki óalgeng staða hjá
íþróttamönnum eða þeim sem
þurfa að hreyfa sig mikið í
daglegu lífi. Krabbi rísandi
táknar einnig að þú ert næm
á umhverfi þitt, ert um-
hyggjusöm og hlý. Þú hefur
hins vegar tilhneigingu til að
setja skel í kringum þig og
hleypa einungis fáum og góð-
um vinum að þér.
Félagslynd
Ég vil ekki, í svo stuttum
þáttum sem þessum, koma
með ákveðnar fullyrðingar í
sambandi við atvinnu. Þó má
geta þess að störf að félags-
málum ættu að henta þér
(Vog). Þau störf gætu tengst
uppeldismálum og kennslu
(Krabbi og 5. hús). Ýmislegt
í korti þínu bendir til list-
rænna hæfileika. Tungl í
Steingeit táknar hins vegar
að þú ert jarðbundin og þarft
öryggi í daglegu lífi og því
er ekki víst að iistræn störf
muni henta þér. Vog og
Steingeit saman gefa vís-
bendingu um hæfileika í fé-
lagslegum stjómunarstörfum
og stjómmálum. Að lokum
má geta þess að þú hefur
Júpíter á Miðhimni. Slík staða
er algeng hjá fólki sem fæst
við ferðamál, lögfræði,
menntamál o.þ.h.
:::::::: ::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::: ::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::: —
::::::::::::::::: ::::::::: :::::::::
Cafífí/&/>//.. SrfPc/ r/í 7
prp sr/vp/ rvá/////.
pw/vr. epvrsrsóur-.
X-9
'AmrmnssM
//P/vr/i yrMftl
DYRAGLENS
HAMNERENN
‘A EFTIR. OKKUR l
,.5L APPAPÚ
AV J — HAMM ]
ER. BAf2A
SYNPA SÉ(2
T/L SKEMMT-j
UNAR-J
LJOSKA
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
SMÁFÓLK
N0THIN6? ITN / WHAT I ^
LOOKS LIKE MEANT
YOU'RE UJAS
BUILPIN6 A N0THIN6
ROCK LJALL / IMPORTANT
i c
V W
FA5CINATINé...50MEB0PV
U5ELE5S WATCHIN6
SOMEBOPY P0IN6
50METHIN6 UNIMPORTANT..
Hvað ertu að gera, Lalli? Ekki neitt? Mér sýnist þú Er þér sama þó að ég horfi Stórkostlegt... gagnslaus
Ekkineitt vera að hlaða steinvegg. á? maður að horfa á m«nn
Ég átti við að það væri að gera eitthvað ómerki-
ekkert merkilegt. legt...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Sagnir N/S í spilinu hér að
neðan eru klunnalegar, enda
samningurinn eftir því: al-
slemma þar sem vantar KlOxxx
í annan lykillitinn: Suður gefur.
Norður
♦ D98
VG105
♦ KD1098
♦ ÁK
Vestur Austur
♦ 532 ♦KIO
♦ D642 V 983
♦ 754 *G32
♦ 1098 ♦ 76542
Suður
♦ ÁG764
♦ ÁK7
♦ Á6
♦ DG3
Vestur Norður Austur Suður
2grönd
Pass 4 grönd Pass 5 spaðar
Pass 7 grönd Allir pass
Opnun suðurs á tveimur
gröndum með fímmlit í spaða
verður að teljast fremur vafa-
söm, og ennfremur er leti norð-
urs ekki til fyrirmyndar, að
stökkva beint í ásaspumingu og
láta svo vaða í 7 grönd. Sjö tígl-
ar gæti hæglega verið betri
samningur. Hvað sem því líður,
þá virðist sem N/S hafi verið á
skotskónum, því spilið vinnst
auðveldlega vegna hagstæðrar
legu ( spaðanum. En ekki má
gleyma mannlega þættinum.
Vestur spilaði út lauftíunni.
Blindur átti slaginn og sagnhafi
spilaði strax spaðaáttunni úr
blindum. Austur lét kónginn
umhugsunarlaust! Suður drap á
ásinn og fullviss um að kóngur-
inn hefði verið einn á ferð, svín-
aði hann spaðaníunni í næsta
slag. Austur fékk á tíuna og
hafði uppskorið ríflega fyrir
hugmyndaflug sitt.
Spilamennska sagnhafa var
kolröng. f fyrsta lagi er betra
að byija á því að spila út spaða-
drottningu, í þeim tilgangi að
svína fyrir K10 í austur. Iöðru
lagi hefði sagnhafi auðvitað átt
að prófa tígulinn áður en hann
svínaði fyrir spaðatíuna, því ef
hann brotnar 3—3 þarf sagnhafi
ekki nema þijá slagi á spaða.
En sjónhverfing austurs var svo
sannfærandi að suður nennti
ekki að velta spilinu fyrir sér.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á hraðskákmótinu í Búnaðar-
bankanum um daginn kom þessi
staða upp ! skák þeirra Karls
Þorsteins, sem hafði hvitt og átti
leik, og Hollandsmeistarans,
Pauls Van der Sterren. Hvítur
er manni undir og svartur virðist
kominn með gagnsókn, en Karl
fann eina leikinn:
37. Re6! (Nú verður svartur mát
eða tapar drottningunni) Rxe6,
38. Df7+ og svartur gafst upp.
Mikhail Tal sigraði með yfirburð-
um á hraðskákmótinu, en Jóhann
Hjartarson varð annar. Af 16
þátttakendum voru 10 stórmeist-
arar. Mótið var haldið af Starfs-
mannafélagi Búnaðarbankans, (
tilefni af 50 ára afmæli þess.